BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230415
DTEND;VALUE=DATE:20230521
DTSTAMP:20260530T091628
CREATED:20230419T212604Z
LAST-MODIFIED:20230530T130137Z
UID:30478-1681516800-1684627199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Kristinn E. Hrafnsson: allt er nálægt
DESCRIPTION:Í sýningartexta Sigmundar Ernis Rúnarssonar\, sem hann nefnir Tími og fjarlægð\, segir: „Tíminn líður. Það er vissa okkar. Og líklega sannfæring. Kannski má það ekki minna vera. Frá skríkjandi æskunni kemur hann og fer. Heldur fálmandi. Og sjálfsagt er þar eitthvert öryggi komið. Því tímanum getur ekki verið öðruvísi varið. Hann kemur og fer\, hiklaus\, eindreginn. Eins og þráðbein lína. Skýr. Og það er hann í eðli sínu. Frá einum tíma til annars. Úr austri til vesturs. Og okkur mannkyninu er einhvern veginn komið fyrir innan þessara tímafreku átta. […]” \n„Tíminn er listamanninum Kristni E. Hrafnssyni hugstæður. En það er ekki nýtilkomið. Og sömuleiðis nálægðin\, svo áþreifanleg sem hún er á snúningi jarðar um öxul sinn\, frá vestri til austurs. Og þar vegur það smáa og stóra salt\, ásamt því beina og ávala. En þarna er listin komin\, Kristins sjálfs\, en líka bara afstaða hans og viðhorf\, því einhvern veginn vaknar maður – og á aðra vegu sofnar maður. Það er ramminn. Allt gerist þar\, utan og innan\, í misjafnlega skrifuðum strikum og sveigum.” \nKristinn E. Hrafnsson (1960) stundaði myndlistarnám á Íslandi og í Þýskalandi á árunum 1982-1990. Hann hefur að mestu unnið sem myndhöggvari\, þó hann hafi alla tíð einnig unnið í aðra miðla\, s.s. ljósmyndir og grafík og textaverk hans eru mörgum kunn. Kristinn hefur haldið tugi einkasýninga\, tekið þátt í miklum fjölda samsýninga og hann á verk í flestum opinberum söfnum á landinu. Þá á hann einnig listaverk víða um land á opinberum vettvangi.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/kristinn-e-hrafnsson-allt-er-nalaegt/
LOCATION:Hverfisgallerí\, Hverfisgata 4\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/04/DSC06498.102744.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210205
DTEND;VALUE=DATE:20220110
DTSTAMP:20260530T091628
CREATED:20210819T142932Z
LAST-MODIFIED:20220916T105746Z
UID:18485-1612483200-1641772799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Halló\, geimur
DESCRIPTION:Fjarlægar víðáttur í óendanlegum alheiminum hafa frá upphafi verið manninum hugleiknar og í aldanna rás hafa listamenn túlkað og tekist á við hugmyndir sínar um geiminn og miðlað þeim með fjölbreyttum hætti. \nÁ sýningunni Halló\, geimur er skyggnst inn í undraveröld himingeimsins með hjálp listaverka í safneign Listasafns Íslands. \nFramúrstefnuleg verk Finns Jónssonar\, sem fyrstur Íslendinga tókst á við geiminn í verkum sínum á fyrri hluta 20. aldar\, miðla óheftri tjáningu listamannsins á töfrum himintunglanna sem eru leiðarstef sýningarinnar. Leyndardómar Vetrarbrautarinnar sem aldnir spámenn afhjúpa með forsögnum sínum um veðurfar og forlög manna eru Hildigunni Birgisdóttur og Svavari Guðnasyni innblástur. Norðurljósabar Halldórs Ásgeirssonar leiftrar með litadýrð og innsetning Steinu Vasulka\, Of the North\, hrífur áhorfandann með sér í áhrifamikilli upplifun.\nÍ verkum Ásgríms Jónssonar og Guðmundar Thorsteinssonar (Muggs) frá fyrri hluta 20. aldar sjáum við hvernig himintunglin tengjast þjóðtrú og ævintýrum þar sem vættir birtast mannfólki í tunglsljósi og blessuð sólin breytir tröllum í stein þegar dagur rís. Á sýningunni eru einnig mörg verk frá 7. og 8. áratug 20. aldar þegar framfarir í geimvísindum voru stórstígar og maðurinn fór í fyrsta sinn út fyrir gufuhvolf jarðar. \nGeimurinn og listin eiga það sameiginlegt að vera forvitnileg og kvik\, þar er stöðug hreyfing og alltaf er maður að uppgötva eitthvað nýtt þegar maður skoðar listaverk. Með hjálp Tuma\, aðalpersónu bókarinnar Rauði hatturinn og krummi eftir Ásgerði Búadóttur myndlistarmann\, geta yngstu gestir safnsins skoðað sýninguna á aðgengilegan hátt\, sett upp gleraugu vísindamannsins og numið nýjan fróðleik! \nSýningarstjórar: Guðrún Jóna Halldórsdóttir og Ragnheiður Vignisdóttir \nVísindalegar staðreyndir: Sævar Helgi Bragason \nListamenn sem eiga verk á sýningunni: \nÁsgrímur Jónsson\nBjörg Þorsteinsdóttir\nErró\nEyborg Guðmundsdóttir\nFinnur Jónsson\nGuðmunda Andrésdóttir\nGuðmundur Thorsteinsson (Muggur)\nHalldór Ásgeirsson\nHelgi Þorgils Friðjónsson\nHildigunnur Birgisdóttir\nHildur Hákonardóttir\nHreinn Friðfinnsson\nJóhann Eyfells\nJón Gunnar Árnason\nKeith Grant\nKristinn E. Hrafnsson\nMargrét Elíasdóttir\nSigurjón Ólafsson\nSteina\nSvavar Guðnason\nSverrir Haraldsson\nVilhjálmur Bergsson\nÞorvaldur Skúlason
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hallo-geimur/
LOCATION:The National Gallery of Iceland\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/01/hallo-geimur-vefur-Listasafn-Íslands.jpeg
END:VEVENT
END:VCALENDAR