BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221124
DTEND;VALUE=DATE:20230130
DTSTAMP:20260530T040804
CREATED:20221117T144348Z
LAST-MODIFIED:20230130T164347Z
UID:27543-1669248000-1675036799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Flauelshryðjuverk – Rússland Pussy Riot
DESCRIPTION:Kling & Bang kynnir fyrstu yfirlitssýningu sem gerð hefur verið á pólitískum mótmælagjörningum femínsta listahópsins Pussy Riot í Rússlandi. \nÞegar Pussy Riot framdi gjörning sinn “Pönkbæn: María Mey\, hrektu Pútín á brott” í kirkju Krists í Moskvu árið 2012 kallaði andlegur ráðgjafi Pútíns\, Tikhon Shevkunov biskup\, það „flauelshryðjuverk“. \nÁ sýningunni verða gjörningar þeirra sem við þekkjum úr heimsfréttunum\, auk fjölda lítið þekktra gjörninga sem þær hafa framið jafnt og þétt í Rússlandi og nágrenni undanfarinn áratug\, og nýtt myndbandsverk sem tekið var upp í Reykjavík. Verkin spretta af brýnni þörf til að gera listræna uppreisn gegn kaldranalegu alræði. \nSýningin í Kling & Bang er gerð með Mariu (Möshu) Alyokhina\, lykilmeðlim í Pussy Riot\, og gefur þar að líta skrásetningar af gjörningum aðgerðasinnanna frá upphafi hreyfingarinnar árið 2011 til dagsins í dag. Gjörningarnir eru sýndir í samhengi – aðdragandi\, gjörningur\, viðbrögð – og varpa þannig ljósi á kúgun og hörku einræðisins sem hefur stigmagnast í Rússlandi síðustu tíu árin.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/flauelshrydjuverk-russland-pussy-riot/
LOCATION:Kling & Bang\, The Marshall House\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/11/Screenshot-2022-11-16-at-13.24.36.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221008
DTEND;VALUE=DATE:20221114
DTSTAMP:20260530T040804
CREATED:20221006T161738Z
LAST-MODIFIED:20221118T152244Z
UID:26815-1665187200-1668383999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Bergur Anderson: Collected Earworms / Elísabet Birta Sveinsdóttir: Mythbust
DESCRIPTION:MYTHBUST – ELÍSABET BIRTA SVEINSDÓTTIR\n\n“How many times do I have to die to get theeere?” Cindercat continually asks from inside its aluminum coffin. The cat desperately wants to move on to the next stage\, hoping the audience shares its desire to party in the afterlife. “A dream is a wish your heart makes”…\nCindercat moans and mjaws and yawns\, wags its long sexy cinder tail. It talks and sighs and shivers and shakes\, and sings a soothing song. Old tale\, new skin\, new shape.\n\nElísabet Birta Sveinsdóttir (f.1991) vinnur þvert á miðla\, með megin áherslu á gjörningarlist\, kvikmynd\, skúlptúr og innsetningu. Hún vinnur með eigin líkama og gjörninginn sem aðferð og efnivið og kannar táknheim sjónmenningar og kvikmyndagerðar í sögulegu samhengi og samtímanum. Verk hennar fjalla oft um hugmyndir kvenleika og eðli mannsins í samhengi við samband manneskjunnar við aðrar dýrategundir. Verk hennar hafa verið sýnd bæði hérlendis og erlendis\, meðal annars nýlega í Inter Pblc í Kaupmannahöfn\, Snehta í Aþenu og Mengi í Reykjavík.\n———————-\nCOLLECTED EARWORMS – BERGUR ANDERSON\nEarworms are undoubtedly bodily. \nCan’t they\, for minutes\, hours\, days\, take you over? possess you?\nthose sonic creepers\nthose infectious\, melodic devils\nthose little rhythmic stow-aways\, merrily sailing the waves of your consciousness.\n\nBergur Anderson (f. 1988) er myndlistarmaður og tónskáld. Í ferli hans finna kímerísk og ímynduð gæði hljóðs þverfaglegar útkomur í tímatengdum\, útgefnum og rýmiskenndum verkum. Verk hans hafa verið sýnd bæði hérlendis sem og erlendis\, meðal annars nýlega í Harbinger og Mengi. Fyrsta sólóplata hans\, Night Time Transmissions\, kom út hjá útgáfufélaginu Futura Resistenza árið 2021 auk þess sem hann gaf út bókverkið Poems í samstarfi við Katrina Niebergal.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/bergur-anderson-collected-earworms-elisabet-birta-sveinsdottir-mythbust/
LOCATION:Kling & Bang\, The Marshall House\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/10/311192841_801805714124172_19399449747018980_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220820
DTEND;VALUE=DATE:20220925
DTSTAMP:20260530T040804
CREATED:20220817T140400Z
LAST-MODIFIED:20221006T161202Z
UID:24678-1660953600-1664063999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Blowout
DESCRIPTION:Á sýningunni sýnir Joakim Derlow ný verk sem öll eru unnin útfrá hugmyndum um sögulegt samhengi rekaviðs og tengingar hans við þjóðsögu Grettis Ásmundssonar.\n\nVerkin eru kímið viðbragð við íslenskum sagnaheim og menningu þar sem hann skoðar þá brenglun og þann misskilning sem gjarnan á sér stað þegar erlendir gestir heyra staðbundnar sögur og staðreyndir.\nListamannateymið Ellinor Aurora Aasgaard og Zayne Armstrong sýna málverk og lágmyndir sem hafa skírskotanir til leiktjalda- og kvikmyndagerðar. Ummerki um neyslu einstaklingsins eru í forgrunni ásamt skírskotunum í afþreyingarmenningu sem gefa vísbendingu um hrörnun vestrænnar menningar. Snjallsíminn iCrack sem gerður er úr Wasa hrökkbrauði er auglýstur á sjónvarpsskjá\, skuggamynd gerfilims fellur á pizzakassa og Elsa í Frozen hefur undirgengist viðhald listamannanna.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/blowout/
LOCATION:Kling & Bang\, The Marshall House\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/08/299724096_761917144779696_3677913879797251571_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220602
DTEND;VALUE=DATE:20220725
DTSTAMP:20260530T040804
CREATED:20220530T161633Z
LAST-MODIFIED:20220530T161818Z
UID:23457-1654128000-1658707199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ingibjörg Sigurjónsdóttir: De rien
DESCRIPTION:Verið hjartanlega velkomin á opnun sýningarinnar De rien eftir Ingibjörgu Sigurjónsdóttur fimmtudaginn 2. júní kl. 17 í Kling & Bang. Á sýningunni stillir Ingibjörg fram þrettán nýjum höggmyndum\, teikningum\, lágmyndum og rýmisverkum\, sem unnin voru sérstaklega fyrir Kling & Bang. \nÍ tilefni af sýningunni kemur út fyrsta bók Ingibjargar\, Heiglar hlakka til heimsendis\, sem gefin er út af Tunglinu forlagi. \nÞessu lýkur öllu\, bara mishratt. Allt eyðist og máist út. Nema það sem skemmist og hverfur snögglega. Mig langar að stöðva tímann\, hægja á eyðileggingunni. Ekki glata mér eða þér. \nNúllið \ná núlli \nÞetta kemur alls ekki út á núlli. Eyðingin safnast upp. Litlaus hjúpur af hinu og þessu. Upplituð skel af engu. Upplitað núll. \nEn þetta ekkert\, þetta núll\, er samt til. Það er áþreifanlegt. Það er hægt að kveikja á því\, brenna það niður. Og þá fyrst mögulega er það orðið ekkert. En ég ætla ekki að gera það. Hah! Ég neita að brenna þetta núll. Það fer vel í hendi. Passar í lófann. Svindlar á kerfinu. Það er upplitað öðru megin. Litirnir eru að mást út. Sá skærbleiki orðinn föl ferskjuslikja\, blái reyndar ennþá sterkur\, týpískt. Ég hef ekki gætt þess nógu vel. Sólin sem ég elska\, dýrka og sakna skemmir allt. Og ég held kokhraust á engu. Það var ekkert. \nSýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík og er styrkt af Myndlistarsjóði \nIngibjörg Sigurjónsdóttir (f. 1985) lauk BA námi í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2010. Verk hennar eru höggmyndir sem tengjast gjarnan heilabrotum um mannlega tilvist\,\nlistina\, endimörk hennar og þanþol. Sýningar Ingibjargar eru innsetningar sem hún vinnur af hárnákvæmni inn í rými. Hún hefur m.a. haldið sýningar í Skaftfelli og Listasafni Reykjavíkur\, auk samsýninga í Gerðarsafni; 3 134\, Aþenu; GES-2\, Moskvu; Dimensions Variable\, Miami. Samhliða því að þróa sitt sérstæða tungumál sem myndlistarmaður hefur hún unnið í samstarfi með öðrum listamönnum\, sýningarstýrt fjölda sýninga og skrifað um myndlist. Ingibjörg býr og starfar í Reykjavík.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/ingibjorg-sigurjonsdottir-de-rien/
LOCATION:Kling & Bang\, The Marshall House\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/284374011_705100823794662_8082337889423472186_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220402
DTEND;VALUE=DATE:20220516
DTSTAMP:20260530T040804
CREATED:20220411T162257Z
LAST-MODIFIED:20220517T065323Z
UID:22949-1648857600-1652659199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Three Rearrangements - a Commonality of Escape
DESCRIPTION:Verið velkomin á opnun sýningarinnar Three Rearrangements – A Commonality of Escape. Á sýningunni sýna listamennirnir Daníel Ágúst Ágústsson\, Pétur Magnússon\, Pier Yves Larouche og Richard Müller glæný verk sem unnin eru sérstaklega inn í sali Kling & Bang. Sýningin stendur til 15. maí \nDaníel Ágúst Ágústsson (f.1996)\nUmfangsmiklir skúlptúrar og innsetningar Daníels Ágústs eru unnir með aðferðum og efnivið sem vísar í iðnað og arkítektúr. Verk hans reyna gjarnan á þekkingu áhorfandans á umhverfi sínu þar sem rýnt er í tengsl milli skilnings og skilningsleysis. Daníel Ágúst útskrifaðist með BA gráður í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2020 og hefur síðan þá verið iðinn í sinni myndlist. \nPier Yves Larouch (f. 1988) býr og starfar í Montreal. Verk Pier Yves birtast sem hljóðverk og innsetningar þar sem hann reynir að hlutgera samband óáþreyfanlegra og yfirséðra eiginleika ákveðins umhverfis\, svo úr verður einskonar könnun tákna og tilfinninga sem fljóta samhengislaust. Í verkum sínum bendir Pier Yves í átt að hinum fjölbreyttu blæbrigðum túlkunar og leitast hann við að varpa ljósi á óræðnina milli þess augljósa og algleymis. \nRichard Müller (f. Kanada 1988) býr og starfar í London. Richard notast gjarnan við stafræna tækni í verkum sínum\, oft á tíðum á vitlausan hátt\, til að skapa hljóðverk\, vídeóverk og innsetningar. Verk hans kanna möguleika og getu nútímatækni til að pota í hefðbundna miðla og form myndlistar með því að innleiða stafræn vídeó og hljóð í skúlptúra og innsetningar. Richard hlaut MFA frá Slade School of Art í Bretlandi og er nú í námi við University College London þar sem hann vinnur að doktorsgráðu í jarðfræði. \nPétur Magnússon (f. 1958) fæddist í Reykjavík. Eftir menntaskóla fór hann í Myndlista- og handíðaskóla Íslands og síðan áfram á Accademia delle belle Arti í Bologna\, Ítalíu og að lokum í Rijksakademie van Beeldende Kunsten í Amsterdam\, Hollandi. Að loknu námi árið 1986 var hann búsettur í Amsterdam til ársins 2003\, en flutti þá til Íslands. Í Hollandi tók hann þátt í stofnun listaverkabókabúðarinnar „Boekie Woekie“ sem jafnframt er gallerí og útgefandi. Hann starfaði með fyrirtækinu fyrstu árin. Boekie Woekie kynnti síðan verk hans á „Art Frankfurt“ listamessunni í Þýskalandi árið 1996. Pétur lærði málun á Ítalíu og grafík í Hollandi og eldri verk hans bera þess merki. Með tímanum hefur hann fært sig yfir í ljósmyndir og skúlptúr\, oft lágmyndir og einkennast aðferðir hans oft á blöndu af stálsmíði og ljósmyndun. Verk hans láta reyna á skynjunina og ögra henni meðan þau bjóða upp á nýja möguleika til að skynja umhverfið. Verkin eru oftar en ekki háð sýningarrýminu (e. site specific). Efni og fjarvídd spila oft stórt hlutverk í að eiga við umhverfið á heimspekilegan og skoplegan máta.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/three-rearrangements-a-commonality-of-escape/
LOCATION:Kling & Bang\, The Marshall House\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/04/277667646_664267977877947_4634642236920587214_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220205
DTEND;VALUE=DATE:20220321
DTSTAMP:20260530T040804
CREATED:20220202T091735Z
LAST-MODIFIED:20220404T154624Z
UID:21405-1644019200-1647820799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Helgi Hjaltalín Eyjólfsson: Haugsuga-Dreifari
DESCRIPTION:Helgi Hjaltalín opnar einkasýningu í Kling & Bang með glænýjum verkum\, laugardaginn 5.febrúar milli kl.14 og 18.. \nFjögurra þátta samtal\nEftir Jón B. K. Ransu \nÍ listgagnrýni samtímans berast raddir sem halda því fram að við séum ófær um að rýna í listaverk\, hvort sem það er kvikmynd\, tónlist eða myndlist\, nema að láta það í samhengi við önnur listaverk. Einhvern veginn minnir allt sem við sjáum\, eða sköpum\, okkur á eitthvað annað. Menning okkar er einfaldlega svo gegnsósa af ímyndum og upplýsingum að við höfum ekki undan að vinna úr þeim. Svo mögulega renna þær bara saman í eitt.\nSé þetta raunin heyrir ómengaði listamaðurinn\, hreinræktaði náttúrutalentinn eða sjálfsprottni snillingurinn\, sögunni til. Samtímalistamaðurinn bregst þess heldur við upplýsingum og ímyndum\, vinnur úr þeim og lætur í spennandi samhengi þannig að til verður samtal forma\, hugmynda og mynda\, sem við að einhverju leyti þekkjum en nálgumst mögulega á nýjan eða óvæntan hátt. \nÁ sýningu Helga Hjaltalín\, Haugsuga – dreifari í Kling og Bang\, eru helst fjórir þættir sem skarast og skapa þetta nauðsynlega samtal. Þeir eru: \n• Sagan og samtíminn\n• Frummynd og eftirmyndir\n• Hlutföll og rými\n• List og tómstundir \nSagan og samtíminn\nÍ sögulegu samhengi er myndmál Helga Hjaltalín skylt popplist sjötta og sjöunda áratugar síðustu aldar\, en popplistamenn véfengdu þáverandi gildi listarinnar og sköpuðu hliðstæður á milli myndlistar og dægurmenningar og neyslumenningar.\nÞessar hliðstæður renna saman í verkum Helga í einskonar ofneyslu á myndum. Annars vegar með fjölföldunar- og framleiðslutækni til að búa til endurtekningar af sömu myndinni og hins vegar samsetningu vatnslitaarka\, þar sem hver örk stendur sem sjálfstæð mynd eða málverk um leið og ákveðinn fjöldi þeirra sameinast í eina stóra vatnslitamynd.\nHelgi sækir myndefnið á internetið og færir yfir í hlutlæg listaverk. Í samtímalist hefur hugtakið Póst-internet list fengið hljómgrunn í greiningu á aðferðafræði margra listamanna og er áhugavert að skoða í tengslum við verk Helga\, án þess að ég vilji eyrnamerkja þau hugtakinu. Margt í Póst-internet list minnir á myndsköpun popplistar. Ekki síst þeirri er studdist við ljósmyndir fyrir málverk eða samklipp mynda. Póst-internet list er samt ekki liststefna í sama skilningi og popplist var á sínum tíma og hún á heldur ekki við um „list eftir internetið“ eins og t.d. póstmódernismi á við um „list eftir módernisma“. Póst-internet list á frekar við um list á tímum internetsins.\nLista- og fræðimenn eru ekki á eitt sammála um mikilvægi og merkingu hugtaksins\, eða hvernig internetið á að endurspeglast í listinni til þess að hugtakið eigi við. Í grunninn getum við sagt að internetið eigi hlut í listsköpunarferli ef notast er við efni þaðan. Margir gera þó kröfu um að hugtakið eigi eingöngu við ef einhverjir eiginleikar internetsins haldist líka í listrænni útfærslu\, t.d. eins og þegar Helgi sameinar margar vatnslitaarkir í eina mynd\, líkt og þegar pixlum er púslað í stafrænni myndvinnslu. \nFrummynd og eftirmynd\nÞegar Helgi sækir mynd á leitarvef internetsins\, og notar í eigin list\, ögrar hann hugmyndinni um eftirmynd og frummynd og tekur eignarnám á eitthvað sem annar hefur gert. Það er samt ekki sjálfgefið að mynd sem Helgi notar sé frummynd. Það má finna ofgnótt af sömu myndinni á netinu og yfirleitt vitum við ekki hver þeirra sé frummyndin\, né heldur hvort myndin sem við sjáum sé sönn frummyndinni eða ekki\, enda oft óljóst hvort mynd á netinu hafi verið breytt með einhverjum hætti eða ekki. Þannig geta hlutar af umhverfi og textar sem birtast í myndum Helga hafa verið skeytt inn í þær og skáldað\, rétt eins og listamaðurinn sjálfur tekur sér skáldaleyfi þegar hann útfærir þær í efni og form. \nHlutföll og rými\nAð sækja mynd af internetinu og yfirfæra eða túlka hana í efni og form\, breytir ekki einungis eðli hennar heldur gefur henni allt annað hlutverk út frá hlutföllum og rými. Slíkt skiptir miklu máli á sýningu Helga. Skúlptúr hefur\, í gegnum tíðina\, verið þungamiðjan í verkum hans. Eftir að vatnslitamyndir og þrykk fóru að bætast inn í mengið hefur það jafnan verið í einhverjum tengslum við skúlptúr.\nSkúlptúr tilheyrir raunrými. Mynd er hins vegar tvívíð og ber því að hugsa hana sem myndrými. Myndir geta samt storkað mörkum myndrýmis og raunrýmis ef umfang þeirra er blásið upp úr öllu valdi. Hjá Helga gerist það annars vegar með fyrrnefndum ofur stórum samsettum vatnslitamyndum og hins vegar með fjölföldun á myndum sem þekja rýmið og yfirtaka það að hluta. Að ógleymdum vatnslitamyndum af vélum sem hanga yfir vinnubrettum og hafa drukkið í sig vélarolíu þannig að lykt fer jafnvel að hafa áhrif á rýmisupplifun áhorfandans.\nSkúlptúrar á sýningunni spila hins vegar annað hlutverk. Þeir eru smækkaðar eftirmyndir\, eða módel\, af vélum og trépalli og sem slíkir birtast þeir í hlutfallslegu mótvægi við ofgnótt myndanna.\nMódel er jafnan hugsað sem staðgengill fyrir hlut í fullri stærð og sýnt sem tillaga að honum. Þannig má horfa á módel Helga sem tillögu að annarri sýningu samhliða því að vera partur af sýningunni sem er. Módelin standa því sem skúlptúrar og tillögur að skúlptúrum í senn. \nList og tómstundir\nMódelin snerta mörkin á milli listsköpunar og tómstunda\, en módelsmíðar eru þekkt tómstundariðja sem krefst ákveðinnar handverks- og verkþekkingar. Sérstaklega ef það er smíðað frá grunni. Þessi mörk listsköpunar og tómstunda\, eða heimatilbúins handverkshlutar\, eru Helga hugleikin og birtist í aðferðum og efnisvali listamannsins. Smáskúlptúrarnir eru tálgaðir úr tré\, myndefnið tilbúið og fundið\, allar þrykkaðferðir listamannsins heimatilbúnar og vatnslitamálun er vafalaust sá hluti málaralistar sem helst nær til tómstundaiðju. Allt stríðir þetta gegn upphafningu myndlistar þrátt fyrir að falla undir efni og aðferðir sem tilheyra listinni.\nÞegar popplistamenn véfengdu gildi listarinnar réðust þeir einmitt gegn upphafningu og höfnuðu sannleiksgildi módernismans\, s.s. hreintrúarstefnu strangflatarlistar og sjálfsprottnu sköpunarferli abstrakt expressjónismans.\nÞað fer ekki á milli mála að aðferðir og myndefni Helga Hjaltalín stríða gegn upphafningu listarinnar\, en sjálf sýningin hafnar einnig sannleiksgildi hennar. Hliðstæðurnar sem hafa verið dregnar hér að ofan eru einungis áminning um að listsköpun hefur miklu meira með samtal að gera en sannleiksgildi. Og fyrir mitt leyti er sýningin vettvangur þessa. Vettvangur fyrir þátttöku í samtali forma\, hugmynda og mynda sem við að einhverju leyti þekkjum en nálgumst mögulega á nýjan eða óvæntan hátt.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/helgi-hjaltalin-eyjolfsson-slurry-pump-spreader/
LOCATION:Kling & Bang\, The Marshall House\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/02/helgi-slurry.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211204
DTEND;VALUE=DATE:20220124
DTSTAMP:20260530T040804
CREATED:20211129T121214Z
LAST-MODIFIED:20220124T113415Z
UID:20420-1638576000-1642982399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Fylgjur
DESCRIPTION:Kling & Bang býður ykkur velkomin á opnun sýningarinnar Fylgjur\, samsýningar Höllu Einarsdóttur\, Hönnu Kristínar Birgisdóttur og Smára Rúnars Róbertssonar. Sýningin opnar laugardaginn 4. desember nk. milli 16 og 19\, og stendur til 23. janúar nk. \nKl. 18 á opnunardaginn mun Halla Einardsóttir flytja gjörning. \nHalla Einarsdóttir (f. 1991) er íslenskur listamaður sem býr og starfar í Rotterdam þar sem hún lauk MFA námi frá Piet Zwart Institute síðastliðin júlí 2021. Þar áður útskrifaðist hún með BA í grafískri hönnun frá Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam 2016. Í þverfaglegum verkum sínum veltir Halla fyrir sér hvernig goðsagnir\, þjóðsögur og minni hafa í gegnum tíðina verið nýtt til þess að koma á og viðhalda stigveldi þekkingar. Þannig rannsakar hún hvernig þekking berst milli kynslóða\, hvað misferst á leiðinni og margþætt eðli þess að endurheimta nöfn og frásagnir. Hinar ýmsu heimildir og sögulegur efniviður verkanna hefur svo áhrif á flutning handritanna\, þar sem ákveðin minni og mótíf kalla fram ákveðna raddbeitingu\, takta og kóreógrafíu. Halla hefur tekið þátt í ýmsum sýningum erlendis og á Íslandi. \nHanna Kristín Birgisdóttir (f. 1989) er íslenskur myndlistarmaður sem býr og starfar í Bergen\, hún útskrifaðist frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2014 og úr framhaldsnámi frá Listaháskólanum í Bergen árið 2020. Hanna hefur tekið þátt í sýningum bæði hér á landi og erlendis. Meðal sýningarverkefna hennar eru: Þögul athöfn í Skaftfelli Seyðisfirði og Eins og samanþjöppuð öndun sem verður að þunnu háu hljóði\, Kling&Bang\, hluti af Sequences Art Festival. \nSmári Rúnar Róbertsson (f. 1992) er íslenskur listamaður sem býr og starfar í Amsterdam. Verk Smára einkennast af greiningu á listrænu ferli\, þjóðsögum og merkingu. Með samsetningu ferlis\, innsetninga og skrifa leitar hann marka ímyndunnar og áþreifanleika til þess að skoða þau kerfi sem stjórna umhverfi okkar\, sögu og sjálfsmynd. Verk Smára standa sem skráð líkamstjáning sem vísar um leið til eigin framleiðslu. Vinna í verkum Smára má þannig líta á sem áþreifanlegt efni sem er teygt\, þjappað og mótað í takt vitundar\, endurtekningar og fróðleiks. Smári útskrifaðist með BFA frá Gerrit Rietveld Academie 2015 og með MA frá Sandberg Instituut í Amsterdam 2017. Hann hlaut 3Package Deal talents styrk Amsterdams Funds voor de Kunst and Bureau Broedplaatsen árið 2017.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/fylgjur/
LOCATION:Kling & Bang\, The Marshall House\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/11/fylgjur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211016
DTEND;VALUE=DATE:20211122
DTSTAMP:20260530T040804
CREATED:20211014T122500Z
LAST-MODIFIED:20211122T144344Z
UID:19655-1634342400-1637539199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:SEQUENCES X - / SKÖPUN / EYÐING /
DESCRIPTION:/ SKÖPUN / EYÐING / er titill sýningar Sequences í Marshallhúsinu sem tekur yfir sýningarrými Nýlistasafnsins og Kling & Bang. Titill sýningarinnar er vísun í texta Sigurðar Guðmundssonar\, TÍMI\, sem er til sýnis á hátíðinni og hægt er að finna á heimasíðu hátíðarinnar og sýningarskrá: \nTíminn er mikilvægur þáttur í allri list. Listin er mjög heppileg aðferð til að ferðast í tíma og rúmi. Flestar leiðir til nýrra tíma liggja gegnum listaverk.  \nVið skynjum nýja myndlist\, en hún opnar okkur nýjan heim sem er ekki draumur heldur veruleiki. Við látum gamla heiminn lönd og leið\, höldum þó eftir nokkrum pinklum\, eilitlum menningarlegum farangri eða lögvernduðum listaverkum. Af þeim getum við séð hvar við vorum stödd. \nTíminn eyðir öllu. Eftilvill eiga menjar mannsandans\, sönnunargögn sannleikans\, listaverkin\, sér þó mestar lífslíkur. \nSigurður Guðmundsson\nnóvember 1969\nFyrirlestur fluttur í Norræna húsinu\, Reykjavík \nListamenn Kling & Bang: \nAndreas Brunner (f. 1988) fæddist í Zurich í Sviss og býr nú í Reykjavík. Verk hans eru yfirleitt ekki sérstaklega bundin ákveðnum miðli\, heldur tengjast þau endurskoðun á hugmyndum sem geta birst í ýmsum myndum. Þessar hugmyndir fjalla um þróun menningar\, merkingar og skynjun á tíma\, rúmi og efni. Þannig myndast þráður verka hans í hugmyndinni frekar en því sjónræna. Að aftengja mynd og merkingu\, og skapa nýja\, má líta á sem heildarhvata verka hans. \nÁsta Fanney Sigurðardóttir (f. 1987) er listakona og skáld. Hún vinnur meðal annars með tóna\, hljóð og orð í verkum sínum\, ásamt gjörningum. Verk hennar hverfast oft um hið óvænta og fáránlega þar sem mörk ólíkra miðla mást út. Árið 2018 sýndi hún gjörningaverkið Lunar-10.13 & Gáta Nórensu á Listahátíð í Reykjavík\, þar sem ljóð\, tónlist\, innsetningar og gjörningar runnu saman í eitt. Meðal verka hennar er þorskaópera\, raulkórverk\, hljóðaljóðakórverk og sérhljóðatónverk. Nýjasta bók hennar nefnist Gluggi – draumskrá sem er skrásetning á draumum. Ásta hefur flutt tónverk sín\, ljóð og gjörninga á ýmsum hátíðum og sýningum bæði hérlendis og erlendis. Hún var handhafi Ljóðstafs Jóns úr Vör árið 2017 og var tilnefnd til Bernard Heidsieck-verðlaunanna í Pompidou árið 2021. \nTónsmíðar Bergrúnar Snæbjörnsdóttur (f. 1987) hafa verið fluttar í formi kammer- og hljóðverka víðsvegar um Evrópu\, Bandaríkin  Ástralíu og í Asíu af hópum eins og Oslo Philharmonic (NO)\, International Contemporary Ensemble ICE (US)\, Sinfóníuhljómsveit Íslands\, Nordic Affect (IS)\, Avanti! Kammersveit (FI) og fleirum. Hún er handhafi Hildegard verðlauna The National Sawdust árið 2019. Þá hafa verk hennar verið valin til flutnings á virtum tónlistarhátíðum eins og Mostly Mozart Festival í Lincoln Center (New York)\, ISCM World Music Days (Peking)\, Sound of Stockholm\, Ultima Festival (Oslo)\, Nordic Music Days (London\, Bodø\, Reykjavík)\, Only Connect (Oslo)\, SPOR (Árósir)\, Tectonics Music Festival (Glasgow/Reykjavík)\, Prototype (New York)\, Classical NEXT (Rotterdam) og KLANG (Kaupmannahöfn) auk annarra viðburða. \nNýlókórinn var stofnaður 2003 og fæst við flutning hljóðljóða. Kórinn kemur fram tvisvar til þrisvar á ári og hefur flutt margvísleg verk eftir innlenda og erlenda höfunda eins og Magnús Pálsson\, Philip Corner\, Eric Andersen\, Hörð Bragason\, Kristin G. Harðarson\, Rúrí\, Hörpu Björnsdóttur\, Ástu Ólafsdóttur\, Eiríksínu Ásgrímsdóttur\, Áka Ásgeirsson\, Magneu Ásmundsdóttur\, Þorkel Atlason\, Rod Summers\, Níels Hafstein\, Guðmund Haraldsson og Magnús Jensson.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sequences-x-skopun-eyding/
LOCATION:Kling & Bang\, The Marshall House\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/gif:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/lighter.gif
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210821
DTEND;VALUE=DATE:20211004
DTSTAMP:20260530T040804
CREATED:20210819T145728Z
LAST-MODIFIED:20210927T125803Z
UID:18508-1629504000-1633305599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Erik DeLuca & Þóranna Dögg Björnsdóttir: Unheard of
DESCRIPTION:Það er Kling & Bang sérstök ánægja að opna sýninguna Unheard of\, laugardaginn 21. ágúst á milli kl.14-18. \nÁ sýningunni eru ný verk eftir Erik DeLuca í samvinnu við Julius Rothlaender og Melitta Urbancic og Þórönnu Dögg Björnsdóttur í náinni samvinnu við Derrick Belcham. Með þessari sýningu teygir listafólkið sig frá hljóðverkum sínum yfir í samræðuferli við hljóð – og\, eða þagnir – með snertingu og í nærveru\, fjarveru og tilhugsun líkama sem hreyfast um mismunandi rými. Upphafspunktur sýningarinnar liggur í þessari hreyfingu. Rannsóknir\, skáldskapur\, hljóðupptökur\, skjalagreining\, plönturæktun og alltumlykjandi hljóðinnsetning\, eru kynnt fyrir áhorfendum. \nBáðir listamennirnir unnu í samvinnu við aðra listamenn og einstaklinga við gerð þessa verka. Þeir vilja þakka þessum einstaklingum fyrir örlæti sitt sem og öðrum. Þar á meðal Julius Rothlaender\, Katherine Caldwell\, Sölvi Björn Sigurðsson\, Olivia Gauthier\, Árni Heimir Ingólfsson\, Aymeric Duriez and Derrick Belcham\, LungA School community in Seyðisfjörður\, Sibyl Urbancic\, Magnús H. Jóhannsson (Landgræðslan)\, Þjóðskjalasafn Íslands (National Archives of Iceland)\, and the Jewish Center of Iceland\, Þorvarður Árnason\, Soffía Auður Birgisdóttir\, Ingibjörg Friðriksdóttir\, Curver Thoroddsen\, Kolbeinn Soffíuson\, Federico Placidi\, Vernharður Bjarnason\, Hjálmur Ragnarsson\, Árni Björnsson\, Arngrímur Guðmundsson\, Amanda Riffo\, Guðrún Lárusdóttir\, Brynja Emilsdóttir\, family and friends. \nErik DeLuca er mynd- og tónlistarmaður sem vinnur með gjörninga\, skúlptúr og texta\, í samræðu við samfélagslegar venjur og gagnrýni. Verk hans hafa verið sýnd víða\, meðal annars í MASS MoCA\, Listaskólanum í Chicago\, Sweet Pass skúlptúrgarðinum\, The Contemporary Austin\, Nýlistasafninu í Reykjavík\, Columbia-listaskólanum\, Skowhegan-listaskólanum\, CalArts\, Bemis nýlistamiðstöðinni\, Fieldwork: Marfa og Yale-listaháskólanum. Skrif hans hafa verið gefin út í Public Art Dialogue (Taylor & Francis)\, Organised Sound (Cambridge University Press)\, Leonardo Music Journal (MIT Press) og Mousse. Hann lauk doktorsnámi í tónlist frá Virginiuháskóla (2016)\, dvaldi í Myanmar með styrk frá Asíska menningarráðinu (2018) og kenndi við Listaháskólann í Reykjavík (2016-18). Nú um stundir er hann gestaprófessor við tónlistar- og margmiðlunardeild Brown-háskólans og heldur fyrirlestra í grunnámi við Rhode Island hönnunarskólann. \nÞóranna Dögg Björnsdóttir er hljóð- og myndlistarmaður og tónskáld | flytjandi. Þóranna stundaði tónlistarnám frá unga aldri og lauk burtfararprófi í klassískum píanóleik frá Tónlistarskóla FÍH. Hún lauk BA gráðu í hljóð- og myndlist frá Konunglega Listaháskólanum í Haag árið 2006 og M.Art.Ed gráðu í kennslufræði lista við Listaháskóla Íslands árið 2014. Þóranna hefur sótt ýmis námskeið og vinnustofur í tengslum við tónlist\, hljóð- og myndlist og staðið að kennslu í þeim efnum. Viðfangsefni Þórönnu eru mörg og fjölbreytt en snúast gjarnan um heimssýn einstaklingsins\, hvernig hún mótast og þróast. Verkefnin fela í sér þverfagleg vinnubrögð og þreifingar þvert á miðla og eru verk hennar gjarnan sambland af mynd og hljóði; taka form í gegnum lifandi gjörninga\, innsetningar\, skúlptúra og hljóðverk. Verk Þórönnu hafa verið flutt víða og hefur hún komið fram á fjölmörgum tónleikum og listahátíðum á Íslandi og erlendis. Þóranna starfar einnig með listahópnum Wunderland. \nDerrick Belcham er kanadískur kvikmyndagerðarmaður sem býr í Brooklyn\, New York og hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir gerð heimildarmynda og tónlistarmyndbanda. Hann hefur unnið með listafólki á borð við Philip Glass\, Steve Reich\, Laurie Anderson\, Paul Simon og hundruðum annarra við tónlist\, dans\, leikhús og byggingarlist. Hann hefur unnið verk og haldið fyrirlestra við stofnanir á borð við MoMA PS1\, MoCA\, Solomon R. Guggenheim-safnið\, Whitney-listasafnið\, Musee D‘Art Contemporain\, Philip Johnson glerhúsið\, Tónlistarakademíuna í Brooklyn og Nýlistamiðstöðina í Cincinnati. Verk hans birtast reglulega í The New York Times\, Vogue\, Pitchfork\, NPR og Rolling Stone\, auk þess sem þau eru sýnd á stuttmynda-\, dans- og gjörningalistahátíðum og yfirlitssýningum um allan heim. \nSýningarstjórar: \nAna Victoria Bruno \nBecky Forsythe
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/erik-deluca-thoranna-dogg-bjornsdottir-unheard-of/
LOCATION:Kling & Bang\, The Marshall House\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/unheard-of.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR