BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211118
DTEND;VALUE=DATE:20211230
DTSTAMP:20260530T165552
CREATED:20211122T153810Z
LAST-MODIFIED:20220825T131940Z
UID:20284-1637193600-1640822399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Katrín Matthíasdóttir: Hitt kynið
DESCRIPTION:Titill sýningarinnar Hitt kynið er fenginn að láni frá grundvallarriti femínískra fræða Le Deuxième Sexe eftir skáldið Simone de Beauvoir\, en ritið kom út árið 1949.\nSýningin er óður til kvenna – móður minnar og allra kvenna\, ásjóna fáeinna er fest hér á pappír\, hinar eru með okkur í anda.buy clomid online https://gaetzpharmacy.com/clomid.html no prescription\n\nHvað hefur það í för með sér að vera kona í dag? Þið megið sko bara spá í það sjálf. Til dæmis hér og nú – eða á eftir – eða síðar.\nSimone de Beauvoir ferðaðist um Ísland árið 1951 með lífsförunaut sínum\, heimspekingnum Jean-Paul Sartre. Ef Mokka kaffi hefði verið til þá\, er nokkuð ljóst að þau hefðu fengið sér kaffi þar og með því. Sjö árum seinna eða árið 1958 opnar Mokka Kaffi og sama ár kom önnur kona til Íslands\, sú kom frá Þýskalandi. Þetta var mamma mín. Hún skellti sér ekki bara einu sinni heldur margoft á Kaffihúsið við Skólavörðustíginn og þegar við systkinin þrjú urðum eldri nutum við þess einnig að sitja í bás\, drekka kakó og borða vöflur með foreldrum okkar. Reyndar sá faðir minn lengi vel ekki tilgang með því að fara á kaffihús þegar maður gat drukkið kaffi heima hjá sér og var hann orðin 27 ára þegar hann áttaði sig á villu síns vegar. En þá varð 180 gráðu kúvending – enda var hann kallaður höfðingi slæpingjanna um tíma vegna tíðra kaffihúsaheimsókna. Kaffihúsagenið erfist til dóttur\, þrír synir fylgja og eiginmaðurinn verður fyrir innblæstri á kaffihúsi.\nKonan mín sýnir af kraftmiklum þokka\nkynstrin vill gjarnan að myndunum lokka\ná könnunni er heitt\nþað kostar ei neitt\nað kíkja í bæinn á Kaffi Mokka\nSýningin er sölusýning\, þeir sem hafa áhuga á að eignast verk hafi samband við Katrínu í síma 845 1468 eða láta skrá niður pantanir hjá starfsfólki Mokka.\nSýningin er opin daglega frá kl. 9 – 18 og stendur til 29. desember.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/katrin-matthiasdottir-hitt-kynid/
LOCATION:Mokka Kaffi\, Skólavörðustígur 3A\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/11/hitt-kynid.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR