Eilíf endurkoma

Reykjavík Art Museum - Kjarvalsstaðir Flókagata 24,, Reykjavík, Iceland

Á þessari viðamiklu sýningu mynda verk Jóhannesar S. Kjarvals (1885-1972) þráð sem tengir tvenna tíma. Hér er verkum hans teflt fram ásamt verkum myndlistarmanna sem sett hafa svip sinn á íslenskt listalíf síðustu ár. Skömmu eftir andlát Kjarvals ritaði Björn Th. Björnsson (1922-2007) listfræðingur grein þar sem hann fjallar um framlag Kjarvals til íslenskrar listasögu …

Eilíf endurkoma Read More »

Iðustreymi

Listasafn Árnesinga Austurmörk 21, Hveragerði, Iceland

Gjörningaklúbburinn, Katrín Elvarsdóttir, Kristín Gunnlaugsdóttir, Sara Björnsdóttir, og Elísabet Jökulsdóttir Aqua Maria – Gjörningaklúbburinn Í verkinu Aqua Maria er sópransöngkona í rými sem svipar til gufubaðs en eftir því sem á líður verður rýmið óræðara. Á meðan söngnum stendur myndast vatnsdropar á hári hennar og andliti, þéttast og þyngjast þangað til að þeir streyma niður andlitið. Vídeóið hverfist …

Iðustreymi Read More »

Abrakadabra

Reykjavík Art Museum - Hafnarhúsið Tryggvagata 17, Reykjavík, Iceland

Við kynnumst töfrum samtímalistar á þessari skemmtilegu sýningu fyrir alla sem vilja sjá ný og spennandi verk eftir núlifandi listamenn. Markmiðið er að gera heim samtímalistar aðgengilegan. Í verkunum má sjá fjölbreytileika listarinnar, þau höfða til ímyndunaraflsins og skynfæranna, þar er fjallað um líkamann, sjálfsmyndina, náttúruna, samfélagið og ótal margt fleira. Við bjóðum unglinga, ungmenni og …

Abrakadabra Read More »

Katrín Elvarsdóttir: Söngfuglar

Hafnarborg Center of Culture and Fine Art Strandgata 34, Hafnarfjörður, Iceland

Á Kúbu eru miklar líkur á því að stakur söngfugl í búri verði á vegi ferðamanna áður en langt um líður – en rík hefð er fyrir því að halda söngfugla á eynni, sem hluti af menningararfleifð eyjarbúa. Katrín Elvarsdóttir kynntist þessu sjálf á ferðalagi sínu til Kúbu fyrir nokkru síðan en það voru einn …

Katrín Elvarsdóttir: Söngfuglar Read More »

Svarthvítt

Akureyri Art Museum Kaupvangsstræti 8-12, Akureyri, Iceland

Andstæður og ólíkir hlutir, viðhorf og sjónarhorn. Það sem skilur okkur að getur einnig tengt okkur saman. Fimm listamenn sem vinna með svart-hvítar ljósmyndir eiga verk á þessari sýningu. Listamennirnir nálgast viðfengsefnin á ólíkan hátt og myndefnin eru einnig margvísleg: landslag, fólk, sögur, staðir og stemning. Andstæður og ógnir, rólegheit og væntumþykja og fjölmargar birtingarmyndir …

Svarthvítt Read More »