BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210925
DTEND;VALUE=DATE:20211122
DTSTAMP:20260530T092005
CREATED:20210921T133253Z
LAST-MODIFIED:20211122T145155Z
UID:19282-1632528000-1637539199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Anna Júlía Friðbjörnsdóttir og Karlotta Blöndal: Slóð
DESCRIPTION:Sýningin Slóð er samsýning myndlistarmannanna Önnu Júlíu Friðbjörnsdóttur og Karlottu Blöndal. Verkin vinna þær í sitt hvoru lagi en vísa báðar í fornleifafundinn á Vestdalsheiði árið 2004 sem samanstóð af mannabeinum\, skartgripum og glerperlum og er talinn vera frá miðri tíundu öld. Anna Júlía vinnur einnig með fjarskiptatækni sem hefur tengingu við tæknisögu Seyðisfjarðar. \nÍ verkum Önnu Júlíu berast ávörp úr fortíð og inn í nútíð og milli manns og náttúru. Þeim er ætlað að berast á milli tveggja heima en flakka í rauninni á milli óravídda. Bæði efniviður og framsetning verka Önnu Júlíu tvinna saman staðbundna menningarsögu og heimspekilegar vangaveltur um skilaboð sem ferðast fram og aftur í tíma. Koparplötum er raðað upp í Morse-kóða sem stafar fjarskiptamerkið QSB sem er Q-mál og merkir “Are my signals fading” (ísl. „Hafa merki mín dofnað“). Plöturnar eru þurrnálristur af klettum og fjallshlutum umhverfis Seyðisfjörð. Í öðru verki eru perlur þræddar á koparvír og stafa orðið „Slóð“ í Morse-kóða. Koparinn hefur áþreifanlegar og huglægar tilvísanir í boðskipti og þjónar sem eins konar milliliður áhorfanda og óræðs viðtakanda. Í þunnu pappírstjaldi sem hangir úr loftinu er setningin „Snjóaði í logni við og við í gær“ götuð í pappírinn með aðferð gataborðanna sem notaðir voru við flutning skeyta í gamla ritsímanum. Skilaboðin er fengin úr veðurskýrslu frá Seyðisfirði frá 1952. \nVerk Karlottu hverfast um fjallkonuna sjálfa og fundarstað munanna. Hún kannaði staðinn nokkrum sinnum í sumar og vann þar verk undir berum himni í tilraun til að fanga umhverfið og stemninguna á svæðinu. Við túlkun sína og skrásetningu vann hún undir formerkjum og aðferðafræði myndlistar en til hliðsjónar nýtti hún sér rannsóknir Rannveigar Þórhallsdóttur fornleifafræðings sem skrifaði um fundinn í meistararitgerð sinni. Skrásetningin af svæðinu er í formi verka sem eru annars vegar abstrakt og hins vegar raunsæisleg teikning í anda ferðabóka 18. aldar. Form abstrakt verkanna á striga eru sótt í skipulagsteikningu fornleifafræðinganna af staðnum og er áferðin fengin með snerti þrykki. Litirnir vísa til hinna marglitu perla sem fundust þar. Með verkinu yfirfærir Karlotta staðinn inn í sýningarrými Skaftfells. Auk þess vinnur hún með getgátur um hver fjallkonan og örlög hennar hafi mögulega verið og varpar þannig fram vangaveltum um bæði meðvituð og ómeðvituð viðhorf okkar gagnvart túlkun okkar á horfnum tíma. \nÚrvinnsla og framsetning á verkum Karlottu og Önnu Júlíu opnar á hugleiðingar um tíma og rúm sem þær þræða sig í gegnum og skapa með útkomu sinni vettvang þar sem nútími og fortíð mætast. Á hvaða leið voruð þið og á hvaða leið erum við? Við tökum við endanum á þræðinum og leiðum hann áfram. \nVið viljum þakka Rannveigu Þórhallsdóttur\, fornleifafræðingi\, Zuhaitz Akizu\, forstöðumanni Tækniminjasafns Austurlands\, Pétri Kristjánssyni\, fyrrum forstöðumanni Tækniminjasafns Austurlands\, Grétari Einarssyni\, fyrrum starfsmanni gömlu ritsímastöðvarinnar á Seyðisfirði\, kærlega fyrir upplýsingagjöf við undirbúning sýningarinnar. \n  \nÞað sem að við höldum að hafi gerst.   \nSlóð / Trace\, Skaftfell \nTexti eftir Starkað Sigurðarson \nSamskipti byrjuðu sem einföld skilaboð. Brosa\, gretta\, kinka kolli\, hrista haus\, hægri\, vinstri\, þú\, ég\, af\, á. Við þurftum að vera nálægt hvor öðru; ég gat sagt eitthvað við þig og síðan þú eitthvað við mig. Svo fórum við að útfæra flóknari boð og síðan boð sem náðu yfir okkar löngu vegalengdir. En þó tungumálið yrði stærra og nákvæmara og samskipti dýpri þá vitum við líka að skilaboð\, tungumál\, samskipti eru ófullkomin\, óljós\, það er hægt að misskilja\, túlka skakkt. Og vitandi það þá færist ábyrgðin frá tungumálinu til þeirra sem færa skilaboðin á milli – til þess sem sendir út skilaboðið og til þess sem tekur við þeim. Eru þessi skilaboð fyrir mig? Er verið að segja mér þetta\, eða þetta? Skil ég þetta rétt? Er þetta sem ég fann – lík\, perlur\, hnífur\, í hellisskúta uppi á heiði – að segja mér eitthvað? Er það mitt að svara? \nTíminn er alltaf hluti af samskiptaboðum öllum; samskipti eiga sér stað í gegnum tíma. Tíminn getur líka bjagað skilaboð\, slitið þau\, alveg eins og tíminn getur geymt slóða og borið eitthvað ótrúlegt. Svo ótrúlegt stundum að ekki er augljóst hvað það er sem við sjáum fyrir framan okkur eða hverju á um það að trúa. Áminning um að það sem við vitum er að við getum ekki vitað allt fyrir víst. Getum ekki vitað alveg hvað er verið að segja okkur. Og við það opnast á eitthvað\, allt verður svo sem mögulegt. Sem er kannski ógnvekjandi en er líka hversdagslegt\, venjulegt. Þegar möguleikarnir eru margir þá þurfum við að túlka og giska. Eins og við giskum um veðrið eða áttir eða þegar við skynjum að þögnin í jarðarför þýðir eitthvað eða í samskiptum við einhvern sem maður elskar. Þagnirnar eins mikilvægar auðvitað og hljóðin eða hreyfingarnar\, þagnirnar í morskóðuðu skilaboði jafnt og pípin\, etc.  \nOg þannig giskum við hér: Hvað væri ég að gera uppi á heiði? Hverju trúi ég um framtíðina? Af hverju væri ég með perlur? Allar þessar perlur og hníf? Ung manneskja uppi á heiði. Að finna mér skjól til þess að deyja eða til þess að lifa af? Rétt áður en þú hverfur í 1000 ár. Það finnast þó ekki allir aftur. \nÞað eru endalausar spurningar. Er þetta um sumar eða vetur? Ertu lifandi á þínum eigin fótum eða ertu dáinn og einhver heldur á þér? Kannski ertu völva sem spáir fram í tímann og sérð dauða þinn fyrir – eða giskar allavegana til um hann. Kannski ertu þjófur sem tókst perlurnar\, hlaupst á brott\, en náðir ekki nógu langt. Síðustu orðin? Ég veit það ekki.  \nEf við erum að giska þá getur allt verið tungumál\, merking\, samskipti. En að giska er það sem við gerum\, getum ekki nema. Og jafnvel þó að við ímyndum okkur að það sem við\, með okkar bestu getu\, höfum giskað á\, að það sem að við höldum að hafi gerst\, sé rétt\, þá vitum við að það fæst aldrei alveg staðfest. Við eigum eftir að giska annað í dag heldur en á morgun. Þú átt eftir að giska annað en ég. Ef til vill giskum við betur í dag með öðruvísi tólum og öðruvísi samfélagi heldur en þegar lík eða leirpottur eða málverk fannst fyrir 100 eða 1000 árum. Og kannski einhvern tímann munum við vita allt um þetta allt og getum átt samskipti án efa en í dag þurfum við ennþá að elska að horfa og hugsa og giska.   \nKannski er þá skilaboðið hér\, merkingin\, að við fundum þessa manneskju aftur. Kannski væri manneskjan þakklát fyrir það. Að þessi manneskja getur sagt núna\, sjáðu þetta\, hérna\, það sem ég er með. Perlurnar ennþá fallegar. Skúti ennþá skjól. \n  \nAnna Júlía Friðbjörnsdóttir (f. 1973) býr og starfar í Reykjavík. Hún vinnur þvert á miðla og skoðar mengið á milli vísinda og menningar í verkum sem taka mið af samtíma og sögulegum málefnum. Hún lauk MA gráðu frá Manchester School of Arts\, Manchester Metropolitan University\, 2004 og BA Fine Art (Hons) gráðu frá London Guildhall University 1998. Áður stundaði hún nám við Myndlista og handíðaskóla Íslands 1993-95. Anna Júlía starfaði sem verkefna- og sýningarstjóri í i8 gallerí 2008-2015 og var meðstofnandi og ritstjóri myndlistartímaritsins Sjónauka sem var gefið út á árunum 2007-2009. Hún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og haldið fjórar einkasýningar á Íslandi en hún var tilnefnd til Íslensku myndlistarverðlaunanna 2018 fyrir sýninguna Erindi í Hafnarborg. \nKarlotta Blöndal (f. 1973) býr og starfar í Reykjavík. Hún vinnur í mismunandi miðlum\, allt frá teikningu\, málun\, útgáfu\, umhverfisverka og gjörninga. Verk hennar kanna mörk og blöndun vídda\, þess andlega og efnislega\, þess er tengist skynjunum og þess fræðilega. Oft er ákveðinn staður viðfangsefni verkanna\, þau eru gjarnan gjörningatengd og fela í sér þátttöku af einhverju tagi. Karlotta lauk MA gráðu frá Konsthögskolan i Malmö\, 2002 og BA gráðu frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands\, 1997. Auk þess að vera starfandi myndlistarmaður tekur hún reglulega þátt í listamannareknum verkefnum. Hún hefur bæði ritstýrt og verið meðútgefandi tímaritsins Sjónauka (tímarit um myndlist og fræði) og kemur reglulega að myndlistarkennslu. Hún er meðlimur í þverfaglega samstarfinu Könnunarleiðangurinn á Töfrafjallið\, 2013-2020.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/anna-julia-fridbjornsdottir-og-karlotta-blondal-slod/
LOCATION:Skaftfell- Center for Visual Art\, Austurvegur 42\, Seyðisfjörður\, 710\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/09/trace.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210902
DTEND;VALUE=DATE:20211115
DTSTAMP:20260530T092005
CREATED:20210830T122814Z
LAST-MODIFIED:20220916T110521Z
UID:18780-1630540800-1636934399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:FJÖLFELDI - HLUTFELDI - MARGFELDI
DESCRIPTION:Listasafn Reykjanesbæjar opnar sýningu í samvinnu við MULTIS. \nAðstandendur verkefnisins eru: Helga Óskarsdóttir\, Ásdís Spanó og Kristín Jóna Þorsteinsdóttir. \nMULTIS sérhæfir sig í kynningu\, útgáfu og sölu á fjölfeldum íslenskra samtímalistamanna og er markmið MULTIS að gera list aðgengilega almenningi og bjóða upp á myndlist eftir listafólk í fremstu röð íslenskrar samtímalistar. \nAð geta búið til fleiri en eitt eintak af sama verki hefur lengi fylgt starfi listamannsins. Margir myndlistarmenn hafa reynt sig við formið sem býður upp á annars konar möguleika en hið einstaka verk\, og er einhverstaðar á rófi á milli myndlistar og framleiðsluafurðar. Verk sem unnin eru í fjölriti eru verðlögð á annan hátt\, eru ódýrari og þar með gerð aðgengileg fyrir stærri hóp til eignar. Verkið fer af stalli hins einstaka og verður hlutur (object) sem fleiri en einn getur átt\, eru gjarnan smærri\, og staðfesta gildi sitt ekki einungis með því að vera verk eftir ákveðinn  listamann\, heldur einnig með því að vera tölusett og áritað eintak og þá orðið hluti af stærri sögn sem er mikilvægt fyrir þann sem eignast verkið. \nÁ sýningunni FJÖLFELDI – HLUTFELDI – MARGFELDI er sjónum beint að verkum tuttugu og níu samtímalistamanna sem hafa til lengri eða skemmri tíma unnið að gerð fjölfelda (Multiple). Til þess að listaverk geti fallið undir þá skilgreiningu\, þurfa verkin að vera gerð í þremur eða fleiri eintökum. \nListamenn sem eiga verk á FJÖLFELDI – HLUTFELDI – MARGFELDI eru: Einar Örn Benediktsson\, Gjörningaklúbburinn – Eirún Sigurðardóttir og Jóní Jónsdóttir\, Guðjón Ketilsson\, Hulda Vilhjálmsdóttir\, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir\, Ívar Valgarðsson\, Jóna Hlíf Halldórsdóttir\, Karlotta Blöndal\, Magnús Helgason\, Magnús Pálsson\, Pétur Magnússon\, Ragnheiður Gestsdóttir\, Steingrímur Eyfjörð\, Tumi Magnússon\, Þór Sigurþórsson\, Þórdís Jóhannesdóttir\, Baldur Geir Bragason\, Davíð Örn Halldórsson\, Gabríela Friðriksdóttir\, Guðmundur Thoroddsen\, Kristín Eiríksdóttir\, Logi Leo Gunnarsson\, Helgi Þórsson\, Lilja Birgisdóttir\, Sara Riel\, Sirra Sigrún Sigurðardóttir\, Snorri Ásmundsson\, Hulda Rós Guðnadóttir\, Þórdís Erla Zoëga. \nSýningin stendur til og með 14. nóvember 2021. \n\n\n\n\nAð geta búið til fleiri en eitt eintak af sama verki hefur lengi fylgt starfi listamannsins. Margir myndlistarmenn hafa reynt sig við formið sem býður upp á annars konar möguleika en hið einstaka verk\, og er einhverstaðar á rófi á milli myndlistar og framleiðsluafurðar. Verk sem unnin eru í fjölriti eru verðlögð á annan hátt\, eru ódýrari og þar með gerð aðgengileg fyrir stærri hóp til eignar. Verkið fer af stalli hins einstaka og verður hlutur (object) sem fleiri en einn getur átt\, eru gjarnan smærri\, og staðfesta gildi sitt ekki einungis með því að vera verk eftir ákveðinn listamann\, heldur einnig með því að vera tölusett og áritað eintak og þá orðið hluti af stærri sögn sem er mikilvægt fyrir þann sem eignast verkið.Fjölfeldi geta verið tví- eða þrívíð og hægt er að búa þau til með margvíslegum aðferðum. Á fimmtándu öld fóru listamenn að þróa aðferðir til að geta steypt verk í mót því það þótti mikill kostur að geta dreift verkum sem víðast. Þetta varð til þess að sjónræn menning efldist til muna í þeim löndum sem þekkingin var til staðar.  Á átjándu öld fundu listamenn til dæmis upp aðferðir sem gerðu þeim kleift að móta skúlptúrverk úr t.d. leir\, bronsi\, gifsi og postulíni. Að steypa skúlptúra með því að nota mold eða sand varð vinsælt við framleiðslu verka sem gerð voru í upplagi og eru þær aðferðir ennþá mikið notaðar við gerð myndlistar. Einnig falla aðferðir grafíklistarinnar undir þessa skilgreiningu en verk unnin á þann hátt hafa þann ótvíræða kost að auðvelt er að gera sama verkið í mörgum eintökum. \nMeð tilkomu koparstungu á tímum barokksins verður dreifing og fjölföldun myndverka almennari. Koparstungan er aðferð sem notuð er við gerð grafíkmynda en þar er myndin grafin með nál í koparplötu og síðan þrykkt á pappír. Verkið Los caprichos\, 1797 eftir Francisco Goya var með fyrstu þekktu fjölfeldunum sem búið var til í takmörkuðu upplagi.  Ef litið er til listaverka tuttugustu aldar er verk Marcel Duchamps\, Rotoreliefs frá árinu 1935 eitt af fyrstu fjölfeldum nútímalistarinnar og í þeirri mynd af fjölfeldum sem við þekkjum í dag\, en verkið er sería af sex snúningsdiskum sem voru gefnir út í 500 eintökum. \nÁ sýningunni FJÖLFELDI – HLUTFELDI – MARGFELDI er sjónum beint að verkum tuttugu og níu samtímalistamanna sem hafa til lengri eða skemmri tíma unnið að gerð fjölfelda (Multiple). Til þess að listaverk geti fallið undir þá skilgreiningu\, þurfa verkin að vera gerð í þremur eða fleiri eintökum. \nOrðið HLUTFELDI kemur úr orðasmiðju Magnúsar Pálssonar en á sýningunni má finna flest af þeim verkum þar sem hann vinnur með þessum hætti. Á sýningunni má finna þau verk Magnúsar sem enn eru til í fórum listamannsins og fjölskyldu hans en mörg af verkum hans eru nú í eigu safna eða í einkaeigu. Önnur verk á sýningunni eru unnin í samtali við MULTIS verkefnið yfir tveggja ára tímabil. \nMULTIS sérhæfir sig í kynningu\, útgáfu og sölu á fjölfeldum íslenskra samtímalistamanna og er markmið MULTIS að gera list aðgengilega almenningi og bjóða upp á myndlist eftir listafólk í fremstu röð íslenskra samtímalistar. \nMULTIS setur fókusinn á fjölfeldi\, verk sem gerð eru í a.m.k. þremur eintökum. Þetta geta bæði verið prent og skúlptúrar\, allt eftir því hvað hentar hugmynd listamannsins hverju sinni.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/fjolfeldi-hlutfeldi-margfeldi/
LOCATION:Listasafn Reykjanesbæjar\, Duusgata 2-8\, Reykjanesbær\, 230\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/multis.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR