BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220618
DTEND;VALUE=DATE:20220711
DTSTAMP:20260530T093116
CREATED:20220621T134734Z
LAST-MODIFIED:20220916T101321Z
UID:23818-1655510400-1657497599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Julie Lænkholm: Fjallið við
DESCRIPTION:Hugmyndafræði Julie Lænkholm á rætur að rekja til hugmynda og aðferðafræða sem snúast um sameiginlega þekkingu og sam-lærdóm kynslóða. Hún kannar aðferðir og venjur sem hafa borist munnlega frá kynslóð til kynslóðar\, og leggur áherslu í vinnuferli sínu á sögu kvenna sem oft hefur legið í dvala eða gleymst. \n„Sem listamaður er ég aðeins þáttakandi í sköpunarferli verks. Ég reyni að vera farvegur sem leiðir hið ytra niður í gegnum höfuðið og hjartað og út um hendurnar. Þannig get ég búið til hluti sem eru handan minnar ímyndunar og það er miklu áhugaverðara en að ofhugsa verk.“ \nÁ einkasýningu sinni í Ásmundarsal vinnur hún með ljóð Guðnýjar frá Klömbrum (1804-1836)\, Sit ég og syrgi og skoðar hún hvernig sársauki en í senn lækning birtist í ljóðinu samtímis. Samlækning og arfleiddur sársauki var rannsóknarefni Lænkholm við vinnu sýningarinnar þar sem hún skoðaði hið viðkvæma samband umhyggju og sorgar\, þjáningar og lækninga\, aðgerða\, viðbragða og aðgerðaleysis. Verkin eru unnin með efni og ull frá ættarbæ hennar Húsavík þar sem hún kynntist jurtalitun í fyrsta sinn og textílvinnslu sem hafa mótað iðkun hennar síðan. Lænkholm telur ljóðrænuna felast í efninu sjálfu. Verk hennar minna okkur á hina viðstöðulausu keðjuverkun þar sem verkin fá okkur til að finna fyrir hinni stöðugu þróun og hvernig við erum samtengd með gjörðum okkar sjálfra og annarra. Það sem virðist löngu horfið lifir löngu eftir að það hefur farið\, það heldur áfram að þróast þegar við upplifum\, afhjúpum og eigum samskipti við sögu okkar og hvort annað. Við verðum þáttakendur í keðjuverkun þar sem verkið hreyfir við okkur og við hreyfum samtímis við arfleiðinni og sköpum samlærdóm eða með öðrum orðum nýja sam-visku. \nSýningin er styrkt af The Danish Art Foundation\, Fondet for Dansk-Islandsk samarbejde og Danska sendiráðinu. \nJulie Lænkholm (f. 1985\, Danmörk) býr og starfar í Kaupmannahöfn í Danmörku. Hún er útskrifuð frá Parsons\, The New School of Design í New York. Hún er einnig menntaður hjúkrunarfræðingur með sérhæfingu í hjartaskurðlækningum\, sem hún stundaði á meðan hún lauk listnámi. Lænkholm hefur verið með einkasýningar í Matsushima Bunko Museum (Matsushima)\, Tranen Space for Contemporary Art (Hellerup)\, Safnahúsinu (Húsavík) og Textile Art Center (New York).
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/julie-laenkholm-we-the-mountain/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/06/juliel-scaled.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR