BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20230101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230203
DTEND;VALUE=DATE:20230204
DTSTAMP:20260530T145941
CREATED:20230201T112028Z
LAST-MODIFIED:20230201T112028Z
UID:29199-1675382400-1675468799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Jón Helgi Pálmason: Á meðan myndin dofnar
DESCRIPTION:„Minningar eru flókin fyrirbæri. Það er svo margt sem spilar inn í þegar kemur að minningum. Sumt festist betur í minninu en annað og er alltaf ljóslifandi á meðan annað gleymist alfarið. Við höfum nánast enga stjórn á því heldur. Við höldum áfram að lifa\, nýjar minningar verða til og aðrar gleymast á hverjum degi. Hvað verður um minningarnar sem við gleymum? Skiptu þær aldrei neinu máli? \nMinningarnar móta okkur\, allt fólkið og mismunandi umhverfi sem hefur þar áhrif. Jón Helgi veltir fyrir sér hvað það sé sem gerir fólk að því sem það sé í dag. Hvaða fólk og umhverfi hafa mótað minningar þess og hvernig það líti út í minninu. Hvað fólk sjái þegar það loki augunum. \nÍ sýningunni blandar Jón Helgi sínum eigin myndum saman við ljósmyndir úr fortíðinni til að gefa áhorfandanum innsýn í hvernig hann upplifir sínar persónulegu minningar á sjónrænan hátt. Með öðrum orðum – hvað hann sér þegar hann lokar augunum. Í hvert skipti birtist ný minning eða önnur svipmynd af henni. „Ég loka augunum\, ég sé brosandi andlit ömmu minnar sitjandi í gamla góða hægindastólnum að prjóna enn eina ullarpeysuna. Ég sé snjókomu í næturmyrkrinu í gegnum bílglugga á 90 kílómetra hraða\, við hlið mér er faðir minn\, við sjáum ekki lengra en að næstu stiku….” \nLjósmyndir geta virkað eins og minningar! \nJón Helgi Pálmason er frá Hafnarfirði en býr núna í Haag í Hollandi þar sem hann stundar nám í ljósmyndun í Royal Academy of Arts. Þar áður útskrifaðist hann frá ljósmyndadeild Tækniskólans í Reykjavík og eftir það KBH Film og Fotoskole í Kaupmannahöfn. Jón Helgi hefur sýnt bæði erlendis og hér á landi.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/jon-helgi-palmason-a-medan-myndin-dofnar/
LOCATION:Ljósmyndasafn Reykjavíkur\, Tryggvagata 15 Grófarhús\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/02/s-scaled.jpeg
END:VEVENT
END:VCALENDAR