BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221110
DTEND;VALUE=DATE:20221121
DTSTAMP:20260530T082551
CREATED:20221110T101132Z
LAST-MODIFIED:20221125T144742Z
UID:27429-1668038400-1668988799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Jón Helgi Hólmgeirsson: Og svo kemur sólin
DESCRIPTION:Það er skýjað\, þoka\, súld.\nUmhverfið er grátt og rennur saman í eitt. Og svo kemur sólin. Umhverfið skerpist\, lifnar við og dýpkar. \nSýningin Og svo kemur sólin er önnur einkasýning á vegghengdum listaverkum eftir Jón Helga Hólmgeirsson en þar vinnur hann með samspil sólarljóss og skugga. Á sýningunni fangar hann fagurfræðina í nærumhverfi okkar en myndirnar eru skornar beint í rammagler verkanna. Án sólar eða ljóss sést ekkert í rammanum\, rétt eins og í þoku\, en þegar það rofar til birtist mynd inni í rammanum. Verkin haga sér mismunandi eftir magni ljóss í rými en lifna fyrst við þegar sólin leikur um þau\, þar sem þau hreyfast í takt við sólarganginn. Verkin eru unnin upp úr ljósmyndum sem Jón Helgi hefur tekið víðsvegar um landið. Myndunum er umbreytt í línuteikningar á stafrænu formi sem síðan eru sendar í gegnum tölvustýrðan fræsara sem sker verkin út í gler með demantshníf. \n“Hugmyndina fékk ég þegar ég sá ryk á listaverki í stofunni hjá mér sem varpaði skugga inn í rammann á því. Ég ákvað að prófa að skera í gler og sjá hvort það myndi hafa sömu áhrif. Eftir tilraunir með mismunandi bakgrunna og fjarlægð þeirra frá glerinu fann ég milliveg sem skapar þetta þokukennda ástand verksins þegar það er skýjað en skýra mynd þegar sólin skín. Viðfangesefni myndanna eru því hlutir og form úr nærumhverfinu sem birtast\, skýrast og skerpast þegar sólin lætur sjá sig.” \n  \nJón Helgi Hólmgeirsson er menntaður vöruhönnuður frá Listaháskóla Íslands og samspilshönnuður (e. interaction design) frá Háskólanum í Malmö. Frá útskrift hefur hann komið að fjölda hönnunarverkefna\, t.a.m. fyrir IKEA og FÓLK Reykjavík en hefur síðan árið 2015 gegnt stöðu yfirhönnuðar hjá íslenska tónlistartæknifyrirtækinu Genki Instruments. Verk hans hafa birst í fjölmörgum miðlum og verk hans verið sýnd á hönnunarhátíðum víða um heim. Þá hefur hann hlotið virt hönnunarverðlaun á borð við Red Dot Design Awards og Hönnunarverðlaun Íslands. Árið 2020 hélt hann sína fyrstu einkasýningu á prentverkum á kaffihúsinu í Ásmundarsal undir heitinu ‘Mikilvægar ítranir’ þar sem hann lagði fram endurbætur á hinni íslensku orðabók vegna breyttra aðstæðna í heiminum. Nú fetar hann nýja slóð en á sýningunni ‘Og svo kemur sólin’ nýtir hann þekkingu og reynslu sína úr heimi vöruhönnunar við gerð verkanna.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/jon-helgi-holmgeirsson-og-svo-kemur-solin/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/11/Screenshot-2022-11-10-at-10.08.22.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR