BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220924
DTEND;VALUE=DATE:20230101
DTSTAMP:20260530T052822
CREATED:20220922T160140Z
LAST-MODIFIED:20230103T104131Z
UID:26276-1663977600-1672531199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Jóhannes S. Kjarval: Fyrstu snjóar
DESCRIPTION:Jóhannes Sveinsson Kjarval (1885-1972) er einn ástsælasti listamaður þjóðarinnar og fjölbreytt lífsverk hans nær yfir fjölda málverka af náttúru landsins\, kynjaverum og fólkinu í landinu. \nKjarval fæddist að Efri-Ey í Meðallandi árið 1885 en ólst upp hjá ættingjum í Geitavík í Borgarfirði eystri til sextán ára aldurs. Um tvítugt tók hann sér írska konungsnafnið Kjarval og notaði það allt til æviloka. Árið 1902 flutti hann til Reykjavíkur\, aðeins tveimur árum eftir að Þórarinn B. Þorláksson setti upp fyrstu myndlistarsýninguna á Íslandi. Kjarval sótti námskeið í teikningu og málun bæði hjá Þórarni og Ásgrími Jónssyni í Reykjavík en hugur hans stefndi út í heim. Hann sigldi til London árið 1911 en hélt þaðan til Danmerkur í formlegt nám við Konunglega listaháskólann í Kaupmannahöfn snemma árs 1912. Hann fór líka í áhrifaríkar ferðir til Ítalíu og Frakklands áður en hann svo var alkominn til Íslands og ákvað að gera íslenskt landslag að viðfangsefni sínu undir lok þriðja áratugarins. \nÁrið 1968 ánafnaði Kjarval Reykjavíkurborg stóran hluta listaverka sinna og persónulegra muna og hafa verk hans verið kynnt með ýmsu móti frá því Kjarvalsstaðir voru opnaðir árið 1973. \nVerkin á sýningunni eru öll úr safneign Listasafns Reykjavíkur.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/johannes-s-kjarval-fyrstu-snjoar/
LOCATION:Reykjavík Art Museum – Kjarvalsstaðir\, Flókagata 24\,\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/09/johannes-s.-kjarval-fyrstu-snjoar1953-web.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR