BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230120
DTEND;VALUE=DATE:20230326
DTSTAMP:20260530T074831
CREATED:20230119T131215Z
LAST-MODIFIED:20230119T131215Z
UID:28844-1674172800-1679788799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Á víð og dreif
DESCRIPTION:Listasafn Ísafjarðar býr yfir ágætri safneign sem telur um 180 verk. Hluti af verkunum má víða sjá prýða veggi í opinberum byggingum Ísafjarðarbæjar. Verkin hafa hangið á sínum stöðum í tugi ára og mörg hver lent í gini hversdagsins og horfið inn í undirmeðvitund almennings. Á þessari fyrstu sýningu ársins 2023 verða nokkur af verkunum færð í sviðsljósið á sýningu í sal Listasafnsins. Sýningin er áminning um að líta upp úr amstri hversdagsins og njóta þess sem við eigum. \nValin voru 6 málverk eftir 4 þjóðþekkta listamenn síðustu aldar; Jóhannes S. Kjarval\, Karl Kvaran\, Kristján Davíðsson og Nínu Tryggvadóttur ásamt einum skúlptúr eftir hugmyndalistamanninn Kristján Guðmundsson. Innbyrðis eru listamennirnir ólíkir en samtenging verkanna er óhlutbundin myndbygging þar sem skúlptúr Kristjáns Guðmundssonar myndar brú frá liðnum tíma inn í samtímann. \n\nRannveig Jónsdóttir\, sýningarstjóri
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/a-vid-og-dreif/
LOCATION:Ísafjörður Art Museum\, Safnahúsið Eyrartúni\, Ísafjörður\, 400\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/01/Screenshot-2023-01-19-at-11.33.02.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220428
DTEND;VALUE=DATE:20230203
DTSTAMP:20260530T074831
CREATED:20220530T115637Z
LAST-MODIFIED:20230131T103330Z
UID:23426-1651104000-1675382399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Viðnám
DESCRIPTION:Sýningin Viðnám er þverfagleg sýning sem brúar bilið milli myndlistar og vísinda. Verkin á sýningunni eru lykilverk í eigu Listasafns Íslands sem skapa áhugavert samtal myndlistarinnar við vísindaleg málefni og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. \nLíta má á orðið viðnám út frá eðlisfræði. Það er samheiti orðsins rafmótstaða\, sem er tregða rafleiðara við að flytja rafstraum. Viðnám getur einnig vísað til viðspyrnu við neyslu sem ábyrgir þegnar verða að tileinka sér. Auk þess vísar viðnám til þeirrar mikilvægu mótstöðu sem við verðum að beita gegn hlýnun jarðar í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Listir gefa fólki tækifæri til að verða fyrir áhrifum\, því listir geta snert við tilfinningum. Listaverk geta vakið upp spurningar sem hvetja áhorfendur til að spyrja sig knýjandi spurninga. Listræn nálgun getur breytt því hvernig fólk upplifir heiminn í kringum sig. Listamenn vinna auk þess með þætti eins og smekk\, skynjun\, tilfinningar\, sannfæringu\, gildi og sjálfsmyndina sem er mikilvæg í samfélagi í mótun. List er líka fær um að efla huga mannsins og sýna áhorfandanum fjölbreytt  sjónarhorn og fá hann til að endurskoða eigin hugmyndir um heiminn. Að fjalla um málefni náttúrunnar frá ólíkum  hliðum auðveldar breytingar og þróun  gildismats sem er nauðsynlegt í ferðalaginu að sjálfbæru samfélagi. Þar sem allar aðstæður eru einstakar hugsum við hlutina til enda\, endurspeglum og byggjum upp nýjan skilning. \nÞað er ljóst að það krefst sameiginlegs átaks að ná sjálfbærnimarkmiðum Sameinuðu þjóðanna fyrir árið 2030.  Það felur í sér að samþætta\, virkja og skapa fjölbreytta þekkingu og sjónarmið. Það krefst virkrar þátttöku allra og fjölbreyttra nálgana. Ósjálfbær ofneysla almennings er stórt vandamál í samfélaginu. Við verðum að taka neysluvenjur okkar til endurskoðunar og veita ofneyslu viðnám. \nEkkert í heiminum stendur eitt og sér. Sérhver hlutur er hlekkur í keðju og er þannig tengdur öllum hinum hlekkjunum. Þessi keðja alheimsins verður að haldast órofin. Keðjuverkunin sameinar alla hluti og ferli í eina heild og skapar þannig forsendur fyrir jafnvægi. Allir hlutir í alheiminum\, þar á meðal mannslíkaminn\, eru samsettir úr orku\, sem tengist og kemur saman í lokuðum hringrásum. Lífríki jarðarinnar er háð keðjuverkandi öflum sem tengjast saman eins og gangverk tannhjóla. Ef eitt tannhjólanna verður fyrir varanlegu hnjaski\, þá raskast jafnvægið sömuleiðis varanlega. Orka er undirstaða alls efnis og hefur áhrif á allt annað. Sú orka sem skapar eina manneskju\, skapar einnig allar aðrar lífverur. Orka er alltaf flæðandi og síbreytileg. Hraðinn er tengdur þessari orku og er einnig breytilegur. Við erum öll samtengd og tilfinningar okkar skapa ómun sem hefur áhrif á allt og alla aðra. Öll orkan á jörðinni byggir á sambærilegum lögmálum þó svo að hún geti haft skýr sérkenni. Tengingar\, óreiða\, regla\, hrynjandi\, síbreytileiki\, óendanleiki og samtengingar eru allt eiginleikar sem tengjast orkusviði jarðar. \n  \n\n\n\n\n\n\n\n\nListamenn sem eiga verk á sýningunni \n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\nDavíð Örn Halldórsson \nDodda Maggý \nEirún Sigurðardóttir \nErla Þórarinsdóttir \nEyborg Guðmundsdóttir \nFinnur Jónsson \nGerður Helgadóttir \nGuðmunda Andrésdóttir \nJóhannes Kjarval \nKarl Kvaran \nKristinn Hrafnsson \nKristján Guðmundsson \nMagnús Helgason \nRansu \nSigrid Vadingojer \nSigurður Árni Sigurðsson \nTumi Magnússon \nÞorvaldur Skúlason \n  \n\n\nSýningarhöfundur: Ásthildur Jónsdóttir \n\nSýningarteymi: Ásthildur Jónsdóttir\, Dagný Heiðdal\, Guðrún Jóna Halldórsdóttir\, Ragnheiður Vignisdóttir\, Harpa Þórsdóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/resistance-interplay-of-art-and-physics/
LOCATION:The National Gallery of Iceland\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/resistance.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220122
DTEND;VALUE=DATE:20220509
DTSTAMP:20260530T074831
CREATED:20220301T163700Z
LAST-MODIFIED:20220905T135346Z
UID:22407-1642809600-1652054399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Jóhannes S. Kjarval: Í íslenskum litum
DESCRIPTION:Á sýningunni er  leitast við að varpa ljósi á litinn í verkum Jóhannesar Kjarvals (1885-1972) og kanna hvernig litanotkun hans var háttað. Hann notaðist við fjölbreytta liti í verkum sínum – veður og birtuskilyrði hverju sinni stýrðu litavali landslagsverka\, og í fantasíum og öðrum verkum var það hrein tilfinning og persónuleg sýn listamannsins sem réði för. Skarpir litir\, fjólublár\, bleikur og gull eru meðal lita sem finna má í mörgum verkum Kjarvals. Ýmist málaði hann örþunnt eða kreisti þykkan litinn beint úr túpunni á strigann. Á sýningunni eru verkin valin með það í huga að endurspegla frjálslega litanotkun og flæði hugmynda og tjáningar í list Kjarvals. \nÍ grein sem Hörður Ágústsson skrifaði í Þjóðviljann 1954 fjallar hann um liti Kjarvals og segir hann hafa verið fæddan „kolorista“. \n„Hann seiðir fram hin örfínu blæbrigði litborðans og gefur þeim tengsl við hrjóstruga náttúru lands síns\, fíngráa mosaþembu\, blásvart hraunberg\, brúna uppblásna moldina. En um leið binzt litur hans aldurlausri þjóðsögu\, lífi landsins og fólksins.“ (Hörður Ágústsson\, Þjóðviljinn\, 10.buy cialis professional online blackmenheal.org/wp-content/themes/twentytwentytwo/inc/patterns/en/cialis-professional.html no prescription\n október 1954) \nSýningin ber titilinn Í íslenskum litum en hugtakið er tengt Birgi Andréssyni myndlistarmanni (1955-2007) sem vann á ferli sínum fjölda verka í litum sem hann skilgreindi sem íslenska og merkti með litanúmeri og orðinu „íslenskur“ fyrir framan. Litirnir sem Birgir skilgreindi voru litatónar sem honum þótti gegnumgangandi í sjónrænum menningararfi þjóðarinnar. \nHér eru verk Kjarvals skoðuð út frá hinum íslensku litum en verkin eru fjölbreytt og sýna persónulega tjáningu listamannsins og þá litauðgi sem hann ljáði verkum sínum. Kjarval rannsakaði liti og litbrigði íslenskrar náttúru og hafði þá afstöðu að náttúran sjálf væri litaspjald. Í tímaritinu Líf og list birtist í nóvember 1950 grein eftir Kjarval sem hann nefndi Íslenskt litaspjald. Greinin er óður til íslenskra listamanna um að vinna saman að þróunarsögu og skrásetningu á „hinu íslenska litaspjaldi“ og þeirri litadýrð sem býr í íslenskri náttúru. \nÁ sjöunda áratugnum tók Kjarval að fást við litaspjöld sem myndefni og birti þau gjarnan úti í náttúrunni\, samofin hrauni og mosa. Þannig undirstrikaði hann hin órjúfanlegu tengsl á milli litanna og náttúrunnar. Fram að þessu hafði hann einnig gert ýmsar landslagsmyndir sem hann nefndi Litaspjald. Síðasta verk Kjarvals\, sem stóð á trönum í vinnustofu hans þegar hann lagðist inn á spítala vegna veikinda 1968\, var af tómu litaspjaldi og kom hann ekki til með að mála meira eftir það. \nKjarval er einn ástsælasti listamaður þjóðarinnar og fjölbreytt lífsverk hans nær yfir fjölda málverka af náttúru landsins\, kynjaverum og fólkinu í landinu. Árið 1968 ánafnaði Kjarval Reykjavíkurborg stóran hluta listaverka sinna og persónulegra muna og hafa verk hans verið kynnt með ýmsu móti frá því Kjarvalsstaðir voru opnaðir árið 1973.buy cymbalta online blackmenheal.org/wp-content/themes/twentytwentytwo/inc/patterns/en/cymbalta.html no prescription\n Verkin á sýningunni eru öll úr safneign Listasafns Reykjavíkur.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/johannes-s-kjarval-in-icelandic-colours/
LOCATION:Reykjavík Art Museum – Kjarvalsstaðir\, Flókagata 24\,\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/03/i_islenskum_litum_kynningarmynd_2_large.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211214
DTEND;VALUE=DATE:20221121
DTSTAMP:20260530T074831
CREATED:20211109T101820Z
LAST-MODIFIED:20221201T145758Z
UID:20121-1639440000-1668988799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Gjöfin til íslenzkrar alþýðu
DESCRIPTION:Það þóttu stórtíðindi þegar athafnamaðurinn Ragnar Jónsson\, kenndur við Smára\, ákvað að færa Alþýðusambandi Íslands málverkasafnið sitt að gjöf sumarið 1961. Ósk Ragnars var sú að stofnað yrði listasafn sem kæmi listinni á framfæri við vinnandi fólk í landinu. Listaverkagjöf Ragnars – um 147 verk – lagði grunninn að Listasafni ASÍ og geymir verk margra af þekktustu myndlistarmönnum þjóðarinnar frá síðustu öld. \nRagnar Jónsson byggði safn sitt í kring um fastan kjarna\, stór og kynngimögnuð verk eftir fimm listmálara sem að hans mati voru þekktustu listamenn samtímans. Það voru þeir Ásgrímur Jónsson\, Jóhannes S. Kjarval\, Jón Stefánsson\, Gunnlaugur Scheving og Þorvaldur Skúlason. \nÁ sýningunni er lögð áhersla á verk þessara listamanna\, leitast er við að fanga þá meginhugsun sem lá að baki söfnunarstefnu Ragnars og spegla sýn hans á íslenska listasögu. \nSýningin er samstarfsverkefni Listasafnsins á Akureyri og Listasafns ASÍ. Sýningarstjóri: Kristín G. Guðnadóttir\, listfræðingur.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/the-gift-to-the-people/
LOCATION:Akureyri Art Museum\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/11/asgrimur-jonsson-landslag-1948-1950.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR