BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20230101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230325
DTEND;VALUE=DATE:20230530
DTSTAMP:20260530T085624
CREATED:20230325T100143Z
LAST-MODIFIED:20230530T122530Z
UID:30067-1679702400-1685404799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Jóhann S. Vilhjálmsson: Ritaðar myndir
DESCRIPTION:Jóhann S. Vilhjálmsson byrjaði ungur að teikna og hélt því áfram þótt við tækju annir fullorðinsáranna\, vinna og fjölskylda. Um sextugt veiktist hann alvarlega og hefur verið frá vinnu síðan en í staðinn hefur hann helgað sig myndlistinni og sýndi til dæmis verk sín í ArtReach Gallery í Portland í Oregonríki Bandaríkjanna árið 2019. \nMegineinkenni á myndum Jóhanns er hve nákvæmlega allt er hugsað og framsett\, bæði litasamsetningar og myndbygging\, en eitt það fyrsta sem áhorfandinn áttar sig á er hve mikil vinna liggur bak við hverja mynd. Þar finnur Jóhann styrk í því að vera á einhverfurófi en það var nokkuð sem hafði þvælst fyrir honum alla ævi þar til hann fékk greiningu á fullorðinsaldri. \nJóhann vinnur verk sín á pappír og notar til þess ýmiss konar blek og liti. Hann hefur unnið verk út frá myndum og verk sem eru abstraktstúdíur á litasamsetningum og formum en síðustu árin hafa verkin farið að líkjast æ meir síðum úr fallega lýstum miðaldahandritum\, evrópskum eða austurlenskum. Þá sameina þau myndskreyti\, til dæmis drekaflúr\, eins og við þekkjum frá Norðurlöndum\, og leturdálka. \nÞegar betur er að gáð sjáum við hins vegar að það sem virðist letur er ekki á neinu þekktu ritmáli; skriftin skilar ekki til okkar neinum orðum eða hljóðum. Þetta heitir á fræðimáli að hún sé asemísk (dregið af grísku: án merkingar). Það fer þó fjarri að slík skrift sé tómt skraut\, heldur er hún til þess fallin að við lesum í hana eitthvað sem kannski verður ekki komið í orð – að við lesum með ímyndunaraflinu. \nSýningarstjórar eru Erling T. V. Klingenberg og Jón Proppé.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/johann-s-vilhjalmsson-ritadar-myndir/
LOCATION:Hafnartorg\, Geirsgata\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/Hafnarborg-2023-Johann-Vilhjalmsson-slideshow.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR