BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220326
DTEND;VALUE=DATE:20220523
DTSTAMP:20260530T144915
CREATED:20220503T142234Z
LAST-MODIFIED:20220525T140014Z
UID:23067-1648252800-1653263999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Alter/Breyta
DESCRIPTION:Sýningin Alter / Breyta er samsýning fjögurra upprennandi myndlistarmanna sem eiga það sameiginlegt að hafa tiltölulega nýlega lokið námi við myndlistardeild Listaháskóla Íslands. Hópurinn var valinn í samvinnu með Bjarka Bragasyni\, deildarforseta Myndlistardeildar LHÍ\, og boðið að dvelja í þriggja vikna vinnustofudvöl í Skaftfelli þar sem þau fengu næði til að þróa tillögur sínar fyrir sýninguna. Þau vinna öll með ólíkar áherslur en þó er hægt að greina fíngerðan þráð sem býr til óræða tengingu á milli verka þeirra. \nEinhvers konar umbreyting hefur átt sér stað eða er gerð að útgangspunkti eða viðfangsefni á sýningunni. Ólíkum efniviði og hugmyndum er hnikað til: Hæglátt og lágstemmt ferlið\, natnin og endurtekningin sem umbreytir hversdagslegum hlutum þegar þeir eru teknir úr fyrra samhengi og taka á sig nýja mynd. \nVerkið Fallen\, eftir Joe Keys er samansafn smágerðra og litríkra hluta sem við gefum venjulega ekki mikinn gaum. Þeir hafa týnst og tapað sínu upprunalega hlutverki en í krafti fjöldans og með því að stilla hverjum og einum þeirra vandlega upp á sinni hillu\, hljóta þeir fyrir vikið ákveðna upphefð. Áhorfandinn er tilneyddur að beygja sig til að skoða þá betur. \nInnsetning og gjörningur/fyrirlestur Hugos Llanes hverfist um brauð og menningarlegan hverfulleika þess. Hér er okkur boðið að skilja pólitíska tilveru brauðs allt frá því að vera hefðbundin næring yfir í gildishlaðna\, iðnvædda vöru þar sem hráefnið gefur vísbendingar um samfélagsstöðu okkar. Brauðgómarnir skapa eins konar líkamlega nærveru listamannsins og er afurð gjörnings um leið og listamaðurinn býður áhorfendum upp á sammanlega upplifun með því að búa til sinn eigin brauðgóm sem verður hluti af sýningunni. Með skúlptúrnum “…gives me sleepless nights…” er sett fram teiknimyndapersóna sem hægt er að skilja sem dæmisögu um hvernig ávani og þráhyggja mannsins um matvæli er kaffært með kapítalískum varningi. \nVerk Brákar Jónsdóttur\, Daphne\, hangir tíguglega og friðsælt. Það er unnið út frá goðsögunni um umbreytingu Daphnes í lárviðartré til að flýja ofbeldisfullt áreiti Apollo. Trjágreinarnar mynda saman sterkbyggða grind en hafa verið sviptar sínu ytra klæði\, berkinum\, sem hlífir trénu. Berskjaldaður innsti kjarninn stendur eftir og þar getum við speglað okkur og getum jafnvel skyggnst inn í ókomna framtíð. \nHugmyndin um heilagleika og heimili er tvinnað saman í innsetningu Nínu Óskarsdóttur. Fallegir skrautmunir og hlutir sem tengjast handverki og heimili snerta á listrænni sköpun og persónulega rýminu en njóta á sama tíma upphefðar eins íkon á altari. Greinanleg fingraför listamannsinns í leirnum sanna aðkomu hennar að verkinu en helgidómur vígða vatnsins er okkur ósýnilegur. Hvernig er hægt að kalla fram heilagleika? \nTexti: Hanna Christel Sigurkarlsdóttir \nÆviágrip: \nBrák Jónsdóttir er fædd árið 1996. Hún útskrifaðist með BA gráðu úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2021. Verk hennar taka helst á sig form vídjóverks\, bókverks\, skúlptúrs og gjörnings\, en nýverið hafa viðfangsefni hennar snúið að sambandi manneskju við náttúru. Í rannsóknum sínum nálgast hún kink og blæti og skoðar samband mannfólks og náttúrulegra kerfa á grundvelli yfirráða og undirgefni\, fantasíu og femínisma. Verk hennar samanstanda af roðandi spennu milli sársauka og unaðar\, náttúrulegra og manngerðra efna. \nHugo Llanes er fæddur 1990 í Xalapa\, Veracruz í Mexíkó. Hann býr og starfar í Reykjavík og útskrifaðist með MA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2020. Hugo vinnur með pólitíska og félagslega bresti og fagurfræðina sem af því sprettur. Verk hans eru í formi málverka\, ætilegra verka\, innsetninga\, rýmistengdra verka og staðbundinna gjörninga. Með verkum sínum skoðar hann félagslegar aðstæður\, s.s. flutning fólks á milli landa\, valdbeitingu og áhrifa síðnýlendustefnunar á þróun sjálfsmyndar Rómönsku Ameríku\, stöðu sjálfstæðrar þjóðar\, annarleika og pólitíska andspyrnu\, auk þess sem hann vinnur með þema matar sem ádeilu á félagsleg vandamál og skoðar hvaða þýðingu upplifun okkar í gegnum matargerð hefur. Með ljóðrænni framsetningu verka sinni sér hann fram á mögulegan vettvang til að kryfja til mergjar þessi samofnu flóknu og krefjandi viðhorf. Hugo álítur að hið persónulega míkrókerfi sé berskjaldað gagnvart hinu hnattræna og með framsetningu sinni reynir hann að hvetja áhorfandann til þátttöku og íhugunar. \nJoe Keys er fæddur árið 1995 í Newcastle\, Englandi. Hann hefur búið og starfað á Íslandi síðan 2018 og útskrifaðist úr myndlistadeild Listaháskóla Íslands árið 2021. Joe vinnur aðallega með fundið efni í formi skúlptúra og prentverka. Verkin hans endurspegla kerfi úr daglegu lífi með þurri kímnigáfu og hugleiðingar um hluti sem við vanmetum og látum alla jafna framhjá okkur fara. Joe starfar sem umsjónarmaður prentverkstæðis í Listaháskóla Íslands og er félagi í samrekna prentverkstæðinu Prent & vinir í Laugardal\, Reykjavík. \nNína Óskarsdóttir er fædd árið 1986. Hún útskrifaðist með MA gráðu í myndlist árið 2020 frá Listaháskóla Íslands þar sem hún kláraði einnig BA nám sitt í myndlist 2014. Nína vinnur með skúlptúr og innsetningar og verk hennar einkennast af efniskennd sinni. Hún notar efni á borð við leir\, textíl og ljós sem kallast á við hverfulan efnivið á borð við vatn\, eld eða matvæli. Nína vinnur með óefnisbundnar hugmyndir\, svo sem heilagleika\, minningar og sjálfsmynd\, og gerir tilraunir til að koma þeim í efnislega mynd. Nína hefur tekið þátt í fjölda sýningarverkefna bæði hérlendis og í Evrópu sem og unnið að listrannsóknum sínum í gegn um vinnustofudvalir og rannsóknarstyrki.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/alter-breyta/
LOCATION:Skaftfell- Center for Visual Art\, Austurvegur 42\, Seyðisfjörður\, 710\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/Alter_Breyta_WebBanner@2x-840x320-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220305
DTEND;VALUE=DATE:20220318
DTSTAMP:20260530T144915
CREATED:20220228T151925Z
LAST-MODIFIED:20220825T132625Z
UID:22369-1646438400-1647561599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Joe Keys: Viðsnúningur
DESCRIPTION:Með sýningu sinni „Viðsnúningur“ teflir Joe Keys fram innsetningu úr viðarskúlptúrum.buy Revatio generic https://infoblobuy.com over the counter\n Skúlptúrarnir\, sem eru úr eik\, notast við einfalda innrömmunartækni sem aðferðafræði við að kanna hugmyndir um virkni og málamiðlanir\, þegar listhluturinn er annars vegar og hins vegar sýningarrýmið. Á tveimur veggjum gallerýsins verða þrjú innrömmuð textaverk sem undirstrika bókstaflegar tilvísanir sýningarinnar.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/joe-keys-turning/
LOCATION:Gallery Port\, Laugavegur 32\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/02/joe-keys-turning.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211204
DTEND;VALUE=DATE:20211224
DTSTAMP:20260530T144915
CREATED:20211202T124211Z
LAST-MODIFIED:20211224T111929Z
UID:20505-1638576000-1640303999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Svona eru jólin
DESCRIPTION:Jólasýningin „svona eru jólin“ er sölusýning um 170 listamanna. Verið er að endurvekja gamla hefð en sölusýningar voru haldnar fyrir jólin í Ásmundarsal (þá Listvinasalnum) á fimmta áratug síðustu aldar. Þá voru verk þekktustu listamanna þjóðarinnar sýnd samhliða verkum yngri og lítt þekktari listamanna. Um 450 verk verða til sölu á sýningunni í ár. Hægt verður að pakka þeim beint í silkiþrykktan jólapappír á innpökkunarstöð Prents & vina sem sjá um sýningarstjórnun. Í Gryfjunni verður sett upp grafíkverkstæði þar sem listamenn vinna verk í upplagi yfir sýningartímabilið. \nDagskrá Grafíkverkstæðis 2021: \n4-5.des | Almar Steinn Atlason og Hákon Bragason \n6-7.des | Anna Júlía Friðbjörnsdóttir \n8-9.des | Joe Keys \n10-11.des | Anna Rún Tryggvadóttir \n12-13.des | Margrét Blöndal \n14-15.des | Jón B.K Ransu \n 16-17.des | Melanie Ubaldo \n 18-19.des | Baldur Geir Bragason \n 20-21.des | Kristinn Már Pálmason \n 22-23.des | Tara Njála Ingvarsdóttir og Silfrún Una Guðlaugsdóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/so-this-is-christmas/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/12/asmundarchristmas.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211112
DTEND;VALUE=DATE:20211115
DTSTAMP:20260530T144915
CREATED:20211111T161413Z
LAST-MODIFIED:20211111T162233Z
UID:20143-1636675200-1636934399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Reykjavík Art Book Fair
DESCRIPTION:Listabókamessa með áherslu á bókahönnun\, útgáfu og prent sem listform sem er í stöðugri þróun. \nVerið hjartanlega velkomin á opnun Reykjavík Art Book Fair í Ásmundarsal föstudaginn 12. nóvember kl.18. Reykjavík Art Book Fair byggir á vinsælu alþjóðlegu sýningarsniði listbókamessunnar. Messurnar sem haldnar eru víðsvegar um heim sameina listamenn og hönnuði sem nota bókverkamiðilinn sem listform\, lítil listbókaforlög\, gallerí og söfn sem stunda útgáfu á prentuðu efni. \nÚtgangspunktur messunnar er að líta á bókahönnun\, útgáfu og prent sem listform sem er í stöðugri þróun. Prentið hefur oft verið nefnt lýðræðislegasti listmiðillinn þar sem hann er aðgengilegur öllum\, hver sem er getur stundað sjálfsútgáfu og stjórnað dreifingu efnisins. \nListbókamessur ýta undir þá hugmynd þar sem þær eru einn af fáum viðburðum í listheiminum þar sem óþekktir listamenn\, aktívistar\, grasrót og gagnmenning sýna samhliða þekktum listamönnum\, stofnunum og sölugalleríum. Þátttakendur sjá um sölu á eigin efni og rennur ágóðinn óskiptur til þátttakenda. \nOPNUNARTÍMI MESSUNNAR:\nFös 12.nóv 18:00 – 21:00\nLau 13.nóv 11:00 – 17:00\nSun 14.nóv 11:00 – 17:00 \n  \nDAGSKRÁ HELGARINNAR: \n \nDunce tímarit útgáfuhóf Í Gryfjunni 12.nóv frá kl. 18:00 – 21:00 \nDunce er árlegt tímarit um kóreógrafíu og gjörningalist gefið út hjá Prenti & vinum í ritstjórn Sóleyjar Frostadóttur\, hannað af Helgu Dögg Ólafsdóttur. Tímaritið býður upp á faglega umfjöllun um verk og listrænt ferli danshöfunda og myndlistarmanna sem vinna með gjörningaformið. Dunce veitir viðtöku textum frá listamönnum um eigið skapandi ferli en með því gefst lesandanum tækifæri til að kynnast verki listamannsins af meiri dýpt. \nAnnað tölublað Dunce inniheldur meðal annars vital Joe Keys við Ilmi Stefánsdóttur um verk hennar á sviði myndlistar og leikhúss\, viðtöl við Sigtrygg Berg Sigmarsson\, Sigurð Guðmundsson\, Natalia Villanueva Linares\, Gjörningaklúbbinn\, Steinunni Ketilsdóttur og Ingrid Berger Myhre auk skrifa listamanna s.s. Sólbjartar Veru Ómarsdóttur um sýningu Yelena Arakelow og Gígju Jónsdóttur um eigið verk. \n  \n \nHvít sól útgáfuhóf í Gryfjunni\, 13. nóvember frá kl. 11-17 \nBókverkið Hvít sól er myndræn samantekt á samnefndum sýningum hópsins IYFAC. Sýningarnar samanstóðu af innsetningum og gjörningum sem haldnir voru á árunum 2017-2021 í ýmsum útgáfum á fimm mismunandi stöðum. Viðfangsefni þeirra var sólargangurinn og áhrif sólar og birtu á menn og samfélög. Samhliða útgáfunni verður gefin út ljósmyndaserían Veiddar sólir sem er sprottin upp úr hugmyndaheimi Hvítrar sólar\, og verður til sýnis á meðan á útgáfuhófinu stendur. Einnig verða sýnd brot úr sýningunum ásamt hljóðmynd verksins eftir Daníel Helgason. \nHöfundar verksins eru Halla Birgisdóttir\, Ragnheiður Harpa Leifsdóttir\, Ragnheiður Maísól Sturludóttir og Sigrún Hlín Sigurðardóttir. Verkefnið er styrkt af Myndlistarsjóði. \n  \n \nKoma jól? Útgáfuhóf sunnudaginn 14. nóvember frá kl. 13–17 \nKoma jól? er jólaljóðabók eftir Hallgrím Helgason og Rán Flygenring sem kveðst á við fræga bók Jóhannesar úr Kötlum\, Jólin koma. Hér er að finna nýjustu fréttir af Grýlu og Jólakettinum og þá stíga hinar jökulhressu Grýludætur\, systur jólasveinanna\, fram úr þúsund ára löngum skugga bræðra sinna\nog arka til byggða\, hver með sínu lagi og hrekkjabrögð í farteskinu. \nÍ tilefni útgáfunnar mun Hallgrímur lesa upp úr bókinni í tvígang\, fyrst klukkan 14 og aftur klukkan 15. Kakó og pipakökur í boði. \nDúkristur Ránar verða sýndar í Gryfjunni frá 11–17 og tölusett eintök í takmörkuðu upplagi til sölu. \nÖll velkomin nema Grýla – léttar veitingar í boði.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/reykjavik-art-book-fair/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/11/artbook-fair.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210903
DTEND;VALUE=DATE:20210917
DTSTAMP:20260530T144915
CREATED:20210903T125202Z
LAST-MODIFIED:20210903T125202Z
UID:18939-1630627200-1631836799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Joe Keys: flag\, home\, sea
DESCRIPTION:
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/joe-keys-flag-home-sea/
LOCATION:Prent & vinir\, Laugarnesvegur 74a\, Reykjavík\, 105\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/09/240822163_2499699886837678_369863427132552766_n.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR