BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230128
DTEND;VALUE=DATE:20230403
DTSTAMP:20260530T063522
CREATED:20230124T111207Z
LAST-MODIFIED:20230124T111207Z
UID:28951-1674864000-1680479999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Jessica Auer: Landvörður
DESCRIPTION:Verkið Landvörður fjallar um sameiginlega ábyrgð okkar allra á náttúrunni. Það sýnir okkur bæði hvernig við snertum landið og hvernig við leyfum því að snerta okkur\, hreyfa við okkur. Verkið Landvörður fjallar þó ekki aðeins um þau sem vernda landið og þau sem nýta landið heldur líka um landið sjálft og lífshætti okkar á jörðinni\, hvernig allt tengist og flæðir saman. Við erum óteljandi eindir sem eiga sér ótal snertifleti\, erum öll hluti af heild. \nJessica Auer hefur verið búsett bæði á Íslandi og í Kanada um árabil. Hún er á heimavelli á Íslandi en á einnig auðvelt með að setja sig í spor ferðamannsins sem kemur til Íslands í leit að nýrri upplifun. Jessica hefur frá árinu 2016 ferðast víða um land til að festa slóð ferðamannsins á filmu. Um leið hefur hún myndað þau sem standa vörð um landið\, landverði í náttúru Íslands. \nSamhliða sýningunni í Sláturhúsinu verður Jessica með sýningu á Skaftfell Bistró á Seyðisfirði.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/jessica-auer-landvordur-2/
LOCATION:Sláturhúsið\, Kaupvangi 9\, Egilsstaðir\, 700\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/webp:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/01/landv.webp
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230123
DTEND;VALUE=DATE:20230403
DTSTAMP:20260530T063522
CREATED:20230119T163135Z
LAST-MODIFIED:20230119T163135Z
UID:28867-1674432000-1680479999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Jessica Auer: Horft til Norðurs
DESCRIPTION:Ljósmyndararinn Jessica Auer fer í einskonar könnunarleiðangur um ferðamannastaði Íslands og skrásetur umhverfi ferðamannsins. Í myndum hennar verða ferðalangurinn og efnisheimur hans hluti af náttúrusvæðum og áningarstöðum. \n\nFerðamennska birtist sem umbreytingarafl í íslensku landslagi og hefur sterk sjónræn áhrif. Sjálf stendur Jessica utan við viðfangsefnið og horfir úr fjarlægð líkt og gestur í ókunnugum heimi. Breytt landslag af manna völdum hefur verið viðfangsefni samtímaljósmyndara um nokkurt skeið og ferðamannaiðnaðurinn er stór þáttur í því mengi. Jessica er kanadísk og kennir ljósmyndun við Concordia University í Montréal. Hálft árið býr hún á Seyðisfirði og rekur þar stúdíóið Strönd.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/jessica-auer-horft-til-nordurs/
LOCATION:Skaftfell- Center for Visual Art\, Austurvegur 42\, Seyðisfjörður\, 710\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/01/Screenshot-2023-01-19-at-16.29.10.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220609
DTEND;VALUE=DATE:20220911
DTSTAMP:20260530T063522
CREATED:20220531T112229Z
LAST-MODIFIED:20220915T164500Z
UID:23519-1654732800-1662854399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Jessica Auer: Landvörður
DESCRIPTION:Frá árinu 2016 hefur Jessica Auer fengist markvisst við myndræna skrásetningu á áhrifum fjöldaferðamennsku á íslenskt landslag og samfélag. \nJessica ferðaðist milli Kanada og vinnustofu sinnar á Íslandi og fór ekki varhluta af ferðamannauppganginum á þessum tíma og upplifði sig í þeirri stöðu að vera í senn útlendingur og heimamanneskja.  Með því að sjá báðar hliðar með augum ferðamannsins vaknaði hjá henni þörf til að deila þessari reynslu sinni í gegnum ljósmyndir og myndbönd. \nÞegar ferðalög lögðust af í Covid faraldrinum urðu töluverðar breytingar á verkum Jessicu sem hófu að endurspegla gildiskerfi þessa uppgangsiðnaðar. Í flestum nýjustu ljósmyndum hennar beinir hún athyglinni að náttúruvernd og þeim tilraunum sem gerðar eru til að vernda svæði sem eru viðkvæm fyrir ágangi í óvissuástandi heimsfaraldurs. \nÁ undanförnum árum hefur hún ferðast um landið með stórformats myndavél til að taka portrettmyndir af landvörðum og öðrum þeim sem sinna gæslu á þessum svæðum. Þessi samskipti gáfu tækifæri til að spjalla um gildi menningar og náttúru í íslensku landslagi. \nSýningin Landvörður\, með sínum portrettmyndum\, landslagsljósmyndum og myndböndum\, er hugleiðing um þá samábyrgð sem Íslendingar og gestir landsins bera við að vernda þessa einstöku náttúru\, og veltir einnig upp spurningum um þá þversögn sem felst í því að reyna að vernda sömu svæði og ferðamannaiðnaðurinn leitast við að nýta. \nJessica Auer er kanadískur ljósmyndari\, kvikmyndagerðamaður og kennari sem búsett er á Seyðisfirði. Verk hennar hafa verið sýnd á söfnum\, galleríum og hátíðum\, m.a. á Listasafni Íslands\, The Canadian Center for Architecture og á Ljósmyndatvíæringnum í Mulhouse í Frakklandi. Árið 2020 hlaut hún styrk úr sjóði Magnúsar Ólafssonar ljósmyndara frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur fyrir verkefni sitt „Looking North” sem var gefið út af Another Place Press árið 2021\, birt á sjónvarpsstöðinni ARTE og í breska dagblaðinu The Guardian. Jessica er með MFA prófgráðu frá Concordia University í Montréal\, þar sem hún kennir ljósmyndun í hlutastarfi. Á Íslandi rekur hún Ströndina Studio á Seyðisfirði. \n  \nJessica vill þakka Kormáki Mána Hafsteinssyni og Zuhaitz Akizu fyrir þeirra framlag sem og Matthew Brooks og Luigi Iagulli fyrir aðstoðina við eftirframleiðslu verkanna. Sýningin var styrkt af Canada Council for the Arts og the Conseil des arts et des lettres du Québec.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/jessica-auer-landvordur/
LOCATION:Reykjavík Museum of Photography\, Grófarhús\, Tryggvagata 15\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/01_eyrun_skaftafell.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR