BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220430
DTEND;VALUE=DATE:20220703
DTSTAMP:20260530T065918
CREATED:20220505T125855Z
LAST-MODIFIED:20220916T101748Z
UID:23134-1651276800-1656806399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Jeanine Cohen: Innra rými
DESCRIPTION:Jeanine Cohen er belgískur listamaður sem fæst við lita- og formrannsóknir. Með þrívíðum veggverkum sínum\, lágmyndum\, kannar hún áhrif lita og forma á rýmisupplifanir okkar. Rýmið sem hún fæst við í list sinni er ekki síður hið innra rými verksins sjálfs\, samsetning á lögum efna og lita er skapa rými innan rýma\, innan rýma. \nVerk hennar eru sjálfstæðar einingar en eiga jafnframt í samtali hvert við annað í sýningarrýminu. Þau eru fáguð yfirlitum\, öguð\, og formin sterk og einföld. Breidd litapallettu nnar nær frá ómeðhöndluðum viðnum yfir í frumliti og jafnvel neón. Litirnir endurkastast af hvítum veggjunum og innan verksins sjálfs myndast einskonar lokaður heimur þar sem ljós- og skuggaspil skapa sín eigin form. Við erum hér minnt á stórfenglega getu augans til að umbreyta geislum ljóssins yfir í merkingarbæra skynjun á umhverfi okkar. Verkin hafa þannig áhrif handan sýningarrýmisins og fylgja okkur sem vegvísir inn í daglega lífið og hvernig við getum frekar skerpt á myndrænni skynjun okkar á undrum umhverfisins í kringum okkur. \nÍ verkum sýningarinnar\, sem öll eru meðal hennar nýjustu\, notar Jeanine ómeðhöndlaðan við sem uppistöðu í rúmfræðilegum strúktúrum er sjá má sem vísanir til málverksins\, einskonar uppbrot eða afbyggingu á ramma hins hefðbundna málverks þar sem rammaefnið er tekið í sundur og málað á það í stað striga. Málverkið sýnir þannig ekki mynd heldur myndar rammaefnið nokkurskonar arkitektónískt\, naumhyggjulegt rými þar sem litafletir mætast í ljósi og skugga. Rýmið innan verksins er þannig í senn augljóst og dularfullt. \nÁ yfir fjögurra áratuga listferli sínum hefur Jeanine fengist við slíkt rýmisspil með notkun grunneininga málverksins í fjarveru greinanlegs myndefnis. Þar koma fyrir hreinar línur\, skýr form og litasamsetningar sem vísa gjarnan frá þeim er við þekkjum úr sögu málverksins. Verk hennar eru í allskyns stærðum og gjarnan um og yfir líkamsstærð\, í beinu samtali við arkitektúr og mannslíkamann. Í sýningunni hér má hinsvegar sjá minni verk\, sem vel mætti hugsa sér að myndu rúma efri hluta líkamans væru þau portrett. \nBirta Guðjónsdóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/jeanine-cohen-inner-space/
LOCATION:Hverfisgallerí\, Hverfisgata 4\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/DSF7325-1060x795-1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR