BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230211
DTEND;VALUE=DATE:20230312
DTSTAMP:20260530T145717
CREATED:20230209T102328Z
LAST-MODIFIED:20230209T102523Z
UID:29315-1676073600-1678579199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Daníel Magnússon:Konstrúktívur vandalismi
DESCRIPTION:Á sýningunni Konstrúktívur vandalismi eru tíu verk sem Daníel hefur unnið á undanförnum misserum. „Hringur og þvermál hans eru bundnir innbyrðis hlutfalli sem er torrætt. Það þýðir að þessi algengustu form sköpunarinnar geta ekki átt samskipti sem vísa í þeirra eigin tilvist. Þannig getur hringurinn ekki lýst þvermáli sínu og þvermálið þekkir ekki hringinn. Sýningin Konstrúktívur vandalismi er skemmdarverk á fullkominni kennisetningu þeirra Galileos Galilei og Giordanos Bruno og upphafning jarðmiðjukenningar Ptólemæusar. Sýningin er jafn rökrétt tilraun mín til að lýsa samkomulagi um heimsmyndina eins og hringsins sem lýsir þvermáli sínu\,“ segir Daníel Magnússon í sýningartexta. \nVerkin á sýningunni eru flest unnin með blýanti og penna á pappír. Þau eru flestöll hugsuð sem kortagerð fyrir hinn miðjusetta heim Ptólemæusar. Tvenn verkanna eru frussprent á bómull og eru þau hugsuð sem undirspil við hin kortin til að gefa þessum heimi heildrænni grunn. \nDaníel Magnússon útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1987 og vakti þá strax athygli fyrir áhugaverð verk þar sem íslensk menning var oftar en ekki til umfjöllunar. Hann er einkum þekktur fyrir skúlptúra og ljósmyndaverk en hefur jafnframt myndlistinni hannað og smíðað húsgögn og unnið leikmyndir fyrir leikhús og sýningar. Daníel á að baki annan tug einkasýninga ásamt fjölda samsýninga bæði innanlands og utan. Verk hans eru m.a. í eigu Listasafns Íslands\, Reykjavíkurborgar\, ýmissa ríkisstofnana\, og einkaaðila bæði hérlendis og erlendis.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/daniel-magnusson-konstruktivur-vandalismi/
LOCATION:Hverfisgallerí\, Hverfisgata 4\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/02/starchart-hverfisg-2023-bleksprautacopy_cr.202900.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221112
DTEND;VALUE=DATE:20230108
DTSTAMP:20260530T145717
CREATED:20221110T141732Z
LAST-MODIFIED:20230109T161149Z
UID:27471-1668211200-1673135999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Guðmundur Thoroddsen: Kannski\, kannski
DESCRIPTION:Laugardaginn 12. nóvember opnar Guðmundur Thoroddsen þriðju einkasýningu sína í Hverfisgalleríi og ber hún titilinn Kannski\, kannski og eru sýnd ný olíumálverk þar sem listamaðurinn hefur sagt skilið við huldar tilvísanir og áþreifanleg hugtök. Þess í stað sækja málverkin enn lengra inn í sitt eigið óhlutbundna mál og myndbyggingu. Þar sem einu sinni voru láréttar línur sem gáfu til kynna landslag og lóðréttar línur sem táknuðu rými eða fólk innan dyra\, hafa litir\, áferð og sveiflukennd hreyfing leyst beina merkingu\, fígúratív form og myndmál af hólmi. Mistraðir litirnir á litaspjaldi Guðmundar; dempaðir súkkulaðibrúnir og purpurarauðir\, bleikir ferskjulitir með ryðtón\, angurværir gráir og földrappaðir litir\, mæta rafmögnuðum bláum lit\, djúpbláum og dimm-þalósýanín grænum. Verkin eru byggð upp með frjálslegum\, þokukenndum eða óljósum pensilstrokum og einfaldari formum\, áhersla á tjáningu tilfinninga eða fígúratívar myndir er minni. Í staðinn afhjúpa lög málverkanna\, útlínur og óræð form hvernig verkin eru byggð upp\, sýna ferlið og geta virkað eins og hluti af myndaröð. \nGuðmundur Thoroddsen (1980) lauk BA námi í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2003 og útskrifaðist með MFA gráðu í myndlist frá School of Visual Arts í New York árið 2011. Hann hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði hér á landi og erlendis. Þar má nefna einkasýningarnar í Hverfisgalleríi\, Hundaholt\, hundahæðir árið 2020 og Tittlingaskítur árið 2017\, Snib\, Snab\, Snubbur 2018/19 í Hafnarborg og Earth to Earth árið 2019 í Asya Geisberg Gallery í New York. Fjallað hefur verið um sýningar hans í ýmsum fjölmiðlum\, s.s. Artforum\, The New York Times\, Time Out New York og Dazed Digital. Hann hefur hlotið styrki úr styrktarsjóðum Guðmundu Andrésdóttur\, Myndstefs\, KÍM og Evrópu unga fólksins\, auk Listamannalauna. Guðmundur var tilnefndur til Íslensku Myndlistarverðlaunanna fyrir Snib\, Snabb\, Snubbur árið 2109. Guðmundur er á mála hjá Hverfisgalleríi og Asya Geisberg Gallery í New York. Verk Guðmundar upphefja oft\, henda gaman að og horfa gagnrýnum augum á hvernig merking er byggð upp og frásögnin þróast á striganum. Hann beitir húmor og fjölbreyttum en hefðbundnum miðlum á borð við leir\, vatnsliti\, teikningu og málun. Myndmál Guðmundar spannar vítt abstraktróf; stundum með áherslu á hluti sem yfirleitt eru taldir tilheyra karlkyninu (körfubolti\, bjórbruggun\, þvaglát og veiðar) en stundum á yfirborð nánast óþekkjanlegra forma\, lita og vísana. \nSýningin Kannski\, kannski stendur til 7. janúar.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/gudmundur-thoroddsen-kannski-kannski/
LOCATION:Hverfisgallerí\, Hverfisgata 4\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/11/GTH0090-2048x1609-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220707
DTEND;VALUE=DATE:20220911
DTSTAMP:20260530T145717
CREATED:20220803T174044Z
LAST-MODIFIED:20220916T101408Z
UID:24499-1657152000-1662854399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Teikningar: Edda Jónsdóttir
DESCRIPTION:Edda Jónsdóttir (f. 1942) býr og starfar í Reykjavík. Edda stundaði nám í Myndlistarskóla Reykjavíkur\, Myndlistar- og handíðaskóla Íslands og Rijksakademie van Beeldende Kunsten Amsterdam. Edda starfaði við myndlist frá árunum 1975 -1995\, stofnaði i8 gallerí og vann sem framkvæmdastjóri þess frá árunum 1995-2007 en sneri sér aftur á þeim tíma að myndlist. Síðustu sýningar hennar voru í Ásmundarsal 2021 og á Mokka kaffi sama ár. \nÞað er Hverfisgalleríi sérstakur heiður að skipuleggja einkasýningu Eddu Jónsdóttur þar sem hún fóstraði stofnun gallerísins fyrir tæpum tíu árum. Samhliða sýningunni Teikningar er efnt til útgáfu bókverks sem gerð var möguleg fyrir tilstuðlan úthlutunar úr Myndlistarsjóði.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/drawings-edda-jonsdottir/
LOCATION:Hverfisgallerí\, Hverfisgata 4\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/08/edda.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220430
DTEND;VALUE=DATE:20220703
DTSTAMP:20260530T145717
CREATED:20220505T125855Z
LAST-MODIFIED:20220916T101748Z
UID:23134-1651276800-1656806399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Jeanine Cohen: Innra rými
DESCRIPTION:Jeanine Cohen er belgískur listamaður sem fæst við lita- og formrannsóknir. Með þrívíðum veggverkum sínum\, lágmyndum\, kannar hún áhrif lita og forma á rýmisupplifanir okkar. Rýmið sem hún fæst við í list sinni er ekki síður hið innra rými verksins sjálfs\, samsetning á lögum efna og lita er skapa rými innan rýma\, innan rýma. \nVerk hennar eru sjálfstæðar einingar en eiga jafnframt í samtali hvert við annað í sýningarrýminu. Þau eru fáguð yfirlitum\, öguð\, og formin sterk og einföld. Breidd litapallettu nnar nær frá ómeðhöndluðum viðnum yfir í frumliti og jafnvel neón. Litirnir endurkastast af hvítum veggjunum og innan verksins sjálfs myndast einskonar lokaður heimur þar sem ljós- og skuggaspil skapa sín eigin form. Við erum hér minnt á stórfenglega getu augans til að umbreyta geislum ljóssins yfir í merkingarbæra skynjun á umhverfi okkar. Verkin hafa þannig áhrif handan sýningarrýmisins og fylgja okkur sem vegvísir inn í daglega lífið og hvernig við getum frekar skerpt á myndrænni skynjun okkar á undrum umhverfisins í kringum okkur. \nÍ verkum sýningarinnar\, sem öll eru meðal hennar nýjustu\, notar Jeanine ómeðhöndlaðan við sem uppistöðu í rúmfræðilegum strúktúrum er sjá má sem vísanir til málverksins\, einskonar uppbrot eða afbyggingu á ramma hins hefðbundna málverks þar sem rammaefnið er tekið í sundur og málað á það í stað striga. Málverkið sýnir þannig ekki mynd heldur myndar rammaefnið nokkurskonar arkitektónískt\, naumhyggjulegt rými þar sem litafletir mætast í ljósi og skugga. Rýmið innan verksins er þannig í senn augljóst og dularfullt. \nÁ yfir fjögurra áratuga listferli sínum hefur Jeanine fengist við slíkt rýmisspil með notkun grunneininga málverksins í fjarveru greinanlegs myndefnis. Þar koma fyrir hreinar línur\, skýr form og litasamsetningar sem vísa gjarnan frá þeim er við þekkjum úr sögu málverksins. Verk hennar eru í allskyns stærðum og gjarnan um og yfir líkamsstærð\, í beinu samtali við arkitektúr og mannslíkamann. Í sýningunni hér má hinsvegar sjá minni verk\, sem vel mætti hugsa sér að myndu rúma efri hluta líkamans væru þau portrett. \nBirta Guðjónsdóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/jeanine-cohen-inner-space/
LOCATION:Hverfisgallerí\, Hverfisgata 4\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/DSF7325-1060x795-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220312
DTEND;VALUE=DATE:20220424
DTSTAMP:20260530T145717
CREATED:20220314T111445Z
LAST-MODIFIED:20220423T095017Z
UID:22689-1647043200-1650758399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Krot & Krass: Viðarverk
DESCRIPTION:Tvíeykið Krot & Krass sem samanstendur af þeim Birni Loka (f. 1991) og Elsu Jónsdóttur (f. 1990) opnar einkasýningu sína sem ber titilinn Viðarverk í Hverfisgalleríi á laugardaginn. Á sýningunni verða ný skúlptúrverk sem unnin eru í rekavið og steypu. Samhliða verkunum hefur Krot & Krass unnið rannsóknarskýrslu sem gefin er út sem sérstakt bókverk. Höfðaletur hefur verið helsta hugðarefni Krot & Krass undanfarin misseri en letrið kom fyrst fram í íslenskum útskurði á 16. öld. Höfðaletur getur verið torlæsilegt og hefur allt frá uppruna sínum verið sveipað dulúð. \n  \nMenning\, salt og volk \nÖll komum við úr sjónum. Við þekkjum teikningarnar úr líffræðibókunum. Lífið kviknaði í sjónum en á einhverjum tímapunkti skriðu fiskarnir á land\, slímugir og hreistraðir\, en einnig afar hungraðir í kókoshnetur og sólskin og aðrar lystisemdir jarðarinnar. Og þannig urðum við til. Við veltumst upp á land eins og fyllibytta sem hrynur niður stiga. Og þó að því hafi fylgt átök er líka pínu ferskt að stíga upp úr sjónum með saltstrokið hörund. \nEf maður býr á eyju er ekki erfitt að sjá þetta. Hafið er grundvöllur allrar menningar. Öll komum við jú af hafi\, eða að minnsta kosti forfeðurnir. Meira að segja svínin í þessu landi þurftu upphaflega að ferðast yfir hafið. Allt kom yfir hafið. Stafrófið\, kristindómurinn\, einokunarverslunin\, breikdans\, áfergja í sólþurrkaða tómata. Allt eru þetta hlutir sem skoluðust upp á land í misgóðu ástandi. Því að hafið tekur sinn toll. Ekkert kemur óvelkt af hafi. Kaþólskan var útvötnuð á afskekktu eyjunni\, miðað við Vatíkanið. Prestar máttu giftast\, þeir máttu líka bregða sverði og drepa\, eða kannski máttu þeir það ekkert – en aðeins hafið vissi upp á þá sökina. Frá meginlandinu barst einnig höfðaletrið\, hið fræga gotneska letur sem varð að eins konar einkennismerki prentaldar. En hér á eyjunni varð letrið öðruvísi. Það varð einhver bjögun á leiðinni yfir hafið\, eða kannski þróun. Það fer eftir því hvernig á það er litið. Þetta hefur listadúóið Krot og Krass stúderað. \nÞað eru þó ekki aðeins hugmyndir og fólk sem hefur rekið hér á land. Líka ýmis önnur aðföng sem bjargað hafa lífi eyjarskeggja. Það er sagt að rekaviður sé prýðilegur til húsbygginga enda hafa ófá hús verið reist úr honum í gegnum aldirnar. En kannski er rekaviður aðeins prýðilegur efniviður fyrir þá sem hafa í raun ekkert val. Það var annaðhvort rekaviður eða enginn viður. Einhverjir kostir eru þó augljósir. Rekaviðurinn hefur velkst um í sjónum og ýmsar bugður og kvistir kvarnast burt í volkinu. Sjórinn greinir stofna frá sprekum. Þá hefur verið sagt að saltið í sjónum auki endingu viðarins. Eða kannski var það misheyrn. Salt eykur allavega endingu matvæla og lífið er saltfiskur og á einhvern hugmyndafræðilegan hátt er þjóðlegt að byggja hús sitt úr söltuðu timbri. Það fylgir því öryggistilfinning að sitja inn í húsi úr söltuðu og sjóreknu timbri. Fyrst hafið gat ekki grandað því fara veður og vindar varla að vinna mikið tjón. \nÞetta er þó ekki það sem heillar mest við rekavið. Það er fremur volkið sjálft. Dulúð ferðalagsins. Enginn veit í raun hve lengi viðurinn er búinn að vera í sjónum áður en hann rekur á land. Það eru engir dagsetningarstimplar á drumbunum. Ekkert vottorð eða kvittun eða QR-kóði. Sjórekið timbur er kannski síðasta sendingarformið sem er algjörlega tilviljunarkennt í veröld þar sem allt er skráð\, flokkað\, mælt og vegið. Virðið þá fyrir ykkur. Þessa sjóreknu\, útskornu drumba sem standa fyrir framan ykkur. Ímyndið ykkur ævi þeirra. Fyrst voru það áratugir í skóginum\, kannski í Síberíu\, kannski í Alaska\, og hugsanlega svo djúpt inn í óbyggðum að í námunda við þá voru gerðar kjarnorkusprengjutilraunir sem aldrei voru tilkynntar. En á einhverjum tímapunkti hættu þeir að vera tré og urðu að niðursöguðum drumbum. Það var stóra áfallið. Svo var það ferðin niður ána\, eða eftir veginum\, eða járnbrautarteinunum\, því að einhvern veginn ferðuðust þessir drumbar að hafi. Síðan tíminn í hafinu. Innan um ísjaka og rostunga\, maðka og mátt Guðs. Og svo á svörtum íslenskum sandi\, undir kríunum\, í hvínandi söltum vindinum. Þaðan upp á pallbíl. Bandarískan\, viljandi hallærislegan töffarapallbíl og inn á vinnustofu listafólks með meiningar. Þar voru þeir útskornir og stroknir og þvegnir og settir inn í galleríið og svo er aldrei að vita nema næsti fasi þessarar sögu fari fram inn á heimili vogunarsjóðs-síkópata þar sem stundaður er djass og fokk undir skörðum mána. \nVirðum þá fyrir okkur. Þetta eru drumbar\, saltaðir kögglar\, þeir risu kannski ekki eins og Bond-stelpa úr hafinu\, en þeir eru ferskir og saltaðir. Bæði útvatnaðir en líka mergþéttir. Sigldir en þjóðlegir. Þeir eru voðaverk\, viðarverk\, timbraðir\, flúraðir gúbbar og maður vill ekki mæta þeim á bílastæðinu fyrir utan Stjörnubíó. En við fáum stund með þeim hér\, á eigin forsendum\, fáum að finna af þeim lyktina\, anda að okkur sögunni. \nBergur Ebbi \n  \nKrot & Krass eru tvíeykið Björn Loki (f. 1991) og Elsa Jónsdóttir (f. 1990) og hafa verið starfandi í áratug. Tvíeykið rekur 1200 m² vinnustofu í Gufunesinu sem ber nafnið FÚSK. Þau eru meðeigendur í Skiltamálun Reykjavíkur sem sérhæfir sig í uppsetningu á stærðarinnar veggverkum fyrir listamenn. Krot & Krass hafa stundað kennslu við Listaháskóla Íslands\, Lýðskóla Flateyrar og Fjölbraut í Breiðholti og staðið að lista- og tónlistarhátíðum á borð við Buxur\, Happy Festival og Gambri\, Berlín.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/krot-krass-vidarverk/
LOCATION:Hverfisgallerí\, Hverfisgata 4\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/03/unnamed.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211120
DTEND;VALUE=DATE:20220227
DTSTAMP:20260530T145717
CREATED:20211122T153158Z
LAST-MODIFIED:20220228T104222Z
UID:20281-1637366400-1645919999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hrafnkell Sigurðsson: Recondestruction
DESCRIPTION:Allan janúar 2021 dvaldi ég á Siglufirði við skriftir. Vann í matsalnum á Hótel Siglunesi og bjó í íbúð marokkó-kokksins góða. Allar fjórar vikurnar var sama veðrið\, norðan stórrhríð eða skafrenningur. Nýji kraftgallinn kom sér vel. Á hverjum morgni gekk ég upp í hlíðargötur með hundinn Lukku og niður á torgið\, stakk mér síðan inn í bakaríið og snæddi morgunverð\, rúnnstykki\, safa og kaffi. \nMér fannst ég staddur í öðrum heimi\, heimi sem tilheyrði vart Íslandi. Sigló var svo miklu norðar á hnettinum en restin af landinu. Jafnvel Akureyri virtist vera þriggja tíma flug í burtu. Á köflum lokaðist enda fjörðurinn\, hvorki var fært fyrir skriðurnar vestur í Skagafjörð eða um Múlann austur í Eyjafjörð. Aðeins varð komist að og frá staðnum með öflugum skipum. Stundum sátu áhafnarmeðlimir á Múlaberginu með mér í morgunkaffinu og sögðu já\, helvítis norðanskít vera úti fyrir firðinum\, á meðan úti hvein í ljósastaurunum og skaflarnir söfnuðust upp í garðshornum og húsasundum. Á hverjum morgni þurfti maður að moka sig út og á hverju kvöldi þurfti maður að moka sig aftur inn. Þetta var alveg nýtt líf fyrir mér. Snjóskóflan var orðið sama þarfaþing og tannburstinn. \nMorgun einn seint í janúar sátu tveir starfsmenn skíðasvæðisins í bakaríinu og snæddu morgunverð. Ég kannaðist við þá úr skíðaferðum undanfarinna ára og við ræddum veðrið\, færðina og horfurnar. Akkúrat í þeim orðum varð viðburður úti í myrkrinu og muggunni sem kom í ljós um leið og tvímenningarnir mættu upp á skíðasvæðið hálftíma síðar: Snjóflóð hafði splundrað skíðaskála Siglfirðinga. Brak úr honum og geymslugámum sem stóðu þar hjá lá dreift um stórt svæði. “Þeir voru nú bara heppnir að koma við hérna í bakaríinu hjá okkur þennan morguninn í stað þess að fara beint upp á svæði eins og þeir gera jafnan\,” sagði konan í bakaríinu daginn eftir. \nEnn einn ganginn hafði orðið snjóflóð á Siglufirði. Ekki í fyrsta og ekki í síðasta sinn. Þrátt fyrir að bærinn sjálfur sé nú varinn af flóðagildrum og varnargörðum fann náttúran sér leið til að valda tjóni á eigum bæjarbúa. \nEn þar sem flestir sjá tjón sér listamaður tækifæri. Skömmu eftir flóðið var Hrafnkell Sigurðsson mættur í Herhúsið og þaðan upp á svæði. Á augabragði hafði brakið raðað sér upp af einstökun listrænu jafnvægi. Náttúran hafði brotið líf okkar niður í eindir en listamaðurinn hafði raðað þeim aftur saman. Úr urðu einskonar vörður\, ef ekki súlur\, minnisvarðar um þann brothætta veruleika sem lífið er\, margbrotin minnismerki sem voru þó eins og frummyndir sprengingar: Stóri hvellur í frumbernsku\, áður en hlutirnir þeyttust út í rýmið. \nHvað er listamaðurinn að segja okkur hér? Þegar veruleiki okkar hefur verið tekinn í sundur\, flokkaður og greindur\, er þetta eina leiðin til að setja hann aftur saman. \nVið erum minnt á gamlar sögur af radíóamatörum sem gátu tekið transistor-útvarpið í sundur en ekki sett það saman aftur. Útkoman var splundrað útvarpstæki sem aðeins gat náð einni stöð: Dularfyllstu útsendingu heimsins\, þeirri sem kemur úr kjarna lífsins. \nÁ líkan hátt hefur Hrafnkell Sigurðsson raðað veruleika okkar upp aftur\, eftir að náttúran tók hann í sundur: Svona lítur tilveran út þegar hún hefur verið afbyggð og sett saman á ný. Það er endurafbygging. Redeconstruction. \n– Hallgrímur Helgason \n  \nHRAFNKELL SIGURÐSSON (f. 1963) nam við Jan Van Eyck Akademie í Maastricht í Hollandi á árunum 1988-1990 og lauk MFA-gráðu frá Goldsmith‘s College árið 2002. Hrafnkell hefur haldið fjölda einka- og hóp sýninga hérlendis og erlendis. Listaverk Hrafnkels má finna í safneignum fjölda listasafna og stofnana sem og safnara.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hrafnkell-sigurdsson-recondestruction/
LOCATION:Hverfisgallerí\, Hverfisgata 4\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/gif:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/11/unnamed.gif
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210925
DTEND;VALUE=DATE:20211107
DTSTAMP:20260530T145717
CREATED:20210923T102249Z
LAST-MODIFIED:20210923T102249Z
UID:19289-1632528000-1636243199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Perry Roberts: below / beyond
DESCRIPTION:
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/perry-roberts-below-beyond/
LOCATION:Hverfisgallerí\, Hverfisgata 4\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/09/perry-r.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR