BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230624
DTEND;VALUE=DATE:20230813
DTSTAMP:20260530T141102
CREATED:20230630T141853Z
LAST-MODIFIED:20230901T145302Z
UID:31969-1687564800-1691884799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hulda Vilhjálmsdóttir: Ég er gagnsæ
DESCRIPTION:Á sýningunni kannar Hulda Vilhjálmsdóttir gagnsæið með japanskri málaratækni og pappír í verkum þar sem gagnsæ tákn og myndir spretta fram. \nKjarninn í sýningunni er færni og sýn Huldu sem hefur fyrir löngu varðað sína persónulegu leið í íslenskri samtímalist. Í verkum sínum kafar hún ofan í sameiginlegan skynheim og tilfinningar alls sem lífsanda dregur og í þetta sinn beitir hún óhlutlægri\, abstrakt\, nálgun. Abstraktverk Huldu eru ekki jafn þekktar og mannamyndir hennar\, en þau eru ekki síður heillandi og geta vakið hjá áhorfandanum jafn sterkar tilfinningar. \nSýningin er umlykjandi veröld þar sem við getum lesið abstrakt formin sem landslag og notið dansandi litanna sem Hulda töfrar fram úr pensli sínum. Hún vefur saman sterka og djúpa liti til að endurskapa flókna veröld okkar. Verk Huldu geta líka vakið okkur til umhugsunar um það hlutverk  sem gagnsæi leikur í lífi okkar mannfólksins. Á sýningunni er það mýktin sem ræður og í verkunum eru styrkur og breyskleiki í fullkomnu jafnvægi. Með japanskri pensiltækni og gljúpum pappírnum undirstrikar Hulda þetta jafnvægi þar sem hún notar birtuna í myndunum til að draga fram listrænan boðskap sinn. Við þennan samruna verður til myndrænt samtal sem endurómar í sál okkar – samtal um mikilvægi gagnsæis og tengsla. \nSýningin Ég er gagnsæ er til vitnis um umbreytingarmátt myndlistarinnar\, um það hvernig hún getur breytt skynjun okkar\, vakið tilfinningar og kveikt samræður. Verk Huldu minna okkur á það að gefa gaum því sem er á milli hlutanna\, að velta fyrir okkur mismunandi sjónarhornum og leitast við að sjá veröldina sem allt of oft er ógagnsæ og gruggug. \nTexti: Regula Starmpfli \nHulda Vilhjálmsdóttir (f. 1971) útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands með BA gráðu í málun árið 2000. Hún tók diplómanám í leirmótun og keramik við Myndlistaskólann í Reykjavík 2007-2008. Allt frá útskrift hefur Hulda helgað sig málaralistinni og haldið fjölda einka- og samsýninga bæði hér heima og erlendis. Árið 2007 var Hulda til tilnefnd til Carnegie ART award og 2018 til Íslensku Myndlistarverðlaunanna fyrir einkasýninguna Valbrá í Kling og Bang. Árið 2020 hlaut Hulda Tilberann\, myndlistarverðlaun Nýlistasafnins\, fyrir störf hennar í myndlist síðastliðna tvo áratugi. Hulda býr og starfar í Reykjavík.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hulda-vilhjalmsdottir-eg-er-gagnsae/
LOCATION:Listval\, Hverfisgata 4\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/06/framelisval.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210918
DTEND;VALUE=DATE:20211002
DTSTAMP:20260530T141102
CREATED:20210917T143413Z
LAST-MODIFIED:20210927T125422Z
UID:19152-1631923200-1633132799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ragnheiður Eiríksdóttir & Hulda Vilhjálmsdóttir: Hæg læti
DESCRIPTION:Hulda og Heiða sýna saman í Midpunt. \n  \nÞær mála. Þær gera gjörninga. Þær flytja þulur\, performa á rafmagnsgítar. \nÞær eru heiðarlegar í þessu samtali\, \nÞær túlka lífið\, \nlífið í dag\, \nröddin\, rafmagnsgítarinn og málverkið mætast. \n  \nÚtkoman er hæg læti\, málverk\, þula\, tónverk\, teikningar\, skúlptúrar\, hljóðverk. \nOrka þeirra \ner Æsandi. \nHávaði þeirra er Róandi. \n  \nUm listamanninn Ragnheiði Eiríksdóttir: \nHeiða vinnur með andstæður í sinni listsköpun og hefur komið víða við. Hún var pönkari sem gekk í sveitaballapoppsveitina unun\, svo var hún kassagítarleikari sem spilaði rokk á rafmagnsgítar\, svo var hún noise-tónlistarmaður sem notaði kassagítar og effekta og loks fór hún að gera tónlist sem myndlist. Árið 2017 komu út 3 plötur með Heidatrubador\, sem er ekki trúbador\, og þá var komið að því að snúa dæminu við. Hún tók sér frí frá tónlist og fór undir eins að dreyma liti og ákvað að gera myndlist sem tónlist. New York-borg róar hana\, lítil sjávarþorp stressa hana upp. Hún er 50 ára óráðsett\, ómiðaldra og ekki sest í helgan stein. Hún hefur þó lífsreynslu og kannski eru loksins að vaxa á hana smá rætur\, því hún hefur ákveðið að hætta að vera hrædd við nokkurn skapaðan hlut og gera bara það sem hjartað segir henni. Hún er löngu hætt að rífa sig niður og er nú sinn eiginn aðdáandi númer 2 (mamma og pabbi hennar eru aðdáendur númer eitt). Henni er nákvæmlega sama hvort þú fílir listina hennar\, en hún er skemmtileg og það er gaman að spjalla við hana. Hún er lítil og með læti\, stór og róleg\, brosandi og döpur\, ringluð og skipulögð\, en alltaf heiðarleg og með hreint hjarta. \n  \nHulda Vilhjálmsdóttir er fædd í Reykjavík 1971. Hún útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands með BA gráðu í málun árið 2000.Hún tók diplómanám í leirmótun og keramik við Myndlistaskólann í Reykjavík 2007-2008. \nÁrið 2007 var Hulda til tilnefnd til Carnegie ART award og 2018 til Íslensku Myndlistarverðlaunanna fyrir einkasýninguna Valbrá í Kling og Bang. 2020 hlaut Hulda Tilberann\, myndlistarverðlaun fyrir störf hennar í myndlist síðastliðna tvo áratugi. \nHulda hefur haldið fjölda bæði einka- og samsýninga heima og erlendis og eiga Listasöfn og einkaaðilar verk eftir hana. Árið 2003 opnaði hún og rak gallerí Angelicu Smith í þrjá mánuði sem nokkurs konar gjörning. Hulda hefur gefið út nokkrar ljóðabækur og myndabækur\, má þar nefna Valbrá sem kom út 2017 og Dagur Líður 2020. Frá því Hulda lauk námi hefur hún starfað sjálfstætt að myndlistinni. Verkin hennar eru tilfinningarík en samt yfirveguð. Með ljóðrænni túlkun af landslagi\, óhlutbundið og fólki. berst hún fyrir tjáningarfrelsi og verndun náttúrunnar.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/ragnheidur-eiriksdottir-hulda-vilhjalmsdottir-haeg-laeti/
LOCATION:Midpunkt\, Hambraborg 22\, Kópavogur\, 220
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/09/Haeg-Laeti.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210902
DTEND;VALUE=DATE:20211115
DTSTAMP:20260530T141102
CREATED:20210830T122814Z
LAST-MODIFIED:20220916T110521Z
UID:18780-1630540800-1636934399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:FJÖLFELDI - HLUTFELDI - MARGFELDI
DESCRIPTION:Listasafn Reykjanesbæjar opnar sýningu í samvinnu við MULTIS. \nAðstandendur verkefnisins eru: Helga Óskarsdóttir\, Ásdís Spanó og Kristín Jóna Þorsteinsdóttir. \nMULTIS sérhæfir sig í kynningu\, útgáfu og sölu á fjölfeldum íslenskra samtímalistamanna og er markmið MULTIS að gera list aðgengilega almenningi og bjóða upp á myndlist eftir listafólk í fremstu röð íslenskrar samtímalistar. \nAð geta búið til fleiri en eitt eintak af sama verki hefur lengi fylgt starfi listamannsins. Margir myndlistarmenn hafa reynt sig við formið sem býður upp á annars konar möguleika en hið einstaka verk\, og er einhverstaðar á rófi á milli myndlistar og framleiðsluafurðar. Verk sem unnin eru í fjölriti eru verðlögð á annan hátt\, eru ódýrari og þar með gerð aðgengileg fyrir stærri hóp til eignar. Verkið fer af stalli hins einstaka og verður hlutur (object) sem fleiri en einn getur átt\, eru gjarnan smærri\, og staðfesta gildi sitt ekki einungis með því að vera verk eftir ákveðinn  listamann\, heldur einnig með því að vera tölusett og áritað eintak og þá orðið hluti af stærri sögn sem er mikilvægt fyrir þann sem eignast verkið. \nÁ sýningunni FJÖLFELDI – HLUTFELDI – MARGFELDI er sjónum beint að verkum tuttugu og níu samtímalistamanna sem hafa til lengri eða skemmri tíma unnið að gerð fjölfelda (Multiple). Til þess að listaverk geti fallið undir þá skilgreiningu\, þurfa verkin að vera gerð í þremur eða fleiri eintökum. \nListamenn sem eiga verk á FJÖLFELDI – HLUTFELDI – MARGFELDI eru: Einar Örn Benediktsson\, Gjörningaklúbburinn – Eirún Sigurðardóttir og Jóní Jónsdóttir\, Guðjón Ketilsson\, Hulda Vilhjálmsdóttir\, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir\, Ívar Valgarðsson\, Jóna Hlíf Halldórsdóttir\, Karlotta Blöndal\, Magnús Helgason\, Magnús Pálsson\, Pétur Magnússon\, Ragnheiður Gestsdóttir\, Steingrímur Eyfjörð\, Tumi Magnússon\, Þór Sigurþórsson\, Þórdís Jóhannesdóttir\, Baldur Geir Bragason\, Davíð Örn Halldórsson\, Gabríela Friðriksdóttir\, Guðmundur Thoroddsen\, Kristín Eiríksdóttir\, Logi Leo Gunnarsson\, Helgi Þórsson\, Lilja Birgisdóttir\, Sara Riel\, Sirra Sigrún Sigurðardóttir\, Snorri Ásmundsson\, Hulda Rós Guðnadóttir\, Þórdís Erla Zoëga. \nSýningin stendur til og með 14. nóvember 2021. \n\n\n\n\nAð geta búið til fleiri en eitt eintak af sama verki hefur lengi fylgt starfi listamannsins. Margir myndlistarmenn hafa reynt sig við formið sem býður upp á annars konar möguleika en hið einstaka verk\, og er einhverstaðar á rófi á milli myndlistar og framleiðsluafurðar. Verk sem unnin eru í fjölriti eru verðlögð á annan hátt\, eru ódýrari og þar með gerð aðgengileg fyrir stærri hóp til eignar. Verkið fer af stalli hins einstaka og verður hlutur (object) sem fleiri en einn getur átt\, eru gjarnan smærri\, og staðfesta gildi sitt ekki einungis með því að vera verk eftir ákveðinn listamann\, heldur einnig með því að vera tölusett og áritað eintak og þá orðið hluti af stærri sögn sem er mikilvægt fyrir þann sem eignast verkið.Fjölfeldi geta verið tví- eða þrívíð og hægt er að búa þau til með margvíslegum aðferðum. Á fimmtándu öld fóru listamenn að þróa aðferðir til að geta steypt verk í mót því það þótti mikill kostur að geta dreift verkum sem víðast. Þetta varð til þess að sjónræn menning efldist til muna í þeim löndum sem þekkingin var til staðar.  Á átjándu öld fundu listamenn til dæmis upp aðferðir sem gerðu þeim kleift að móta skúlptúrverk úr t.d. leir\, bronsi\, gifsi og postulíni. Að steypa skúlptúra með því að nota mold eða sand varð vinsælt við framleiðslu verka sem gerð voru í upplagi og eru þær aðferðir ennþá mikið notaðar við gerð myndlistar. Einnig falla aðferðir grafíklistarinnar undir þessa skilgreiningu en verk unnin á þann hátt hafa þann ótvíræða kost að auðvelt er að gera sama verkið í mörgum eintökum. \nMeð tilkomu koparstungu á tímum barokksins verður dreifing og fjölföldun myndverka almennari. Koparstungan er aðferð sem notuð er við gerð grafíkmynda en þar er myndin grafin með nál í koparplötu og síðan þrykkt á pappír. Verkið Los caprichos\, 1797 eftir Francisco Goya var með fyrstu þekktu fjölfeldunum sem búið var til í takmörkuðu upplagi.  Ef litið er til listaverka tuttugustu aldar er verk Marcel Duchamps\, Rotoreliefs frá árinu 1935 eitt af fyrstu fjölfeldum nútímalistarinnar og í þeirri mynd af fjölfeldum sem við þekkjum í dag\, en verkið er sería af sex snúningsdiskum sem voru gefnir út í 500 eintökum. \nÁ sýningunni FJÖLFELDI – HLUTFELDI – MARGFELDI er sjónum beint að verkum tuttugu og níu samtímalistamanna sem hafa til lengri eða skemmri tíma unnið að gerð fjölfelda (Multiple). Til þess að listaverk geti fallið undir þá skilgreiningu\, þurfa verkin að vera gerð í þremur eða fleiri eintökum. \nOrðið HLUTFELDI kemur úr orðasmiðju Magnúsar Pálssonar en á sýningunni má finna flest af þeim verkum þar sem hann vinnur með þessum hætti. Á sýningunni má finna þau verk Magnúsar sem enn eru til í fórum listamannsins og fjölskyldu hans en mörg af verkum hans eru nú í eigu safna eða í einkaeigu. Önnur verk á sýningunni eru unnin í samtali við MULTIS verkefnið yfir tveggja ára tímabil. \nMULTIS sérhæfir sig í kynningu\, útgáfu og sölu á fjölfeldum íslenskra samtímalistamanna og er markmið MULTIS að gera list aðgengilega almenningi og bjóða upp á myndlist eftir listafólk í fremstu röð íslenskra samtímalistar. \nMULTIS setur fókusinn á fjölfeldi\, verk sem gerð eru í a.m.k. þremur eintökum. Þetta geta bæði verið prent og skúlptúrar\, allt eftir því hvað hentar hugmynd listamannsins hverju sinni.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/fjolfeldi-hlutfeldi-margfeldi/
LOCATION:Listasafn Reykjanesbæjar\, Duusgata 2-8\, Reykjanesbær\, 230\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/multis.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210814
DTEND;VALUE=DATE:20210906
DTSTAMP:20260530T141102
CREATED:20210823T113837Z
LAST-MODIFIED:20220916T110042Z
UID:18566-1628899200-1630886399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hulda Vilhjálmsdóttir: Pönk rómantík (Fullkominn ófullkomleiki)
DESCRIPTION:Sýningin Pönk rómantík (Fullkominn ófullkomleiki) eru verk sem ég hef unnið undanfarin ár og eru samtal milli abstrakt og fígúratíft\, náttúrunnar og abstrakt\, hins gamla og nýja.”\n– Hulda Vilhjálmsdóttir\n\nHulda Vilhjálmsdóttir er fædd í Reykjavík 1971. Hún útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands með BA gráðu í málun árið 2000.\nHún tók diplómanám í leirmótun og keramik við Myndlistaskólann í Reykjavík 2007-2008.\nÁrið 2007 var Hulda til tilnefnd til Carnegie ART award og 2018 til Íslensku Myndlistarverðlaunanna fyrir einkasýninguna Valbrá í Kling og Bang. 2019 hlaut Hulda myndlistarverðlaunin Tilberann.\nHulda hefur haldið fjölda bæði einka- og samsýninga heima og erlendis og eiga Listasöfn og einkaaðilar verk eftir hana. Árið 2003 opnaði hún og rak gallerí Angelicu Smith í þrjá mánuði sem nokkurs konar gjörning. Hulda hefur gefið út nokkrar ljóðabækur og myndabækur\, má þar nefna Valbrá sem kom út 2017 og Dagur Líður 2020. Frá því Hulda lauk námi hefur hún starfað sjálfstætt að myndlistinni. Verkin hennar eru tilfinningarík en samt yfirveguð. Með ljóðrænni túlkun af landslagi\, óhlutbundið og fólki. berst hún fyrir tjáningarfrelsi og verndun náttúrunnar.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hulda-vilhjalmsdottir-ponk-romantik-fullkominn-ofullkomleiki/
LOCATION:Þula\, Hjartatorg\, Laugavegur 21\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/hulda.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR