BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230819
DTEND;VALUE=DATE:20231002
DTSTAMP:20260530T145723
CREATED:20230816T141910Z
LAST-MODIFIED:20230816T141910Z
UID:32316-1692403200-1696204799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Anna Reutinger\, Brák Jónsdóttir\, Hugo Llanes og Sigurður Ámundason: Gottfariðillailla
DESCRIPTION:Sýningin leiðir saman verk listamannanna Anna Reutinger\, Brákar Jónsdóttur\, Hugo Llanes og Sigurðar Ámundasonar\, sem hér sýna saman í fyrsta sinn. Gottfariðillailla sprettur upp úr þéttu samstarfi og tekur form sem einhvers konar samkomustaður\, upphaf eða endastöð einbeitts en örlítið óreiðukennds samtals þar sem mismunandi raddir fléttast saman og hugmyndir mótast í leiðinni. Sýningin tekur sér (ó)þægilega stöðu inni í maga dýrsins mikla og dregur fram skáldaðar minningar\, náttúru\, menningu\, útdauða\, sefandi sjálfshyggju — og skál fyrir heimi án okkar! \n\n\n\n\n\nÁgrip \n\nVerk Anna Reutinger seytla í gegnum trefjar einsemdarinnar og blanda félagslegum\, efnislegum og sögulegum augnablikum í margradda\, litríkar sögur. Með því að nýta notaðan vefnaðarvöru\, gler\, brotajárn\, náttúruleg litarefni\, aukaafurðir landbúnaðar\, félagsleg kynni og fjarlægar sögur\, rannsakar hún á verklegan hátt\, og undirstrikar handverk sem fræ fyrir félagslega\, efnislega og umhverfislega næmi. Hún býður öðrum inn í helli möguleika\, allt frá stórum innsetningum til leiklistarsmiðja og kvikmynda\, allt handsmíðað með það að markmiði að teygja magann í átt að rótakenndri sameiginlegri ímyndun. Hún er kennari við Dirty Art Department við Sandberg Instituut þar sem hún lauk einnig MA gráðu árið 2016. Þar á undan lauk hún BA gráðu í hönnunar\, miðlun og stafrænum hugvísindum við UCLA árið 2013. \n  \nBrák Jónsdóttir er starfandi myndlistarmaður á Íslandi. Hún útskrifaðist með BA gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2021. Verk hennar kanna þemu frá forsögu til ímyndaðrar framtíðar\, segja frá skálduðum atburðum sem blása lífi í útdauð dýr eða verur af öðrum heimi. Hún brúar bil þekkingar með goðsögum\, skapar tótemískar skúlptúrinnsetningar og kafar ofan í spennuna milli hins tilbúna og náttúrulega. Ef til vill hrollvekjandi við fyrstu sýn\, búa verk Brákar þó yfir blíðu\, næmni og húmor þar sem skynrænar tilgátur spretta upp úr staðreyndum. Dularfullar frásagnir í gegnum furðuleg vistkerfi\, kveikja tilvistarspurningar og bjóða áhorfendum að ígrunda leyndardóma lífsins. \n  \nHugo Llanes útskrifaðist frá MA í myndlist við Listaháskóla Íslands og er virkur meðlimur Artist in Iceland Visa Action Group. Hann hlaut nýverið tilnefningu PECDA (Young Creators fund Veracruz State) og er um þessar mundir staddur í Saari Residency Programe af KONE Foundation\, Finnlandi. Verk hans fela í sér rannsókn á félagspólitískum sprungum og þeirri fagurfræði sem brýst út úr þeim. Hann skoðar félagslegar aðstæður\, svo sem fólksflutninga\, dreifingu matar\, misbeitingu valds og áhrif síðnýlendustefnunnar á nýja sjálfsmynd Suður-Ameríku. Til að lýsa þessu notar hann listrænar rannsóknir og miðla eins og viðhaldslist\, gjörninga\, innsetningar\, staðbundna list\, þátttökulist\, vídeó og málverk. \n  \nFrá því að Sigurður Ámundason útskrifaðist úr Myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2012\, hefur hann haldið tólf einkasýningar\, tekið þátt í fjölda samsýninga og flutt óteljandi gjörninga. Sigurður vinnur mest með teikningu og gjörninga en hefur notist við hina ýmsu listmiðla\, hvort sem um er að ræða skrif\, ljósmyndir\, innsetningar\, vídeó-verk\, skúlptúr eða bókverk. Sigurður hefur kennt í Myndlistarskólanum í Reyjavík og við Myndlistardeild Listaháskóla Íslands. Árið 2020 hlaut hann tilnefningu til Hvatningarverðlauna Íslensku Myndlistarverðlaunanna Myndlist Sigurðar reynir að takast á við takmörk mannlegra samskipta og angist þeirri sem hlýst af óuppgerðum tilfinningum\, misskilningi og hégóma.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/anna-reutinger-brak-jonsdottir-hugo-llanes-og-sigurdur-amundason-gottfaridillailla/
LOCATION:The Living Art Museum\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/webp:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/08/64cb2d18-119b-49d5-bc6d-b3050aeef80c_Keiko-sling-purple-web.jpeg.webp
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230420
DTEND;VALUE=DATE:20230501
DTSTAMP:20260530T145723
CREATED:20230420T104140Z
LAST-MODIFIED:20230420T104140Z
UID:30503-1681948800-1682899199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hugo Llanes: And When The Sun Rises\, I Look at The Sun
DESCRIPTION:Með „And When The Sun Rises\, I Look at The Sun“ (og þegar sólin rís lít ég til sólar) leggur Hugo Llanes til að endurskipuleggja búskap\, arðrán og innflutning ákveðins landbúnaðar sem dæmi um félags-pólitíska atburði\, svo sem komu Spánverja til Ameríku\, og þróun landbúnaðariðnaðarins í Rómönsku-Amerísku samhengi.\nMeð áherslu á jörð og menningarleg mótíf\, og sykuriðnað Veracruz-héraðsins í Mexíkó – upprunastað listamannsins – til viðmiðunar\, dregur Llanes upp mynd af samspili hálf-sveitaverkamanns\, iðnvæðingu landsins og hefðanna sem af þeim kunna að spretta. Hér mótar Llanes í tvíþættri athöfn\, þar sem hann málar með ösku sykurreyrsviðar á striga sem hann svo svíður\, samsetta innsetningu af brenndu hveiti\, bómull\, reyr og ryðfríu stáli.\nListamaðurinn leitast þannig við að hvetja til samtals um flækjustig þess að hrærast í samtímaveröld sem viðhaldið er af útdráttarhyggju\, óhóflegri neyslu og jarðargróða sem er undirstaða kapítalískrar viðskiptastefnu.\n\n Hugo Llanes er listamaður með aðsetur á Íslandi. Hann er með BA frá Universidad Veracruzana og MA í myndlist frá Listaháskóla Íslands. Verk hans fela í sér rannsókn á félagspólitískum sprungum og fagurfræði sem brýst út úr þeim. Llanes skoðar félagslegar aðstæður\, svo sem matvælaflutninga\, misbeitingu valds\, efnahagslega misskiptingu og fæðuframboðskeðjuna. Til að lýsa þessu notast hann við listrænar rannsóknir og miðla svo sem viðhaldslist\, gjörninga\, innsetningar\, staðbundna list\, þátttökulist\, myndbandalist og víðtæka málaralist. Hann telur að hið persónulega sé örkerfi sem verður fyrir hnattrænu sviði.\n\n\nOpið 14-17.\nOg eftir samkomulagi.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hugo-llanes-and-when-the-sun-rises-i-look-at-the-sun/
LOCATION:Associate Gallery\, Köllunarklettsvegi 4\, Reykjavík\, 104\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/04/P1-scaled.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220618
DTEND;VALUE=DATE:20220725
DTSTAMP:20260530T145723
CREATED:20220614T151611Z
LAST-MODIFIED:20220803T160253Z
UID:23702-1655510400-1658707199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Jarðtenging
DESCRIPTION:Listamenn: Maryse Goudreau\, Hugo Llanes\, Zinnia Naqvi\, Sigrún Gyða Sveinsdóttir\,\nMarzieh Emadi & Sina Saadat\nSýningarstjóri: Þorbjörg Jónsdóttir \nOpið þri-sun 14:00-17:00 \nMyndlistarsýningin Jarðtenging / Grounded Currents opnar í Verksmiðjunni á Hjalteyri  laugardaginn 18júní 2022 KL 14 með verkum listafólksins: Maryse Goudreau\, Hugo Llanes\,  Zinnia Naqvi\, Sigrún Gyða Sveinsdóttir\, Marzieh Emadi & Sina Saadat   \nSýningin er alþjóðleg samsýning yngri kynslóðar listafólks. Þau vinna ekki út frá einni einstakri sameiginlegri hugmynd og verkin eru sum marglaga í merkingu sinni eða nokkuð flókin enda verður það helst ára staðarins & óvenjulegt rýmið sem að mótar öðru fremur umgjörð fyrir samstarf og heild og virkjar sköpunarkraftinn..  \nÞau vinna sjálfstætt á staðnum og/eða fyrirfram að nýjum verkum. «Verksmiðjan er ekki aðeins  rými sýningarstaðarins\, heldur einnig rými athafna sem mótast og er mótað af tíma- og  rýmisbundnum samskiptum. Verksmiðjan er óhefðbundið rými og ekki hlutlaust sem hefur fremur  tekið mið af ljóðrænni afstöðu listamannanna sem þar haft sýnt og starfað » Listafólkið á ýmislegt sammerkt og eru að nokkru leiti valin út frá því: Þau vinna öll með videómiðilinn og þá líka  teiknimyndir eða animation ásamt ýmsum öðrum aðferðum samtímalistar\, þau eru með  manneskjuna\, samfélagið til athugunar og/eða umhverfið og náttúruna sem að á hug margra á  þessum síðustu tímum.  
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/grounded-currents/
LOCATION:The Factory in Hjalteyri\, Brekkuhús 3b\, Hjalteyri\, 601\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/06/Marzieh-Emadi-Sina-Saadat-Es-gibt-allerdings-Unaussprechliches-nr1-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220326
DTEND;VALUE=DATE:20220523
DTSTAMP:20260530T145723
CREATED:20220503T142234Z
LAST-MODIFIED:20220525T140014Z
UID:23067-1648252800-1653263999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Alter/Breyta
DESCRIPTION:Sýningin Alter / Breyta er samsýning fjögurra upprennandi myndlistarmanna sem eiga það sameiginlegt að hafa tiltölulega nýlega lokið námi við myndlistardeild Listaháskóla Íslands. Hópurinn var valinn í samvinnu með Bjarka Bragasyni\, deildarforseta Myndlistardeildar LHÍ\, og boðið að dvelja í þriggja vikna vinnustofudvöl í Skaftfelli þar sem þau fengu næði til að þróa tillögur sínar fyrir sýninguna. Þau vinna öll með ólíkar áherslur en þó er hægt að greina fíngerðan þráð sem býr til óræða tengingu á milli verka þeirra. \nEinhvers konar umbreyting hefur átt sér stað eða er gerð að útgangspunkti eða viðfangsefni á sýningunni. Ólíkum efniviði og hugmyndum er hnikað til: Hæglátt og lágstemmt ferlið\, natnin og endurtekningin sem umbreytir hversdagslegum hlutum þegar þeir eru teknir úr fyrra samhengi og taka á sig nýja mynd. \nVerkið Fallen\, eftir Joe Keys er samansafn smágerðra og litríkra hluta sem við gefum venjulega ekki mikinn gaum. Þeir hafa týnst og tapað sínu upprunalega hlutverki en í krafti fjöldans og með því að stilla hverjum og einum þeirra vandlega upp á sinni hillu\, hljóta þeir fyrir vikið ákveðna upphefð. Áhorfandinn er tilneyddur að beygja sig til að skoða þá betur. \nInnsetning og gjörningur/fyrirlestur Hugos Llanes hverfist um brauð og menningarlegan hverfulleika þess. Hér er okkur boðið að skilja pólitíska tilveru brauðs allt frá því að vera hefðbundin næring yfir í gildishlaðna\, iðnvædda vöru þar sem hráefnið gefur vísbendingar um samfélagsstöðu okkar. Brauðgómarnir skapa eins konar líkamlega nærveru listamannsins og er afurð gjörnings um leið og listamaðurinn býður áhorfendum upp á sammanlega upplifun með því að búa til sinn eigin brauðgóm sem verður hluti af sýningunni. Með skúlptúrnum “…gives me sleepless nights…” er sett fram teiknimyndapersóna sem hægt er að skilja sem dæmisögu um hvernig ávani og þráhyggja mannsins um matvæli er kaffært með kapítalískum varningi. \nVerk Brákar Jónsdóttur\, Daphne\, hangir tíguglega og friðsælt. Það er unnið út frá goðsögunni um umbreytingu Daphnes í lárviðartré til að flýja ofbeldisfullt áreiti Apollo. Trjágreinarnar mynda saman sterkbyggða grind en hafa verið sviptar sínu ytra klæði\, berkinum\, sem hlífir trénu. Berskjaldaður innsti kjarninn stendur eftir og þar getum við speglað okkur og getum jafnvel skyggnst inn í ókomna framtíð. \nHugmyndin um heilagleika og heimili er tvinnað saman í innsetningu Nínu Óskarsdóttur. Fallegir skrautmunir og hlutir sem tengjast handverki og heimili snerta á listrænni sköpun og persónulega rýminu en njóta á sama tíma upphefðar eins íkon á altari. Greinanleg fingraför listamannsinns í leirnum sanna aðkomu hennar að verkinu en helgidómur vígða vatnsins er okkur ósýnilegur. Hvernig er hægt að kalla fram heilagleika? \nTexti: Hanna Christel Sigurkarlsdóttir \nÆviágrip: \nBrák Jónsdóttir er fædd árið 1996. Hún útskrifaðist með BA gráðu úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2021. Verk hennar taka helst á sig form vídjóverks\, bókverks\, skúlptúrs og gjörnings\, en nýverið hafa viðfangsefni hennar snúið að sambandi manneskju við náttúru. Í rannsóknum sínum nálgast hún kink og blæti og skoðar samband mannfólks og náttúrulegra kerfa á grundvelli yfirráða og undirgefni\, fantasíu og femínisma. Verk hennar samanstanda af roðandi spennu milli sársauka og unaðar\, náttúrulegra og manngerðra efna. \nHugo Llanes er fæddur 1990 í Xalapa\, Veracruz í Mexíkó. Hann býr og starfar í Reykjavík og útskrifaðist með MA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2020. Hugo vinnur með pólitíska og félagslega bresti og fagurfræðina sem af því sprettur. Verk hans eru í formi málverka\, ætilegra verka\, innsetninga\, rýmistengdra verka og staðbundinna gjörninga. Með verkum sínum skoðar hann félagslegar aðstæður\, s.s. flutning fólks á milli landa\, valdbeitingu og áhrifa síðnýlendustefnunar á þróun sjálfsmyndar Rómönsku Ameríku\, stöðu sjálfstæðrar þjóðar\, annarleika og pólitíska andspyrnu\, auk þess sem hann vinnur með þema matar sem ádeilu á félagsleg vandamál og skoðar hvaða þýðingu upplifun okkar í gegnum matargerð hefur. Með ljóðrænni framsetningu verka sinni sér hann fram á mögulegan vettvang til að kryfja til mergjar þessi samofnu flóknu og krefjandi viðhorf. Hugo álítur að hið persónulega míkrókerfi sé berskjaldað gagnvart hinu hnattræna og með framsetningu sinni reynir hann að hvetja áhorfandann til þátttöku og íhugunar. \nJoe Keys er fæddur árið 1995 í Newcastle\, Englandi. Hann hefur búið og starfað á Íslandi síðan 2018 og útskrifaðist úr myndlistadeild Listaháskóla Íslands árið 2021. Joe vinnur aðallega með fundið efni í formi skúlptúra og prentverka. Verkin hans endurspegla kerfi úr daglegu lífi með þurri kímnigáfu og hugleiðingar um hluti sem við vanmetum og látum alla jafna framhjá okkur fara. Joe starfar sem umsjónarmaður prentverkstæðis í Listaháskóla Íslands og er félagi í samrekna prentverkstæðinu Prent & vinir í Laugardal\, Reykjavík. \nNína Óskarsdóttir er fædd árið 1986. Hún útskrifaðist með MA gráðu í myndlist árið 2020 frá Listaháskóla Íslands þar sem hún kláraði einnig BA nám sitt í myndlist 2014. Nína vinnur með skúlptúr og innsetningar og verk hennar einkennast af efniskennd sinni. Hún notar efni á borð við leir\, textíl og ljós sem kallast á við hverfulan efnivið á borð við vatn\, eld eða matvæli. Nína vinnur með óefnisbundnar hugmyndir\, svo sem heilagleika\, minningar og sjálfsmynd\, og gerir tilraunir til að koma þeim í efnislega mynd. Nína hefur tekið þátt í fjölda sýningarverkefna bæði hérlendis og í Evrópu sem og unnið að listrannsóknum sínum í gegn um vinnustofudvalir og rannsóknarstyrki.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/alter-breyta/
LOCATION:Skaftfell- Center for Visual Art\, Austurvegur 42\, Seyðisfjörður\, 710\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/Alter_Breyta_WebBanner@2x-840x320-1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR