BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220423
DTEND;VALUE=DATE:20220529
DTSTAMP:20260530T085624
CREATED:20220505T130431Z
LAST-MODIFIED:20220916T101718Z
UID:23140-1650672000-1653782399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hreinn Friðfinnsson: Hegðun 10
DESCRIPTION:Hreinn nýtir sér hversdagslegan efnivið til þess að halda áfram stöðugri rannsókn sinni á tíma\, umhverfi\, frásögn\, minni og skilningi. Verk Hreins einkennast af áhrifaríkri og endurtekinni tjáningu\, nokkurs konar ramma sem er kemur aftur og aftur fyrir í verkum hans. Sýningarstjórinn og listfræðingurinn Hans Ulrich Obrist hefur gefið þessari tjáningu Hreins heitið „tilfinningarík konseptlist“ en Hreinn hefur þann háttinn á í sköpun sinni frekar að draga úr frekar en að bæta við og sækir hann efnivið og vísanir í eigin lífsreynslu. Hann notast oft við efni sem eru í eðli sínu mjög brothætt\, svo sem gler\, lauf\, fjaðrir og spegla\, sem undirstrikar enn frekar hið skáldlega og hverfula eðli verkanna. \nSýningin í i8 tekur saman verk úr ferli Hreins sem hér spanna tæplega fimmtíu ára tímabil. Hreinn staldrar lengi við verk sín og geta þau teygt sig yfir langt tímabil\, auk þess sem hann skoðar gjarnan aftur gömul verk og má því lesa samfelldan þráð í verkum hans\, þótt efni og miðlar breytist í tímans rás. Nokkrir skúlptúrar á sýningunni eru dæmi um þessa nálgun listamannsins og má greina hvernig hugmyndir hans þróast eftir því sem tímanum vindur fram. \nSuspended (1991 til dagsins í dag) er stór innsetning sem gerð er úr málningarprikum sem hengd hafa verið á vegginn. Hreinn hefur í áranna rás safnað slíkum prikum frá litlu fjölskyldufyrirtæki í Amsterdam sem framleiðir málningu\, og hefur tekist að umbreyta þessum praktísku hlutum þannig að þeir fái nýtt sjónrænt gildi. Könnun Hreins á fagurfræðilegu gildi þessara tóla hefur hann fært áhersluna frá hinu hagnýta yfir í hið listræna. \nBenda má á önnur verk á sýningunni sem dæmi um hvernig Hreinn hefur fengist við ljós og endurvarp. To Light Shadow and Dust (3 in a corner) er ný útgáfa af verki sem Hreinn byrjaði fyrst að fást við árið 1994 þar sem hann setur fram glerhillur\, þaktar blaðgulli\, sem komið er hér fyrir í einu horninu og birtan heldur áfram hinu skúlptúríska sjónarspili. TBD frá árinu 2022 er líka nýr skúlptúr sem sækir í gömul stef sem Hreinn hefur fengist við áður\, en hér snýst allt um speglun\, fjölföldun og skynjun og hversu langt er hægt að teygja lögun hins eiginlega hlutar. \nAtelier Sketches er röð verka sem Hreinn hófst handa við í kringum 1990\, þar sem hann fangar köngulóarvef sem myndast hafði í vinnustofu hans á milli tveggja glerplatna. Hreinn tók eftir því að þegar hann var fjarverandi frá vinnustofu sinni\, sem er í gömlu skólahúsi að þá var enn unnið þar engu að síður\, þar sem köngulær voru á fullu að spinna vef sinn dag og nótt. Það að upphefja sköpunarkraft köngulóanna varð reglulegur hluti að sköpun Hreins sjálfs. \nHreinn Friðfinnsson fæddist á Bæ í Dölum árið 1943 en hefur búið í Amsterdam allt frá árinu 1971. Hann útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1958 og var einn stofnanda hins sögufræga hóps SÚM árið 1969. Hreinn hefur sýnt víða um heim og má þar nefna mikilvægar einkasýningar í Malmö Konsthall í Svíþjóð (1978 og 2008); Le Magasin-Centre national d‘art contemporain í Grenoble í Frakklandi (1987); Listasafni Íslands (1993); Kyoto Art Center í Japan (2002); Domaine de Keguéhennec í Bignan\, Frakklandi (2002); Serpentine Gallery í Lundúnum (2007); Centre d‘art Contemorain í Genf (2010); KW Institute for Contemporary Art í Berlín (2019) og Museum of Art and Design (MOAD) við Miami Dade College í Bandaríkjunum (2021-2022). Hreinn Friðfinnsson var fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum árið 1993 og árið 2000 hlaut hann hin mikilvægu verðlaun Ars Fennica.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hreinn-fridfinnsson-conduct-10/
LOCATION:i8 Gallery\, Tryggvagata 16\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/dsf7225.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211030
DTEND;VALUE=DATE:20220321
DTSTAMP:20260530T085624
CREATED:20211011T145801Z
LAST-MODIFIED:20220916T105047Z
UID:19597-1635552000-1647820799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Abrakadabra
DESCRIPTION:Við kynnumst töfrum samtímalistar á þessari skemmtilegu sýningu fyrir alla sem vilja sjá ný og spennandi verk eftir núlifandi listamenn. Markmiðið er að gera heim samtímalistar aðgengilegan. Í verkunum má sjá fjölbreytileika listarinnar\, þau höfða til ímyndunaraflsins og skynfæranna\, þar er fjallað um líkamann\, sjálfsmyndina\, náttúruna\, samfélagið og ótal margt fleira. Við bjóðum unglinga\, ungmenni og alla sem eru forvitnir um samtímalist sérstaklega velkomna! \nAbrakadabra er dularfullt orð sem tengist töfrum. Það er mjög gamalt og uppruni þess er ókunnur. Líklega er það dregið úr hinu forna tungumáli arameísku og þýðir: „Það sem ég segi verður að veruleika.“ Er það ekki dálítið eins og listamenn vinna? Þau fá hugmyndir og láta þær verða að listaverkum. Á sýningunni Abrakadabra er miðlað áherslum sem er að finna í deiglu samtímans. \nHvað einkennir myndlist dagsins í dag? Hver eru viðfangsefni listamanna\, aðferðir\, efni og áskoranir? \nSamhliða sýningunni er sett fram ríkuleg fræðsludagskrá ásamt miðlun á stafrænu formi. Abrakadabra er jafnframt nýtt svæði á heimasíðu Listasafns Reykjavíkur sem verður áfram aðgengilegt. Þar er að finna fróðleik sem eflir hugtakaskilning og menningarlæsi og hentar vel til kennslu og til að grúska í samtímalist. \nListamenn\n\n\n\n\n\nAlicja Kwade\n\n\n\n\n\n\n\n\nAnna Júlía Friðbjörnsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nAnna Hallin\n\n\n\n\n\n\n\n\nAnna Líndal\n\n\n\n\n\n\n\n\nAuður Lóa Guðnadóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nBaldur Geir Bragason\n\n\n\n\n\n\n\n\nEgill Sæbjörnsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nFritz Hendrik IV\n\n\n\n\n\n\n\n\nGuðný Guðmundsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nHeimir Björgúlfsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nHildigunnur Birgisdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nHildur Bjarnadóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nHrafnhildur Arnardóttir/Shoplifter\n\n\n\n\n\n\n\n\nHreinn Friðfinnsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nKarin Sander\n\n\n\n\n\n\n\n\nKatrín Elvarsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nKatrín Sigurðardóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nKristján Steingrímur Jónsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nLeifur Ýmir Eyjólfsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nLogi Leó Gunnarsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nMagnús Helgason\n\n\n\n\n\n\n\n\nMargrét H. Blöndal\n\n\n\n\n\n\n\n\nMatthías Rúnar Sigurðsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nMelanie Ubaldo\n\n\n\n\n\n\n\n\nÓlafur Gíslason\n\n\n\n\n\n\n\n\nÓlöf Nordal\n\n\n\n\n\n\n\n\nRagnheiður Gestsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nRúrí\n\n\n\n\n\n\n\n\nSteingrímur Eyfjörð Kristmundsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nUnndór Egill Jónsson
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/abrakadabra/
LOCATION:Reykjavík Art Museum – Hafnarhúsið\, Tryggvagata 17\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/abracadabra.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210205
DTEND;VALUE=DATE:20220110
DTSTAMP:20260530T085624
CREATED:20210819T142932Z
LAST-MODIFIED:20220916T105746Z
UID:18485-1612483200-1641772799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Halló\, geimur
DESCRIPTION:Fjarlægar víðáttur í óendanlegum alheiminum hafa frá upphafi verið manninum hugleiknar og í aldanna rás hafa listamenn túlkað og tekist á við hugmyndir sínar um geiminn og miðlað þeim með fjölbreyttum hætti. \nÁ sýningunni Halló\, geimur er skyggnst inn í undraveröld himingeimsins með hjálp listaverka í safneign Listasafns Íslands. \nFramúrstefnuleg verk Finns Jónssonar\, sem fyrstur Íslendinga tókst á við geiminn í verkum sínum á fyrri hluta 20. aldar\, miðla óheftri tjáningu listamannsins á töfrum himintunglanna sem eru leiðarstef sýningarinnar. Leyndardómar Vetrarbrautarinnar sem aldnir spámenn afhjúpa með forsögnum sínum um veðurfar og forlög manna eru Hildigunni Birgisdóttur og Svavari Guðnasyni innblástur. Norðurljósabar Halldórs Ásgeirssonar leiftrar með litadýrð og innsetning Steinu Vasulka\, Of the North\, hrífur áhorfandann með sér í áhrifamikilli upplifun.\nÍ verkum Ásgríms Jónssonar og Guðmundar Thorsteinssonar (Muggs) frá fyrri hluta 20. aldar sjáum við hvernig himintunglin tengjast þjóðtrú og ævintýrum þar sem vættir birtast mannfólki í tunglsljósi og blessuð sólin breytir tröllum í stein þegar dagur rís. Á sýningunni eru einnig mörg verk frá 7. og 8. áratug 20. aldar þegar framfarir í geimvísindum voru stórstígar og maðurinn fór í fyrsta sinn út fyrir gufuhvolf jarðar. \nGeimurinn og listin eiga það sameiginlegt að vera forvitnileg og kvik\, þar er stöðug hreyfing og alltaf er maður að uppgötva eitthvað nýtt þegar maður skoðar listaverk. Með hjálp Tuma\, aðalpersónu bókarinnar Rauði hatturinn og krummi eftir Ásgerði Búadóttur myndlistarmann\, geta yngstu gestir safnsins skoðað sýninguna á aðgengilegan hátt\, sett upp gleraugu vísindamannsins og numið nýjan fróðleik! \nSýningarstjórar: Guðrún Jóna Halldórsdóttir og Ragnheiður Vignisdóttir \nVísindalegar staðreyndir: Sævar Helgi Bragason \nListamenn sem eiga verk á sýningunni: \nÁsgrímur Jónsson\nBjörg Þorsteinsdóttir\nErró\nEyborg Guðmundsdóttir\nFinnur Jónsson\nGuðmunda Andrésdóttir\nGuðmundur Thorsteinsson (Muggur)\nHalldór Ásgeirsson\nHelgi Þorgils Friðjónsson\nHildigunnur Birgisdóttir\nHildur Hákonardóttir\nHreinn Friðfinnsson\nJóhann Eyfells\nJón Gunnar Árnason\nKeith Grant\nKristinn E. Hrafnsson\nMargrét Elíasdóttir\nSigurjón Ólafsson\nSteina\nSvavar Guðnason\nSverrir Haraldsson\nVilhjálmur Bergsson\nÞorvaldur Skúlason
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hallo-geimur/
LOCATION:The National Gallery of Iceland\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/01/hallo-geimur-vefur-Listasafn-Íslands.jpeg
END:VEVENT
END:VCALENDAR