BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220430
DTEND;VALUE=DATE:20220516
DTSTAMP:20260530T064255
CREATED:20220505T125342Z
LAST-MODIFIED:20220916T101737Z
UID:23127-1651276800-1652659199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hönnunarmars -  Kristín Sigurðardóttir & Flétta: Efnisheimur steinullar
DESCRIPTION:Efnisheimur steinullar er samstarfsverkefni Fléttu og Kristínar Sigurðardóttur þar sem leikið er með ólíkar leiðir til að umbreyta steinull í nýtt efni. Steinull sem fellur til við byggingarframkvæmdir er ekki endurnýtt í dag heldur send til urðunar. Hún er eitt af fáum byggingarefnum sem framleidd eru á Íslandi og er meginuppistaða hennar íslensk jarðefni. Sýningin er tilraunakennd og notast er við ólíka miðla til að varpa ljósi á virði hráefnis sem annars færi til urðunar. Myndskeið\, ljósmyndir\, efnisprufur\, hlutir\, hljóð og texti flæða saman í ferðalagi um áður ókannaðan efnisheim íslenskrar steinullar. \nKristín Sigurðardóttir (f. 1989) er vöruhönnuður sem býr í Gautaborg. Kristín er hluti af Willow Projectsem hefur verið sýnt á Dutch Design Week og á sýningunni Earth Matters í TextielMuseum í Tilburg\, Hollandi. Fjallað er um verkefnið í bókunum Radical Matter: Rethinking Materials for a Sustainable Future og Why Materials Matter: Responsible Design for a Better World. Rannsóknarverkefni Fléttu og Kristínar\, Efnisheimur steinullar\, er beint framhald af útskriftarverkefni Kristínar frá Listaháskóla Íslands 2016\, þar sem hún vann með umbreytingu steinullar í svart glerjað efni. \nHönnuðirnir Birta Rós Brynjólfsdóttir (f. 1992) og Hrefna Sigurðardóttir (f. 1989) stofnuðu Fléttu í byrjun árs 2018 en hafa unnið saman að verkefnum tengdum endurvinnslu og uppvinnslu hráefna síðan 2014. Á yfirborðinu einkennast verk þeirra af leikgleði og léttleika en undir niðri krauma gagnrýnar spurningar. Þær setja sér skorður hvað varðar efnisnotkun og vinnuaðferðir í því augnamiði að móta nýjar og sjálfbærari leiðir til að hanna og umgangast hluti. Í höndum Fléttu fá efni og hlutir sem hafa þjónað sínum tilgangi eða nýtast ekki lengur í sínu fyrra hlutverki nýtt líf í nýju samhengi. Verk þeirra hafa verið sýnd víða\, bæði hérlendis og á alþjóðlegum vettvangi.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/design-march-kristin-sigurdardottir-fletta-reshaping-mineral-wool/
LOCATION:Hafnarborg Center of Culture and Fine Art\, Strandgata 34\, Hafnarfjörður\, 220\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/steinull-slideshow.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR