BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210529
DTEND;VALUE=DATE:20211004
DTSTAMP:20260530T082534
CREATED:20210831T153723Z
LAST-MODIFIED:20220916T105958Z
UID:18897-1622246400-1633305599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Takmarkanir
DESCRIPTION:Samsýning norðlenskra myndlistarmanna \nÞetta er í fjórða sinn sem tvíæringur\, sýning á verkum norðlenskra listamanna\, er haldinn í Listasafninu á Akureyri. Að þessu sinni var unnið út frá þemanu takmarkanir\, sem er augljóslega bein tilvísun í ástandið í heiminum þessi misserin. Listasafnið auglýsti eftir umsóknum um þátttöku í sýningunni og dómnefnd valdi verk eftir 17 ólíka listamenn af þeim 44 sem sóttu um. \nDómnefndina skipuðu Haraldur Ingi Haraldsson\, myndlistarmaður og verkefnastjóri Listasafnsins\, Hlynur Hallsson\, safnstjóri\, og Vigdís Rún Jónsdóttir\, listfræðingur. Titillinn Takmarkanir er misjafnlega augljós í verkunum en sum þeirra voru unnin sérstaklega fyrir sýninguna. Listræn túlkun á hugtakinu takmarkanir getur svo auðvitað verið afar fjölbreytt. \nGefin er út sýningarskrá og er áhugavert að bera saman sýningarskrár fyrri sýninga til að sjá hvaða þróun er í verkum norðlenskra listamanna og hvort einhver rauður þráður leynist þar. Markmiðið er vissulega að sýna þá fjölbreytni í efnistökum\, aðferðum og hugmyndum sem listamenn af svæðinu eru að fást við hverju sinni. \nJón B. K. Ransu\, myndlistarmaður og fræðirithöfundur\, skrifar í inngangi í sýningarskránni: „Sýningin ber titilinn Takmarkanir og fer fram þegar heimsfaraldur hefur geisað í á annað ár. Á þeim tíma hefur hugtakið „takmörkun“ öðlast áþreifanlega merkingu þar sem fjöldatakmarkanir\, nándartakmarkanir og samkomutakmarkanir hafa haft mótandi áhrif á daglegt líf manna. Yfirskrift sýningarinnar vísar þannig til ástands sem hefur skapast vegna heimsfaraldursins en hún leikur líka með hugtakið vegna þess að þemasýningar eru í eðli sínu takmarkaðar. Við getum til að mynda sagt að val listaverka úr umsóknum listamanna byggi á ákveðinni takmörkun og að listamenn merktir svæði eða landshluta sé takmörkun í sjálfu sér.“ \nSýningunni Takmarkanir er ætlað að gefa innsýn í þá fjölbreyttu flóru myndlistar sem tengist Norðurlandi og vekja umræður um stöðu norðlenskra listamanna og myndlistar almennt. Tvíæringurinn getur\, ef vel tekst til\, orðið grunnur rannsókna og sköpunar á sviði myndlistar og um leið hvatning og tækifæri. \nSýningin er ein af sumarsýningum safnsins því eftirspurn er meðal ferðamanna\, innlendra og erlendra\, eftir myndlist af svæðinu. Safnaráð styrkir sýninguna sérstaklega. \nListamenn: \nAðalheiður S. Eysteinsdóttir (1963)\nAuður Lóa Guðnadóttir (1993)\nÁrni Jónsson (1989)\nBergþór Morthens (1979)\nBrák Jónsdóttir (1996)\nEgill Logi Jónasson (1989)\nGuðmundur Ármann Sigurjónsson (1944)\nHekla Björt Helgadóttir (1985)\nHrefna Harðardóttir (1954)\nÍris Ólöf Sigurjónsdóttir (1958)\nJonna – Jónborg Sigurðardóttir (1966)\nJoris Rademaker (1958)\nJón Laxdal Halldórsson (1950)\nMaría Sigríður Jónsdóttir (1969)\nSigurður Mar Halldórsson (1964)\nStefán Boulter (1970)\nTanja Stefanovic (1985) \nSýningarstjóri: Hlynur Hallsson
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/takmarkanir/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/bergthor-morthens-sumarnott-2021-scaled.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR