BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230819
DTEND;VALUE=DATE:20230925
DTSTAMP:20260530T040910
CREATED:20230816T150025Z
LAST-MODIFIED:20231013T123155Z
UID:32326-1692403200-1695599999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hrafnhildur Arnardóttir / Shoplifter & Hrafnkell Sigurðsson: Þing
DESCRIPTION:Himinhvolfagaldur; Samstillt stjarnvitund Hrafnhildar Arnardóttur og Hrafnkels Sigurðssonar. \nÍ bjartri víðáttu Ásmundarsalar\, sem minnir á glæstan athugunarturn\, á sér stað eterískt stefnumót innri vitundar og raunveru þar sem athygli fæst til hinnar forvitnu sálar. Hér sameinast tveir listamenn\, Hrafnhildur Arnardóttir og Hrafnkell Sigurðsson. \nHlutbundin verufræði Hrafnhildar gefur af sér verk sem enduróma hið hátíðlega og fjöruga. Verk hennar umskiptast frá því jarðneska til þess óþreyfanlega\, böðuð uppljómunar sem af himnum ofan.  Þau hreyfa við skynrænum gagnaheimi\, sálumessa hins ótjáða\, bergmál af endurtekningum sameiginlegrar undirmeðvitundar okkar.  Samhliða þeim rýnir Hrafnkell með okkur í gegnum tíma og rúm. Sköpunarverk hans endurspegla afstæði skynjunar og áþreifanleika upplifunar\, fangar augnablik bæði eyðileggingar og taumlausrar sköpunargleði. Í verkum sínum gefur hann til kynna bilun í flóknum vefnaði skilningarvitanna\, skjálfta í sannfæringu okkar\, flóð og fjöru framheilans.  Brennipunktar sem hugsanlega miðla bæði örflækjum og víðáttu ólíkra tilvistarstiga. \nSamruni listsköpunar þeirra er sem stórbrotinn glerstrendingur\, sem brýtur ekki bara ljós\, heldur einnig hugsanir og tilfinningar sem framkalla litróf samtvinnaðrar upplifunar.  Sameiginleg listaverk þeirra eru gáttir inn í orkuvíddir þar sem innsæisagnir dansa á öldum tilfinninga og skapa tjáningarrými í líki hugsanaflutnings og yfirskilvitlegra samskipta í óendanlegri leit sinni að sannleika meðvitundarinnar. Í hverju verki er lúmskur kraftur og orka\, útfrymiskennd ómun sem leggur hugmyndafræði í efa. Við erum tengd með naflastreng við kjarna listsköpunar\, dáleidd inn í undinn veruleika hennar og sveiflumst milli smásjárlegra smáatriða og víðáttubrjálæði þess endalausa. Þetta er hvorki áskrift né uppskrift að listrænni sýn. Þetta er hugvíkkandi samruni á efniskenndri sýn listamannanna sem undirmeðvitund þeirra tengdi saman og bjó til brú milli óútskýranlegrar sannfæringar þess efniskennda og dulúð þess ósýnilega.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hrafnhildur-arnardottir-shoplifter-hrafnkell-sigurdsson-thing/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/08/IMG_3144.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230506
DTEND;VALUE=DATE:20230821
DTSTAMP:20260530T040910
CREATED:20230504T132603Z
LAST-MODIFIED:20230901T145800Z
UID:30834-1683331200-1692575999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:The Arctic Creatures Revisited
DESCRIPTION:Á sýningunni eru yfir 20 ljósmyndir eftir The Arctic Creatures\, samstarfshóp þriggja listamanna – myndlistarmannsins Hrafnkels Sigurðssonar\, kvikmyndagerðarmannsins og leikstjórans Óskars Jónassonar og leikarans/leikstjórans Stefáns Jónssonar. \nÁ löngum gönguferðum um óbyggðir Íslands leika listamennirnir hlutverk í senum sem þeir semja og setja á svið og eru innblásnar af fundnum hlutum sem einnig gegna hlutverki leikmuna. Afraksturinn eru ljósmyndir teknar á árunum 2012-22\, í senn skoplegar og sorglegar\, skringilegar og umhugsunarverðar\, einlægar en um leið listilega kænlegar. Hrafnkell\, Óskar og Stefán eru æskuvinir sem stigu fyrstu skrefin á listabrautinni í Reykjavík á blómaskeiði íslenska pönktímabilsins upp úr 1980. Langar gönguferðir þeirra félaga um íslenskar óbyggðir og meðfram ströndum Vest- og Austfjarða eru árlegt athvarf þeirra frá borgarlífinu þar sem þeir tengjast náttúru\, umhverfi og hver öðrum upp á nýtt. Þeir fá innblástur í sameiginlegri menningarsögu umhverfisins – í harðneskjulegu landslagi\, í dulúðugri stemningu kaldtempraðrar sumarbirtu\, og í mannvistarleifum í eyðibýlum\, bátshræjum og rekaviði – „gera sér mat úr hinu óvænta“ og nýta sér reynslu sína hver á sínu sviði til að skapa þessar uppstilltu svipmyndir. \nÍ heild sinni mynda ljósmyndirnar tengsl á milli goðsagna og sögu\, bókmennta og lista\, náttúru og menningar\, og vekja áleitnar en óviljandi spurningar um hvernig maðurinn upplifi náttúruna og hafi áhrif á hana á móti. \nSýningin Arctic Creatures verður haldin í Nordatlantens Brygge\, Strandgade 91 í Kaupmannahöfn\, frá 10. júní til 10. September 2023. www.nordatlantens.dk
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/the-arctic-creatures-revisited/
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/05/Screenshot-2023-05-04-at-10.42.37.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211120
DTEND;VALUE=DATE:20220227
DTSTAMP:20260530T040910
CREATED:20211122T153158Z
LAST-MODIFIED:20220228T104222Z
UID:20281-1637366400-1645919999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hrafnkell Sigurðsson: Recondestruction
DESCRIPTION:Allan janúar 2021 dvaldi ég á Siglufirði við skriftir. Vann í matsalnum á Hótel Siglunesi og bjó í íbúð marokkó-kokksins góða. Allar fjórar vikurnar var sama veðrið\, norðan stórrhríð eða skafrenningur. Nýji kraftgallinn kom sér vel. Á hverjum morgni gekk ég upp í hlíðargötur með hundinn Lukku og niður á torgið\, stakk mér síðan inn í bakaríið og snæddi morgunverð\, rúnnstykki\, safa og kaffi. \nMér fannst ég staddur í öðrum heimi\, heimi sem tilheyrði vart Íslandi. Sigló var svo miklu norðar á hnettinum en restin af landinu. Jafnvel Akureyri virtist vera þriggja tíma flug í burtu. Á köflum lokaðist enda fjörðurinn\, hvorki var fært fyrir skriðurnar vestur í Skagafjörð eða um Múlann austur í Eyjafjörð. Aðeins varð komist að og frá staðnum með öflugum skipum. Stundum sátu áhafnarmeðlimir á Múlaberginu með mér í morgunkaffinu og sögðu já\, helvítis norðanskít vera úti fyrir firðinum\, á meðan úti hvein í ljósastaurunum og skaflarnir söfnuðust upp í garðshornum og húsasundum. Á hverjum morgni þurfti maður að moka sig út og á hverju kvöldi þurfti maður að moka sig aftur inn. Þetta var alveg nýtt líf fyrir mér. Snjóskóflan var orðið sama þarfaþing og tannburstinn. \nMorgun einn seint í janúar sátu tveir starfsmenn skíðasvæðisins í bakaríinu og snæddu morgunverð. Ég kannaðist við þá úr skíðaferðum undanfarinna ára og við ræddum veðrið\, færðina og horfurnar. Akkúrat í þeim orðum varð viðburður úti í myrkrinu og muggunni sem kom í ljós um leið og tvímenningarnir mættu upp á skíðasvæðið hálftíma síðar: Snjóflóð hafði splundrað skíðaskála Siglfirðinga. Brak úr honum og geymslugámum sem stóðu þar hjá lá dreift um stórt svæði. “Þeir voru nú bara heppnir að koma við hérna í bakaríinu hjá okkur þennan morguninn í stað þess að fara beint upp á svæði eins og þeir gera jafnan\,” sagði konan í bakaríinu daginn eftir. \nEnn einn ganginn hafði orðið snjóflóð á Siglufirði. Ekki í fyrsta og ekki í síðasta sinn. Þrátt fyrir að bærinn sjálfur sé nú varinn af flóðagildrum og varnargörðum fann náttúran sér leið til að valda tjóni á eigum bæjarbúa. \nEn þar sem flestir sjá tjón sér listamaður tækifæri. Skömmu eftir flóðið var Hrafnkell Sigurðsson mættur í Herhúsið og þaðan upp á svæði. Á augabragði hafði brakið raðað sér upp af einstökun listrænu jafnvægi. Náttúran hafði brotið líf okkar niður í eindir en listamaðurinn hafði raðað þeim aftur saman. Úr urðu einskonar vörður\, ef ekki súlur\, minnisvarðar um þann brothætta veruleika sem lífið er\, margbrotin minnismerki sem voru þó eins og frummyndir sprengingar: Stóri hvellur í frumbernsku\, áður en hlutirnir þeyttust út í rýmið. \nHvað er listamaðurinn að segja okkur hér? Þegar veruleiki okkar hefur verið tekinn í sundur\, flokkaður og greindur\, er þetta eina leiðin til að setja hann aftur saman. \nVið erum minnt á gamlar sögur af radíóamatörum sem gátu tekið transistor-útvarpið í sundur en ekki sett það saman aftur. Útkoman var splundrað útvarpstæki sem aðeins gat náð einni stöð: Dularfyllstu útsendingu heimsins\, þeirri sem kemur úr kjarna lífsins. \nÁ líkan hátt hefur Hrafnkell Sigurðsson raðað veruleika okkar upp aftur\, eftir að náttúran tók hann í sundur: Svona lítur tilveran út þegar hún hefur verið afbyggð og sett saman á ný. Það er endurafbygging. Redeconstruction. \n– Hallgrímur Helgason \n  \nHRAFNKELL SIGURÐSSON (f. 1963) nam við Jan Van Eyck Akademie í Maastricht í Hollandi á árunum 1988-1990 og lauk MFA-gráðu frá Goldsmith‘s College árið 2002. Hrafnkell hefur haldið fjölda einka- og hóp sýninga hérlendis og erlendis. Listaverk Hrafnkels má finna í safneignum fjölda listasafna og stofnana sem og safnara.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hrafnkell-sigurdsson-recondestruction/
LOCATION:Hverfisgallerí\, Hverfisgata 4\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/gif:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/11/unnamed.gif
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210327
DTEND;VALUE=DATE:20210920
DTSTAMP:20260530T040910
CREATED:20210819T135121Z
LAST-MODIFIED:20220905T135511Z
UID:18462-1616803200-1632095999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Eilíf endurkoma
DESCRIPTION:Á þessari viðamiklu sýningu mynda verk Jóhannesar S. Kjarvals (1885-1972) þráð sem tengir tvenna tíma. Hér er verkum hans teflt fram ásamt verkum myndlistarmanna sem sett hafa svip sinn á íslenskt listalíf síðustu ár. \nSkömmu eftir andlát Kjarvals ritaði Björn Th. Björnsson (1922-2007) listfræðingur grein þar sem hann fjallar um framlag Kjarvals til íslenskrar listasögu og segir að verk hans séu „aldrei í einum tíma stödd\, heldur jafnan íþætt endurvöktum minnum“. Hér má lesa þá miklu virðingu sem Íslendingar hafa borið fyrir list Kjarvals en líka þá staðreynd að áhorfendur hvers tíma koma að verkum hans með eigin reynslu og viðhorf. Áhrif Kjarvals eru ótvíræð og á sýningunni eru áhrif hans á íslenska listamenn dregin fram í dagsljósið. Þau geta sýnt sig með ýmsu móti og verið augljós og afgerandi eða þá að þau birtast með óræðari hætti og án ásetnings. \nAlgengasta og ástkærasta myndefni Kjarvals var íslensk náttúra og landslag en auk þess gerði hann mikið af mannamyndum og fantasíum þar sem verur og fígúrur skjóta upp kollinum og ýmis náttúrufyrirbrigði eru persónugerð. Verk listamanna á sýningunni eru unnin í fjölbreytta miðla og þar má sjá ólíka nálgun að þessum viðfangsefnum. \nKjarval skipar stóran sess í íslenskri menningar- og listasögu og hefur verið síðari kynslóðum listamanna fyrirmynd og innblástur. Persóna hans og lífsverk svífur yfir vötnum og er það ekki að ósekju. Hjá Listasafni Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum eru verk Kjarvals varðveitt og rannsökuð. Valin verk hans eru alltaf til sýnis og settar upp fjölbreyttar sýningar sem varpa ljósi á feril hans á breiðum grunni. Gjarnan eru dregin fram verk úr safneign eða sérsýningar haldnar þar sem afmarkaðir þættir í ferli hans og listsköpun eru rannsakaðir. Á þessari sýningu eru verk Kjarvals sett í samtal við yngri verk starfandi listamanna. Sýningin býður því upp á að kynnast enn betur einum merkasta listamanni þjóðarinnar en einnig verkum starfandi listamanna í fremsta flokki sem hafa sett mark sitt á íslenska og alþjóðlega myndlistarsenu. \nUppbrot sjónsviðsins birtist okkur í verkum Ólafs Elíassonar. Í fyrsta sinn á Íslandi er sýnd röð málverka eftir Ragnar Kjartansson sem hann málaði í Eldhrauni og var innblásin af Kjarvalsverki sem Ragnar á sjálfur. Vídeóinnsetningin Lava&Moss eftir Steinu er meðal umfangsmeiri verka á sýningunni og ný málverk Eggerts Péturssonar eru til sýnis. \nFjölskyldur athugið! Bakpokar eru til láns í móttöku með ýmsum skemmtilegum verkefnum sem gera heimsókn á sýninguna forvitnilega og spennandi! \n\nListamenn:\n\n\n\n\n\nJóhannes S. Kjarval\n\n\n\n\n\n\n\n\nEggert Pétursson\n\n\n\n\n\n\n\n\nEgill Sæbjörnsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nEinar Garibaldi Eiríksson\n\n\n\n\n\n\n\n\nGjörningaklúbburinn\n\n\n\n\n\n\n\n\nGuðrún Einarsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nGuðrún Kristjánsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nHrafnkell Sigurðsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nKatrín Elvarsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nKatrín Sigurðardóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nKristján Guðmundsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nÓlafur Elíasson\n\n\n\n\n\n\n\n\nPáll á Húsafelli\n\n\n\n\n\n\n\n\nRagna Róbertsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nRagnar Kjartansson\n\n\n\n\n\n\n\n\nSigurður Guðjónsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nSteina Vasulka\n\n\n\n\n\n\n\n\nSýningarstjórar:\n\nEdda Halldórsdóttir\nMarkús Þór Andrésson\nÓlöf Kristín Sigurðardóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/eilif-endurkoma/
LOCATION:Reykjavík Art Museum – Kjarvalsstaðir\, Flókagata 24\,\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/eternal-recurrence.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR