BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230204
DTEND;VALUE=DATE:20230515
DTSTAMP:20260530T082141
CREATED:20230201T101558Z
LAST-MODIFIED:20230201T101804Z
UID:29194-1675468800-1684108799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ný og splunkuný
DESCRIPTION:Því ber að fagna að nú getur Listasafnið á Akureyri aftur hafist handa við kaup á verkum í safneignina. Sýningin Ný og splunkuný gefur yfirlit yfir verk sem safninu hafa verið gefin á síðustu árum en hafa ekki verið sýnd og splunkuný verk sem safnið hefur keypt. \nEitt af meginhlutverkum listasafna er að safna myndlist og miðla safneigninni\, enda mikilvægt að safna með reglubundnum hætti listaverkum sem endurspegla listasöguna.  \nÍ söfnunarstefnu Listasafnsins segir meðal annars: „Söfnunarsvið Listasafnsins á Akureyri er allt landið en jafnframt leggur safnið sérstaka áherslu á söfnun verka sem tengjast Norðurlandi.“ Móttaka gjafa takmarkast af því markmiði að Listasafnið byggi upp heillega og markvissa safneign. Safnstjóri og fulltrúar í Listasafnsráði fjalla um og taka ákvarðanir er varða móttöku gjafa og um kaup á nýjum verkum. Ákvörðunin byggir á söfnunarstefnu safnsins\, markmiðum þess og stöðu safneignar á hverjum tíma. \nSýningarstjóri: Hlynur Hallsson.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/new-and-brand-new/
LOCATION:Akureyri Art Museum\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/02/Hafdis-Helgadottir-an-titils-2021.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220602
DTEND;VALUE=DATE:20220912
DTSTAMP:20260530T082141
CREATED:20220525T143511Z
LAST-MODIFIED:20220916T100839Z
UID:23353-1654128000-1662940799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Svarthvítt
DESCRIPTION:Andstæður og ólíkir hlutir\, viðhorf og sjónarhorn. Það sem skilur okkur að getur einnig tengt okkur saman. Fimm listamenn sem vinna með svart-hvítar ljósmyndir eiga verk á þessari sýningu. Listamennirnir nálgast viðfengsefnin á ólíkan hátt og myndefnin eru einnig margvísleg: landslag\, fólk\, sögur\, staðir og stemning. Andstæður og ógnir\, rólegheit og væntumþykja og fjölmargar birtingarmyndir daglegs lífs\, ævintýra\, menningar\, hins óþekkta og þess kunnuglega. \nListamennirnir sem eiga verk á sýningunni eru Agnieszka Sosnowska\, Christopher Taylor\, Katrín Elvarsdóttir\, Páll Stefánsson og Spessi. Bakgrunnur þeirra er fjölbreyttur\, sem kemur glögglega fram í verkunum. Á sama tíma er margt sem sameinar þau\, þegar betur er að gáð. \nSýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík. \nSýningarstjóri: Hlynur Hallsson.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/black-and-white/
LOCATION:Akureyri Art Museum\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/8-agnieszka_sosnowska_vefur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210828
DTEND;VALUE=DATE:20220815
DTSTAMP:20260530T082141
CREATED:20210824T104428Z
LAST-MODIFIED:20220916T110501Z
UID:18613-1630108800-1660521599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ragnar Kjartansson: Undirheimar Akureyrar
DESCRIPTION:Ragnar Kjartansson er einn af virtustu listamönnum þjóðarinnar – þekktur fyrir vídeóverk\, málverk\, gjörninga og innsetningar. Ragnar sýnir nýtt útilistaverk sem er sérstaklega unnið fyrir svalir Listasafnsins á Akureyri og hefur beina tilvísun í akureyrskt samfélag\, eins og Ragnar orðar það sjálfur: „Á Akureyri er allt aðeins meira í lagi en annars staðar.“ \nÞað örlar oft á kaldhæðni í verkum Ragnars og koma þau áhorfandanum sífellt á óvart með ákveðinni framsækni tengdri þjóðarsálinni\, sögunni og tilvist listamannsins innan samfélagsins eða utan þess. \nRagnar Kjartansson er fæddur í Reykjavík 1976. \nHann lauk námi frá myndlistadeild Listaháskólans 2001 og var gestanemandi í Konunglegu akademíunni í Stokkhólmi 2000. Hann stundaði auk þess nám við Hússtjórnarskólann í Reykjavík 1996-97. Ragnar hefur haldið einkasýningar í mörgum af virtustu listasöfnum heims s.s. Musée d’art contemporain de Montréal í Kanada 2016\, Kunstmuseum í Stuttgart í Þýskalandi 2019 og Metropolitan Museum of Art í New York í Bandaríkjunum 2019. Hann var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum 2009. \nSýningarstjóri: Hlynur Hallsson.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/ragnar-kjartansson-undirheimar-akureyrar/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/kjartansson_scandinavianpain_press.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210529
DTEND;VALUE=DATE:20211115
DTSTAMP:20260530T082141
CREATED:20210831T151314Z
LAST-MODIFIED:20220916T110006Z
UID:18880-1622246400-1636934399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Nýleg aðföng
DESCRIPTION:Eitt af meginhlutverkum listasafna er að safna myndlist og miðla safneigninni. Því miður er ekkert fjármagn áætlað á fjárhagsáætlun Listasafnsins á Akureyri til kaupa á listaverkum og þannig hefur það verið í meira en áratug. Þetta stendur vonandi til bóta\, enda mikilvægt að safna með reglubundnum hætti listaverkum sem endurspegla listasöguna. \nListasafninu hafa aftur á móti borist margar góðar gjafir á síðustu árum og byggir sýningin Nýleg aðföng á þeim verkum. \nÍ söfnunarstefnunni segir meðal annars: „Söfnunarsvið Listasafnsins á Akureyri er allt landið en jafnframt leggur safnið sérstaka áherslu á söfnun verka sem tengjast Norðurlandi.“ Móttaka gjafa takmarkast af því markmiði að Listasafnið byggi upp heillega og markvissa safneign. Safnstjóri og fulltrúar í Listasafnsráði fjalla um og taka ákvarðanir er varða móttöku gjafa. \nÁkvörðunin byggir á söfnunarstefnu safnsins\, markmiðum þess og stöðu safneignar á hverjum tíma. \nSýningarstjóri: Hlynur Hallsson.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/nyleg-adfong/
LOCATION:Akureyri Art Museum\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/04/ny-adfong2-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210529
DTEND;VALUE=DATE:20211004
DTSTAMP:20260530T082141
CREATED:20210831T153723Z
LAST-MODIFIED:20220916T105958Z
UID:18897-1622246400-1633305599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Takmarkanir
DESCRIPTION:Samsýning norðlenskra myndlistarmanna \nÞetta er í fjórða sinn sem tvíæringur\, sýning á verkum norðlenskra listamanna\, er haldinn í Listasafninu á Akureyri. Að þessu sinni var unnið út frá þemanu takmarkanir\, sem er augljóslega bein tilvísun í ástandið í heiminum þessi misserin. Listasafnið auglýsti eftir umsóknum um þátttöku í sýningunni og dómnefnd valdi verk eftir 17 ólíka listamenn af þeim 44 sem sóttu um. \nDómnefndina skipuðu Haraldur Ingi Haraldsson\, myndlistarmaður og verkefnastjóri Listasafnsins\, Hlynur Hallsson\, safnstjóri\, og Vigdís Rún Jónsdóttir\, listfræðingur. Titillinn Takmarkanir er misjafnlega augljós í verkunum en sum þeirra voru unnin sérstaklega fyrir sýninguna. Listræn túlkun á hugtakinu takmarkanir getur svo auðvitað verið afar fjölbreytt. \nGefin er út sýningarskrá og er áhugavert að bera saman sýningarskrár fyrri sýninga til að sjá hvaða þróun er í verkum norðlenskra listamanna og hvort einhver rauður þráður leynist þar. Markmiðið er vissulega að sýna þá fjölbreytni í efnistökum\, aðferðum og hugmyndum sem listamenn af svæðinu eru að fást við hverju sinni. \nJón B. K. Ransu\, myndlistarmaður og fræðirithöfundur\, skrifar í inngangi í sýningarskránni: „Sýningin ber titilinn Takmarkanir og fer fram þegar heimsfaraldur hefur geisað í á annað ár. Á þeim tíma hefur hugtakið „takmörkun“ öðlast áþreifanlega merkingu þar sem fjöldatakmarkanir\, nándartakmarkanir og samkomutakmarkanir hafa haft mótandi áhrif á daglegt líf manna. Yfirskrift sýningarinnar vísar þannig til ástands sem hefur skapast vegna heimsfaraldursins en hún leikur líka með hugtakið vegna þess að þemasýningar eru í eðli sínu takmarkaðar. Við getum til að mynda sagt að val listaverka úr umsóknum listamanna byggi á ákveðinni takmörkun og að listamenn merktir svæði eða landshluta sé takmörkun í sjálfu sér.“ \nSýningunni Takmarkanir er ætlað að gefa innsýn í þá fjölbreyttu flóru myndlistar sem tengist Norðurlandi og vekja umræður um stöðu norðlenskra listamanna og myndlistar almennt. Tvíæringurinn getur\, ef vel tekst til\, orðið grunnur rannsókna og sköpunar á sviði myndlistar og um leið hvatning og tækifæri. \nSýningin er ein af sumarsýningum safnsins því eftirspurn er meðal ferðamanna\, innlendra og erlendra\, eftir myndlist af svæðinu. Safnaráð styrkir sýninguna sérstaklega. \nListamenn: \nAðalheiður S. Eysteinsdóttir (1963)\nAuður Lóa Guðnadóttir (1993)\nÁrni Jónsson (1989)\nBergþór Morthens (1979)\nBrák Jónsdóttir (1996)\nEgill Logi Jónasson (1989)\nGuðmundur Ármann Sigurjónsson (1944)\nHekla Björt Helgadóttir (1985)\nHrefna Harðardóttir (1954)\nÍris Ólöf Sigurjónsdóttir (1958)\nJonna – Jónborg Sigurðardóttir (1966)\nJoris Rademaker (1958)\nJón Laxdal Halldórsson (1950)\nMaría Sigríður Jónsdóttir (1969)\nSigurður Mar Halldórsson (1964)\nStefán Boulter (1970)\nTanja Stefanovic (1985) \nSýningarstjóri: Hlynur Hallsson
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/takmarkanir/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/bergthor-morthens-sumarnott-2021-scaled.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR