BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20230101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230121
DTEND;VALUE=DATE:20230226
DTSTAMP:20260530T183940
CREATED:20230118T114001Z
LAST-MODIFIED:20230228T101143Z
UID:28811-1674259200-1677369599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Kristján Steingrímur: Héðan og þaðan
DESCRIPTION:Ummerki mannaldar í litbrigðum jarðarinnar\n\nSteingrátt\, okkurgult\, ryðrautt\, – jarðefnin í málverkum Kristjáns Steingríms minna á að listamenn hafa gert tilraunir með leir og steinefni frá örófi alda. Elstu hellamálarar notuðu okkur\, umber\, sienna\, manganese og kaolin. Þeir muldu steininn og blönduðu jarðveg með feiti og öðrum lífrænum bindiefnum til að festa litinn á flötinn. Litirnir sem Kristján blandar eru gerðir með svipuðum aðferðum. Þegar þeir birtast þá öðlast þeir táknrænt hlutverk og fagurfræðilega merkingu\, því málverk Kristjáns vísa í ákveðna staði\, heiti\, sem búa yfir einstakri birtu\, jafnvel töfraljóma í huga áhorfenda: Námaskarð\, Seyðishólar\, Sólheimajökull\, Rauðisandur\, Betlehem\, Carmel\, Omaha Beach\, Sienna og Bordeux.\nEn þrátt fyrir að litirnir sem hann skapar úr jarðefnunum byggi á löngu ferli sem hefst með sýnatöku\, oft á framandi slóðum\, þá snúast rannsóknir hans hvorki um ferðalög\, jarðfræði\, né efnafræði. Hins vegar mætti tengja þær staðfræði eða kortlagningu\, jafnvel við einskonar leit að erfðafræði þeirra svæða sem hann heimsækir. Því hugsanlega býr jarðvegurinn sem hann safnar á þessum ólíku stöðum yfir líffræðilegri auðkenningu? Gulur sandurinn á Omaha Beach\, geymir enn ummerki mannskæðrar lokaorustu á sögulegu átakasvæði síðari heimstyrjaldar\, en hvaða leyndarmál geymir jarðvegurinn í Betlehem?\n\nTexti: Æsa Sigurjónsdóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/kristjan-steingrimur-hedan-og-thadan/
LOCATION:BERG Contemporary\, Klapparstígur 16\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/01/Screenshot-2023-01-18-at-11.31.42.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR