BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230114
DTEND;VALUE=DATE:20230313
DTSTAMP:20260530T071457
CREATED:20230112T102644Z
LAST-MODIFIED:20230112T105225Z
UID:28654-1673654400-1678665599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hildur Hákonardóttir: Rauður þráður
DESCRIPTION:Rauður þráður er fjölbreytt og yfirgripsmikil sýning á verkum myndlistarkonunnar Hildar Hákonardóttur. \nHildur hefur á löngum starfsferli sínum tekið á málefnum samtíma síns og kynjapólitík og nýtt til þess fjölbreytta miðla\, þó mest vefnað. Á sýningunni má sjá mörg af þekktustu verkum Hildar sem hafa öðlast mikilvægan sess í íslenskri menningarsögu og haft áhrif til breytinga í þjóðfélaginu. Einnig verða sýndar innsetningar\, ljósmyndir\, myndbandsverk og tölvugerðar teikningar frá víðfeðmum ferli sem spannar yfir 50 ár. Sýningarstjóri er Sigrún Inga Hrólfsdóttir en sýningin er afrakstur rannsóknar Sigrúnar á ferli Hildar. Listasafn Reykjavíkur hlaut Öndvegisstyrk Safnaráðs árið 2021 til þess að rannsaka hlut kvenna í íslenskri myndlist í samstarfi við námsbraut í listfræði við  Háskóla Íslands. Sýningin er sú fyrsta af þremur sem úr þessum Öndvegisstyrk kemur. \nSýningin veitir innsýn í feril Hildar og starfsaðferðir hennar í gegnum tíðina sem eru samofnar þeim málefnum sem eru efst á baugi í samtíma okkar\, einkum umhverfis- og jafnréttismál. Hildur er einnig mikilvirkur ræktandi og hefur velt fyrir sér margvíslegum kerfum\, bæði manngerðum og lífrænum\, sem er að finna í heiminum. Hildur var búsett í New York fylki 1956-1963 ásamt þáverandi eiginmanni sínum sem varð síðar einn af frumkvöðlum tölvutækni á Íslandi. Hún varð því vitni að frumbernsku tölvutækninnar en kynntist líka kvennabaráttu\, réttindabaráttu svartra\, andstöðu við stríðsrekstur og umhverfisumræðu\, jafnframt því að skynja nýjar birtingarmyndir innan myndlistarinnar – popplist\, flúxus og konsept. \nHildur lærði myndvefnað við Myndlista- og handíðaskólann 1964-68 og Edinburgh College of Art 1969. Henni þótti hún hafa lært fánýti þegar hún útskrifaðist úr listaskólanum árið 1969 en áttaði sig fljótlega á því að sú sem kann að vefa kann að skipuleggja fjöldahreyfingu. \nHún var ein af frumherjum Rauðsokkahreyfingarinnar sem olli straumhvörfum innan jafnréttisbaráttunnar á áttunda áratugnum. Rauðsokkur tóku þátt í pólitískri umræðu og stóðu fyrir útgáfu\, gjörningum og öðrum aktívisma sem opnaði augu margra fyrir kúgun kvenna. Titill sýningarinnar er skírskotun til vefnaðar og textíls en líka til þess hvernig vefnaður er notaður sem myndlíking í tungumálinu. Rauður er litur byltingarinnar þó svo það sé ekki sagt berum orðum. \nHildur var ein fárra kvenna í SÚM og allt frá fyrstu einkasýningu sinni í Gallerí SÚM árið 1971 hefur hún unnið með hugmyndir samtíma síns með hefðbundnum aðferðum vefnaðar í bland við aðra tækni. Árin 1975-78 var hún skólastjóri Myndlista- og handíðaskóla Íslands og setti þá á fót tvær nýjar deildir við skólann\, þar á meðal Deild í mótun (síðar Nýlistadeild) sem var ætlað að fleyta fram nýjum hugmyndastraumum þess tíma sem kenndir hafa verið við póstmódernisma. Þessi deild átti eftir að hafa umtalsverð áhrif innan myndlistarheimsins á Íslandi og víðar og þannig gætir enn þeirra áhrifa sem Hildur hafði á myndlistarmenntun á Íslandi. Hún var lengi safnstjóri Listasafns Árnesinga. Í seinni tíð hefur Hildur einbeitt sér að ritstörfum og eru þekktastar bækurnar Ætigarðurinn (2005) og Hvað er svona merkilegt við það að vera biskupsfrú? ( I-II 2019-2021). \nSamhliða sýningunni kemur út vegleg bók sem er heimild um ævistarf Hildar með umfjöllun um lykilverk hennar\, myndum frá ferlinum og ritgerð Sigrúnar –  auk greina eftir Guðmund Odd Magnússon. Ólöf Kristín Sigurðardóttir safnstjóri Listasafns Reykjavíkur ritar formála.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hildur-hakonardottir-red-threads/
LOCATION:Reykjavík Art Museum – Kjarvalsstaðir\, Flókagata 24\,\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/01/hildur-hakonardottir_3ja-stettin_1973-moskud-web.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210205
DTEND;VALUE=DATE:20220110
DTSTAMP:20260530T071457
CREATED:20210819T142932Z
LAST-MODIFIED:20220916T105746Z
UID:18485-1612483200-1641772799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Halló\, geimur
DESCRIPTION:Fjarlægar víðáttur í óendanlegum alheiminum hafa frá upphafi verið manninum hugleiknar og í aldanna rás hafa listamenn túlkað og tekist á við hugmyndir sínar um geiminn og miðlað þeim með fjölbreyttum hætti. \nÁ sýningunni Halló\, geimur er skyggnst inn í undraveröld himingeimsins með hjálp listaverka í safneign Listasafns Íslands. \nFramúrstefnuleg verk Finns Jónssonar\, sem fyrstur Íslendinga tókst á við geiminn í verkum sínum á fyrri hluta 20. aldar\, miðla óheftri tjáningu listamannsins á töfrum himintunglanna sem eru leiðarstef sýningarinnar. Leyndardómar Vetrarbrautarinnar sem aldnir spámenn afhjúpa með forsögnum sínum um veðurfar og forlög manna eru Hildigunni Birgisdóttur og Svavari Guðnasyni innblástur. Norðurljósabar Halldórs Ásgeirssonar leiftrar með litadýrð og innsetning Steinu Vasulka\, Of the North\, hrífur áhorfandann með sér í áhrifamikilli upplifun.\nÍ verkum Ásgríms Jónssonar og Guðmundar Thorsteinssonar (Muggs) frá fyrri hluta 20. aldar sjáum við hvernig himintunglin tengjast þjóðtrú og ævintýrum þar sem vættir birtast mannfólki í tunglsljósi og blessuð sólin breytir tröllum í stein þegar dagur rís. Á sýningunni eru einnig mörg verk frá 7. og 8. áratug 20. aldar þegar framfarir í geimvísindum voru stórstígar og maðurinn fór í fyrsta sinn út fyrir gufuhvolf jarðar. \nGeimurinn og listin eiga það sameiginlegt að vera forvitnileg og kvik\, þar er stöðug hreyfing og alltaf er maður að uppgötva eitthvað nýtt þegar maður skoðar listaverk. Með hjálp Tuma\, aðalpersónu bókarinnar Rauði hatturinn og krummi eftir Ásgerði Búadóttur myndlistarmann\, geta yngstu gestir safnsins skoðað sýninguna á aðgengilegan hátt\, sett upp gleraugu vísindamannsins og numið nýjan fróðleik! \nSýningarstjórar: Guðrún Jóna Halldórsdóttir og Ragnheiður Vignisdóttir \nVísindalegar staðreyndir: Sævar Helgi Bragason \nListamenn sem eiga verk á sýningunni: \nÁsgrímur Jónsson\nBjörg Þorsteinsdóttir\nErró\nEyborg Guðmundsdóttir\nFinnur Jónsson\nGuðmunda Andrésdóttir\nGuðmundur Thorsteinsson (Muggur)\nHalldór Ásgeirsson\nHelgi Þorgils Friðjónsson\nHildigunnur Birgisdóttir\nHildur Hákonardóttir\nHreinn Friðfinnsson\nJóhann Eyfells\nJón Gunnar Árnason\nKeith Grant\nKristinn E. Hrafnsson\nMargrét Elíasdóttir\nSigurjón Ólafsson\nSteina\nSvavar Guðnason\nSverrir Haraldsson\nVilhjálmur Bergsson\nÞorvaldur Skúlason
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hallo-geimur/
LOCATION:The National Gallery of Iceland\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/01/hallo-geimur-vefur-Listasafn-Íslands.jpeg
END:VEVENT
END:VCALENDAR