BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220219
DTEND;VALUE=DATE:20220304
DTSTAMP:20260530T054500
CREATED:20220223T125058Z
LAST-MODIFIED:20220825T132041Z
UID:22135-1645228800-1646351999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hildur Ása Henrýsdóttir: Marga hildi háð
DESCRIPTION:Hildur Ása Henrýsdóttir \nSýningarstjóri er Linda Toivio \nGallery Port\, Reykjavík / 19. febrúar – 3. mars 2022 \nOpnun laugardaginn 19. febrúar frá kl. 16-18 Í Gallery Port\, Laugavegi 32. \nÁ einkasýningu sinni setur Hildur Henrýsdóttir myndlistarmaður\, sem búsett er í Berlín\, fram vandræðalega einhliða ástarsögu. Með því að leita persónulegrar samþykktar á öllum röngu stöðunum – með einnar nætur kynnum\, skelfilegum stefnumótum og vonlausri rómantík – þá opnast gáttir fyrir sársaukafulla vegi sjálfsfyrirlitningar\, kvíða og þarfar fyrir utanaðkomandi samþykki. Í titli sýningarinnar; Marga hildi háð\, sem skilja má sem svo að hún hafi háð marga bardaga\, er fornafn listamannsins\, Hildar\, og merking nafnsins notað en Hildur þýðir bardagi á íslenskri tungu. Í nútímasamfélagi eru þessir bardagar myndlíkingar og vísa í samhenginu til innri óróa listamannsins\, Hildar. Sjálfsævisöguleg verk hennar samanstanda af málverkum og skúlptúrum. Þau eru viðkvæm og óhefluð og endurspegla gjarnan skömm og eftirsjá. Þrátt fyrir að óttast höfnun umfram allt\, þá kastar Hildur sér hvað eftir annað út í þráhyggjufulla leit að ást og afhjúpar þannig sammannlegt varnarleysi okkar: „Ég endurræsi Instagramið mitt til að sjá hvort þú hafir horft á söguna mína þann daginn. Mér finnst einhvernveginn eins og þú sért nálægt mér þegar þú gerir það. Ef þú gerir það ekki\, þá finnst mér eins og þú hafir einhvernveginn yfirgefið mig.” \nÍ hugdjarfri framsetningu Hildar á kvenlíkamanum má finna líkindi með nektarmálverkum enska myndlistarmannsins Jenny Saville\, sem notar gjarnan sjálfa sig sem fyrirmynd í máluðum portrettum sínum. Auk þess að sýna persónulegan karakter sinn í málverkum þá gefa þær báðar nánast gróteska en þó sanna mynd af veruleika kvenna. Nakinn líkama Saville í mikilli yfirþyngd og einkennilegar líkamsstellingarnar sem Hildur málar sig í má sjá sem uppreisn: Ó\, að konan leyfi sér að sýna sínar óþægilegu og ófögru hliðar. Það sem hér er verið að mótmæla er heildarsaga feðraveldisins\, þeirri linsu sem horft er á kvenlíkamann í gegnum\, þar sem karllægt sjónmálið tekur sér vald yfir því hverskonar líkamar eigi rétt á að vera til og koma fyrir sjónir annarra. \nÞrátt fyrir að nekt sé rauður þráður í gegnum sýninguna\, þá er líkaminn sýndur sem kynlaus eining og nektinni leyft að standa sem myndlíking fyrir varnarleysi og endurspeglun á sjálfinu. Öll listsköpun Hildar er rannsókn á sjálfinu\, ósérhlífin vegferð í gegnum smánarlegar stundir og -hugsanir\, sem leiða til aukinnar sjálfsvitundar\, samhliða löngun eftir athygli og þrá eftir að öðlast meiri persónulegan þroska. Engu að síður veltir hún sér ekki uppúr sjálfsvorkunn\, né ætlast hún til vorkunnar frá áhorfendum. Ákveðin óþægindi eða vanlíðan – bæði hennar eigin og áhorfandans – eru alltaf til staðar\, þar eð hún skilur enga bresti eftir órannsakaða. \nKonurnar í akvarellum Hildar eru týndar\, hvikular og stundum skelfilegar\, og sumar þeirra virðast tærast upp líkt og eftir langvarandi depurðartímabil. Með tómu augnaráði sínu horfa þær stundum ásakandi á áhorfandann. Svartar verur eða liðdýr koma endurtekið fyrir í verkum hennar og vekja upp frumstæðar tilfinningar viðbjóðs og vanþóknunar\, þar sem verurnar tákna sjálfsskynjun listamannsins eða það sem er óæskilegt og ætti að eyða. Bjöguð sýn á veruleikann og ímynd líkamans birtist í nokkrum af verkunum á meðan pastel-nammilitirnir auka á hryllinginn. Nakinn líkami olíumálverksins sýnir engar áhyggjur af óaðlaðandi sjónarhornum eða gægjuþörf sem gæti skapast\, heldur hallar sér aftur\, langur hálsinn beygir sig líkt og af vantrú\, kannski skynjar hann sannleikann í fyrsta sinn. Í öðru verki er geislavirkt óargardýr að forða sér út úr ramma myndarinnar\, dýr sem skammast sín fyrir að vera þar en er ófært um að bægja hinum mörgu augum sínum frá áhorfandanum. \n“Hvern þeirra ertu að tala um?” \n„Þann sem ég hef verið skotinn í í tvö ár en sem elskar mig ekki til baka.“ \nFrásögnin í sýningunni Marga hildi háð nær út fyrir sögu af sorgmæddri stúlku í ástarsorg\, þar sem hún snertir á þemum er sveiflast frá fjarstæðukenndum sögum af stefnumótamenningu samtímans\, til frásagna af vanvirkum samböndum og geðheilbrigði. Þetta er einlæg og sjálfskaldhæðin\, persónuleg frásögn af því að finnast maður vera á röngum stað\, að vera aldrei nóg en finna samt kjarkinn til að halda áfram leitinni\, sem hluti af kynslóð fólks er stundar rað-stefnumót\, fólks sem allt gerir sér vel grein fyrir því að næstu kynni eru aðeins einu skjá-fletti í burtu. Þrátt fyrir að glíma við vanmáttarkennd\, sem margir upplifa\, þá verður Hildur meistari í að deila of miklu með öðrum og hunsar væntingar varðandi líkamlegt útlit og félagslega viðurkennda hegðun.buy synthroid Canada https://langleyrx.com/synthroid.html no prescription\n Á yfirborðinu gæti virst sem leit að samþykkt frá öðrum sé helsta markmiðið\, þegar sannast er að hún getur aðeins fundið þá samþykkt innra með sjálfri sér.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hildur-asa-henrysdottir-marga-hildi-had/
LOCATION:Gallery Port\, Laugavegur 32\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/02/port-hildur-asa-henrys.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211016
DTEND;VALUE=DATE:20211113
DTSTAMP:20260530T054500
CREATED:20211018T145527Z
LAST-MODIFIED:20211111T102205Z
UID:19701-1634342400-1636761599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Endurheimt(a)
DESCRIPTION:Sýning á verkum eftir 16 meðlimi listahópsins Félag málandi kvenna. \nAðalheiður Daly Þórhallsdóttir\nAndrea Aldan Hauksdóttir\nÁsgerður Arnardóttir\nBrynhildur Þórðardóttir\nDýrfinna Benita Basalan-Garðarsdóttir\nFreyja Reynisdóttir\nHildur Ása Henrýsdóttir\nÍris María Leifsdóttir\nKristín Morthens\nMellí-Melkorka Þorkelsdóttir\nRagnheiður Þorgrímsdóttir\nSaga Sig\nSara Björk Hauksdóttir\nSif Stefánsdóttir\nSunneva Ása Weisshappel\n& Vera Hilmars \nSýningarstjórar og texti: Katerína Spathí & Þórhildur Tinna Sigurðardóttir \nMeð stuðningi frá: Lista- og menningarsjóður Mosfellsbæjar.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/endurheimta/
LOCATION:Listasalur Mosfellsbæjar\, Þverholt 2\, Mosfellsbær\, 270\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/reclaim.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210828
DTEND;VALUE=DATE:20211101
DTSTAMP:20260530T054500
CREATED:20210817T140238Z
LAST-MODIFIED:20220916T110451Z
UID:18400-1630108800-1635724799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Samfélag skynjandi vera
DESCRIPTION:Haustsýning Hafnarborgar í ár er Samfélag skynjandi vera\, í sýningarstjórn Wiolu Ujazdowska og Huberts Gromny. Með því að bjóða fjölbreyttum hópi – listamönnum\, fræðimönnum og fleirum – að taka þátt í sýningunni vilja sýningarstjórarnir skapa vettvang þar sem margar raddir mætast og ólíkir möguleikar tjáningar og skynjunar eru skoðaðir. Þannig mun sýningin bjóða upp á margvíslega nálgun\, með áherslu á tíma\, ferli og flutning\, þar sem rýmið verður virkjað\, kannað og nýtt á marga vegu\, svo safnið breytist í stað til að mynda tengsl. \nMeð því að líta á tengingu okkar við heiminn sem samfélag skynjandi vera getum við nálgast efnið á nýjan hátt\, hvort sem við eigum við samband manns og náttúru\, manns og menningar eða samband mannsins við sjálfan sig. Hugtakið skynjandi vera leysir okkur því undan viðjum gildishlaðinna orða\, svo við getum ímyndað okkur hvað það er að vera manneskja í stærra samhengi. Meginhugmyndin er að spyrja spurninga um sagn- og félagsfræðilega merkingu hins mannlega\, svo sem hún varðar það hvað og hver við teljum tilheyra samfélaginu. Hafnarborg og saga hússins eru einnig áhugaverður staður fyrir slíka rannsókn\, enda má segja að sú breyting sem gerð var á nýtingu hússins\, er því var breytt úr apóteki í safn\, hafi falið í sér táknræna umbreytingu\, þar sem horfið var frá læknisfræðilegum aðferðum\, þ.e. lyfjafræðinni\, og þess í stað leitað til hinna andlegu og menningarlegu áhrifa listarinnar. \nÞá vakna spurningar um togstreituna á milli lista og vísinda\, þar sem hægt er að líta á listina sem hugrænt verkfæri sem hjálpar okkur að greina það sem ekki er hægt að skýra með vísindunum einum saman – tengslin á milli hins þekkta og hins óþekkta. Með því að þenja skynfærin gefur sýningin gestum tækifæri á að upplifa stað og stund og leiða hugann að mikilvægi minninga og mismunandi samskiptaleiða\, tækniþróunar og fjarskipta\, er hafa valdið miklum breytingum á íslensku samfélagi\, sem er að verða æ fjölbreyttara. Þessi fjölbreytileiki hefur jafnframt í för með sér tengingu við aðra staði\, nýjar hefðir og siði. Hver komumaður hefur ákveðna þekkingu\, eigið safn minninga\, í farteskinu\, sem hann notar til þess að takast á við nýjar aðstæður og óþekkt land. Ef við hugsum um listina sem tæki sem gerir okkur kleift að skilja hið ósýnilega eða ógreinilega getum við jafnvel nýtt hana til þess að takast á við ólíkar skilgreiningar og þætti þess að vera skynjandi vera. \nHubert Gromny er myndlistarmaður\, fræðimaður\, sýningarstjóri og rithöfundur\, búsettur í Reykjavík. Hann útskrifaðist með MA-gráðu frá Listaháskólanum í Kraków\, Póllandi\, árið 2015. Þá er hann með BA-gráðu frá Jagiellonian-háskólanum í Kraków\, þar sem hann nam við heimspekideild skólans. Í starfi sínu kannar Hubert mörkin á milli listar\, fræða og dægurmenningar\, í því skyni að vinda ofan af stjórnmála- og félagsfræðilegum gildum sjónlista- og menningar. \nWiola Ujazdowska er myndlistarkona\, gjörningalistamaður og listfræðingur\, búsett í Reykjavík. Hún er með MA-gráðu í listfræði frá Kóperníkusarháskólanum í Toruń\, Póllandi\, þar sem hún lagði einnig stund á málaralist við myndlistardeild skólans. Á árunum 2012-2013 stundaði hún svo nám við CICS í Köln\, Þýskalandi. Verk Wiolu fást að mestu við líkama og kyn á hinu pólitíska sviði\, með tilliti til fólksflutninga\, stéttaskiptingar\, landamæra og trúarkenninga\, auk þess sem hún tekst á við menningar- og félagsfræðilega strúktúra í heimspekilegu\, mann- og menningarfræðilegu samhengi. \nListamennirnir sem taka þátt í sýningunni eru Agnieszka Sosnowska\, Andrea Ágústa Aðalsteinsdóttir\, Angela Rawlings\, Anna Wojtyńska\, Dance Africa Iceland\, Freyja Eilíf\, Gígja Jónsdóttir\, Hildur Ása Henrýsdóttir\, Hubert Gromny\, Kathy Clark\, Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir\, Melanie Ubaldo\, Michelle Sáenz Burrola\, Nermine El Ansari\, Pétur Magnússon\, Rúnar Örn Jóhönnu Marinósson\, Styrmir Örn Guðmundsson\, Ufuoma Overo-Tarimo og Wiola Ujazdowska. \nÞessi sýning verður sú ellefta í haustsýningarröð Hafnarborgar en verkefnið hefur það að markmiði að gefa sýningarstjórum sem ekki eiga langan feril að baki kost á að senda inn tillögu að sýningu í safninu. \nÞað er Listráð Hafnarborgar ásamt forstöðumanni sem fer yfir umsóknir og velur vinningstillöguna ár hvert.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/samfelag-skynjandi-vera/
LOCATION:Hafnarborg Center of Culture and Fine Art\, Strandgata 34\, Hafnarfjörður\, 220\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/Hafnarborg-2021-Samfelag-skynjandi-vera-slideshow.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR