BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20230101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230824
DTEND;VALUE=DATE:20231023
DTSTAMP:20260530T044632
CREATED:20230821T125222Z
LAST-MODIFIED:20230821T125222Z
UID:32378-1692835200-1698019199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Helena Margrét Jónsdóttir: Alveg eins og alvöru
DESCRIPTION:Helena Margrét vinnur með sígilda eiginleika málverksins til að líkja eftir hinum sýnilega veruleika. Hugmyndir hennar birtast í einskonar töfraraunsæi á striga þar sem hún málar fyrirbæri af mikilli nákvæmni. Viðfangsefnin finnur hún ýmist í umhverfinu eða í hinum stafræna heimi. Að auki eru þau viðfangsefni sem hún fangar oftar en ekki eftirlíking úr gerviefni af einhverju öðru. Þannig verður til tvöföld eftirlíking – fyrst í fyrirmyndinni og svo í eftirmyndinni. \nÞað stafar engin ógn af gervikönguló og engin ilmur berst af nælonblómum. \nHelena Margrét fjallar um blendnar tilfinningar og flókið samspil þess að þrá eitthvað og hafa á því óbeit. Köngulóin og vefur hennar er endurtekið þema í verkum Helenu Margrétar en köngulóin vísar í óbeit listamannsins á dýrinu. Til að vinna á þessari óbeit málar Helena Margrét köngulóna ýmist í gervi tuskudýrs\, eyrnalokks og jafnvel hárklemmu sem gerir nálægð hennar þægilegri. Þó er fyrirmyndin aldrei langt undan og vekur upp hroll og jafnvel andstyggð. Drykkirnir tákna aftur á móti eitthvað girnilegt og mynda andstæðu við hin neikvæðu viðbrögð en falsað eðli hlutanna dempar áhrif þeirra allra. \nHelena Margrét tengir þessi manngerðu gerviefni við ótta\, langanir\, kvíða og þrár. Efni og áferðir sem líkja eftir lífi\, en munu ennþá standa óbreytt löngu eftir okkar tíma. \nHelena Margrét Jónsdóttir (f. 1996) útskrifaðist með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2019 eftir að hafa stundað nám í myndlist við Konunglega Listaháskólann í Haag í Hollandi og Myndlistarskólann í Reykjavík. Nýlegar einkasýningar Helenu eru Liquida (2021) í Plan X Art Gallery í Mílanó og Þú getur ekki fest þig í þínum eigin vef (2022) í Ásmundarsal. Helena tók einnig þátt í samsýningunni Allt sem sýnist – Raunveruleiki á striga á Kjarvalsstöðum 2020. \nSýningaröðin í D-sal hóf göngu sína árið 2007 í Listasafni Reykjavíkur – Hafnahúsi. Hér er listamönnum sem hafa mótandi áhrif á íslenska myndlistarsenu boðið að halda sína fyrstu einkasýningu í opinberu safni. \nSýningarstjóri: Björk Hrafnsdóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/helena-margret-jonsdottir-alveg-eins-og-alvoru/
LOCATION:Reykjavik Art Museum – Hafnarhús\, Tryggvagata 17\, 101\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/08/vinglas-skann_large_0.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230325
DTEND;VALUE=DATE:20230530
DTSTAMP:20260530T044632
CREATED:20230324T153800Z
LAST-MODIFIED:20230530T122540Z
UID:30052-1679702400-1685404799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ósýndarheimar
DESCRIPTION:Í Ósýndarheimum verður sjónum beint að stafrænni list\, ljósmyndun\, hreyfimyndum\, raunsæi og ofurveruleika. Listamennirnir takast hver um sig á við hugmyndir um raunveruleika og sýndarleika sem birtast í verkum þeirra\, þar sem viðfangið er aftenging\, kvíði og sú gráglettni sem einkennir þá kynslóð sem nú lifir og hrærist í umhverfi nýmiðlunar. Með því að beita fyrir sig stafrænum tjáningarmöguleikum draga þau fram satíruna sem felst í streituvaldandi lífsmynstri 21. aldarinnar\, auk þess að gefa gaum að hvers kyns tilvistarkreppum\, loftslagsvánni og hruni vistkerfa\, mannlegu eðli og spillingu kapítalismans. Verk þeirra vekja jafnvel upp hugleiðingar um það hvernig veröld ofurveruleikans getur leitt til firringar og aftengdrar tilvistar. \nListamenn sýningarinnar Ósýndarheima nálgast hið „stafræna“ fyrst og fremst út frá hugsun og hegðun\, í stað þess að taka sérstaklega viðmið af miðlum eða aðferð. Vinna þeir með þrívíða miðla\, teikningu\, vídeó og ljósmyndun\, auk stafrænna ferla við gerð skúlptúra og málverka\, sem vísa til þeirra óskýru marka sem eru á milli raunveruleikans og hermiheimsins. Stuðst er við hreyfimyndir og hið stafræna til þess að rýna félagslegt ástand á líðandi stundu en listamennirnir í Ósýndarheimum vísa hér til stafrænna upplifana í því skyni að varpa ljósi á hinn óhlutbunda veruleika\, sem og þá spillingu og eyðileggingu sem viðgengst í umhverfi okkar. Þá ganga listamennirnir út frá því að aðgreining og tilvistarangist séu meðal afleiðinga stafræns sýndarveruleika og spyrja loks hvað framtíðin beri í skauti sér fyrir samfélag sem er orðið háð nettengdum kerfum og stafrænum tjáningarmátum í stað mannlegra samskipta. \nListamennirnir sem taka þátt í sýningunni eru Kristín Helga Ríkharðsdóttir\, Meriem Bennani\, María Guðjohnsen\, Bita Razavi\, Helena Margrét Jónsdóttir og Inari Sandell. \nSýningarstjóri er Daría Sól Andrews.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/osyndarheimar/
LOCATION:Hafnarborg Center of Culture and Fine Art\, Strandgata 34\, Hafnarfjörður\, 220\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/Hafnarborg-2023-Osyndarheimar-slideshow-nytt-1400x462-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230318
DTEND;VALUE=DATE:20230423
DTSTAMP:20260530T044632
CREATED:20230324T154448Z
LAST-MODIFIED:20230425T112841Z
UID:30059-1679097600-1682207999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Töfraheimilið
DESCRIPTION:Töfraheimilið er heimili verka eftir fjórar listakonur sem eiga það allar sameiginlegt að vinna með yfirnáttúrulega töfra hversdagins.\nListamenn:\nHelena Margrét Jónsdóttir\nLidija Ristic\nRagnheiður Káradóttir\nVirginia Lee Montgomery\nSýningastjóri:\nKristín Helga Ríkharðsdóttir\nVerk í sýningaskrá:\nFríða Ísberg\nVeislustjóri opnunarinnar er Anna Hrund Másdóttir og ykkur er öllum boðið að njóta hennar yfirnáttúrulegu matarinnsetningu.\nHimbrimi býður uppá bleikt G&T.\nÞrátt fyrir vísindi og yfirnáttúrulegra töfra\, hefur Guð blessað þetta heimili og allir eru formlega velkomnir.\nGjörið svo vel og gangið í bæinn!
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/tofraheimilid/
LOCATION:Kling & Bang\, The Marshall House\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/334794972_1175438179788049_6200819397081750634_n.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR