BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230127
DTEND;VALUE=DATE:20230130
DTSTAMP:20260530T131845
CREATED:20230124T145218Z
LAST-MODIFIED:20230124T145218Z
UID:29056-1674777600-1675036799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Löng helgi #3
DESCRIPTION: Löng helgi #3 opnaði  í Miðgarði á Hvolsvelli föstudaginn 27.janúar kl 17. Sýningunni lýkur sunnudaginn 29.janúar kl 17.\nLöng helgi #3 er þriðji hlutinn í röð samsýninga sem hófst á Oddsson hostel við Hringbraut í Reykjavík haustið 2021. Annar hluti opnaði á Hótel Hafnarfjalli við Borgarnes í lok janúar 2022.\nLöng helgi er könnun á næmi og ofnæmi í breyttri heimsmynd þar sem tími og rými hafa öðlast aðra merkingu. Verkin á sýningunni leysa úr læðingi eiginleika og ágenga strauma sem leynast í loftinu og leita stöðugt á okkur í bilinu milli ákveðinnar fjarlægðar og sjaldgæfrar nándar. Hvert verk mælir sér mót við sýningargestinn úr óvæntri átt og leiðir um innviði gistiheimilisins frá einum kringumstæðum yfir í aðrar.\nStaðsetning sýningasyrpunnar Löng helgi á yfirgefnum\, afviknum eða tímabundið lokuðum gistiheimilum er afgerandi undirtónn verkanna sem mynda marglaga og hugvekjandi tengsl sín á milli í nánu samtali við sýningargestinn.\nÞátttakendur í Löng helgi #3 eru Ásta Fanney Sigurðardóttir\, Eygló Harðardóttir\, Freyja Eilíf\, Friðgeir Einarsson\, Gígja Jónsdóttir\, Haraldur Jónsson\, Logi Bjarnason\, Logi Leó Gunnarsson\, Margrét Helga Sesseljudóttir\, Serge Comte\, Sólbjört Vera Ómarsdóttir\, Sigrún Hlín Sigurðardóttir\, Stefán Hermannsson\, Una Margrét Árnadóttir og Örn Alexander Ámundason.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/long-helgi-3/
LOCATION:Midgard Base Camp\, Dufþaksbraut 14\, Hvolsvöllur\, 860\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/01/Screenshot-2023-01-24-at-14.32.39.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221008
DTEND;VALUE=DATE:20221213
DTSTAMP:20260530T131845
CREATED:20221117T143110Z
LAST-MODIFIED:20221201T154126Z
UID:27533-1665187200-1670889599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Haraldur Jónsson: Bráð
DESCRIPTION:Nú stendur yfir í Glerhúsinu sýningin Bráð með nýjum verkum Haraldar Jónssonar. Þau eru unnin í keramik\, málmflögur\, gúmmí og hljóð sem fléttast saman við rýmið í marglaga heild. Lýsingin til staðar er sjálf dagsbirtan og streymir rólega inn um glugga og gættir\, ljósop sem hreyfist á hraða sólargangsins\, opnast og lokast úr einu augnabliki í annað. Hér verða innstungur að fornminjum\, rétt einsog lyklar\, nafnspjöld\, takkar\, dyrabjöllur\, allir hlutirnir sem hverfa\, gufa upp og bráðna burt úr samtímanum\, eins líkaminn og snerting sogast inní skerm\, tungumálið umbreytist í broskalla. Meðan leirinn harðnar\, stirðnar upp einsog líkami. \n„Ekki gefa mér vatn\, gefðu mér heldur rafmagn. Meðan þú áttar þig\, fótar þig\, nærð þér í hvíslandi ljósaskiptum innanum munnfylli af þögn eða handföng að tómi eða það sem hrærist í bilunum eða.“ \nHaraldur kann að gefa ósýnileikanum ham\, færa honum efnivið. Hann veltir fyrir sér hugsanlegri vegalengd milli skynfæra og hugans og spilar á þann streng\, strengi. Blæs út í risastærðir eitthvað sem gleymdist eða gefur trölli tækifæri á að syngja ofanúr fingrabjörg. Hann stendur styrkum fótum í tíma sínum\, gaumgæfir vel og gengur sífellt lengra og lengra og jafnframt styttra og styttra í leik sínum og leit\, sem aldrei verður átök eða glíma\, við / með / að einfaldleikanum\, einsog sjá má og heyra á sýningu hans Bráð. Hér rammar hann samtímann inní alveg nýja hornklofa\, setur ósnertanleika straumsins í klæði og í áþreifanlegt samband við jörðu\, færir áferðarfagurri tækninni mennsku\, hina klaufsku fínlega klunnalegu mennsku stappaða fingraförum\, og sem jafngömul er mannkyninu. \nSunnudaginn 4.desember kl 14 verður listamannaspjall með Haraldi í Glerhúsinu. Sýningin stendur til 18.desember.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/haraldur-jonsson-brad/
LOCATION:Glerhúsið\, Vesturgata 33b\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/11/Screenshot-2022-11-17-at-14.33.33.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR