BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220507
DTEND;VALUE=DATE:20220801
DTSTAMP:20260530T062705
CREATED:20220505T151042Z
LAST-MODIFIED:20220803T155603Z
UID:23174-1651881600-1659311999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Tilraun – Æðarrækt
DESCRIPTION:Þverfagleg sýning um sjálfbært sambýli æðarfugla og manna á Íslandi\, í Danmörku og Noregi. Sýningin er byggð á rannsókn á fuglinum og umhverfi hans\, á sambandi hans við manninn\, hefðinni\, æðardúni og því hvernig dýrmæt sjálfbær hlunnindi eru nýtt á Norðurslóðum. \n\n\nÆðarfuglinn og æðarbændur hafa þróað einstakt samband sín á milli byggt á vináttu og gagnkvæmu trausti og er báðum aðilum til hagsbóta. Æðarbóndinn ver fuglinn gegn vargi og fær að launum dún fuglsins\, eitt best einangrandi efni í heiminum. Ef dúnninn er ekki tíndur fer hann forgörðum. Um 4 tonn af æðardúni eru unnin á norðurhveli jarðar ár hvert\, þar af rúm 3 tonn á Íslandi. \nTilraun – Æðarrækt er rannsóknarverkefni sem hófst árið 2019. Listamennirnir á sýningunni eru með fjölbreyttan bakgrunn í myndlist\, hönnun\, sviðslistum\, tónlist og arkitektúr. Þátttakendur voru valdir út frá fyrri verkum þeirra og aðferðafræði og einhverjir þeirra paraðir saman til að skapa áhugavert samtal. Hópurinn fór saman í ferðir að kynna sér ólík æðarvörp og hver einstaklingur eða teymi fóru svo á ólíka staði til að kynnast heimi æðarfuglsins enn frekar. \nHlutverk lista er að varpa fram spurningum\, rýna í hversdagslega hluti frá nýju sjónarhorni og skapa nýjar leiðir til að leysa verkefni. Æðarfuglum og æðarrækt stendur ógn af hlýnun jarðar\, auk breyttra lifnarðarhátta. Fólk flyst úr sveit í borg og fjarlægð við æðarvörpin eykst. Við lítum á verkefnið sem hlekk í því að átta sig á stóra samhenginu\, vistkerfinu okkar. Listræn nálgun og skapandi hugsun eru mikilvægt tól í þeirri umræðu. \nÆðarkollur hljóma eins og þeim hafi verið sagt eitthvað áhugavert\, jafnvel slúður. Úúúú\, Úúúú! Það er erfitt að hrífast ekki af þessum fallega kór. Við vonum að verkefnið veiti þér innblástur og þú eigir nokkur Úúúú augnablik á sýningunni og næst þegar þú hittir æðarfugla. \nTilraun – Æðarrækt verður opnuð í Hvelfingu þann 7. maí klukkan 17:00 ogstendur til 31. júlí.  \n\nSýningastjórar: Hildur Steinþórsdóttir & Rúna Thors \nSýnendur:\nAnne Lass\, Lisbeth Burian & Rikke Houd\nArnhildur Pálmadóttir & Samuel T. Rees\nAuður Ösp Guðmundsdóttir & Hanna Jónsdóttir\nBaldur Björnsson & Þórey Björk Halldórsdóttir\nBjarki Bragason\nBrynhildur Pálsdóttir & Ólöf Erla Bjarnadóttir\nEygló Harðardóttir\nFriðgeir Einarsson & Sigrún Hlín Sigurðardóttir\nGabriel Johann Kvendseth\nHilda Gunnarsdóttir & Loji Höskuldsson\nÍris Indriðadóttir & Signý Jónsdóttir\nKristbjörg María Guðmundsdóttir\, Ragna Margrét Guðmundsdóttir & Vilborg Guðjónsdóttir\nMargrét H. Blöndal\nTanja Levý & Valdís Steinarsdóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/experiment-eider-farmer/
LOCATION:The Nordic House\, Sæmundargata 11\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/Eider_mynd-1280x720-1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR