BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220505
DTEND;VALUE=DATE:20220806
DTSTAMP:20260530T044607
CREATED:20220505T113229Z
LAST-MODIFIED:20220825T133544Z
UID:23115-1651708800-1659743999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hanna Dís Whitehead: Snúningur
DESCRIPTION:Hanna Dís Whitehead tekur annan snúning á fyrri verkum þar sem áhugaverðum efnivið\, litum\, formum og sögu er blandað saman á nýjan hátt.\nOrka keðjuverkunar leiðir eitt af öðru\, ein hugmynd ýtir á þá næstu.\n\nStundum væri tilvalið að taka annan snúning á gömlum hugmyndum með nýja vitneskju í farteskinu. Verkefni og aðferðir hafa þróast áfram og því komin tími til að fá á þau nýtt sjónarhorn.\n\nÁ sýningunni verða gerðar tilraunir til að búa til húsgögn úr því sem áður var ílát\, blanda saman nýjum aðferðum á fyrri hugmyndir og fá sömu sjónrænu efnistilfinningu út úr ólíkum efnivið. Sum ferli fá tækifæri til að klárast en önnur taka flugið. Skúffuhugmyndir líta loksins dagsins ljós.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hanna-dis-whitehead-spin/
LOCATION:Gerðarsafn Kópavogur Art Museum\, Hamraborg 4\, Kópavogur\, 200\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/kynningarmynd.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220219
DTEND;VALUE=DATE:20220321
DTSTAMP:20260530T044607
CREATED:20220301T155217Z
LAST-MODIFIED:20220404T154010Z
UID:22375-1645228800-1647820799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Í öðru húsi
DESCRIPTION:‘Í öðru húsi’ er samsýning Guðlaugar Míu Eyþórsdóttur\, Hönnu Dísar Whitehead og Steinunnar Önnudóttur. \nForm sýningarinnar er híbýli. Höfundarnir draga upp vistarverur\, ytri mörk og innri rými\, en birta bara afmörkuð svæði. Verk höfundanna mætast í þessum senum og mynda framandlegan efnisheim sem formgerist í kunnuglegum sviðsetningum.\nÍ verkum Hönnu Dísar\, Guðlaugar Míu og Steinunnar má finna sameiginlega strengi. Þær vinna gjarnan á mörkum myndlistar og hönnunar en í þessu verkefni mætast þær á landamærum þessara heima\, og setja fram sýningu sem tilheyrir hvorum\, heldur bregður sér undan slíkum skilgreiningum. \nGuðlaug Mía Eyþórsdóttir (f.1988) útskrifaðist með BA gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2012 og stundaði síðar meistaranám í myndlist við Koninklijke Academie í Gent\, þaðan sem hún útskrifaðist árið 2018. Í myndlist sinni skoðar Guðlaug skúlptúríska þætti í manngerðu umhverfi okkar\, gaumgæfir þau form\, áferðir og gjörðir sem nærumhverfi okkar samanstanda af og kannar hvort efnisgera megi daglegar athafnir. Að auki hefur hún staðið að margvíslegum verkefnum innan myndlistar og brugðið sér í hlutverk útgefanda\, sýningarstjóra og rannsakanda. Á árunum 2012-19 stofnaði hún\, ásamt hópi listamanna\, sýningarrými Kunstschlager í Reykjavík og ABC Klubhuis í Antwerpen\, Belgíu og situr nú í stjórn Nýlistasafnsins. Hún hefur verið virk í sýningarhaldi bæði hér heima og erlendis síðastliðinn áratug og var tilnefnd til hvatningarverðlauna Íslensku Myndlistarverðlaunanna árið 2020. \nHanna Dís Whitehead (f.1982) útskrifaðist með láði frá Design Academy Eindhoven árið 2011. Hún hefur sýnt víða hérlendis sem og erlendis svo sem Danmörku\, Eistlandi\, Englandi\, Finlandi og Svíþjóð. Verk hennar eru staðsett á landamærum hönnunar\, listar og handverks. Ferlinu er leyft að ráða ferðinni og farið er á milli mismunandi efna svo sem viðar\, textíls og keramíkur innan sömu hugmyndar. Hanna Dís hefur sérstakan áhuga á að vekja upp samtal á milli hluta og áhorfenda þar sem hún vefur saman sögum\, formi\, litum og teikningu. Hún býr og starfar á Hornafirði. \nSteinunn Önnudóttir (f. 1984) býr og starfar í Reykjavík. Hún lauk BA námi í grafískri hönnun við Gerrit Rietveld Academie árið 2009\, og BA námi í myndlist (Audiovisual) árið 2011\, einnig við GRA. Helstu sýningar eru Feigðarós Í Kling&Bang 2021\, Non Plus Ultra í Listasafni Reykjavíkur 2019\, Skúlptúr Skúlptúr í Gerðarsafni 2018\, og Fallvelti Heimsins\, á vegum Myndhöggvarafélagsins\, 2018. Frá árinu 2014 hefur Steinunn rekið sýningarýmið Harbinger og hún er jafnframt hluti af útgáfusamstarfinu In volumes sem einbeitir sér að útgáfu bókverka. Árið 2019 hlaut Steinunnn viðurkenningu frá styrktarsjóði Svavars Guðnasonar og Ástu Eiríksdóttur. \nSteinunn fæst fyrst og fremst við málverk og skúlptúra sem renna gjarnan saman hvort við annað. Hún gerir tilraunir með að kanna víddir málverksins\, lætur það flýja flatneskju tvívíddar sinnar og verða hluti af þrívíðu umhverfi. Fyrir vikið verða verkin að líkamlegri upplifun þar sem hægt er að ganga í kring um þau eða jafnvel í gegnum þau. Steinunn leikur sér að því að spinna hugrenningatengsl á milli raunveru og sviðsetninga með verkum sínum\, og vinnur gjarnan með hugtök eins og afbyggingu\, sjónblekkingu\, uppruna og eftirlíkingu.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/in-another-house/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/03/another-house.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210513
DTEND;VALUE=DATE:20211004
DTSTAMP:20260530T044607
CREATED:20210831T113655Z
LAST-MODIFIED:20220916T105938Z
UID:18842-1620864000-1633305599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hönnun í anda Ásmundar
DESCRIPTION:Sýning á verkum fimm vöruhönnuða sem fengu það verkefni að hanna nytjavörur innblásnar af listsköpun Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara. \nÁ sýningunni eru bæði verk hönnuðanna sem og verk eftir Ásmund sem hafa veitt hönnuðunum innblástur. Sýningin er sett upp í Kúlunni í Ásmundarsafni. \nListamenn :\n\n\n\n\n\nBjörn Steinar Blumenstein\n\n\n\n\n\n\n\n\nBrynhildur Pálsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nFriðrik Steinn Friðriksson\n\n\n\n\n\n\n\n\nHanna Dís Whitehead\n\n\n\n\n\n\n\n\nTinna Gunnarsdóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/honnun-i-anda-asmundar/
LOCATION:Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn\, Sigtún\, Reykjavík\, 105\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/05/honnun_asmundarsafn-samsett_mynd-_large.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR