BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230527
DTEND;VALUE=DATE:20230624
DTSTAMP:20260530T131940
CREATED:20230530T115546Z
LAST-MODIFIED:20230901T145623Z
UID:31374-1685145600-1687564799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Krókaleiðir
DESCRIPTION:Krókaleiðir er samsýning Höllu Einarsdóttur og Sigurrósar G. Björnsdóttur. Sýningin samanstendur af verkum sem eiga það sameiginlegt að snerta á frásagnarkrafti hluta\, minnum innan þekktra frásagnaraðferða og því margslungna en jafnframt hversdagslega ferli að setja sig inn í hin ýmsu hlutverk. Hvort sem um ræðir þá mismunandi hatta sem fólk setur á sig í gegnum lífið eða hvernig sögulegar persónur lifa í sameiginlegum minningum okkar. Í myndum\, frásögnum og hlutum\, varpa verkin á ólíkan hátt upp spurningar um að setja sig í spor annarra. Margþættar afleiðingar þess að þykjast vera annar en maður er og ábyrgðin sem fylgir því að enduróma raddir annarra. Þannig eru verkin nokkurs konar hugleiðing um þær flækjur og óbeinu leiðir sem slíkar raunir geta haft í för með sér.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/krokaleidir/
LOCATION:Listasalur Mosfellsbæjar\, Þverholt 2\, Mosfellsbær\, 270\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/05/Plakat_listasalur_Krokaleidir.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211204
DTEND;VALUE=DATE:20220124
DTSTAMP:20260530T131940
CREATED:20211129T121214Z
LAST-MODIFIED:20220124T113415Z
UID:20420-1638576000-1642982399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Fylgjur
DESCRIPTION:Kling & Bang býður ykkur velkomin á opnun sýningarinnar Fylgjur\, samsýningar Höllu Einarsdóttur\, Hönnu Kristínar Birgisdóttur og Smára Rúnars Róbertssonar. Sýningin opnar laugardaginn 4. desember nk. milli 16 og 19\, og stendur til 23. janúar nk. \nKl. 18 á opnunardaginn mun Halla Einardsóttir flytja gjörning. \nHalla Einarsdóttir (f. 1991) er íslenskur listamaður sem býr og starfar í Rotterdam þar sem hún lauk MFA námi frá Piet Zwart Institute síðastliðin júlí 2021. Þar áður útskrifaðist hún með BA í grafískri hönnun frá Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam 2016. Í þverfaglegum verkum sínum veltir Halla fyrir sér hvernig goðsagnir\, þjóðsögur og minni hafa í gegnum tíðina verið nýtt til þess að koma á og viðhalda stigveldi þekkingar. Þannig rannsakar hún hvernig þekking berst milli kynslóða\, hvað misferst á leiðinni og margþætt eðli þess að endurheimta nöfn og frásagnir. Hinar ýmsu heimildir og sögulegur efniviður verkanna hefur svo áhrif á flutning handritanna\, þar sem ákveðin minni og mótíf kalla fram ákveðna raddbeitingu\, takta og kóreógrafíu. Halla hefur tekið þátt í ýmsum sýningum erlendis og á Íslandi. \nHanna Kristín Birgisdóttir (f. 1989) er íslenskur myndlistarmaður sem býr og starfar í Bergen\, hún útskrifaðist frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2014 og úr framhaldsnámi frá Listaháskólanum í Bergen árið 2020. Hanna hefur tekið þátt í sýningum bæði hér á landi og erlendis. Meðal sýningarverkefna hennar eru: Þögul athöfn í Skaftfelli Seyðisfirði og Eins og samanþjöppuð öndun sem verður að þunnu háu hljóði\, Kling&Bang\, hluti af Sequences Art Festival. \nSmári Rúnar Róbertsson (f. 1992) er íslenskur listamaður sem býr og starfar í Amsterdam. Verk Smára einkennast af greiningu á listrænu ferli\, þjóðsögum og merkingu. Með samsetningu ferlis\, innsetninga og skrifa leitar hann marka ímyndunnar og áþreifanleika til þess að skoða þau kerfi sem stjórna umhverfi okkar\, sögu og sjálfsmynd. Verk Smára standa sem skráð líkamstjáning sem vísar um leið til eigin framleiðslu. Vinna í verkum Smára má þannig líta á sem áþreifanlegt efni sem er teygt\, þjappað og mótað í takt vitundar\, endurtekningar og fróðleiks. Smári útskrifaðist með BFA frá Gerrit Rietveld Academie 2015 og með MA frá Sandberg Instituut í Amsterdam 2017. Hann hlaut 3Package Deal talents styrk Amsterdams Funds voor de Kunst and Bureau Broedplaatsen árið 2017.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/fylgjur/
LOCATION:Kling & Bang\, The Marshall House\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/11/fylgjur.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR