BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221217
DTEND;VALUE=DATE:20230109
DTSTAMP:20260530T104923
CREATED:20230106T105945Z
LAST-MODIFIED:20230106T105945Z
UID:28416-1671235200-1673222399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Halla Birgisdóttir: Draugar og annað sem er liðið
DESCRIPTION:Á sýningunni Draugar og annað sem er liðið má sjá 44 myndljóð sem fjalla um minningar\, tilfinningar og annað sem ásækir okkur. Í gamla daga var algengt að fólk sæi drauga í því kolniðamyrkri sem það bjó við. Hvernig sjáum við drauga í okkar upplýsta samfélagi? Eru til hversdagslegir draugar? Skilur allt sem við gerum eftir sig ummerki? Myndljóðin eru sýnd í samspili við veggteikningu sem kallast Við skiljum eftir okkur ummerki. Samhliða verkunum kemur út bókverk þar sem finna má teikningarnar af sýningunni. \nHalla Birgisdóttir (f. 1988) býr og starfar í Reykjavík. Hún notar teikningar og texta til þess að skapa brotakennd frásagnarrými sem birtast áhorfendum m.a. sem innsetningar\, bókverk og veggteikningar. Hún kallar sig myndskáld. www.hallabirgisdottir.org
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/halla-birgisdottir-draugar-og-annad-sem-er-lidid/
LOCATION:Gallerí Úthverfa\, Aðalstræti 22\, Ísafjörður\, 400\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/01/Halla-birgis.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211112
DTEND;VALUE=DATE:20211115
DTSTAMP:20260530T104923
CREATED:20211111T161413Z
LAST-MODIFIED:20211111T162233Z
UID:20143-1636675200-1636934399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Reykjavík Art Book Fair
DESCRIPTION:Listabókamessa með áherslu á bókahönnun\, útgáfu og prent sem listform sem er í stöðugri þróun. \nVerið hjartanlega velkomin á opnun Reykjavík Art Book Fair í Ásmundarsal föstudaginn 12. nóvember kl.18. Reykjavík Art Book Fair byggir á vinsælu alþjóðlegu sýningarsniði listbókamessunnar. Messurnar sem haldnar eru víðsvegar um heim sameina listamenn og hönnuði sem nota bókverkamiðilinn sem listform\, lítil listbókaforlög\, gallerí og söfn sem stunda útgáfu á prentuðu efni. \nÚtgangspunktur messunnar er að líta á bókahönnun\, útgáfu og prent sem listform sem er í stöðugri þróun. Prentið hefur oft verið nefnt lýðræðislegasti listmiðillinn þar sem hann er aðgengilegur öllum\, hver sem er getur stundað sjálfsútgáfu og stjórnað dreifingu efnisins. \nListbókamessur ýta undir þá hugmynd þar sem þær eru einn af fáum viðburðum í listheiminum þar sem óþekktir listamenn\, aktívistar\, grasrót og gagnmenning sýna samhliða þekktum listamönnum\, stofnunum og sölugalleríum. Þátttakendur sjá um sölu á eigin efni og rennur ágóðinn óskiptur til þátttakenda. \nOPNUNARTÍMI MESSUNNAR:\nFös 12.nóv 18:00 – 21:00\nLau 13.nóv 11:00 – 17:00\nSun 14.nóv 11:00 – 17:00 \n  \nDAGSKRÁ HELGARINNAR: \n \nDunce tímarit útgáfuhóf Í Gryfjunni 12.nóv frá kl. 18:00 – 21:00 \nDunce er árlegt tímarit um kóreógrafíu og gjörningalist gefið út hjá Prenti & vinum í ritstjórn Sóleyjar Frostadóttur\, hannað af Helgu Dögg Ólafsdóttur. Tímaritið býður upp á faglega umfjöllun um verk og listrænt ferli danshöfunda og myndlistarmanna sem vinna með gjörningaformið. Dunce veitir viðtöku textum frá listamönnum um eigið skapandi ferli en með því gefst lesandanum tækifæri til að kynnast verki listamannsins af meiri dýpt. \nAnnað tölublað Dunce inniheldur meðal annars vital Joe Keys við Ilmi Stefánsdóttur um verk hennar á sviði myndlistar og leikhúss\, viðtöl við Sigtrygg Berg Sigmarsson\, Sigurð Guðmundsson\, Natalia Villanueva Linares\, Gjörningaklúbbinn\, Steinunni Ketilsdóttur og Ingrid Berger Myhre auk skrifa listamanna s.s. Sólbjartar Veru Ómarsdóttur um sýningu Yelena Arakelow og Gígju Jónsdóttur um eigið verk. \n  \n \nHvít sól útgáfuhóf í Gryfjunni\, 13. nóvember frá kl. 11-17 \nBókverkið Hvít sól er myndræn samantekt á samnefndum sýningum hópsins IYFAC. Sýningarnar samanstóðu af innsetningum og gjörningum sem haldnir voru á árunum 2017-2021 í ýmsum útgáfum á fimm mismunandi stöðum. Viðfangsefni þeirra var sólargangurinn og áhrif sólar og birtu á menn og samfélög. Samhliða útgáfunni verður gefin út ljósmyndaserían Veiddar sólir sem er sprottin upp úr hugmyndaheimi Hvítrar sólar\, og verður til sýnis á meðan á útgáfuhófinu stendur. Einnig verða sýnd brot úr sýningunum ásamt hljóðmynd verksins eftir Daníel Helgason. \nHöfundar verksins eru Halla Birgisdóttir\, Ragnheiður Harpa Leifsdóttir\, Ragnheiður Maísól Sturludóttir og Sigrún Hlín Sigurðardóttir. Verkefnið er styrkt af Myndlistarsjóði. \n  \n \nKoma jól? Útgáfuhóf sunnudaginn 14. nóvember frá kl. 13–17 \nKoma jól? er jólaljóðabók eftir Hallgrím Helgason og Rán Flygenring sem kveðst á við fræga bók Jóhannesar úr Kötlum\, Jólin koma. Hér er að finna nýjustu fréttir af Grýlu og Jólakettinum og þá stíga hinar jökulhressu Grýludætur\, systur jólasveinanna\, fram úr þúsund ára löngum skugga bræðra sinna\nog arka til byggða\, hver með sínu lagi og hrekkjabrögð í farteskinu. \nÍ tilefni útgáfunnar mun Hallgrímur lesa upp úr bókinni í tvígang\, fyrst klukkan 14 og aftur klukkan 15. Kakó og pipakökur í boði. \nDúkristur Ránar verða sýndar í Gryfjunni frá 11–17 og tölusett eintök í takmörkuðu upplagi til sölu. \nÖll velkomin nema Grýla – léttar veitingar í boði.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/reykjavik-art-book-fair/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/11/artbook-fair.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR