BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220315
DTEND;VALUE=DATE:20220522
DTSTAMP:20260530T181837
CREATED:20220505T153737Z
LAST-MODIFIED:20220825T131936Z
UID:23192-1647302400-1653177599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hákon Pálsson: Hótel Saga - Óstaður í Tíma
DESCRIPTION:Hótel Saga: óstaður í tíma \ner ljósmyndaverk sem var fangað á einum degi í Júlí 2021 þegar hótelið hafði staðið autt í átta mánuði. Verkið skoðar bygginguna frá hugmyndinni um órætt rými (Liminal Space). Óræð rými eru staðir sem eru á mörkunum\, staðir sem við ferðumst í gegnum\, staðir milli landamæra frá einum tilgangi til annars.buy propecia online https://gaetzpharmacy.com/propecia.html no prescription\n Hótel eru óræð rými. staður sem þú ferðast í gegn á ferðalagi á leiðinni eitthvað annað. Yfirgefin rými eru óræð. Rými eru alltaf byggð með tilgang í huga\, án þess tilgang verður rýmið órætt. \nSaga er stæðilegasta dæmið í Reykjavík um alþjóðlegan módernisma\, stefnu sem lagði út með að frelsa mannkynið með því að útrýma tengingum við fortíðina og stað. Slíkar byggingar áttu að geta staðið hvar sem er óbundin symbólisma fortíðarinnar. Á yfirborðinu er lítið sem staðsetur Hótel Sögu í Reykjavík frekar en Tokyo eða Sagreb. \nÞegar hún opnaði var Saga því dæmi um það sem Marc Augé kallaði óstað (non-place). Stað sem hefur hvorki tengingu við víðara samhengi\, sögu né sjálfsmynd þess umhverfis sem það er í. Stað sem uppfyllir kröfur hins alþjóðlega ferðalangs um þægindi sem eru alltaf kunnugleg þó þau komi ekki frá einum stað eða samhengi. Þar fékkst Manhattan kokteill á barnum fyrir franska máltið á veitingastaðnum eftir að þú fékkst nýjustu hárgreiðsluna úr Vogue í kjallaranum. Óstaðir eru staðir viðskipta frekar en perónulegra tengsla. \nEn á sex áratugum varð Saga ódeilanleg umhverfi sínu og þessi stíll án samhengis varð samhengið okkar. Böll í Súlnasal\, fermingar í ráðstefnusal tvö og afmæli á Grillinu sköpuðu persónulegar tengingar og tíminn\, með því að líða\, skapar alltaf fortíð. Þegar húsið stóð yfirgefið höfðu þær tengingar rofnað. Byggingin minnti mig á gamlar kirkjur sem höfðu breytt um tilgang og orðið leikhús eða næturklúbbur. Yfirborð lúxus og viðskipta án nokkurs til að njóta eða stunda. Staður án staðs né tíma. \nHótel Saga: Óstaður í Tíma skoðar stað sem gæti verið hvar sem er\, hvenær sem er. Draumkennd ferð um fortíð án fortíðar sem þyrfti að vera þarna\, þá. \nÞað var mjög lítið að gera þetta kvöld svo við sammæltumst um að hún kíkti í heimsókn til mín á vaktina. Ég fletti upp lausum herbergjum í móttökutölvunni\, valdi eitt af handahófi\, og bauð henni að koma þangað upp. Dyrnar lukust mjúklega upp undan snúningi master-lykilsins í beltinu. Herbergið ilmaði og gljáði\, baðherbergið hafði verið sótthreinsað\, rúmteppið var slétt og púðarnir lágu bústnir í kös. Júnísólin baðaði sviðið fallegum litum gegnum hálfgagnsæ gluggatjöld. Við undum okkur strax í að krumpa ábreiðuna en svo heyrðum við lykli snúið í skránni. Hún greip fötin og flúði inn á bað\, ég hneppti upp í skyndi og opnaði svo dyrnar að innan. Eins og við var að búast var gestunum brugðið; hvaða úfni\, gráklæddi drengstauli var eiginlega inni á herberginu þeirra? Í krafti nafnspjaldsins sem ég var með nælt við brjóstið bauð ég þau velkomin um leið og ég afsakaði mig og sagði þeim að það væri vandamál með herbergið. Þau gengu inn og lituðust um; hún greip tækifærið og laumaði sér út. Eða reyndi það. Hótelherbergi eru auðvitað ekki nema örfáir fermetrar og það fór því alls ekki framhjá þeim að stúlka skytist út af baðherberginu og hyrfi niður ganginn án þess að heilsa. Ég sagði þeim að þetta væri þerna hótelsins og reyndi að útskýra fyrir þeim – af grunsamlegum nákvæmnisskorti þess sem diktar upp skröksögur í beinni útsendingu – að vandamálið tengdist einmitt baðherberginu. Svo eyddi ég talinu\, bauðst til að taka farangurinn þeirra og gekk með þeim út á ganginn. Ég bað þau um að bíða við lyftuna meðan ég skytist niður og græjaði nýtt herbergi. Með dúndrandi hjartslátt gaf ég mig fram við móttökuna og sagðist hafa rekist á fólkið á 638 og að það væri ósátt við herbergið sitt og vildi skipta; kannski eitthvað með að hafa útsýni til suðurs yfir á Reykjanes frekar en norður yfir gamla bæinn og Esjuna. Það voru sem betur fer næg herbergi svo það var lítið mál fyrir móttökustjórann að verða við því. Nýi lykillinn skar í sveitta lófana meðan ég beið eftir lyftunni. Hver tékkar eiginlega inn eftir klukkan tíu\, spurði ég spegilmynd mína á leiðinni upp á sjöttu hæð. Hún hló bara og benti mér ásakandi á fingraförin sem var löngu kominn tími á að pússa af gyllingunni. Hurðin rann í sundur. Ég fylgdi unga parinu vandræðalegur að nýja herberginu sínu\, bar inn töskurnar\, afsakaði þetta vesen og óskaði þeim góðrar vistar. Undarlegt bros lék um varir þeirra beggja. Um leið og dyrnar féllu að stöfum óskuðu þau mér góðrar skemmtunar. \nAtli Bollason \nPikkoló\, porter og næturvörður\, Hótel Sögu\, 2000-2003
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hakon-palsson-hotel-saga-ostadur-i-tima/
LOCATION:Gallery Port\, Laugavegur 32\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/275817903_466233571743619_182072123140231436_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210909
DTEND;VALUE=DATE:20210912
DTSTAMP:20260530T181837
CREATED:20210909T142342Z
LAST-MODIFIED:20210909T142342Z
UID:19034-1631145600-1631404799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Collaborative Contaminations
DESCRIPTION:Collaborative Contaminations er nýtt verk eftir Rósu Ómarsdóttur í samstarfi við Hákon Pálsson. Verkið er bæði performans og innsetning. Á daginn geta gestir og gangandi séð verkið sem innsetningu og á kvöldin framkvæmir Rósa performans í rýminu. \nÍ verkinu skoða þau hvernig hegðun vatns breytist þegar það verður fyrir einhvers konar mengun? Hvað gerist ef við lítum á mengun sem tækifæri til samstarfs?\nÍ performansinum notar Rósa kóerógrafískar leiðir til að skapa dans fyrir vatn\, loft\, ljós\, hljóð og litarefni. Hreint vatnið verður mengað og umbreytist í töfrandi landslag þar sem ýmsar myndir birtast sem minna m.a. á frumur\, norðurljós\, sjóðandi leðju eða vetrarbrautir\, sem dansa í takt við hljóðheim vatns og íss. \nSýningar / performans:\n9. 10. og 11. september kl 20.00\nHúsið opnar kl. 19:30 og miðaverð er 2.000 kr. \nInnsetningin verður opin föstudag og laugardag 10. og 11. september frá 13-18 \nHugmynd og performans: Rósa Ómarsdóttir\nLýsing\, uppsetning og myndvörpun: Hákon Pálsson\nAðstoð við hljóðmynd: Sveinbjörn Thorarensen\nMeð-framleiðsla og stuðningur: Reykjavík Dance Festival\nÞetta verk var samið í vinnustofu Akademie Schloss Solitude þar sem Rósa er vinnutofu-listamaður\, staðan er styrkt af TANZPAKT Stadt-Land-Bund stutt af þýska sambandsstjóra menningar og fjölmiðla (BKM)\, sérstakri dagskrá >>NEUSTART KULTUR<< (BKM) og ríkishöfuðborg Stuttgart. \nRósa Ómarsdóttir er dansari og danshöfundur sem hefur starfað bæði á Íslandi\, Belgíu og Þýskalandi. Hún útskrifaðist úr PARTS í Brussel árið 2014 og hefur síðan þá samið fjöldadansverka sem hafa vera sýnd víðsvegar um Evrópu. Hún hefur hlotið fjölda tilnefninga til Grímunnar og m.a. hlotið verðlaunin Danshöfundur Ársins. Í listrænu vinnu sinni skoðar hún samband manns og náttúru og leitast eftir ómannmiðlægri nálgun á efnið. Verk hennar eru innblásin af vistkerfi manna\, hluta og ósýnilegra afla\, með áherslu á valdastrúktúr þar á meðal. Hún vinnur milli miðla og blandar saman kóreógrafíu\, lifandi hljóðmyndum\, og dýnamískum sviðsmyndum. \nHákon Pálsson er kvikmyndatökumaður\, ljósmyndari og lýsingarhönnuður. Hann hefur starfað milli ýmissa miðla og stefna í kvikmyndum\, multimedia myndlist og sviðsverkum.\nVerk sem hann skaut með Isaac Julien\, Playtime og Stones Against Diamonds\, hafa verið sýnd í söfnum og galleríum víðsvegar um heiminn. Hann var tilnefndur til Grímunnar fyrir ljósahönnun á verki Rósu ‘Spills’ og vann BAFTA New Talent Awards fyrir kvikmyndatöku á stuttmyndinni ‘No More Shall We Part’
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/collaborative-contaminations/
LOCATION:Mengi\, Óðinsgata 2\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/09/collaborative-contaminations.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR