BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230701
DTEND;VALUE=DATE:20230918
DTSTAMP:20260530T082336
CREATED:20230703T151357Z
LAST-MODIFIED:20230703T151357Z
UID:32024-1688169600-1694995199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Gunnhildur Hauksdóttir: Úr hjarta í stein - hringsjá
DESCRIPTION:Sýningin Úr hjarta í stein – hringsjá – sem birtir blekteikningar\, skúlptúra og tónverk fyrir kór – er samin úr nærliggjandi efniviði: steinum\, hljóðum og landslaginu í kringum Reykjavík. Úr hjarta í stein er Reykjavíkursagaí teikningum og söng\, þar leikur andartakið og stórt hlutverk. \nVerk mín eiga samtal við náttúruna í gegnum teikningu og hljóð. Ég nota teikningu sem tímabundinn miðil til að þýða jarðverur*\, landfræðilega atburði\, dýrahljóð eða landslag yfir í tónverk. Ég bý til hljóðmyndir um umbreytingar í náttúrunni með undirliggjandi hugleiðingar mismunandi tímaskyn. Um skynjun mannsins á flæði tímans og ímynduðu tímaskyni jarðar og jarðvera; fjalla\, vatns (kyrrt vatn og rennandi) og steinar. Athafnir steina eru hæg aðgerð\, samanborið við mannlegar aðgerð. Ég reyni að tengja og sameina þessi mismunandi tímaskyn í list. Ég hugsa um jarðverur*\, vinn með þeim\, á við þær samskipti. Vatn\, kyrrt og rennandi\, sandur\, steinar\, fjöll o.s.frv.  \nFyrir Úr hjarta í stein – hringsjá legg ég til kórverk\, samið út frá staðsetningu Vesturbæjar með hugmyndum\, stikkorðum og minningum um Reykjavík. Ég legg til 16 teikningar gerðar í samstarfi við steina úr nærumhverfinu\, með blek og sjó sem millilið á milli steinanna og flatarins.  \nGunnhildur Hauksdóttir er íslensk myndlistarkona og hefur starfað alþjóðlega að myndlist í um 20 ár. Hún sótti meistaragráðu MFA frá Sandberg Institute í Hollandi (2006) og BFA Listaháskóla Íslands (2002). Gunnhildur vinnur með innsetningar\, hljóðverk\, lifandi flutning og teikningar. Hún nýtir gjarnan teikningar sem verkfæri til að kanna samspil og vefar saman hljóði\, teikningu og hreyfimynstri sem skilar sér gjarnan í gjörningum. Teikningar verða að þýðingu\, ýmist úr óhlutbundinni athugun\, jarðfræðilegum atburðum eða dýrahljóðum yfir í raddskrár\, og umbreytast áfram\, yfir í innsetningar og gjörninga. Gunnhildur situr í stjórn Safnasafnsins á Svalbarðseyri og Hilbertraum í Berlín. \nHér má finna heimasíðu Gunnhildar Hauksdóttur: https://www.gunnhildur.this.is/ \n* Hugtakið jarðverur er notað eins og Marisol de la Cadena skildi það í samtölum hennar við feðga úr Runakuna frumbyggjasamfélagi í Ekvador. Earth Beings eða jarð-verur er þýðing orðsins tirakuna: \nJarðverur eru skynverur sem ekki „búa“ heldur „eru“ – þ.e.a.s. fjöll\, ár\, lón og önnur sýnileg merki landslagsins. \n 
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/gunnhildur-hauksdottir-ur-hjarta-i-stein-hringsja/
LOCATION:Glerhúsið\, Vesturgata 33b\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/07/Screenshot-2023-06-30-at-16.43.02.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220702
DTEND;VALUE=DATE:20221003
DTSTAMP:20260530T082336
CREATED:20220929T120838Z
LAST-MODIFIED:20220929T121020Z
UID:26687-1656720000-1664755199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Nokkur nýleg verk
DESCRIPTION:Listasafn Íslands er þjóðlistasafn okkar Íslendinga og eitt af hlutverkum þess er að safna myndlist með það að markmiði að endurspegla sem best strauma og stefnur í íslenskri og alþjóðlegri myndlist á hverjum tímaeins og segir í lögum um safnið. Safneignin er yfirgripsmikil og fjölbreytt. Elstu verkin eru frá 16. öld og þau yngstu innan við ársgömul en kjarni safneignarinnar er íslensk myndlist frá aldamótunum 1900 til dagsins í dag. \nÁ sýningunni Nokkur nýleg verk má sjá úrval verka sem keypt hafa verið af innkaupanefnd Listasafns Íslands eða safnið hefur fengið að gjöf á undanförnum fjórum árum. \nNokkur nýleg verk hafa verið valin saman þar sem finna má kerfi og endurtekningar sem leiðarstef í verkum ellefu listamanna og eru þau unnin í ýmsa miðla. \n  \nListamenn: Anna Júlía Friðbjörnsdóttir\,  Bjarni H. Þórarinsson\, Fritz Hendrik Berndsen\, Guðjón Ketilsson\, Gunnhildur Hauksdóttir\, Hildur Bjarnadóttir\, Sigurður Guðjónsson\, Sigurður Atli Sigurðsson\, Sölvi Sólon Íslandus Helgason\, Valgerður Guðlaugsdóttir\, Örn Alexander Ámundason. \nSýningarstjóri: Vigdís Rún Jónsdóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/nokkur-nyleg-verk/
LOCATION:The National Gallery of Iceland\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/webp:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/09/image3.webp
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211016
DTEND;VALUE=DATE:20211122
DTSTAMP:20260530T082336
CREATED:20211014T123810Z
LAST-MODIFIED:20211122T144333Z
UID:19659-1634342400-1637539199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:SEQUENCES X - / SKÖPUN / EYÐING /
DESCRIPTION:/ SKÖPUN / EYÐING / er titill sýningar Sequences í Marshallhúsinu sem tekur yfir sýningarrými Nýlistasafnsins og Kling & Bang. Titill sýningarinnar er vísun í texta Sigurðar Guðmundssonar\, TÍMI\, sem er til sýnis á hátíðinni og hægt er að finna á heimasíðu hátíðarinnar og sýningarskrá: \nTíminn er mikilvægur þáttur í allri list. Listin er mjög heppileg aðferð til að ferðast í tíma og rúmi. Flestar leiðir til nýrra tíma liggja gegnum listaverk.  \nVið skynjum nýja myndlist\, en hún opnar okkur nýjan heim sem er ekki draumur heldur veruleiki. Við látum gamla heiminn lönd og leið\, höldum þó eftir nokkrum pinklum\, eilitlum menningarlegum farangri eða lögvernduðum listaverkum. Af þeim getum við séð hvar við vorum stödd. \nTíminn eyðir öllu. Eftilvill eiga menjar mannsandans\, sönnunargögn sannleikans\, listaverkin\, sér þó mestar lífslíkur. \nSigurður Guðmundsson\nnóvember 1969\nFyrirlestur fluttur í Norræna húsinu\, Reykjavík \nListamenn Nýlistasafnið: \nBjörk Guðnadóttir (f. 1969) leitar víða fanga í listsköpun sinni og til þess notar hún ýmiskonar efnivið eins og léreft\, ullargarn\, plast\, gifs og vax. Björk hefur haldið einkasýningar og verið valin til þess að taka þátt í mörgum samsýningum\, bæði hér á landi og erlendis. Hún hefur hlotið fjölmarga styrki og verk eftir hana eru í eigu listasafna og safnara. Björk er meðlimur í Myndhöggvarafélaginu í Reykjavík og Nýlistasafninu. \nBorgar Magnason er kontrabassaleikari og tónskáld\, hann gerir gjarnan hljóðheim við hið sjónræna\, þ.m.t. myndlistarverk; er nátengdur sjónrænni túlkun og hefur löngum unnið úr myndlist í verkum sínum. \nGuðlaug Mía Eyþórsdóttir (f.1988) útskrifaðist með BA gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2012 og stundaði síðar meistarnám í myndlist við Koninklijke Academie í Gent\, þaðan sem hún útskrifaðist árið 2018. Í myndlist sinni skoðar Guðlaug skúlptúríska þætti í manngerðu umhverfi okkar\, gaumgæfir þau form\, áferðir og gjörðir sem nærumhverfi okkar samanstanda af og kannar hvort efnisgera megi daglegar athafnir. \nGunnhildur Hauksdottir (f. 1972) hlaut MFA frá Sandberg Institute í Amsterdam\, Hollandi árið 2006 og BFA Listaháskóla Íslands árið 2002. Verk hennar er að finna í safneignum Listasafns Íslands og Nýlistasafninu í Reykjavík. Í safneign Uppsala Konstmuseum og Goethe Institute í Kaupmannahöfn og Hess Gallery\, safneign Háskólans í Lethbridge í Kanada. Verk hennar hafa verið flutt og tekin til sýninga víða á ferli hennar. Hún tók m.a. þátt í  Silver Lining\, Collateral Event á 56. Feneyjatvíæringnum árið 2015. Hún hefur sýnt í Listasafni Íslands\, Listasafni Reykjavíkur\, Galleria Municipal do Porto í Portúgal\, í Kunstmuseum Liechtenstein\, Uppsala Konstmuseum og  í 21 Haus hjá Belvedere Museum í Vín. Gunnhildur hefur sterk tengsl við Seyðisfjörð og hefur búið þar af og til síðan hún hóf feril sinn. Hún býr og starfar við myndlist í Reykjavík og Berlín.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sequences-x-skopun-eyding-2/
LOCATION:The Living Art Museum\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/gif:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/lighter.gif
END:VEVENT
END:VCALENDAR