BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230114
DTEND;VALUE=DATE:20230213
DTSTAMP:20260530T131903
CREATED:20230113T111928Z
LAST-MODIFIED:20230113T111928Z
UID:28705-1673654400-1676246399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Dokað við trist
DESCRIPTION:Ekki alls fyrir löngu voru þeir garpar Gunnar Jónsson og Sigurður Ámundason á ferð yfir hálendið. Skyndilega gekk yfir landið mikill stormur og illfært varð til ferðarlaga. Þá voru góð ráð dýr en til mikillar lukku urðu þeir varir við sæluhús eitt\, fjarri allri byggð. Ekkert annað í augsýn en veðurbarið fjalllendið. Náttúran getur verið svo mikil ofgnótt. Í sæluhúsinu dvöldu þeir um tíma og sem betur fer höfðu þeir birgðir nægar. Landslagið í kring hafði svakaleg áhrif á hugmyndaflug tvíeykisins; litirnir sem stöku sinnum var hægt að greina í öllum þessum gráma\, tvískinnungurinn í jafnvægi þess manngerða við náttúruna. Svolítið trist\, en á sama tíma fallegt. \n\nGunnar Jónsson (1988) útskrifaðist úr bakkalárnámi við myndlistadeild Listaháskóla Íslands árið 2012. Síðan þá hefur hann haldið fimm einkasýningar\, tekið þátt í fjölda samsýninga hérlendis sem og erlendis. Gunnar vinnur mest með myndbönd og hljóðinnsetningar sem miðil í verkum sínum en vinnur einnig ljósmyndaverk og vatnslitamálverk. Hann býr og starfar á Ísafirði.\n \nSigurður Ámundason (1986) útskrifaðist úr bakkalárnámi myndlistardeildar Listaháskóla Íslands árið 2012 og hefur síðan haldið ellefu einkasýningar\, tekið þátt í fjölda samsýningu og flutt tugi gjörninga. Sigurður notast mest við teikningar en skapar einnig innsetningar\, skúlptúra\, vídeóverk\, bókverk\, ljósmyndir og leikverk.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/dokad-vid-trist/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/01/323095316_2464318797053627_7311552608013746411_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211016
DTEND;VALUE=DATE:20211025
DTSTAMP:20260530T131903
CREATED:20211014T124812Z
LAST-MODIFIED:20220916T111606Z
UID:19665-1634342400-1635119999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:SEQUENCES X - Gunnar Jónsson: Í viðjum
DESCRIPTION:Það eru 5 mínútur í. Alltaf aðeins 5 mínútur í. Allsnægtir í viðjum hringrásar\, ofgnótt alls í 5 mínútna fjarlægð. Rétt ókomin\, alveg að koma. Alltaf aðeins 5 mínútur í.  \nÍ ofgnóttinni fjarlægist ég. Í stað þess að verða skilvirk handbeini framkvæmda sem móttekur og afhendir jafnóðum\, leggst ég undir strauminn. Beljandi straum hugmynda\, ofgnótt allsnægta alls sem er og hugsast getur svo úr verður hálfgerð apatía. Doði. Ekki sinnulaus\, þvert á móti. \nFullur af meðvitund og ásetningi\, en dofinn. Eins og í bíó.  \nKapphlaup nútímans teiknast upp í tákn óendanleikans og neglist niður með hverju spori og mælist í tíma og rúmi. \nGunnar Jónsson (f. 1988) er fæddur í Reykjavík en ólst upp á Ísafirði og býr þar og starfar í dag. Gunnar lauk BA-prófi í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2012 og hefur sýnt talsvert á Íslandi og erlendis síðan hann útskrifaðist. Gunnar er í stjórn sýningarsalarins Úthverfu.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sequences-x-gunnar-jonsson-i-vidjum/
LOCATION:Outvert Art Space\, Aðalstræti 22\, Ísafjörður\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/gunnarj.jpeg
END:VEVENT
END:VCALENDAR