BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220609
DTEND;VALUE=DATE:20220919
DTSTAMP:20260530T105008
CREATED:20220609T152855Z
LAST-MODIFIED:20221006T161144Z
UID:23679-1654732800-1663545599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Spor og þræðir
DESCRIPTION:Spor og þræðir er sýning á verkum íslenskra samtímalistamanna sem sauma út eða nýta nál og þráð sem verkfæri við listsköpun sína. Þau líta ýmist til fortíðar og vinna með arfleifð handverks og hefðar\, eða nýta nálina til þess að prófa sig áfram í framsæknum tilraunum í bland við aðra miðla. Á sýningunni eru ný og nýleg verk eftir fjölbreyttan hóp listamanna\, bæði fulltrúa yngri kynslóðarinnar sem og reyndari listamenn sem þegar hafa sett mark sitt á íslenska myndlistarsenu. Þau eiga það öll sameiginlegt að hafa tekið ástfóstri við nálina sem verkfæri sem skipar veigamikinn þátt í listsköpun þeirra. Verkin endurspegla mikla breidd í inntaki\, þar sem glímt er við djúpstæð samfélagsmein samhliða ljóðrænu hversdagsins og ljúfsárri nostalgíu. \nSaumnálin hefur alla tíð verið vinsælt tól til listsköpunar og listskreytinga. Hún hefur einkum verið í höndum kvenna sem hafa lagt rækt við að viðhalda gömlum hefðum í handverki sem og þróað nýjar og skapandi leiðir til úrvinnslu með nál og þráð. Útsaumur var ásamt útskurði langalgengasti miðill listamanna á Íslandi fram að 20. öld. Þá vék hann tímabundið fyrir annarri tækni en gekk í endurnýjun lífdaga sem hluti af kvenréttindabaráttu 8. áratugarins og þróun femínískrar myndlistar. Í dag sjáum við enn fjölbreyttari merki um endurkomu útsaums inn á vettvang myndlistar\, ekki bara hér á landi\, heldur í alþjóðlegri samtímalist. Hvað veldur þessum aukna áhuga og sýnileika? Hvað knýr samtímalistamenn til þess að taka sér nál í hönd við gerð verka sinna? \nSýningin fer með áhorfendur í ferðalag um þessa sértæku undirgrein textíllistar þar sem fjölbreytileikinn og sköpunargleðin ráða ríkjum. Sýningin endurspeglar vaxandi áhuga á handverki\, en á undanförnum árum hefur orðið algengara að listamenn víða um heim noti þessa hefðbundnu aðferð handverksins til að skapa fjölbreytt og spennandi listaverk. \nSýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík. \nSýningarstjórar: Birkir Karlsson\, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/stitches-and-threads-2/
LOCATION:Reykjavík Art Museum – Kjarvalsstaðir\, Flókagata 24\,\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/06/nike_joklasoley_james_large-1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR