BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20230101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230422
DTEND;VALUE=DATE:20230521
DTSTAMP:20260530T065139
CREATED:20230420T103116Z
LAST-MODIFIED:20230420T103116Z
UID:30493-1682121600-1684627199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Guðrún Einarsdóttir: Málverk
DESCRIPTION:Á sýningunni Málverk birtir Guðrún Einarsdóttir verk þar sem lífræn form\, efniskennd og áferð eru allsráðandi. \nÁ ferli sínum hefur Guðrún gert tilraunir með eiginleika olíunnar og þróað margs konar áferðir sem einkenna verk hennar. Úr verður einstakur myndheimur sem vísar í tilbrigði og form náttúrunnar\, nokkurs konar efnislandslag á striga\, eins og listamaðurinn segir sjálfur um verkin. Verkin vinnur Guðrún flöt á borðum\, mánuðum og jafnvel árum saman. Aðferðir hennar eru vísindalegar og nákvæmar en hún nýtir einnig þekkingu sína á lífrænu ferli efniviðarins þar sem hún leyfir því óvænta og ófyrirséða að gerast. Í verkum Guðrúnar finnum við vel fyrir náttúrunni. Áhorfandinn skynjar tilvísanir í fjölbreytt náttúrufyrirbæri og náttúruferli sem og síbreytilega mótun\, líkt og formin hafi vaxið með og upp í gegnum strigann.\n\nGuðrún Einarsdóttir (f. 1957) er einn fremsti íslenski myndlistarmaður samtímans. Hún stundaði nám í málaradeild og fjöltæknideild Myndlista- og Handíðaskóla Íslands á 9. áratugnum\, ásamt námskeiðum í efnafræði síðar á ferlinum. Undanfarna tvo áratugi hefur Guðrún Einarsdóttir tekið þátt í fjölda samsýninga\, en einnig sýnt einkasýningar bæði á Íslandi og erlendis. Hún er fulltrúi Íslands á alþjóðavettvangi\, en verk hennar er að finna bæði á opinberum söfnum sem og í einkaeign.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/gudrun-einarsdottir-malverk-2/
LOCATION:Listval – GRANDI\, Hólmaslóð 6\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/04/Gudrún-Einarsdóttir_0000_140.jpeg
END:VEVENT
END:VCALENDAR