BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230422
DTEND;VALUE=DATE:20230521
DTSTAMP:20260530T054604
CREATED:20230420T103116Z
LAST-MODIFIED:20230420T103116Z
UID:30493-1682121600-1684627199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Guðrún Einarsdóttir: Málverk
DESCRIPTION:Á sýningunni Málverk birtir Guðrún Einarsdóttir verk þar sem lífræn form\, efniskennd og áferð eru allsráðandi. \nÁ ferli sínum hefur Guðrún gert tilraunir með eiginleika olíunnar og þróað margs konar áferðir sem einkenna verk hennar. Úr verður einstakur myndheimur sem vísar í tilbrigði og form náttúrunnar\, nokkurs konar efnislandslag á striga\, eins og listamaðurinn segir sjálfur um verkin. Verkin vinnur Guðrún flöt á borðum\, mánuðum og jafnvel árum saman. Aðferðir hennar eru vísindalegar og nákvæmar en hún nýtir einnig þekkingu sína á lífrænu ferli efniviðarins þar sem hún leyfir því óvænta og ófyrirséða að gerast. Í verkum Guðrúnar finnum við vel fyrir náttúrunni. Áhorfandinn skynjar tilvísanir í fjölbreytt náttúrufyrirbæri og náttúruferli sem og síbreytilega mótun\, líkt og formin hafi vaxið með og upp í gegnum strigann.\n\nGuðrún Einarsdóttir (f. 1957) er einn fremsti íslenski myndlistarmaður samtímans. Hún stundaði nám í málaradeild og fjöltæknideild Myndlista- og Handíðaskóla Íslands á 9. áratugnum\, ásamt námskeiðum í efnafræði síðar á ferlinum. Undanfarna tvo áratugi hefur Guðrún Einarsdóttir tekið þátt í fjölda samsýninga\, en einnig sýnt einkasýningar bæði á Íslandi og erlendis. Hún er fulltrúi Íslands á alþjóðavettvangi\, en verk hennar er að finna bæði á opinberum söfnum sem og í einkaeign.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/gudrun-einarsdottir-malverk-2/
LOCATION:Listval – GRANDI\, Hólmaslóð 6\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/04/Gudrún-Einarsdóttir_0000_140.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220305
DTEND;VALUE=DATE:20220412
DTSTAMP:20260530T054604
CREATED:20220314T105156Z
LAST-MODIFIED:20220314T105310Z
UID:22669-1646438400-1649721599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Guðrún Einarsdóttir: Efnislandslag
DESCRIPTION:Guðrún Einarsdóttir hefur skapað einstakan myndheim sem sóttur er í myndanir og form í kraftmikilli náttúru Íslands. Verk hennar líkjast óneitanlega landslagsmálverki\, en þegar nær er komið sýna þau súrrealískan karakter með óhefðbundnum myndunum og dýpt lita. Innan marka strigans birtist á einstakan hátt hin gífurlega orka náttúrunnar þar sem efniviður málverksins\, olían\, bindi- og leysiefnin eru vakin upp og innra líf þeirra og efnasambönd eru stýrð af listamanninum. Hún skapar þannig umgjörð fyrir lífrænt ferli sem svipar til náttúrunnar og fær áhorfandann til að nema staðar við strigann og virða fyrir sér efnislandlagið. \nGuðrún stundaði nám í málaradeild og fjöltæknideild Myndlista- og Handíðaskóla Íslands á 9. áratugnum\, ásamt námskeiðum í efnafræði síðar á ferlinum. Undanfarna tvo áratugi hefur Guðrún Einarsdóttir tekið þátt í fjölda samsýninga\, en einnig sýnt einkasýningar bæði á Íslandi og erlendis. Verk hennar er að finna bæði á opinberum söfnum sem og í einkaeign. \n  \nNORR11\, Hverfisgata 18
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/gudrun-einarsdottir-efnislandslag/
LOCATION:Listval\, Hverfisgata 4\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/03/5-5.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210327
DTEND;VALUE=DATE:20210920
DTSTAMP:20260530T054604
CREATED:20210819T135121Z
LAST-MODIFIED:20220905T135511Z
UID:18462-1616803200-1632095999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Eilíf endurkoma
DESCRIPTION:Á þessari viðamiklu sýningu mynda verk Jóhannesar S. Kjarvals (1885-1972) þráð sem tengir tvenna tíma. Hér er verkum hans teflt fram ásamt verkum myndlistarmanna sem sett hafa svip sinn á íslenskt listalíf síðustu ár. \nSkömmu eftir andlát Kjarvals ritaði Björn Th. Björnsson (1922-2007) listfræðingur grein þar sem hann fjallar um framlag Kjarvals til íslenskrar listasögu og segir að verk hans séu „aldrei í einum tíma stödd\, heldur jafnan íþætt endurvöktum minnum“. Hér má lesa þá miklu virðingu sem Íslendingar hafa borið fyrir list Kjarvals en líka þá staðreynd að áhorfendur hvers tíma koma að verkum hans með eigin reynslu og viðhorf. Áhrif Kjarvals eru ótvíræð og á sýningunni eru áhrif hans á íslenska listamenn dregin fram í dagsljósið. Þau geta sýnt sig með ýmsu móti og verið augljós og afgerandi eða þá að þau birtast með óræðari hætti og án ásetnings. \nAlgengasta og ástkærasta myndefni Kjarvals var íslensk náttúra og landslag en auk þess gerði hann mikið af mannamyndum og fantasíum þar sem verur og fígúrur skjóta upp kollinum og ýmis náttúrufyrirbrigði eru persónugerð. Verk listamanna á sýningunni eru unnin í fjölbreytta miðla og þar má sjá ólíka nálgun að þessum viðfangsefnum. \nKjarval skipar stóran sess í íslenskri menningar- og listasögu og hefur verið síðari kynslóðum listamanna fyrirmynd og innblástur. Persóna hans og lífsverk svífur yfir vötnum og er það ekki að ósekju. Hjá Listasafni Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum eru verk Kjarvals varðveitt og rannsökuð. Valin verk hans eru alltaf til sýnis og settar upp fjölbreyttar sýningar sem varpa ljósi á feril hans á breiðum grunni. Gjarnan eru dregin fram verk úr safneign eða sérsýningar haldnar þar sem afmarkaðir þættir í ferli hans og listsköpun eru rannsakaðir. Á þessari sýningu eru verk Kjarvals sett í samtal við yngri verk starfandi listamanna. Sýningin býður því upp á að kynnast enn betur einum merkasta listamanni þjóðarinnar en einnig verkum starfandi listamanna í fremsta flokki sem hafa sett mark sitt á íslenska og alþjóðlega myndlistarsenu. \nUppbrot sjónsviðsins birtist okkur í verkum Ólafs Elíassonar. Í fyrsta sinn á Íslandi er sýnd röð málverka eftir Ragnar Kjartansson sem hann málaði í Eldhrauni og var innblásin af Kjarvalsverki sem Ragnar á sjálfur. Vídeóinnsetningin Lava&Moss eftir Steinu er meðal umfangsmeiri verka á sýningunni og ný málverk Eggerts Péturssonar eru til sýnis. \nFjölskyldur athugið! Bakpokar eru til láns í móttöku með ýmsum skemmtilegum verkefnum sem gera heimsókn á sýninguna forvitnilega og spennandi! \n\nListamenn:\n\n\n\n\n\nJóhannes S. Kjarval\n\n\n\n\n\n\n\n\nEggert Pétursson\n\n\n\n\n\n\n\n\nEgill Sæbjörnsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nEinar Garibaldi Eiríksson\n\n\n\n\n\n\n\n\nGjörningaklúbburinn\n\n\n\n\n\n\n\n\nGuðrún Einarsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nGuðrún Kristjánsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nHrafnkell Sigurðsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nKatrín Elvarsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nKatrín Sigurðardóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nKristján Guðmundsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nÓlafur Elíasson\n\n\n\n\n\n\n\n\nPáll á Húsafelli\n\n\n\n\n\n\n\n\nRagna Róbertsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nRagnar Kjartansson\n\n\n\n\n\n\n\n\nSigurður Guðjónsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nSteina Vasulka\n\n\n\n\n\n\n\n\nSýningarstjórar:\n\nEdda Halldórsdóttir\nMarkús Þór Andrésson\nÓlöf Kristín Sigurðardóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/eilif-endurkoma/
LOCATION:Reykjavík Art Museum – Kjarvalsstaðir\, Flókagata 24\,\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/eternal-recurrence.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR