BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221008
DTEND;VALUE=DATE:20221213
DTSTAMP:20260530T095229
CREATED:20221117T143110Z
LAST-MODIFIED:20221201T154126Z
UID:27533-1665187200-1670889599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Haraldur Jónsson: Bráð
DESCRIPTION:Nú stendur yfir í Glerhúsinu sýningin Bráð með nýjum verkum Haraldar Jónssonar. Þau eru unnin í keramik\, málmflögur\, gúmmí og hljóð sem fléttast saman við rýmið í marglaga heild. Lýsingin til staðar er sjálf dagsbirtan og streymir rólega inn um glugga og gættir\, ljósop sem hreyfist á hraða sólargangsins\, opnast og lokast úr einu augnabliki í annað. Hér verða innstungur að fornminjum\, rétt einsog lyklar\, nafnspjöld\, takkar\, dyrabjöllur\, allir hlutirnir sem hverfa\, gufa upp og bráðna burt úr samtímanum\, eins líkaminn og snerting sogast inní skerm\, tungumálið umbreytist í broskalla. Meðan leirinn harðnar\, stirðnar upp einsog líkami. \n„Ekki gefa mér vatn\, gefðu mér heldur rafmagn. Meðan þú áttar þig\, fótar þig\, nærð þér í hvíslandi ljósaskiptum innanum munnfylli af þögn eða handföng að tómi eða það sem hrærist í bilunum eða.“ \nHaraldur kann að gefa ósýnileikanum ham\, færa honum efnivið. Hann veltir fyrir sér hugsanlegri vegalengd milli skynfæra og hugans og spilar á þann streng\, strengi. Blæs út í risastærðir eitthvað sem gleymdist eða gefur trölli tækifæri á að syngja ofanúr fingrabjörg. Hann stendur styrkum fótum í tíma sínum\, gaumgæfir vel og gengur sífellt lengra og lengra og jafnframt styttra og styttra í leik sínum og leit\, sem aldrei verður átök eða glíma\, við / með / að einfaldleikanum\, einsog sjá má og heyra á sýningu hans Bráð. Hér rammar hann samtímann inní alveg nýja hornklofa\, setur ósnertanleika straumsins í klæði og í áþreifanlegt samband við jörðu\, færir áferðarfagurri tækninni mennsku\, hina klaufsku fínlega klunnalegu mennsku stappaða fingraförum\, og sem jafngömul er mannkyninu. \nSunnudaginn 4.desember kl 14 verður listamannaspjall með Haraldi í Glerhúsinu. Sýningin stendur til 18.desember.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/haraldur-jonsson-brad/
LOCATION:Glerhúsið\, Vesturgata 33b\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/11/Screenshot-2022-11-17-at-14.33.33.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR