BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221008
DTEND;VALUE=DATE:20230123
DTSTAMP:20260530T131642
CREATED:20221010T094114Z
LAST-MODIFIED:20230124T102622Z
UID:26846-1665187200-1674431999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Geometry
DESCRIPTION:Geómetría spratt úr tilraunamennsku og framsæknum hugmyndum um eðli og möguleika listarinnar. Hreyfingin kom sem loftsteinn inn í íslenskt menningarlíf í upphafi sjötta áratugarins og olli straumhvörfum í listalífi þjóðarinnar. Hreyfingin var andsvar við ríkjandi fagurfræði þar sem leitast var við að finna nýjar leiðir til sköpunar og tjáningar. Geómetrían var ekki einangruð myndlistarstefna heldur nýtt viðmót\, túlkun og tjáning á samtímanum þar sem myndlistin flæddi út fyrir rammann\, samruni listgreina var mögulegur og borgin var vettvangur menningar.\n\nListamenn sýningarinnar eru Ásgerður Búadóttir\, Ásmundur Sveinsson\, Benedikt Gunnarsson\, Eiríkur Smith\, Eyborg Guðmundsdóttir\, Gerður Helgadóttir\, Guðmunda Andrésdóttir\, Guðmundur Benediktsson\, Hafsteinn Austmann\, Hjörleifur Sigurðsson\, Hörður Ágústsson\, Karl Kvaran\, Kjartan Guðjónsson\, Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá\, Málfríður Konráðsdóttir\, Nína Tryggvadóttir\, Skarphéðinn Haraldsson\, Svavar Guðnason\, Sverrir Haraldsson\, Vala Enard Hafstað\, Valtýr Pétursson & Þorvaldur Skúlason.\n\nSýningarstjórar: Brynja Sveinsdóttir & Cecilie Gaihede.\nSýningarhönnun: Hreinn Bernharðsson & Studio Studio.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/geometry-2/
LOCATION:Gerðarsafn Kópavogur Art Museum\, Hamraborg 4\, Kópavogur\, 200\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/10/geometria.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220919
DTEND;VALUE=DATE:20221231
DTSTAMP:20260530T131642
CREATED:20220627T130147Z
LAST-MODIFIED:20220913T150310Z
UID:24145-1663545600-1672444799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Geómetría
DESCRIPTION:Geómetría er sýning á verkum íslenskra listamanna sem voru í forystu geómetrískrar abstraktlistar á 6. \náratugnum. Var þetta í fyrsta sinn í íslenskri listasögu sem hópur íslenskra listamanna var samstíga því sem var að gerast á alþjóðavettvangi. Innan íslensku geómetríunnar voru listakonur áberandi hluti af kjarnanum\, má þar nefna Gerði Helgadóttur\, Nínu Tryggvadóttur og Guðmundu Andrésdóttur.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/geometry/
LOCATION:Gerðarsafn Kópavogur Art Museum\, Hamraborg 4\, Kópavogur\, 200\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/06/geometria.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220611
DTEND;VALUE=DATE:20220926
DTSTAMP:20260530T131642
CREATED:20220908T154652Z
LAST-MODIFIED:20220908T154652Z
UID:25869-1654905600-1664150399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Við getum talað saman
DESCRIPTION:Þurfum við að velta því fyrir okkur hvað Norðurlöndin þýða? Hvað Skandinavía þýðir? Þegar við sameinumst undir formerkjum slíkrar hugmyndar sjáum við að við erum bæði líkari og ólíkari en við töldum. Við deilum mörgu en ekki öðru. Við sjáum líka að hugmyndin er búin til – að við búum hana til. Hér sýnir ungt listafólk frá þessum norðurslóðum verk búin til í okkar síbreytilega veruleika. \nPlatform GÁTT er samstarfsverkefni fimm stórra þverfaglegra listahátíða og stofnana á Norðurlöndum sem hefur verið starfrækt frá árinu 2019. Lokaviðburðurinn fer fram á Listahátíð í sumar. Í þessu þriggja ára verkefni sem fór fram í fimm löndum beindist kastljósið að listafólki undir 35 ára aldri. Listafólkið kynntist þeim stofnunum sem koma að verkefninu með það að markmiði að manngera þessar stóru listastofnanir og opna að þeim dyr. Einnig hefur listafólkið myndað tengsl sín á milli og á milli landa. \nVerkefnið er stutt af Norrænu ráðherranefndinni og er samstarf Listahátíðar í Reykjavík\, sem leiðir verkefnið\, Listahátíðarinnar í Bergen\, Nuuk Nordisk Kulturfestival\, Norðurlandahússins í Færeyjum og Listahátíðarinnar í Helsinki. \nListafólk: Constance Tenvik\, Nayab Ikram\, Laura Marleena Halonen (Ilmastokirkko)\, Ronja Louhivuori (Ilmastokirkko)\, Una Björg Magnúsdóttir\, Loji Höskuldsson\, Melanie Ubaldo \nSýningarstjóri: Starkaður Sigurðarson
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/vid-getum-talad-saman/
LOCATION:Gerðarsafn Kópavogur Art Museum\, Hamraborg 4\, Kópavogur\, 200\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/09/kynningarmynd-vid-getum-talad-saman.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220611
DTEND;VALUE=DATE:20220926
DTSTAMP:20260530T131642
CREATED:20220908T153857Z
LAST-MODIFIED:20220908T153857Z
UID:25863-1654905600-1664150399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:ALDA
DESCRIPTION:ALDA er áhrifarík innsetning á mörkum dans og myndlistar\, flutt af hópi kvendansara\, þar sem danshöfundurinn Katrín Gunnarsdóttir sækir í sögu líkamlegrar vinnu kvenna og skoðar sérstaklega endurteknar hreyfingar og söngva\, með það að markmiði að skapa aðstæður fyrir nána kvenlæga samveru\, samhug og samruna. \nSíðustu ár hefur Katrín unnið að því að byggja upp hreyfitungumál og myndmál þar sem mýkt\, viðkvæmni\, síbreytileg hreyfing og samruni líkama við umhverfi sitt leika lykilhlutverk. Í verkinu birtist margra ára farsælt listrænt samstarf Evu Signýjar Berger hönnuðar og Katrínar okkur á nýjum vettvangi þar sem listform fléttast saman og úr verður taktföst alda upplifana. Titill verksins endurspeglar ölduna sem hreyfiform en vísar einnig í tímann og söguna\, hið gamla og nýja. \nListafólk: Katrín Gunnarsdóttir\, Eva Signý Berger og Baldvin Þór Magnússon \nSýningarstjóri: Brynja Sveinsdóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/alda-2/
LOCATION:Gerðarsafn Kópavogur Art Museum\, Hamraborg 4\, Kópavogur\, 200\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/09/alda-pr-main-photo.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220611
DTEND;VALUE=DATE:20220905
DTSTAMP:20260530T131642
CREATED:20220530T110903Z
LAST-MODIFIED:20220915T164440Z
UID:23411-1654905600-1662335999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Platform GÁTT: Við getum talað saman
DESCRIPTION:Þurfum við að velta því fyrir okkur hvað Norðurlöndin þýða? Hvað Skandinavía þýðir? Þegar við sameinumst undir formerkjum slíkrar hugmyndar sjáum við að við erum bæði líkari og ólíkari en við töldum. Við deilum mörgu en ekki öðru. Við sjáum líka að hugmyndin er búin til – að við búum hana til. Hér sýnir ungt listafólk frá þessum norðurslóðum verk búin til í okkar síbreytilega veruleika. \nPlatform GÁTT er samstarfsverkefni fimm stórra þverfaglegra listahátíða og stofnana á Norðurlöndum sem hefur verið starfrækt frá árinu 2019. Lokaviðburðurinn fer fram á Listahátíð í sumar. Í þessu þriggja ára verkefni sem fór fram í fimm löndum beindist kastljósið að listafólki undir 35 ára aldri. Listafólkið kynntist þeim stofnunum sem koma að verkefninu með það að markmiði að manngera þessar stóru listastofnanir og opna að þeim dyr. Einnig hefur listafólkið myndað tengsl sín á milli og á milli landa. \nVerkefnið er stutt af Norrænu ráðherranefndinni og er samstarf Listahátíðar í Reykjavík\, sem leiðir verkefnið\, Listahátíðarinnar í Bergen\, Nuuk Nordisk Kulturfestival\, Norðurlandahússins í Færeyjum og Listahátíðarinnar í Helsinki. \nListafólk: Constance Tenvik\, Nayab Ikram\, Ville Andersson\, Laura Marleena Halonen (Ilmastokirkko)\, Ronja Louhivuori (Ilmastokirkko)\, Una Björg Magnúsdóttir\, Loji Höskuldsson\, Melanie Ubaldo.\nSýningarstjóri: Starkaður Sigurðarson\nSamstarfsaðilar: Listahátíð í Reykjavík\, Bergen Festspillene\, Helsinki Festival\, Norðurlandahúsið í Færeyjum\, Nuuk Nordisk Kulturfestival & Nordisk Kulturfond \nMynd: Constance Tenvik\, Dressing Up Before Going Out (2021)
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/platform-gatt-we-can-talk/
LOCATION:Gerðarsafn Kópavogur Art Museum\, Hamraborg 4\, Kópavogur\, 200\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/kynningarmynd-vid-getum-talad-saman.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220611
DTEND;VALUE=DATE:20220905
DTSTAMP:20260530T131642
CREATED:20220530T103027Z
LAST-MODIFIED:20220905T132757Z
UID:23405-1654905600-1662335999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:ALDA
DESCRIPTION:ALDA er innsetning á mörkum dans og myndlistar þar sem margra ára farsælt listrænt samstarf Evu Signýjar Berger og Katrínar Gunnarsdóttur birtist okkur á nýjum vettvangi. Katrín Gunnarsdóttir danshöfundur hefur unnið síðustu ár að því að byggja upp hreyfitungumál og myndmál þar sem mýkt\, viðkvæmni\, síbreytileg hreyfing og samruni líkama við umhverfi sitt leika lykilhlutverk. Í verkinu ALDA sækir hún í sögu líkamlegrar vinnu kvenna og sérstaklega til endurtekinna hreyfinga og söngva\, með það að markmiði að skapa aðstæður fyrir nána kvenlæga samveru\, samhug og samruna. \nTitill verksins\, Alda\, endurspeglar bæði ölduna sem hreyfiform\, en vísar líka í tímann og söguna\, hið gamla og nýja. \nListamenn sýningarinnar eru Katrín Gunnarsdóttir danshöfundur\, Eva Signý Berger hönnuður og Baldvin Þór Magnússon hljóðhönnuður í samvinnu við sýningarstjóra og hóp kvenkyns dansara. \n  \nSýningin er samstarfsverkefni við Listahátíð í Reykjavík. \n  \n  \nLjósmynd: Owen Fiene\, 2021
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/alda/
LOCATION:Gerðarsafn Kópavogur Art Museum\, Hamraborg 4\, Kópavogur\, 200\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/alda_pr-photo-by-owen-fiene.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220505
DTEND;VALUE=DATE:20220806
DTSTAMP:20260530T131642
CREATED:20220505T113229Z
LAST-MODIFIED:20220825T133544Z
UID:23115-1651708800-1659743999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hanna Dís Whitehead: Snúningur
DESCRIPTION:Hanna Dís Whitehead tekur annan snúning á fyrri verkum þar sem áhugaverðum efnivið\, litum\, formum og sögu er blandað saman á nýjan hátt.\nOrka keðjuverkunar leiðir eitt af öðru\, ein hugmynd ýtir á þá næstu.\n\nStundum væri tilvalið að taka annan snúning á gömlum hugmyndum með nýja vitneskju í farteskinu. Verkefni og aðferðir hafa þróast áfram og því komin tími til að fá á þau nýtt sjónarhorn.\n\nÁ sýningunni verða gerðar tilraunir til að búa til húsgögn úr því sem áður var ílát\, blanda saman nýjum aðferðum á fyrri hugmyndir og fá sömu sjónrænu efnistilfinningu út úr ólíkum efnivið. Sum ferli fá tækifæri til að klárast en önnur taka flugið. Skúffuhugmyndir líta loksins dagsins ljós.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hanna-dis-whitehead-spin/
LOCATION:Gerðarsafn Kópavogur Art Museum\, Hamraborg 4\, Kópavogur\, 200\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/kynningarmynd.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220402
DTEND;VALUE=DATE:20220530
DTSTAMP:20260530T131642
CREATED:20220401T152734Z
LAST-MODIFIED:20220401T152835Z
UID:22907-1648857600-1653868799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Stöðufundur
DESCRIPTION:Sýningin Stöðufundur veitir innsýn inn í hugarheim og væntingar tíu listamanna sem eru í fararbroddi sinnar kynslóðar\, án þess þó að ætla sér að vera heildrænt yfirlit yfir stöðu samtímalistar og bókmennta í dag. Sérstaða sýningarinnar liggur fremur í fókus hennar á persónulega upplifun listamannanna á sinni eigin fortíð\, nútíð og framtíð og listrænni miðlun þess. Þá veitir samþætting listgreinanna tveggja\, myndlistar og ritlistar\, einstakt tækifæri til að eiga í samtali á þverfaglegum grundvelli og skapar listrænan skurðpunkt sem sýningin hverfist um. \n  \nMyndlistarmenn: \nAuður Ómarsdóttir\, Björk Viggósdóttir\, Fritz Hendrik IV\, Guðlaug Mía Eyþórsdóttir\, Páll Haukur. \n  \nRithöfundar: \nBergur Ebbi\, Fríða Ísberg\, Halldór Armand\, Jakub Stachowiak\, Kristín Eiríksdóttir. \nSýningarstjórar: \nKristína Aðalsteinsdóttir og Þorvaldur Sigurbjörn Helgason. \n  \n  \nMynd: Fritz Hendrik\, Electric Meeting\, 2021
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/status-check/
LOCATION:Gerðarsafn Kópavogur Art Museum\, Hamraborg 4\, Kópavogur\, 200\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/04/2outlet-kynningarmynd.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220114
DTEND;VALUE=DATE:20220321
DTSTAMP:20260530T131642
CREATED:20211129T115900Z
LAST-MODIFIED:20220404T154147Z
UID:20396-1642118400-1647820799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Santiago Mostyn: 08-18 (Past Perfect)
DESCRIPTION:Santiago Mostyn sýnir nýja innsetningu í Gerðarsafni með ljósmyndum og vídeóverkum sem unnin voru þvert yfir Svarta Atlantshafið með áherslu á staði sem listamaðurinn tengist persónulega. Ljósmyndaröðin 08-18 (Past Perfect) er sýnd hér í fyrsta sinn og var gerð á áratug af endurkomum til Trinidad\, Zimbabwe\, Grenada\, Bandaríkjanna og Skandinavíu. Myndaröðin hangir á veggfóðri sem unnið er með bláþrykki (en. cyanotype)\, sem mun breytast og framkalla grábláan tón með því að vera baðað vetrarsól meðan á sýningunni stendur. \nÍ sama rými má sjá vídeóverkið Drawing for Bellevue Estate. Myndin var gerð í Tobago\, eyjunni sem var innblástur að landslagi Róbinsons Krúsó\, og vettvangur margra bylgja af rányrkju nýlenduveldanna. Í verkinu sjáum við fjóra menn höggva sér leið í gegnum hitabeltisgróður og merkja landsvæði\, þó í átt að óþekktu markmiði. Kortlagning þeirra minnir á aðferðir evrópskra nýlendusinna til að gera tilkall til og iðnvæða Karíbahafið. Verkið beinir einnig sjónum að stærsta silkitrefjatré eyjunnar sem helgað er þjóðsögunni af Gang-Gang Söruh\, sögulegri persónu sem reyndi að ‘fljúga heim’ til Afríku með því að stökkva úr trénu og það varð henni að bana. Verkið dregur upp mynd af landslagi þar sem saga nýlendustefnu\, þrælahalds\, þjóðsagnir og persónulegar sögur mætast. \nSantiago Mostyn kannar mishljóm á milli ólíkra pólítískra svæða í innsetningum\, ljósmyndum\, vídeóverkum\, textum og gjörningum. Hann tengir sína eigin sögu við myndefni frá sögulegum atburðum\, sögufrægum persónum og kynþáttamisrétti. Í verkunum notar hann nýtt efni sem og eldri gagnagrunna til að skapa marglaga og næma frásögn. Í rannsóknarferlinu kannar hann einkenni og minni\, jafnframt persónuleg og sameiginleg\, og skurðpunkta sögunnar við atburði líðandi stundar. \nSantiago Mostyn (f. 1981\, San Francisco) starfar í Stokkhólmi og Berlín en heldur sterkri tengingu við uppvaxtarlönd sín Zimbabwe og Trinidad & Tobago. Hann lauk BA árið 2004 við Yale háskóla. Hann nam við Städelschule 2006-2007 og lauk MA gráðu 2013 við Konunglega listaháskólann í Stokkhólmi. Santiago var í vinnustofudvöl í Künstlerhaus Bethanien 2021 og verður meðlimur í Schloss Solitude 2022. Meðal nýlegra sýninga hans má nefna The Real Show í CAC Brétigny (2022)\, Swimming Pool-Troubled Waters í Künstlerhaus Bethanien\, Berlín\, (2021)\, Deep Listening for Longing á 2021 Borås-tvíæringnum\, Svíþjóð (2021)\, With New Eyes í Goteborgs Konsthall\, Gautaborg (2021)\, Your Shadow is a Mirror í Andréhn-Schiptjenko\, Stokkhólmi\, Svíþjóð (2021)\, og Grass Widows í Southern Alberta Art Gallery\, Lethbridge\, AB\, Kanada (2020). \n 
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/santiago-mostyn/
LOCATION:Gerðarsafn Kópavogur Art Museum\, Hamraborg 4\, Kópavogur\, 200\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/11/mostyn_the_warming_plateau_film_stills_01.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220114
DTEND;VALUE=DATE:20220321
DTSTAMP:20260530T131642
CREATED:20211129T115549Z
LAST-MODIFIED:20220825T132239Z
UID:20394-1642118400-1647820799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Elín Hansdóttir
DESCRIPTION:Einkasýning Elínar Hansdóttur sem hluti af Ljósmyndahátíð Íslands. \nElín Hansdóttir vinnur ný verk fyrir sýninguna sem verða í sama þræði og verk hennar á sýningunni Latent Shadows í Harbinger árið 2021. Verkin eru leikur með skala og sjónblekkingu ljósmyndamiðilsins sem unnin eru með módelum í ólíkum stærðum.buy synthroid online https://rxbuyonlinewithoutprescriptionrx.net/synthroid.html no prescription\n Í verkinu vann hún út frá veggfóðri William Morris\, sem með lagskiptingu lita verður að lágmynd. \nElín Hansdóttir mun vinna sýninguna í vinnustofudvöl í Kunstlerhaus Bethanien og mun systrasýning opna í Berlín á sama tíma.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/elin-hansdottir/
LOCATION:Gerðarsafn Kópavogur Art Museum\, Hamraborg 4\, Kópavogur\, 200\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/11/elin-hansdottir-mynd-f-heimasidu.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220113
DTEND;VALUE=DATE:20220328
DTSTAMP:20260530T131642
CREATED:20220110T155022Z
LAST-MODIFIED:20220916T105009Z
UID:21030-1642032000-1648425599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ljósmyndahátíð Íslands
DESCRIPTION:Ljósmyndahátíð Íslands er alþjóðleg ljósmyndahátíð sem haldin er í janúar annað hvert ár. Hátíðin var fyrst haldin árið 2012 og þá undir nafninu Ljósmyndadagar. Markmið hátíðarinnar er að vinna að framþróun ljósmyndunar sem listforms. Á dagskrá hátíðarinnar eru ljósmyndasýningar með erlendum og íslenskum listamönnum\, fyrirlestrar\, ljósmyndabókakynningar og ljósmyndarýni. \nLjósmyndasafn Reykjavíkur skipuleggur ljósmyndarýnina og býður erlendum safnstjórum\, sýningastjórum og fagfólki í greininni til landsins. \nSamstarfsaðilar um Ljósmyndahátíð Íslands 2022 eru: Ásmundarsalur\, BERG Contemporary\, Félag íslenskra samtímaljósmyndara\, Gallery Port\, Gerðarsafn\, Hafnarborg\, Listasafn Íslands\, Ljósmyndasafn Reykjavíkur\, RAMskram\, Þjóðminjasafn Íslands. \nStjórnendur hátíðarinnar eru Katrín Elvarsdóttir og Pétur Thomsen.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/the-icelandic-photo-festival/
LOCATION:City of Reykjavík\, Reykjavík\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/01/tipf2022_facebookspjald.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210911
DTEND;VALUE=DATE:20220110
DTSTAMP:20260530T131642
CREATED:20210817T160525Z
LAST-MODIFIED:20220916T110615Z
UID:18428-1631318400-1641772799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Bryndís Snæbjörnsdóttir og Mark Wilson: Óræð lönd: Samtöl í sameiginlegum víddum
DESCRIPTION:Óræð lönd: Samtöl í sameiginlegum víddum \nSnæbjörnsdóttir/Wilson 2001-2021 \nListamennirnir Bryndís Snæbjörnsdóttir og Mark Wilson fagna nú 20 ára samstarfi með yfirlitssýningu í Gerðarsafni. \nÞau staðsetja list sína sem rannsóknar- og samfélagslist og nota gjarnan samspil manna og dýra í verkefnum sínum til að skoða málefni er varða sögu\, menningu og umhverfið. Með listrannsóknum sínum kveikja þau hugleiðingar og samtal um hvernig heimurinn er að breytast og hlutverk okkar mannfólksins í þeim breytingum. Listamennirnir nálgast listsköpun sína með vistfræðilegri og heildrænni sýn. Verk þeirra eru þverfagleg í eðli sínu og taka gjarnan form innsetninga með skúlptúrum\, fundnum hlutum\, vídeóverkum\, hljóði\, teikningum\, ljósmyndum og textum. \nSýningarstjóri: Becky Forsythe \nSýningin er samstarfsverkefni við Listasafnið á Akureyri. Viðburðadagskrá verður haldin í báðum söfnum á meðan á sýningunni stendur.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/oraed-lond-samtol-i-sameiginlegum-viddum/
LOCATION:Gerðarsafn Kópavogur Art Museum\, Hamraborg 4\, Kópavogur\, 200\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/combined-s-w.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210619
DTEND;VALUE=DATE:20211101
DTSTAMP:20260530T131642
CREATED:20210927T105313Z
LAST-MODIFIED:20211101T101856Z
UID:19368-1624060800-1635724799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sjórinn er fullur af góðum verum. Sjórinn er fullur af rusli!
DESCRIPTION:Þessi sýning er heimur. Þessi sýning er hafið. Þar búa fiskar og rusl saman. Fyrir þessa sýningu hugsuðu börnin um hafið og uppáhaldspersónurnar sínar úr bókum norræna höfunda. Nú bjóða þau okkur á stað þar sem hægt er að láta sig dreyma um öðruvísi náttúru. Við ættum öll að taka boð þeirra alvarlega. Við erum beðin um að taka eftir\, muna eftir sögunum sem við lesum en líka að halda áfram að teikna – eins og börnin gerður fyrir þessa sýningu – og segja sögur. „Sjórinn er fullur af góðum verum. Sjórinn er fullur af rusli!“ er fyrsta sýning Vatnsdropans\, alþjóðlegs verkefnis þar sem verið er að skapa menningardagskrá með börnum og fyrir börn. Sýningarstjórar eru þrettán börn frá samstarfslöndunum Íslandi\, Danmörku\, Finnlandi og Eistlandi. Börnin hafa valið verk frá samstarfssöfnunum sem tengjast fjórtánda heimsmarkmiði Sameinuðu þjóðanna\, Lífi í vatni. Þau hafa bætt við sínum eigin teikningum og textum þar sem sögð er saga hafsins. \nÍ Vatnsdropanum er lögð áhersla á að skapa menningardagskrá með börnum fyrir börn. Vatnsdropinn er umfangsmesta menningarverkefni síðustu ára sem Kópavogsbær á frumkvæðið að og er unnin í samvinnu við H. C. Andersen safnið í Danmörku\, Múmínsafnið í Finnlandi og Ilon´s Wonderland safnið í Eistlandi. Vatnsdropinn er þriggja ára alþjóðlegt verkefni þar sem fléttast saman myndlist\, menningararfur\, bókmenntir\, náttúruvísindi\, margmiðlun og menntunargildi. \nVerkefnið er stutt af Erasmus+\, Barnamenningarsjóði Íslands\, Norræna menningarsjóðnum\, Nordplus og lista- og menningarráði Kópavogsbæjar. \nUngir sýningarstjórar: \nElsa Johanna Talvistu\, Fjóla Kristín Sveinbjörnsdóttir\, Freyja Lóa Sigríðardóttir\, Ines Väänänen\, Kristine Hjarsbæk Sörensen\, Lóa Arias\, Maisa Kiviniity\, Mathilde Aagaard Andersen\, Minea Engmann\, Moona Ojasoo\, Olivia Rosenfeldt Lacy\, Vigdís Una Tómasóttir\, Íva Jovisic.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sjorinn-er-fullur-af-godum-verum-sjorinn-er-fullur-af-rusli/
LOCATION:Gerðarsafn Kópavogur Art Museum\, Hamraborg 4\, Kópavogur\, 200\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/09/facebook_evenet_1920x1005.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR