BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221210
DTEND;VALUE=DATE:20230326
DTSTAMP:20260530T075048
CREATED:20230322T175124Z
LAST-MODIFIED:20230322T175158Z
UID:30015-1670630400-1679788799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Rakela McMahon: Ég sé stjörnurnar en ég sé ekki heiminn
DESCRIPTION:Sýningin samanstendur af skúlptúr – textaverki sem er sérstaklega unnið fyrir sýningarrýmið.\nInnblástur að verkinu er sóttur í grísku goðsögnina um Echo og Narcissus. Verkið vísar einnig í hugmyndir Carl Gustav Jung um undirmeðvitundina\, æskuminningar og drauma.\nÉg sé stjörnurnar en ég sé ekki heiminn.\nAllir litir verða máðir og eyðast í myrkrinu.\nÍ undirgöngunum rúmast ekkert nema skuggi og birta.\nÍ útlínunum ekkert nema spegilmynd annarra.\nHvað knýr áfram bergmál sem hafði eitt sinn rödd?\nHvað verður um hönd sem visnar\, hverfur\, eyðist?\n(skilur ekkert eftir nema snertinguna)\nHvaðan kemur það sem birtist í draumi?\n(þar sem allir litir verða máðir og eyðast)\nÉg sé stjörnurnar – en ég sé ekki heiminn.\nBergþóra Snæbjörnsdóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/rakela-mcmahon-eg-se-stjornurnar-en-eg-se-ekki-heiminn/
LOCATION:Gallery Underpass\, Hverfisgata 76\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/318836058_443589751320978_6884117434362680151_n-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220804
DTEND;VALUE=DATE:20221101
DTSTAMP:20260530T075048
CREATED:20220803T123653Z
LAST-MODIFIED:20221110T111342Z
UID:24448-1659571200-1667260799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Edith Hammar: Vellíðan
DESCRIPTION:Edith Hammar (f. 1992 í Helsinki) er ungt listkvár sem vakið hefur athygli fyrir stórar og kraftmiklar blekteikningar sem unnar eru ýmist á pappír eða sem veggverk.\n\nHán teiknar endurtekin myndefni sem eru á margan hátt sjálfsævisöguleg\, með áherslu á upplifun og ímynd kynhlutlausra einstaklinga\, í félagslífi\, í hvíldarstund og að klæða sig í og úr fatnaði í heimilislegu\, en þó útópísku\, umhverfi.\nStórar teikningarnar bjóða áhorfandanum inn í einskonar gátt\, glugga með útsýni yfir örugga og draumkennda vídd þar sem bæði listkvárið og áhorfandinn geta mátað við sig langanir og þarfir. Hversdagslegir hlutir verða að miðpunkti þessara draumóra\, skyndilega er ekkert sjálfssagðara en að kveikja á kerti sem kúrir ofan í rassaskoru og það að raka af einhverjum hárið verður að hámarki rómantíkurinnar.\n\nÁrið 2020 gaf Hammar út sína fyrstu teiknimyndabók Homo Line (Förlaget M) í Finlandi sem notið hefur mikilla vinsælda og frá og með árinu 2022 má finna verk háns í safneign Modern Museum of Art í Stokkhólmi.\n\nEdith Hammar er með BA gráðu í myndlist frá Royal Academy of Fine arts í Stokkhólmi. \n\nFyrir Gallerí Undirgöng vann Edith nýtt verk sem teiknað er beint á veggi sýningarrýmisins.\nSýningin opnar sem hluti af dagskrá Hinsegin daga í Reykjavík 2022.\n@elmhammar
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/edith-hammar-well-being/
LOCATION:Gallery Underpass\, Hverfisgata 76\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/08/vellídan-scaled.jpeg
END:VEVENT
END:VCALENDAR