BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230211
DTEND;VALUE=DATE:20230306
DTSTAMP:20260530T063540
CREATED:20230215T131320Z
LAST-MODIFIED:20230215T131517Z
UID:29370-1676073600-1678060799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Atli Pálsson: Þar sem köttur hvílir\, þar er heimili
DESCRIPTION:Sýningin ber heitið \,\,Þar sem köttur hvílir\, þar er heimili‘‘ og stendur til sunnudagsins 5. mars.\nAtli Pálsson er myndlistarmaður sem útskrifaðist vorið 2020 frá Listaháskóla Íslands. Verk Atla rýna oft í hversdagslegar athafnir og samfélagsleg gildi á húmorískan máta. Viðfangsefni eins og tilefnislaus verðlaun\, persónulegir sigrar\, ofurgestrisni og gjafmildi hafa verið í forgrunni verka hans\, sem og persónusköpun. Ofgnótt einkennir oft framsetningu þessara hugmynda. Undanfarið hefur Atli beint sjónum sínum að heimilinu í verkum sínum í seríu sem kallast “vistarverur”. Sýningin “Þar sem köttur hvílir\, þar er heimili” er ákveðið framhald af vangaveltum um umhverfi og andrúmsloft sem myndast getur í heimilisrýminu. Á sýningunni er áhorfandanum boðið að kynnast hópi katta inni á heimili þeirra. Þeir horfa löngunaraugum út um gluggann á fuglana sem fljúga frjálsir. Kannski einn daginn komast þeir sjálfir á flug.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/atli-palsson-thar-sem-kottur-hvilir-thar-er-heimili/
LOCATION:Gallerí Úthverfa\, Aðalstræti 22\, Ísafjörður\, 400\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/02/329801736_547641663986621_7687864391948761463_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230114
DTEND;VALUE=DATE:20230206
DTSTAMP:20260530T063540
CREATED:20230113T111338Z
LAST-MODIFIED:20230113T111338Z
UID:28697-1673654400-1675641599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Drífa Líftóra Thoroddsen: Bestiarium Negativum
DESCRIPTION:\,Frá því að land var hér numið fyrir rúmum þúsund árum höfum við í senn óttast og dáðst að náttúrunni okkar. Veðurofsi og draugalegar jarðmyndanir hafa sett svip sinn á það fólk sem hér hefur búið. Þrátt fyrir það höfum við hvorki þurft að óttast flóru né fánu. Þó hefur negatífa náttúrunnar leyft okkur að sjá alls kyns verur sem voru ef til vill ekki til staðar og hafa hinar ýmsu sögur gengið manna á milli um hvurslags ófreskjur hafa sést á láði jafnt sem í legi. Þetta er okkar arfur. \nSýningin Bestiarium Negativum veltir upp spurningunni hvort sé sterkara við skrímslasýn\, það sem sést eða það sem ekki sést og skoðar mikilvægi negatífunnar í þessu samhengi. Einnig eru mörkin skoðuð hvar mynstur hættir að vera mynstur. Bestiarium Negativum sýnir í myndum hvað gerist þegar ógnarlegum ókindum er hrúgað saman í litrík mynstur og geigvænleg grös taka á sig skuggalegar myndir. \nDrífa Líftóra er í grunninn fata- og textílhönnuður en hún útskrifaðist með BA próf í fatahönnun frá Listaháskóla Íslands 2014 og MA próf í sama fagi frá Paris College of Art 2017. Vorið 2020 útskrifaðist hún með diplómu í textíl frá Myndlistaskólanum í Reykjavík. Eftir útskrift hefur hún haldið tvær sýningar á handþrykktum fatalínum\, á HönnunarMars. Hún hefur alltaf haft unun af því að teikna og mála og búa til mynstur úr hinum ýmsu mótífum. Drífa er mikið náttúrubarn og þjóðsagnanörd\, en hún er mjög myrkfælin og verður auðveldlega hrædd og hefur notað listina til að vinna bug á þeim ótta.´
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/drifa-liftora-thoroddsen-bestiarium-negativum/
LOCATION:Outvert Art Space\, Aðalstræti 22\, Ísafjörður\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/01/Illhveli-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221217
DTEND;VALUE=DATE:20230109
DTSTAMP:20260530T063540
CREATED:20230106T105945Z
LAST-MODIFIED:20230106T105945Z
UID:28416-1671235200-1673222399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Halla Birgisdóttir: Draugar og annað sem er liðið
DESCRIPTION:Á sýningunni Draugar og annað sem er liðið má sjá 44 myndljóð sem fjalla um minningar\, tilfinningar og annað sem ásækir okkur. Í gamla daga var algengt að fólk sæi drauga í því kolniðamyrkri sem það bjó við. Hvernig sjáum við drauga í okkar upplýsta samfélagi? Eru til hversdagslegir draugar? Skilur allt sem við gerum eftir sig ummerki? Myndljóðin eru sýnd í samspili við veggteikningu sem kallast Við skiljum eftir okkur ummerki. Samhliða verkunum kemur út bókverk þar sem finna má teikningarnar af sýningunni. \nHalla Birgisdóttir (f. 1988) býr og starfar í Reykjavík. Hún notar teikningar og texta til þess að skapa brotakennd frásagnarrými sem birtast áhorfendum m.a. sem innsetningar\, bókverk og veggteikningar. Hún kallar sig myndskáld. www.hallabirgisdottir.org
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/halla-birgisdottir-draugar-og-annad-sem-er-lidid/
LOCATION:Gallerí Úthverfa\, Aðalstræti 22\, Ísafjörður\, 400\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/01/Halla-birgis.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221118
DTEND;VALUE=DATE:20221212
DTSTAMP:20260530T063540
CREATED:20221130T110410Z
LAST-MODIFIED:20221201T150919Z
UID:27840-1668729600-1670803199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Halla Mía: Án titils
DESCRIPTION:Verkið ÁN TITILS hefur verið tíu mánuði í smíðum og er veigamesta verk Höllu Míu hingað til.\n\nHalla Mía (f.1986) er sjálfstætt starfandi dagskrárgerðarmaður búsett á Ísafirði. Hún lauk mastersnámi í sjónrænni mannfræði frá Freie Universität í Berlín 2013 og BA gráðu í íslensku og ritlist frá Háskóla Íslands 2011. Eftir útskrift hefur Halla unnið við hvers kyns dagskrárgerð fyrir útvarp\, sjónvarp og vef\, fyrir Ríkisútvarpið og sem sjálfstætt starfandi. Halla starfaði sem fréttamaður RÚV á Ísafirði á árunum 2015-2019.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/halla-mia-an-titils/
LOCATION:Gallerí Úthverfa\, Aðalstræti 22\, Ísafjörður\, 400\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/11/316222623_3445534559026207_986701830710850621_n.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220924
DTEND;VALUE=DATE:20221014
DTSTAMP:20260530T063540
CREATED:20221005T141749Z
LAST-MODIFIED:20221013T154453Z
UID:26779-1663977600-1665705599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Gudrita Lape: solidus liquidus
DESCRIPTION:Áherslur sýningarinnar eru meðal annars: að kynna betur notkun matar og lífefna í myndlist og að hefja umræðu um matarsóun og aktívisma því tengdan í gegnum myndlist. Verkefnið er framhald rannsóknar hennar á forgengilegum verkum þar sem náttúruleg litarefni\, matarlist og lífefni eru í forgrunni. \nGudrita útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2012 og lauk nýlega námi í textíl og tækni við Fabricademy – Fab Lab textíl akademíu í Barselóna árið 2021 þar sem meðal annars kóðun\, snjalltextíl og hönnun á náttúrulegum “efnum” (biochromes\, biocomposites\, biomaterials\, grown materials) voru kennd. Íslenska-litháíska listakonan býr bæði á Íslandi og á Spáni síðan 2020 og sýningin mun sýna brot af þessum heimi. Matarleifar\, íslensk og erlend flóra munu sameinast og umbreytast í gegnum ræktun\, gerjun og þurrkun í þrívíða innsetningu gagnvirkra sveigjanlegra og hálf sveigjanlegra efna. Verkefnið gefur Vestfirðingum sem og öðrum gestum tækifæri til að líta inn í þennan lifandi heim sem er enn ókunnugur á Íslandi.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/gudrita-lape-solidus-liquidus/
LOCATION:Outvert Art Space\, Aðalstræti 22\, Ísafjörður\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/10/Gudrita-Lape-in-Fab-Lab-Ísafjördur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220611
DTEND;VALUE=DATE:20220701
DTSTAMP:20260530T063540
CREATED:20220609T130818Z
LAST-MODIFIED:20220916T100942Z
UID:23650-1654905600-1656633599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Þórunn Elísabet Sveinsdóttir: TÍMAFLAKK
DESCRIPTION:Laugardaginn 11. júní kl. 16 verður opnun sýning á verkum Þórunnar Elísabetar Sveinsdóttur í Úthverfu á Ísafirði. \nSýningin ber heitið TÍMAFLAKK og stendur til 30. júní. Listakonan verður viðstaddur opnun sýningarinnar og boðið verður uppá létt spjall og veitingar. \nÍ hugleiðingum Þórunnar um sýninguna segir: Blanda af útsaum og blásaum; launhelgum Egyptalands; afa mínum; konum í ættlegg Ástu; gjöfum úr þessu lífi – mínu og annarra; sumt lánað úr bókum\, mínum hugarheimi og löngu liðnum tíma. \nÞórunn Elísabet stundaði myndlistarnám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Hún hefur haldið einkasýningar\, samsýningar og unnið við fjölda verkefna í leikhúsum og kvikmyndum sem búninga- og leikmyndahönnuður. Hún hefur hlotið fjölda tilnefninga til bæði Eddunnar og Grímunnar fyrir verk sín. Hún hlaut Grímuverðlaunin fyrir búninga í Rómeó og Júlíu Vesturports og Leg Þjóðleikhússins. Þórunn Elísabet hefur stýrt og hannað fjölda safnasýninga. Í Gerðubergi var haldið Sjónþing helgað hennar listamannsferli fyrir nokkrum. \nStarfsemi Úthverfu nýtur styrkja fyrir einstök verkefni úr Myndlistarsjóði\, Uppbyggingarsjóði Vestfjarða og frá Ísafjarðarbæ.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/thorunn-elisabet-sveinsdottir-timaflakk/
LOCATION:Outvert Art Space\, Aðalstræti 22\, Ísafjörður\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/06/285993964_3310598692519795_7079061514065392379_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220520
DTEND;VALUE=DATE:20220609
DTSTAMP:20260530T063540
CREATED:20220530T165442Z
LAST-MODIFIED:20220609T114006Z
UID:23478-1653004800-1654732799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Linus Lohmann: “…something that was\, & isn´t”
DESCRIPTION:Linus Lohmann: \n“…something that was\, & isn´t” \n20.5 – 8.6 2022 \nFöstudaginn 20. maí kl. 16 verður opnuð sýning á verkum Linus Lohmann í Úthverfu á Ísafirði. Sýningin ber heitið “…something that was\, & isn´t” og stendur til 8. júní. Listamaðurinn verður viðstaddur opnun sýningarinnar og boðið verður uppá létt spjall og veitingar. \nÁ sýningunni eru fjögur prentverk í lit og skúlptúr. Verkin eru sprottin af hughrifum og minningum um nokkrar byggingar sem hýstu Tækniminjasafn Austurlands og skemmdust í aurskriðum á Seyðisfirði í desember 2020. \nByggingar safnsins höfðu að geyma marga hluti sem eru og voru heimild um tæknisögu svæðisins og hýstu einnig nothæft tréverkstæði í gömlu skipasmíðastöðinni og prentsmiðju í fyrrum vélasal. Bæði verkstæðin nýttust Lohmann vel á sínum tíma sem uppspretta innblásturs og verkstæðisiðkunar. \nMyndirnar sem teknar voru við hreinsun eftir slysið sýna eftirleikinn og leifar tveggja herbergja á safninu\, kaffistofu og skrifstofu. \nFlestir upplifðu þessi herbergi alltaf sem einhvers konar tímahylki\, kunnuglegt og tímalaust rými. \nMyndirnar sýna þessa staði eins og þeir komu undan hamförunum. Rústað af náttúruöflunum sem knúin voru áfram af leðju og vatni. \nFyrir Lohmann kalla myndirnar fram frumskóg af órökréttu minni\, brengluð brotin vekja endurminningar og örva tilraunir til að endurbyggja rýmin eins og þau voru. \nMyndirnar eru afritaðar með marglitu ljósfjölliða ætingarferli. \nPrentin eru innrömmuð með frekar óvenjulegu efni\, POM-plasti\, sem er almennt notað í fiskiðnaði. \nSkúlptúrinn sem er til sýnis ásamt grafíkmyndunum minnir á aflagaðar byggingarnar. Við virðum fyrir okkur brotnar og breyttar spýtur úr hráu timbri\, sem vantar allar vísbendingar um fyrri tilgang\, sem aftur kallar fram nýjar birtingarmyndir. \nLohmann notaði sömu gufubeygingartækni og notuð var til að smíða tréskip til að móta skúlptúrinn\, og vísar þannig til fyrrum skipasmíðastöðvarinnar sem eyðilagðist í skriðunni. \nNú hefur svæðið verið hreinsað og fátt sýnilegt af því sem áður var. Það er því einungis minningin sem lifir eftir frá þeim tímum sem það var í notkun.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/linus-lohmann-something-that-was-isnt/
LOCATION:Outvert Art Space\, Aðalstræti 22\, Ísafjörður\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/281756968_3294201604159504_6874555449544309345_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220217
DTEND;VALUE=DATE:20220301
DTSTAMP:20260530T063540
CREATED:20220221T163835Z
LAST-MODIFIED:20220825T133706Z
UID:22112-1645056000-1646092799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Andreas Brunner: I Had Cake for Breakfast
DESCRIPTION:MǪRSUGUR 2022 \nAndreas Brunner \n17.02 – 28.02 2022 \nI HAD CAKE FOR BREAKFAST  \n2019 \nHD Video \nFimmtudaginn 17. febrúar opnar sýning Andreas Brunner I HAD CAKE FOR BREAKFAST en hún er fjórða og síðasta sýningin í sýningarröðinni MǪRSUGUR 2022. Mǫrsugur er þriðji mánuður vetrar samkvæmt gömlu misseratali. Mǫrsugur er dimmasti tími vetrarins þegar allur lífsandi liggur í dvala. Til að lýsa upp myrkrið munu fjórir listamenn varpa verkum sínum á glugga Gallerís Úthverfu við Aðastræti á Ísafirði. Sýningin Mǫrsugur varir í tvo mánuði og sýningar listamannanna standa í 12 daga hver. \n04.01 – 15.01 ¤ Ívar Glói \n20.01 – 31.01 ¤ Sigrún Gyða Sveinsdóttir \n03.02 – 15.02 ¤ Margrét Dúadóttir Landmark \n*17.02 – 28.02 ¤ Andreas Brunner* \nAndreas er fæddur árið 1988 í Zürich í Sviss en býr og starfar í Reykjavík. Hann nam myndlist við Lucerne University of Applied Science and Arts og stundaði framhaldsnám Listaháskóla Íslands\, þaðan sem hann útskrifaðist árið 2018. Listræn iðkun hans snýst um hugtök sem tengjast menningarþróun og gjörningaþætti merkingarsköpunar. Það má líta þannig á að meginmarkmið rannsókna hans sé að aðskilja myndlíkingalega merkingu og skapa skynsemi með kraftmiklum samtengingum frekar en tengingum. \nI had cake for breakfast er vídjó gjörningur tekinn upp á svölum Listasafns Akureyrar og sýnir óskynsamlega tilraun til að borða hrúgu af snjó.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/andreas-brunner-i-had-cake-for-breakfast/
LOCATION:Outvert Art Space\, Aðalstræti 22\, Ísafjörður\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/02/andreas-brunner-breakfast-cake.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220120
DTEND;VALUE=DATE:20220201
DTSTAMP:20260530T063540
CREATED:20220120T131554Z
LAST-MODIFIED:20220825T133841Z
UID:21129-1642636800-1643673599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sigrún Gyða Sveinsdóttir: HLAUPA - Ég er beast í gymminu
DESCRIPTION:Fimmtudaginn 20. janúar opnar sýning Sigrún Gyða Sveinsdóttir HLAUPA – ÉG ER BEAST Í GYMMINU en hún er önnur sýningin í sýningarröðinni MǪRSUGUR 2022. \nMǫrsugur er þriðji mánuður vetrar samkvæmt gömlu misseratali. Mǫrsugur er dimmasti tími vetrarins þegar allur lífsandi liggur í dvala. Til að lýsa upp myrkrið munu fjórir listamenn varpa verkum sínum á glugga Gallerís Úthverfu við Aðastræti á Ísafirði.buy wellbutrin online blackmenheal.org/wp-content/themes/twentytwentytwo/inc/patterns/en/wellbutrin.html no prescription\n Sýningin Mǫrsugur varir í tvo mánuði og sýningar listamannanna standa í 12 daga hver.buy furosemide online blackmenheal.org/wp-content/themes/twentytwentytwo/inc/patterns/en/furosemide.html no prescription\n \n04.01 – 15.01 ¤ Ívar Glói \n*20.01 – 31.01 ¤ Sigrún Gyða Sveinsdóttir* \n03.02 – 14.02 ¤ Margrét Dúadóttir Landmark \n17.02 – 28.02 ¤ Andreas Brunner \nSigrún Gyða (f. 1993) er kvikmyndagerðarkona\, klassískur söngvari\, tónskáld og myndlistarmaður. Verk hennar leitast við að fanga hið performatífa sjálf sem slungna leið til að varpa ljósi á m.a. kvenleika\, líkamsvinnu og tímann. Verk Sigrúnar fjalla oftar en ekki um ólíka samfélagshópa\, menningu og aðgreiningu. Sigrún býr og starfar í Reykjavík og Amsterdam þar sem hún útskrifaðist með framhaldspróf í myndlist og hönnun á síðasta ári. Verkið HLAUPA- Ég er beast í gymminu er angi af útskriftargjörningi hennar frá Sandberg Instituut. Gjörningurinn var ópera sem nú breytist í óbeina utanaðkomandi hljóðmynd.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sigrun-gyda-sveinsdottir-hlaupa-eg-er-beast-i-gymminu/
LOCATION:Outvert Art Space\, Aðalstræti 22\, Ísafjörður\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/01/beast.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220104
DTEND;VALUE=DATE:20220116
DTSTAMP:20260530T063540
CREATED:20220106T120248Z
LAST-MODIFIED:20220825T132940Z
UID:21011-1641254400-1642291199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ívar Glói: Silvered Flowers Blooming
DESCRIPTION:MǪRSUGUR 2022 \nMǫrsugur er þriðji mánuður vetrar samkvæmt gömlu misseratali. Mǫrsugur er dimmasti tími vetrarins þegar allur lífsandi liggur í dvala. Til að lýsa upp myrkrið munu fjórir listamenn varpa verkum sínum á glugga Gallerís Úthverfu við Aðastræti á Ísafirði. Sýningin Mǫrsugur varir í tvo mánuði og sýningar listamannanna standa í 12 daga hver. \n* 04.01 – 15.01 ¤ Ívar Glói * \n20.01 – 31.01 ¤ Sigrún Gyða Sveinsdóttir  \n03.02 – 14.02 ¤ Margrét Dúadóttir Landmark  \n17.02 – 28.02 ¤ Andreas Brunner \nVið kynnum til leiks fyrsta listamann sýningarraðarinnar árið 2022: \nÍvar Glói  \nSILVERED FLOWERS BLOOMING  \n2018 \nHD video \nÍvar Glói (f. 1992) er útskrifaður með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands ásamt því að hafa stundað nám í Hochshule für Bildende Künste í Hamborg\, Konsthögskolan i Malmö og stundar nú nám við Luca School of Arts í Brussel. Verk Ívars Glóa fjalla um samhengi innsetningarinnar og hugmyndarinnar um hinn einstaka listhlut á tímum sem markast af sýndartengingu. Listamaðurinn veitir tilsögn um staðsetningu og gefur sýningargesti til kynna að upplifun hans sé ósvikin\, þrátt fyrir algjöra sviðsetningu.buy antabuse online https://www.mobleymd.com/wp-content/languages/new/antabuse.html no prescription
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/ivar-gloi-silvered-flowers-blooming/
LOCATION:Outvert Art Space\, Aðalstræti 22\, Ísafjörður\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/01/flowers-blooming.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211016
DTEND;VALUE=DATE:20211025
DTSTAMP:20260530T063540
CREATED:20211014T124812Z
LAST-MODIFIED:20220916T111606Z
UID:19665-1634342400-1635119999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:SEQUENCES X - Gunnar Jónsson: Í viðjum
DESCRIPTION:Það eru 5 mínútur í. Alltaf aðeins 5 mínútur í. Allsnægtir í viðjum hringrásar\, ofgnótt alls í 5 mínútna fjarlægð. Rétt ókomin\, alveg að koma. Alltaf aðeins 5 mínútur í.  \nÍ ofgnóttinni fjarlægist ég. Í stað þess að verða skilvirk handbeini framkvæmda sem móttekur og afhendir jafnóðum\, leggst ég undir strauminn. Beljandi straum hugmynda\, ofgnótt allsnægta alls sem er og hugsast getur svo úr verður hálfgerð apatía. Doði. Ekki sinnulaus\, þvert á móti. \nFullur af meðvitund og ásetningi\, en dofinn. Eins og í bíó.  \nKapphlaup nútímans teiknast upp í tákn óendanleikans og neglist niður með hverju spori og mælist í tíma og rúmi. \nGunnar Jónsson (f. 1988) er fæddur í Reykjavík en ólst upp á Ísafirði og býr þar og starfar í dag. Gunnar lauk BA-prófi í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2012 og hefur sýnt talsvert á Íslandi og erlendis síðan hann útskrifaðist. Gunnar er í stjórn sýningarsalarins Úthverfu.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sequences-x-gunnar-jonsson-i-vidjum/
LOCATION:Outvert Art Space\, Aðalstræti 22\, Ísafjörður\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/gunnarj.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210925
DTEND;VALUE=DATE:20211014
DTSTAMP:20260530T063540
CREATED:20210927T101842Z
LAST-MODIFIED:20220916T111126Z
UID:19361-1632528000-1634169599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Kristján Guðmundsson
DESCRIPTION:Laugardaginn 25. september 2021\, sama dag og kosið verður til alþingis\, opnar Kristján Guðmundsson sýningu í Gallerí Úthverfu í samvinnu við Slunkaríki á Ísafirði og Edinborgarhúsið. Kristján opnaði fyrst sýningu í Slunkaríki á kosningadegi árið 1987 og síðan þá hefur skapast hefð fyrir því að listamaðurinn komi vestur með sýningu þegar kosið er til alþingis. \nKristján Guðmundsson (1941) hóf listferil sinn snemma á sjöunda áratug síðustu aldar. Hann varð stofnfélagi í SÚM – hópi ungra framsækinna listamanna sem vann með nýja nálgun sem þá var að ryðja sér til rúms í myndlistinni. \nHann bjó í Hollandi á áttunda áratugnum og komst þá í nánari tengsl við þá strauma og stefnur sem voru ráðandi í listheiminum á þeim tíma. Kristján hefur búið á Íslandi síðan 1979. Hann er í hópi virtustu listamanna þjóðarinnar\, list hans hefur verið lýst þannig að hún er bæði í takt við þær hefðir sem ráðið hafa ferðinni í vestrænni samtímalist á seinni hluta síðustu aldar og er jafnframt merkilegt innlegg í margbrotið tímabil abstrakt- og konsept-listar eftirstríðsáranna hér á landi. \nVerk hans einkennast af einfaldri og formfastri framsetningu í bland við ljóðrænu þar sem iðulega bregður fyrir heimspekilegri nálgun og djúpri og ísmeygilegri kímni. Hann var fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum 1993 og hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir list sína\, m.a. sænsku Carnegie verðlaunin. \nSýning Kristjáns opnar kl. 16 laugardaginn 25. september og er opin fimmtudaga-föstudaga kl. 16-18 og eftir samkomulagi. \nUppbyggingarsjóður Vestfjarða og Ísafjarðarbær styrkja rekstur Gallerís Úthverfu og Slunkaríkis.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/kristjan-gudmundsson/
LOCATION:Gallerí Úthverfa\, Aðalstræti 22\, Ísafjörður\, 400\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/09/kristjan-g.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210828
DTEND;VALUE=DATE:20210920
DTSTAMP:20260530T063540
CREATED:20210824T113117Z
LAST-MODIFIED:20210920T103849Z
UID:18641-1630108800-1632095999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Kees Visser: Önnur sýning
DESCRIPTION:Laugardaginn 28. ágúst kl. 16 verður opnun sýning á verkum Kees Visser í Úthverfu á Ísafirði. Sýningin ber heitið \,\,ÖNNUR SÝNING‘‘ en Kees Visser hélt síðast einkasýningu í þessu sama rými árið 1990 sem Myndlistarfélagið á Ísafirði rak og hét þá Slunkaríki.  \nÁ sýningunni verða tíu nýleg verk\, blýantsteikning með bleki og vatnslitum og akrýlmálverk unnin á 105 gr. Shiragiku pappír og Mengeї. Listamaðurinn verður viðstaddur opnun sýningarinnar og boðið verður uppá sýningarspjall af því tilefni.\nKees Visser (fæddur 1948) yfirgaf heimaland sitt Holland á áttunda áratugnum og settist að á Íslandi þar sem hann heldur áfram að verja hluta af tíma sínum en er einnig búsettur í Hollandi og Frakklandi. Á Íslandi varð hann þátttakandi í myndlistarsenunni þar sem framsæknar liststefnur á borð við fluxus\, naumhyggju og hugmyndalist (conceptual art) réðu ríkjum.  \nÍ verkum sínum hefur Kees\, sem er sjálfmenntaður í listinni\, lengi sameinað þessi áhrif og lagt áherslu á abstrakt og raðframsetningu. Hann vinnur mest með litakenningar\, rýmisform og framsetningu. \nHinar fjölmörgu höggmyndir hans fást við litaseríur í bland við ýmis form og efni\, oft með tilvísunum í hagnýta og venjulega hluti sem allir þekkja. Verk hans á pappír eru hins vegar oftast eingöngu abstrakt\, einlita fletir með yfirmálningu til að ná djúpum en fíngerðum litaáhrifum með kristallaðri áferð. Á sýningum virkjar Kees sýningarrýmið með því að nota form verkanna til að endurhugsa rýmið og færa málverkið í átt að hugmyndafræðilegri naumhyggju. \nVerk Kees Visser hafa verið sýnd víða um heim auk þess að vera í fjölmörgum alþjóðlegum einkasöfnum og opinberum söfnum\, svo sem Stedelijk Museum í Amsterdam\, Listasafni Íslands\, Listassafni ASÍ\, MOMA í New York\, Victoria & Albert safninu í London og Bibliothèque Kandinsky í Centre Pompidou í París. Árið 2018 hlaut Kees Visser Vishal Art Award og opnaði yfirlitssýningu í Vishal í Haarelm (NL) í desember 2018 af því tilefni. \nSýningin er opin fimmtudaga – föstudaga kl. 16 – 18 og eftir samkomilagi. Henni lýkur sunnudaginn 19. september.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/kees-visser-onnur-syning/
LOCATION:Outvert Art Space\, Aðalstræti 22\, Ísafjörður\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/kees-v.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR