BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220428
DTEND;VALUE=DATE:20230203
DTSTAMP:20260530T070906
CREATED:20220530T115637Z
LAST-MODIFIED:20230131T103330Z
UID:23426-1651104000-1675382399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Viðnám
DESCRIPTION:Sýningin Viðnám er þverfagleg sýning sem brúar bilið milli myndlistar og vísinda. Verkin á sýningunni eru lykilverk í eigu Listasafns Íslands sem skapa áhugavert samtal myndlistarinnar við vísindaleg málefni og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. \nLíta má á orðið viðnám út frá eðlisfræði. Það er samheiti orðsins rafmótstaða\, sem er tregða rafleiðara við að flytja rafstraum. Viðnám getur einnig vísað til viðspyrnu við neyslu sem ábyrgir þegnar verða að tileinka sér. Auk þess vísar viðnám til þeirrar mikilvægu mótstöðu sem við verðum að beita gegn hlýnun jarðar í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Listir gefa fólki tækifæri til að verða fyrir áhrifum\, því listir geta snert við tilfinningum. Listaverk geta vakið upp spurningar sem hvetja áhorfendur til að spyrja sig knýjandi spurninga. Listræn nálgun getur breytt því hvernig fólk upplifir heiminn í kringum sig. Listamenn vinna auk þess með þætti eins og smekk\, skynjun\, tilfinningar\, sannfæringu\, gildi og sjálfsmyndina sem er mikilvæg í samfélagi í mótun. List er líka fær um að efla huga mannsins og sýna áhorfandanum fjölbreytt  sjónarhorn og fá hann til að endurskoða eigin hugmyndir um heiminn. Að fjalla um málefni náttúrunnar frá ólíkum  hliðum auðveldar breytingar og þróun  gildismats sem er nauðsynlegt í ferðalaginu að sjálfbæru samfélagi. Þar sem allar aðstæður eru einstakar hugsum við hlutina til enda\, endurspeglum og byggjum upp nýjan skilning. \nÞað er ljóst að það krefst sameiginlegs átaks að ná sjálfbærnimarkmiðum Sameinuðu þjóðanna fyrir árið 2030.  Það felur í sér að samþætta\, virkja og skapa fjölbreytta þekkingu og sjónarmið. Það krefst virkrar þátttöku allra og fjölbreyttra nálgana. Ósjálfbær ofneysla almennings er stórt vandamál í samfélaginu. Við verðum að taka neysluvenjur okkar til endurskoðunar og veita ofneyslu viðnám. \nEkkert í heiminum stendur eitt og sér. Sérhver hlutur er hlekkur í keðju og er þannig tengdur öllum hinum hlekkjunum. Þessi keðja alheimsins verður að haldast órofin. Keðjuverkunin sameinar alla hluti og ferli í eina heild og skapar þannig forsendur fyrir jafnvægi. Allir hlutir í alheiminum\, þar á meðal mannslíkaminn\, eru samsettir úr orku\, sem tengist og kemur saman í lokuðum hringrásum. Lífríki jarðarinnar er háð keðjuverkandi öflum sem tengjast saman eins og gangverk tannhjóla. Ef eitt tannhjólanna verður fyrir varanlegu hnjaski\, þá raskast jafnvægið sömuleiðis varanlega. Orka er undirstaða alls efnis og hefur áhrif á allt annað. Sú orka sem skapar eina manneskju\, skapar einnig allar aðrar lífverur. Orka er alltaf flæðandi og síbreytileg. Hraðinn er tengdur þessari orku og er einnig breytilegur. Við erum öll samtengd og tilfinningar okkar skapa ómun sem hefur áhrif á allt og alla aðra. Öll orkan á jörðinni byggir á sambærilegum lögmálum þó svo að hún geti haft skýr sérkenni. Tengingar\, óreiða\, regla\, hrynjandi\, síbreytileiki\, óendanleiki og samtengingar eru allt eiginleikar sem tengjast orkusviði jarðar. \n  \n\n\n\n\n\n\n\n\nListamenn sem eiga verk á sýningunni \n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\nDavíð Örn Halldórsson \nDodda Maggý \nEirún Sigurðardóttir \nErla Þórarinsdóttir \nEyborg Guðmundsdóttir \nFinnur Jónsson \nGerður Helgadóttir \nGuðmunda Andrésdóttir \nJóhannes Kjarval \nKarl Kvaran \nKristinn Hrafnsson \nKristján Guðmundsson \nMagnús Helgason \nRansu \nSigrid Vadingojer \nSigurður Árni Sigurðsson \nTumi Magnússon \nÞorvaldur Skúlason \n  \n\n\nSýningarhöfundur: Ásthildur Jónsdóttir \n\nSýningarteymi: Ásthildur Jónsdóttir\, Dagný Heiðdal\, Guðrún Jóna Halldórsdóttir\, Ragnheiður Vignisdóttir\, Harpa Þórsdóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/resistance-interplay-of-art-and-physics/
LOCATION:The National Gallery of Iceland\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/resistance.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210205
DTEND;VALUE=DATE:20220110
DTSTAMP:20260530T070906
CREATED:20210819T142932Z
LAST-MODIFIED:20220916T105746Z
UID:18485-1612483200-1641772799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Halló\, geimur
DESCRIPTION:Fjarlægar víðáttur í óendanlegum alheiminum hafa frá upphafi verið manninum hugleiknar og í aldanna rás hafa listamenn túlkað og tekist á við hugmyndir sínar um geiminn og miðlað þeim með fjölbreyttum hætti. \nÁ sýningunni Halló\, geimur er skyggnst inn í undraveröld himingeimsins með hjálp listaverka í safneign Listasafns Íslands. \nFramúrstefnuleg verk Finns Jónssonar\, sem fyrstur Íslendinga tókst á við geiminn í verkum sínum á fyrri hluta 20. aldar\, miðla óheftri tjáningu listamannsins á töfrum himintunglanna sem eru leiðarstef sýningarinnar. Leyndardómar Vetrarbrautarinnar sem aldnir spámenn afhjúpa með forsögnum sínum um veðurfar og forlög manna eru Hildigunni Birgisdóttur og Svavari Guðnasyni innblástur. Norðurljósabar Halldórs Ásgeirssonar leiftrar með litadýrð og innsetning Steinu Vasulka\, Of the North\, hrífur áhorfandann með sér í áhrifamikilli upplifun.\nÍ verkum Ásgríms Jónssonar og Guðmundar Thorsteinssonar (Muggs) frá fyrri hluta 20. aldar sjáum við hvernig himintunglin tengjast þjóðtrú og ævintýrum þar sem vættir birtast mannfólki í tunglsljósi og blessuð sólin breytir tröllum í stein þegar dagur rís. Á sýningunni eru einnig mörg verk frá 7. og 8. áratug 20. aldar þegar framfarir í geimvísindum voru stórstígar og maðurinn fór í fyrsta sinn út fyrir gufuhvolf jarðar. \nGeimurinn og listin eiga það sameiginlegt að vera forvitnileg og kvik\, þar er stöðug hreyfing og alltaf er maður að uppgötva eitthvað nýtt þegar maður skoðar listaverk. Með hjálp Tuma\, aðalpersónu bókarinnar Rauði hatturinn og krummi eftir Ásgerði Búadóttur myndlistarmann\, geta yngstu gestir safnsins skoðað sýninguna á aðgengilegan hátt\, sett upp gleraugu vísindamannsins og numið nýjan fróðleik! \nSýningarstjórar: Guðrún Jóna Halldórsdóttir og Ragnheiður Vignisdóttir \nVísindalegar staðreyndir: Sævar Helgi Bragason \nListamenn sem eiga verk á sýningunni: \nÁsgrímur Jónsson\nBjörg Þorsteinsdóttir\nErró\nEyborg Guðmundsdóttir\nFinnur Jónsson\nGuðmunda Andrésdóttir\nGuðmundur Thorsteinsson (Muggur)\nHalldór Ásgeirsson\nHelgi Þorgils Friðjónsson\nHildigunnur Birgisdóttir\nHildur Hákonardóttir\nHreinn Friðfinnsson\nJóhann Eyfells\nJón Gunnar Árnason\nKeith Grant\nKristinn E. Hrafnsson\nMargrét Elíasdóttir\nSigurjón Ólafsson\nSteina\nSvavar Guðnason\nSverrir Haraldsson\nVilhjálmur Bergsson\nÞorvaldur Skúlason
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hallo-geimur/
LOCATION:The National Gallery of Iceland\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/01/hallo-geimur-vefur-Listasafn-Íslands.jpeg
END:VEVENT
END:VCALENDAR