BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230812
DTEND;VALUE=DATE:20230925
DTSTAMP:20260530T071246
CREATED:20230810T102323Z
LAST-MODIFIED:20231013T123133Z
UID:32247-1691798400-1695599999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Eva Ísleifs: Jörðin er rúmið mitt
DESCRIPTION:„Ég hef tilhneigingu til að sjá mynstur og andlit í skýjunum og túlka þau sem skilaboð. Rannsakendur kalla það Pareidolia (hliðarskynjun) og halda því fram að um falska skynjun sé að ræða þar sem hugurinn leitast við að sjá andlit eða mynstur í hversdagslegum hlutum. Ég segi að það geti verið það sem það er og fyrir manneskjur er þetta tæki til að skilja heiminn. Ég tengi andlit við hluti\, þeir verða persónur og við lifum öll saman. Kæri Dalí myndi samþykkja. Gerir þú það? Ég spyr\, gerir þú það! Do do do you….“\n\nSýningin JÖRÐIN ER RÚMIÐ MITT kynnir ný verk myndlistarmannsins Evu Ísleifsdóttur. Samsafn ofureinfaldaðra hluta\, tákn sem vekja húmorinn og samtal sem leysist upp í stóra hrúgu af óreiðu sem við sitjum þó svo þægilega í. Eva sýnir röð verka sem kanna viðvörunarmerki sem einkenna samtíma okkar. Ef tíminn sem við lifum væri frekar skilin sem staðsetning og hvert okkar íbúi\, gætu verkin þjónað sem leiðarvísir til að rata á slíkum stað.\nÍ verkum Evu birtast okkur örmagna manneskjur\, skynjun mannsins á samhengi sínu\, hversdagsleikinn og samfélagsleg orðræða. Draugar bastarðs handverks eru á sveimi í verkunum\, sem leið til afritunar og brenglunar í sögulegu samhengi. Hún leikur sér oft með húmor þar sem von og vonleysi takast á og eftir eru spurningar um hvernig verðmæti eru skynjuð og sköpuð. Í skúlptúrum sínum vinnur Eva með hugmyndina um eftirmynd\, staðreyndir eða skáldskap\, þar sem hún setur fram gjörninga\, eða aðstæður sem kalla framgjörningaformið.\nSýningunni fylgir ritgerð eftir James Greenway “Our aim is wakefulness\, Our enemy is dreamless sleep: Individual agency in times of despair.” James Greenway (f. 1985\, Írland) er listamaður og rithöfundur búsettur í London.\n\nEva Ísleifs hlaut BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2008 og árið 2010 hlaut hún MFA gráðu í Skúlptúr frá Listaháskólanum í Edinborg í Skotlandi. Eva býr og starfar í Reykjavík og Aþenu á Grikklandi en hún er ein af stofnendum og stjórnendum A – DASH (www.a-dash.space) í Aþenu í Grikklandi en hún rekur það ásamt Zoe Hatzyiannaki listamanni og Christina Petkopoulou sýningarstjóra. A – DASH vinnur að því að leggja áherslu á að hlúa að sveigjanlegu umhverfi fyrir skapandi greinar og hvetur til tilrauna\, samvinnu og þverfagleg samskipti á milli meðlima og samstarfsaðila.\nEva vinnur í ýmsa miðla þá einkum helst skúlptúr eða þrívíða miðla. Verk Evu hafa verið sýnd víða á Íslandi og í Evrópu. Nýlegar sýningar eru einkasýningin HIC SVNT DRACONES í Gallerí Kverk. Reykjavík 2022\, Getting out of Zola 2022\, MEME. Aþena. Grikkland\, verkefnið H2H í Aþenu 2021\, Oxto\, Pervert Hunt með Rakel McMahon. Samsýningin Iðavellir í Listasafni Reykjavíkur 2021. Morning Briefing í Harbinger Gallery með Kevin Harman\, 2021. LIPIU\, 2020\, samstarf með Rakel McMahon\, samsýning í Aþenu á Grikklandi. Safari of Sorts\, 2020\, samsýning í Glasgow\, Skotlandi. Dialectic Bubble\, 2019 í samstarfinu It´s the media not you! í LTD Ink Corporation í Edinborg\, Skotlandi.\nAuk þess að starfa sjálfstætt vinnur Eva í samstarfi við aðra listamenn og stofnanir. Verkefni á boð við HEAD to HEAD sem er sýningarverkefni í tveimur hlutum enn fyrri hluti fór fram 2021 í samstarfi við Kling og Bang í Aþenu og verður á Íslandi 2024. TIME TAKES TIME 2019-2020\, í samstarfi við Noemi Niederhauser og Andreas Brunner. It´s the media not you! 2013 – 2020 gjörningarannsókn í samstarfi við Rakel McMahon og Katrín IJH. Gjörningarsýningarverkefnið Beyond Human Impulses 2018 sem fram fór í Aþenu á Grikklandi. Einnig stýrði hún myndlistar tvíæringnum Staðir / Places 2013 – 2020 í Vesturbyggð á Vestfjörðum (www.stadir.is) ásamt Þorgerði Ólafsdóttur og Becky Forsythe.\nÍ verkum sínum vinnur Eva með ímynd mannsins og er hversdagsleikinn og samfélagsrýni henni hugleikin. Handverkið er til staðar en gjarnan er það ásýnd eftirmyndarinnar eða fúsksins sem haldið er á lofti með sögulegum skírskotunum. Verk Evu hafa oft húmoríska nálgun\, þar sem vonin og vonleysið streitast á móti hvort öðru\, en eftir standa mikilvægar spurningar um hvernig gildismat og verðmæti eru oft skilgreind í samfélaginu. Eva hefur búið til verk út frá og í almenningsrými borgarinnar en almenningsrýmið er afar mikilvægur þáttur í sköpunarferli hennar\, mannleg hegðun\, tákn og reglur í samfélaginu eiga sér hornpunkta í hennar ferli. www.evaisleifs.info
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/evu-isleifs-jordin-er-rumid-mitt/
LOCATION:Kling & Bang\, The Marshall House\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/08/364044790_1013273646310710_8267725529985709086_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210610
DTEND;VALUE=DATE:20211018
DTSTAMP:20260530T071246
CREATED:20210819T140253Z
LAST-MODIFIED:20220916T110015Z
UID:18466-1623283200-1634515199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Iðavöllur: Íslensk myndlist á 21. öld
DESCRIPTION:Horft er til nærumhverfisins í starfi Listasafns Reykjavíkur á árinu 2021 með áherslu á að sýna þá grósku sem einkennir íslenska myndlistarsenu. \nHafnarhúsið allt er vettvangur kraftmikillar sýningar á nýjum verkum ungra listamanna sem líta má á sem leiðandi afl sinnar kynslóðar um leið og draga má ályktanir um stærra samhengi innlendrar sem alþjóðlegrar samtímalistar. Nokkuð er liðið síðan staðan var tekin á þeim hræringum sem eru í deiglunni meðal þeirra listamanna sem eru í mestum vexti og blóma á sínum ferli og endurspegla viðfangsefni og nálgun samtímans. \nYfirskrift sýningarinnar er Iðavöllur. Titillinn er fengið að láni úr Völuspá og kemur þar tvisvar við sögu. Iðavöllur er staðurinn þar sem æsir hittast við frumsköpun heimsins og koma síðan aftur saman á eftir Ragnarök til þess að skapa nýja heimsmynd. \nHafnarhúsið tekur á sig hlutverk slíks Iðavallar sem vettvangur skapandi listamanna í hringiðu umbreytinga við upphaf nýrrar þúsaldar. Þema sýningarinnar er þannig hinn skapandi og umbreytandi kraftur sem býr í vinnu listamanna og hún endurspeglar fjölbreytt viðfangsefni á tímum jafnt tæknilegra sem félagslegra umbreytinga. \nVal listamanna ræðst af samspili þess með hvaða hætti þau bregðast við samtímanum og um leið hvernig sjónarhorn þeirra hefur áhrif á sjónarhorn áhorfenda. Um er að ræða listamenn sem mótað hafa listalífið hér á landi í upphafi nýrrar aldar. Þessi kynslóð er sérstök fyrir þau tímamót sem hún upplifir: Hún fellur á milli X og Y kynslóða\, í árdaga þúsaldarkynslóðarinnar. Listamennirnir muna eftir heiminum án internets og snjallsíma\, upplifa efnahagshrunið\, taka inn MeToo byltinguna\, skynja mörk jarðsögulegs tíma og mannlífstíma og horfast í augu við hamfarahlýnun. Þau taka þátt í uppbyggingu listalífs sem er að fagvæðast með tilkomu listaháskóla\, alþjóðlegra gallería og útgáfu listasögunnar. Þau eru fulltrúar kynslóðar sem tekst á við aukinn hraða\, meira upplýsingaflæði\, óljósari landamæri\, reikult kyngervi\, breytt samskiptamynstur\, nýja tækni – allt á meðan þau muna á eigin skinni það sem áður var. Þau upplifa endalok heimsins í vissum skilningi og leggja sitt af mörkum við nýtt upphaf. \n\nListamenn:\n\n\n\n\n\nAnna Júlía Friðbjörnsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nAnna Rún Tryggvadóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nArna Óttarsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nArnar Ásgeirsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nBjarki Bragason\n\n\n\n\n\n\n\n\nDodda Maggý\n\n\n\n\n\n\n\n\nElín Hansdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nEva Ísleifs\n\n\n\n\n\n\n\n\nGuðmundur Thoroddsen\n\n\n\n\n\n\n\n\nHildigunnur Birgisdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nPáll Haukur Björnsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nRebecca Erin Moran\n\n\n\n\n\n\n\n\nStyrmir Örn Guðmundsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nÖrn Alexander Ámundason\n\n\n\n\n\n\n\n\nSýningarstjórar:\n\nAldís Snorradóttir\nMarkús Þór Andrésson\nÓlöf Kristín Sigurðardóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/idavollur-islensk-myndlist-a-21-old/
LOCATION:Reykjavík Art Museum – Hafnarhúsið\, Tryggvagata 17\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/01/Screenshot-2021-06-22-at-11.06.03.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR