BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230128
DTEND;VALUE=DATE:20240101
DTSTAMP:20260530T062141
CREATED:20230124T113418Z
LAST-MODIFIED:20230206T120401Z
UID:28967-1674864000-1704067199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Erró: Skörp skæri
DESCRIPTION:Samklipp hefur verið undirstaða listsköpunar Errós í yfir sextíu ár. Hann hófst snemma handa á því\, með Meca-Make-Up myndaröðunum 1959-60\, og afraksturinn fram á þennan dag eru yfir 30 000 samklipp. Með því að safna\, klippa\, líma og síðan mála blandar Erró þannig frjálslega saman sjónrænu efni og tilvísunum sem umbreytist í kraftmikil\, sláandi og hlífðarlaus listaverk. Með því ljær hann nýja merkingu þeim aragrúa mynda sem nálgast má í mannkynssögunni\, fréttum\, alþjóðlegum miðlum og hversdagslífi nútímamannsins. \nFrá 1989 hefur Erró gefið Listasafni Reykjavíkur yfir 700 af samklippum sínum\, safnið er umfangsmikil þjóðargersemi sem heldur áfram að vaxa. Í kjölfar nýjustu uppfærslu á samklippum í Errósafninu er þessari sýningu ætlað að kynna verkin ásamt öðrum sem spanna gjörvallan litríkan feril listamannsins. Á sýningunni má rekja tryggð Errós við samklippið\, sem leið til að skapa önnur listaverk\, og sem aðferð til að halda áfram að segja óvæntar sögur. \nErró (f. 1932\, Ólafsvík) býr og starfar í París\, þangað sem hann flutti árið 1956 með viðkomu í Noregi\, Þýskalandi og Ítalíu. Erró var meðal helstu fulltrúa evrópsku framúrstefnunnar á sjöunda áratugnum og tengist ekki einungis endurnýjun fíguratífs myndmáls\, vegna uppgötvana hans á sviði málverka sem byggjast á frásögn og samklippi\, heldur einnig hreyfingum sem kenndar eru við uppákomur og tilraunakvikmyndir. Þrátt fyrir að verk hans séu oft sett í samhengi listastefna eins og súrrealisma\, fígúratífrar frásagnar og popplistar\, væri ógerningur að fella þau undir eina þeirra.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/erro-skorp-skaeri/
LOCATION:Reykjavik Art Museum – Hafnarhús\, Tryggvagata 17\, 101\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/01/erro.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220409
DTEND;VALUE=DATE:20220930
DTSTAMP:20260530T062141
CREATED:20220423T095808Z
LAST-MODIFIED:20221005T123808Z
UID:22990-1649462400-1664495999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Erró: Sprengikraftur mynda
DESCRIPTION:Erró er einn fárra íslenskra listamanna sem náð hafa fótfestu í heimi alþjóðlegrar myndlistar. Sprengikraftur mynda er heildstæð úttekt á hinum litríka ferli listamannsins sem hefur fengist við ýmsa miðla myndlistarinnar. Þar má finna allt frá gjörningum\, vídeólist\, grafík\, fjölfeldi og klippimyndum\, til stórra verka í almannarými og málverka á öllum skala\, sem hafa unnið honum verðugan sess í evrópskri listasögu. Hér er á ferðinni umfangsmesta sýning sem sett hefur verið upp á verkum listamannsins hérlendis. \nListamaðurinn Erró\, fæddur Guðmundur Guðmundsson árið 1932 í Ólafsvík á Vesturlandi\, var í fararbroddi evrópsku framúrstefnunnar á sjöunda áratugnum. Í listasögu þessa tímabils er nafn hans ekki aðeins tengt endurnýjun fígúratífs myndmáls\, vegna uppfinningar hans á frásagnarmálverkum sem byggja á samklippi\, heldur einnig við hræringar sem á sínum tíma voru kenndar við uppákomur og tilraunakvikmyndir. Þótt verk hans séu réttilega gjarnan tengd við súrrealisma\, fígúratífa frásögn eða popplist\, er ekki hægt að spyrða þau við eina þeirra umfram aðra. \nErró sækir innblástur í hnattvædda veröld okkar með sínu látlausa flæði mynda og upplýsinga. Sem brautryðjandi á sviði hins málaða samklipps (þ.e. þeirrar aðferðar að mála eftir samklippi sem hefur verið samsett úr fundnu myndefni)\, hefur hann sett fram yfirgripsmikla sögu af neytendasamfélagi og heimspólitík\, oft frá gagnrýnu eða háðsku sjónarhorni. Við það að blanda frjálslega saman myndum af ólíkum uppruna\, og stefna þeim hver gegn annarri\, einkennist ævistarf hans af sneisafullum\, marglaga og oft og tíðum truflandi verkum sem brjóta upp menningarlegar staðalmyndir og valdakerfi auk þess að blanda saman fortíð og nútíð\, skáldskap og raunveruleika. Frumlegar samsetningar hans þenja hugmyndina um samklipp út í ystu æsar og bera á borð flæði myndrænna frásagna sem takast á við „alheimsvettvanginn“ löngu áður en internetið kom til sögunnar og hnattvæðing ruddi sér til rúms. \nYfirlitssýning þessi rekur gjörvallan feril Errós eftir tímabilum og þemum\, í öllum sínum fjölbreytileika\, allt fram til nýjustu verka hans. Hér er afrakstur sjö áratuga vinnu þar sem sjá má hvernig myndir eftir aðra og úr kunnuglegum myndheimi dægurmenningar hafa alla tíð fóðrað ímyndunarafl listamannsins og listsköpun. Hann hefur verið óþreytandi að viða að sér myndefni allstaðar að úr heiminum sem síðan hefur öðlast nýja merkingu og lent í óvæntu samhengi. Á sýningunni er leitast við að sýna hvernig heimildasafn Errós hefur stækkað og endurnýjast í áranna rás og fangað öll möguleg svið\, frá list og kvikmyndum til teiknimyndasagna\, í gegnum vísindi og tækni\, sögu og stjórnmál\, auglýsingar\, áróður eða erótík. Hér eru dregnar fram þær ólíku leiðir sem hann hefur farið við að endurvinna og aðlaga þennan myndræna efnivið að því marki að sporna við hvers konar yfirvaldi og tjá um leið óvenju auðugt ímyndunarafl. \nSýningin Sprengikraftur mynda endurspeglar glæsilegan feril Errós og byggir að mestu á listaverkagjöf listamannsins til Reykjavíkurborgar. Árið 1989 tók Reykjavíkurborg við stóru safni\, um 2000 verkum eftir listamanninn\, auk skjala og annarra gangna sem hafa mikið gildi fyrir rannsóknir sem snerta listamanninn og samtíma hans. Safnið hefur vaxið jafnt og þétt síðustu árin og telur nú um 4000 listaverk. Errósafninu var fundinn staður í Hafnarhúsi og var gjöfin grunnur þess að Listasafn Reykjavíkur hóf starfsemi í húsinu. Sýningar úr safni Errós eiga sér þar fastan sess en með þeim er leitast við að gefa innsýn í ólíkar áherslur í verkum hans. Þegar sýningunni lýkur í Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhúsi fer hún á ferð um Evrópu og verður opnuð í ARos safninu í Árósum í apríl\, 2023. \nSprengikraftur mynda er sett upp í öllu Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi og verða þar meira en 300 listaverk af ýmsum gerðum\, sem og ljósmyndir og annar fróðleikur um listamanninn. Í tengslum við sýninguna kemur út vegleg sýningarskrá með textum eftir sýningarstjórana\, þau Gunnar B. Kvaran og Danielle Kvaran\, sem rita um ólík tímabil á ferli listamannsins\, ásamt textum og viðtölum eftir Bjarna Hinriksson\, Jean-Max Colard\, Alain Jouffroy\, Jean-Jacques Lebel\, Hans Ulrich Obrist og Anne Tronche. \nSýningarhönnun: Axel Hallkell Jóhannesson.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/erro-the-power-of-images/
LOCATION:Reykjavík Art Museum – Hafnarhúsið\, Tryggvagata 17\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/04/e2627_b_large.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211104
DTEND;VALUE=DATE:20220328
DTSTAMP:20260530T062141
CREATED:20210817T155824Z
LAST-MODIFIED:20220916T105055Z
UID:18422-1635984000-1648425599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ferðagarpurinn Erró
DESCRIPTION:Ferðalög eru einkennandi fyrir líf og list Errós (f. 1932). Hann stundaði listnám í Reykjavík\, Ósló\, Ravenna og Florence\, þar til hann settist að í París árið 1958 eftir nokkurra mánaða dvöl í Ísrael. Mörg ferðalög fylgdu þar á eftir og má nefna sögulegar ferðir til New York í Bandaríkjunum\, Moskvu í þáverandi Sovétríkjunum og Havana á Kúbu. Í heimsreisu sinni\, 1971-1972\, lá leið hans um Asíu. Frá því á 8. áratugnum hefur Erró skipt búsetu sinni milli Parísar í Frakklandi\, Bangkok í Taílandi og Formentera á Spáni. \nFerðalög Errós gegna mikilvægu hlutverki í tilurð verka hans. Hvert sem hann fer sankar hann að sér hundruðum mynda. Hann nýtir þær í samklippuverk sem smám saman verða að málverkum. Hugmyndin um ferðalög og tilfærslur birtist í mörgum verkum\, þar sem hann notar mótíf eins og flugvélar\, eldflaugar\, lestir\, fugla\, hesta eða jafnvel ofurhetjur.\nHún kemur enn fremur skýrt fram í seríum sem varða „heimsferð Maós“\, „geimferðir“ og „konur frá Norður Afríku“. \nÖll verkin eru í eigu Listasafns Reykjavíkur. \nSýningarstjóri: Danielle Kvaran
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/ferdagarpurinn-erro/
LOCATION:Reykjavík Art Museum – Hafnarhúsið\, Tryggvagata 17\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/erro_mercury_astronauts_in_spacesuits_mercury_geimfarar_i_geimbuningum_1980_oil_on_canvas_olia_a_striga._large.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210205
DTEND;VALUE=DATE:20220110
DTSTAMP:20260530T062141
CREATED:20210819T142932Z
LAST-MODIFIED:20220916T105746Z
UID:18485-1612483200-1641772799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Halló\, geimur
DESCRIPTION:Fjarlægar víðáttur í óendanlegum alheiminum hafa frá upphafi verið manninum hugleiknar og í aldanna rás hafa listamenn túlkað og tekist á við hugmyndir sínar um geiminn og miðlað þeim með fjölbreyttum hætti. \nÁ sýningunni Halló\, geimur er skyggnst inn í undraveröld himingeimsins með hjálp listaverka í safneign Listasafns Íslands. \nFramúrstefnuleg verk Finns Jónssonar\, sem fyrstur Íslendinga tókst á við geiminn í verkum sínum á fyrri hluta 20. aldar\, miðla óheftri tjáningu listamannsins á töfrum himintunglanna sem eru leiðarstef sýningarinnar. Leyndardómar Vetrarbrautarinnar sem aldnir spámenn afhjúpa með forsögnum sínum um veðurfar og forlög manna eru Hildigunni Birgisdóttur og Svavari Guðnasyni innblástur. Norðurljósabar Halldórs Ásgeirssonar leiftrar með litadýrð og innsetning Steinu Vasulka\, Of the North\, hrífur áhorfandann með sér í áhrifamikilli upplifun.\nÍ verkum Ásgríms Jónssonar og Guðmundar Thorsteinssonar (Muggs) frá fyrri hluta 20. aldar sjáum við hvernig himintunglin tengjast þjóðtrú og ævintýrum þar sem vættir birtast mannfólki í tunglsljósi og blessuð sólin breytir tröllum í stein þegar dagur rís. Á sýningunni eru einnig mörg verk frá 7. og 8. áratug 20. aldar þegar framfarir í geimvísindum voru stórstígar og maðurinn fór í fyrsta sinn út fyrir gufuhvolf jarðar. \nGeimurinn og listin eiga það sameiginlegt að vera forvitnileg og kvik\, þar er stöðug hreyfing og alltaf er maður að uppgötva eitthvað nýtt þegar maður skoðar listaverk. Með hjálp Tuma\, aðalpersónu bókarinnar Rauði hatturinn og krummi eftir Ásgerði Búadóttur myndlistarmann\, geta yngstu gestir safnsins skoðað sýninguna á aðgengilegan hátt\, sett upp gleraugu vísindamannsins og numið nýjan fróðleik! \nSýningarstjórar: Guðrún Jóna Halldórsdóttir og Ragnheiður Vignisdóttir \nVísindalegar staðreyndir: Sævar Helgi Bragason \nListamenn sem eiga verk á sýningunni: \nÁsgrímur Jónsson\nBjörg Þorsteinsdóttir\nErró\nEyborg Guðmundsdóttir\nFinnur Jónsson\nGuðmunda Andrésdóttir\nGuðmundur Thorsteinsson (Muggur)\nHalldór Ásgeirsson\nHelgi Þorgils Friðjónsson\nHildigunnur Birgisdóttir\nHildur Hákonardóttir\nHreinn Friðfinnsson\nJóhann Eyfells\nJón Gunnar Árnason\nKeith Grant\nKristinn E. Hrafnsson\nMargrét Elíasdóttir\nSigurjón Ólafsson\nSteina\nSvavar Guðnason\nSverrir Haraldsson\nVilhjálmur Bergsson\nÞorvaldur Skúlason
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hallo-geimur/
LOCATION:The National Gallery of Iceland\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/01/hallo-geimur-vefur-Listasafn-Íslands.jpeg
END:VEVENT
END:VCALENDAR