BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220205
DTEND;VALUE=DATE:20220523
DTSTAMP:20260530T120248
CREATED:20220103T140645Z
LAST-MODIFIED:20220825T133649Z
UID:20967-1644019200-1653263999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Lóa H. Hjálmtýsdóttir: Buxnadragt
DESCRIPTION:Buxnadragt er sýning á málverkum\, myndasögum\, þrívíðum verkum og bókum þar sem myndlistar- og tónlistarkonan Lóa H. Hjálmtýsdóttir leitast við að svara spurningunni: Hvernig er hægt að vera stórkostlegt sköpunarverk en á sama tíma svona hallærisleg manneskja með ranghugmyndir? Buxnadragtin\, kvenkynsútgáfan af klassísk­um jakkafötum karla\, er sett fram sem tákn um þá trú manneskjunnar\, sem henni klæðist\, að hún hafi stjórn á raunveruleikanum. Líkt og feminískt ævintýri falla málverk af hinum ýmsu konum í hversdagsleg­um senum saman eins og púsluspil. \nKonurnar í verkunum virðast vera hluti af stærri epískri sögu um þetta tímabil á jörðu. Þrátt fyrir að myndirnar lýsi venjulegri rútínu daglegs lífs sem virðist allt að því tilgangslaus\, eru persónurnar engu að síður alltaf að reyna; reyna að róa sig\, reyna að komast lengra í samfélaginu\, reyna að áorka meiru… en enginn veit hvar eða hvers vegna þau eru að þessu. Þessu hversdagslega drama er gerð skil á gamansaman og lifandi hátt með málverkum\, þrívíðum verkum og bókum. \nBuxnadragtin átti raunverulegan þátt í sögu kvennahreyfinga\, að vísu á fjölbreyttari máta en skopmyndin af viðskiptakonu níunda áratugarins með axlapúða. Upphafið var breyting á reiðjakkanum snemma á tuttugustu öld\, sem hjálpaði Súffragettunum að koma skilaboðum sínum áleiðis.buy zoloft online https://blackmenheal.org/wp-content/languages/new/noprescription/zoloft-no-prescription.html no prescription\n Flíkin varð hentugur fatnaður fyrir vinnandi konur (og konur sem stóðu fyrir óeirðum.) Allt til ársins 1993 börðust kvenkyns þingmenn í Bandaríkjunum gegn banni sem gerði konum óleyfilegt að klæðast buxum í þingsal. \nLóa er myndasöguhöfundur og sögur hennar\, af tilfinningalegu ástandi og innri einræðum\, kallast á við þann einstaka skýrleika sem tilheyrir myndasöguforminu. Við erum vön að lesa texta og lesa myndmál en lesturinn á báðum miðlum í einu\, snýst ekki eingöngu um að afla þekkingar heldur snýr þetta einnig að minninu og hvernig það virkar. Hvaða upplýsingar tökum við með okkur? Hvaða sögur fylgja okkur og hvaða upplýsingum miðlum við áfram? Hvaða hlutverki þjónar bókin sem boðleið upplýsinga á milli fólks og hugmynda\, hinu almenna og hinu sértæka\, hinu hversdaglega og hinu stórbrotna. \nÁ sýningartímanum\, mun listakonan sýna og búa til úrval handgerðra bóka á gangi safnsins og þar með mun sýningin vaxa. \nSýningarstjóri: Erin Honeycutt \nLóa H. Hjálmtýsdóttir (1979\, Reykjavík) er listamaður\, teiknari\, myndasögu- og rithöfundur og söngkona. Hún nam myndlist og ritlist við Listaháskólann og Háskóla Íslands og teikningu í Parson’s New School for Design í New York. Fyrsta myndasögubók Lóu kom út árið 2009 og frumraun hennar í barnabókaskrifum\, Grísafjörður\, var tilnefnd til Barna- og ungmennabókaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2021. Allt frá 2005 hefur hljómsveit hennar samið og flutt tónlist og farið á tónleikaferðalög víða um heim. \nErin Honeycutt (1989) er rithöfundur\, bóksali og sýningarstjóri sem býr og starfar í Berlín. Hún er með MA-gráðu í listfræði frá Háskóla Íslands auk MA-gráðu í trúarbragðafræðum frá Universiteit van Amsterdam. Hún skrifar ljóð\, sýningarrýni og margvíslegan texta í samvinnu við listamenn. Erin var tilnefnd til Broken Dimanche Press verðlaunanna fyrir skrif um list og textar hennar hafa meðal annars verið birtir í SAND Journal\, BARAKUNAN og Neptún Magazin.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/loa-h-hjalmtysdottir-powersuit/
LOCATION:LÁ Art Museum\, Austurmörk 21\, Hveragerði\, 810\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/01/image00182.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220205
DTEND;VALUE=DATE:20220523
DTSTAMP:20260530T120248
CREATED:20220103T135254Z
LAST-MODIFIED:20220825T133105Z
UID:20960-1644019200-1653263999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Þórdís Erla Zoega: Hringrás
DESCRIPTION:Þórdís Erla Zoëga (1988) útskrifaðist með BFA gráðu úr Audio Visual deild Gerrit Rietveld Academy í Amsterdam árið 2012. Að auki er hún með diplómu í Vefþróun úr Vefskólanum. \nHún hefur sýnt m.a. í Amsterdam\, Stokkhólmi\, Berlín\, Basel\, Tékklandi og víðar. Hér á landi hefur hún unnið verk fyrir Listahátíð í Reykjavík\, Gerðarsafn\, Íslenska dansflokkinn\, Konsúlat Hótel\, Canopy Hilton hótel og sýnt í D-sal Hafnarhússins. Einnig var hún meðlimur í listahópnum Kunstschlager og hélt uppi víðtækri sýningardagskrá með honum í Kunstschlager stofu Hafnarhússins árið 2015. Nýlegar sýningar eru Embrace (Norrtälje konsthall\, Svíþjóð\, 2021)\, Hyper Cyber (Þula\, 2020)\, og Harmony (Geysir Heima Kjallarinn\, 2019). \nÞórdís vinnur í hina ýmsu miðla og skapar innsetningar\, málverk\, teikningar\, mottur og lágmyndir úr akrýlgleri. Verk hennar snúast jafnan um jafnvægi og nánd sem birtast í andstæðum og samhverfum.buy orlistat online https://www.mobleymd.com/wp-content/languages/new/orlistat.html no prescription\n Í innsetningum hennar leitast hún við að skapa rými fyrir áhorfandann að uppgötva eitthvað nýtt með einföldum sjónrænum blekkingum. Hringformið er henni hugleikið sem tákn um óendanleikann og himingeiminn. Samhverfur birtast í flestum hennar verkum þar sem hún leitast við að finna jafnvægi á fletinum og í lífinu. \nSýningarstjórar: Erin Honeycutt \nErin Honeycutt (1989) er rithöfundur\, bóksali og sýningarstjóri sem býr og starfar í Berlín. Hún er með MA-gráðu í listfræði frá Háskóla Íslands auk MA-gráðu í trúarbragðafræðum frá Universiteit van Amsterdam. Hún skrifar ljóð\, sýningarrýni og margvíslegan texta í samvinnu við listamenn. Erin var tilnefnd til Broken Dimanche Press verðlaunanna fyrir skrif um list og textar hennar hafa meðal annars verið birtir í SAND Journal\, BARAKUNAN og Neptún Magazin. Vefsíða
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/thordis-erla-zoega-routine/
LOCATION:LÁ Art Museum\, Austurmörk 21\, Hveragerði\, 810\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/01/Orbit-1200x1200-1.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220205
DTEND;VALUE=DATE:20220523
DTSTAMP:20260530T120248
CREATED:20220103T130024Z
LAST-MODIFIED:20220825T134012Z
UID:20953-1644019200-1653263999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Magnús Helgason: RÓLON
DESCRIPTION:Magnús Helgason (1977) útskrifaðist frá listaháskólanum Aki í Hollandi árið 2001 og hefur síðan helgað sig tilraunakenndri kvikmyndalist og málaralist en síðastliðin ár hafa innsetningar orðið meira áberandi í listsköpun hans. Magnús notar fundinn efnivið sem hann umbreytir ýmist í tvívíð málverk eða þrívíðar innsetningar. Hann tekur hluti og efni\, ýmist sem náttúran hefur veðrað eða maðurinn skapað í öðrum tilgangi\, og raðar saman í nýja heild.buy priligy online blackmenheal.org/wp-content/themes/twentytwentytwo/inc/patterns/en/priligy.html no prescription\n Myndlist Magnúsar þarfnast ekki útskýringa. Helst eiga verkin að fara framhjá heilanum og hitta áhorfandann beint í hjartað. Nýlegar sýningar eru Shit hvað allt er gott (Gerðarsafn\, 2020)\, Rólegur Snati við snertum aldrei rúllustigahandrið (Listamenn Gallerí\, 2020) og Ég er ekki of ég er on (Kaktus\, Akureyri\, 2020).buy zoloft online blackmenheal.org/wp-content/themes/twentytwentytwo/inc/patterns/en/zoloft.html no prescription\n \nSýningarstjórar: Erin Honeycutt
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/magnus-helgason-roll-on/
LOCATION:LÁ Art Museum\, Austurmörk 21\, Hveragerði\, 810\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/01/roll-on-magnus.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220205
DTEND;VALUE=DATE:20220523
DTSTAMP:20260530T120248
CREATED:20220103T125153Z
LAST-MODIFIED:20220916T105128Z
UID:20946-1644019200-1653263999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir: Þú ert kveikjan
DESCRIPTION:Á sýningunni Þú ert kveikjan kannar Ingunn Fjóla spennuna á milli reiðu og óreiðu á leikrænan hátt. Innsetningin er fyrst og fremst malerísk\, að því gefnu að hægt sé að líta á kerfi mynstra sem malerískt fyrirbæri. Upplifun sýningargesta er hluti af alltumlykjandi kerfi verksins; kerfi sem gestir hafa áhrif þegar þeir ferðast um rýmið og bregðast við þeim vísbendingum sem Ingunn Fjóla hefur byggt inn í verkið. Ætlast er til þess að hreyft sé við innsetningunni\, en hvernig sú tilfærsla fer fram veltir upp spurningum um sambandið milli röskunar og myndbyggingar verksins. \nFyrri verk Ingunnar Fjólu hafa að mestu verið málverk og innsetningar. Með því að nota ólík efni\, sem á ófyrirsjáanlegan hátt ögra fagurfræðilegri upplifun áhorfenda og hvernig þeir skynja sýningarrýmið\, fellir hún saman fyrirframgefnar upplýsingar sem augað nemur við hugmyndafræði sem talar til áþreifanleika líkamans. Áhorfandinn tekur þátt í abstrakt frásögn sem verður til úr ýmiskonar flötum og sjónarhornum. Málaðir fletir í höfundarverki Ingunnar Fjólu vísa í ýmsar áttir – stundum minna þeir á skilrúm eða göngupall en öðrum stundum á merki\, svið eða skjá. \nÁ sýningunni Þú ert kveikjan geta gestir fært til hluti verksins þannig að kerfið kann að rofna eða breytast\, allt eftir því hvernig maður skynjar mörkin milli reglu og óreglu. Allt rúmast innan þeirra hreyfinga sem áhorfendur leggja til. Í lok dags er verkið núllstillt með því að raða öllu aftur í sitt í upprunalega horf svo leikurinn geti hafist að nýju næsta dag og þannig dvelur innsetningin í stöðugu flæði milli reiðu og óreiðu. \nEinn af hreyfanlegu þáttum verksins eru málaðir rammar sem gestir geta snúið um miðjuás\, ramminn birtist því sem sem eitthvað sem áhorfendur hafa val um að setja mark sitt á. Með því er sett spurningamerki við að hvaða leyti rammar gegna stýrandi hlutverki í fagurfræðilegri upplifun almennt. Í stað þess að vera stýrandi þáttur verður ramminn hér hluti af margbreytilegri upplifun áhorfenda. \nAnnar hreyfanlegur þáttur eru fjölmargar rauðar kúlur á gólfi rýmisins en sterk nærvera þeirra flöktir á milli tvívíðra eiginleika málverks og þrívíðra eiginleika innsetningar. Rauðu kúlurnar gætu táknað einhverskonar hnapp\, þar sem tilfærsla þeirra frá einum stað til annars gæti hrint af stað röð óvæntra breytinga sem sýningargestir vita ekki fyrirfram hvert leiðir. Þessar kringlóttu rauðu kúlur gætu jafnframt staðið fyrir alla heimsins hnetti og kúlur\, svo ekki sé minnst á merkingar á kortum þar sem rauð doppa táknar hvar maður er staddur. \nInnan um alla þessa hreyfanlegu þætti verða málverkin á veggjunum\, í einlitum pastellit\, að einhvers konar fasta; þeim óbifanlega þætti sem allt annað hverfist um\, þar á meðal áhorfendur. Á sama hátt lítur listamaðurinn á málverkið sem fastann í hennar eigin sköpunarferli\, grunninn þaðan sem allar hennar tilraunir spretta. \nMyndbygging verksins breytist þegar áhofendur færa til hluti eftir margvíslegum og óendanlegum möguleikum. Þannig er Þú ert kveikjan malerískt verk en á hátt sem snýr upp á gamalgróna hugmynd um ósnertanleika og viðkvæmni málverksins. Gagnvirkni og stundum bein þátttaka hefur orðið áberandi þáttur í nýlegum verkum Ingunnar Fjólu. Fyrir henni er virkjun skynjunarinnar hluti af þessari þátttöku sem hún hefur enga beina stjórn á. \nÍ verkinu rennur gagnvirkni og fagurfræði saman á hátt sem vekur mann til umhugsunar um orsök og afleiðingu og þau áhrif sem fyrirbæri hafa á önnur fyrirbæri. Með því að bera kerfi og stærð verksins við stærð líkamans og fagurfræðilega upplifun okkar af verkinu\, erum við vakin til umhugsunar um þau fjölmörgu kerfi heimsins sem á stærri skala stýra allri tilveru okkar. \nÁ tímum þegar ómögulegt er að sjá fyrir sér heim sem ekki er miðlað um gagnvirkt kerfi\, vísar endurtekin uppröðun verksins í samspil óreiðu og skipulags í heimunum og þeirra kerfa sem sköpuð eru til að samþætta þessi andstæðu öfl. Endurstilling sýningarinnar ítrekar einnig hugmyndina um list sem samþættingarafl milli listhlutar og áhorfanda. \nLíkt og í tilraunalist í upphafi tuttugustu aldar\, er hér að finna tilhneigingu til að koma listinni á hreyfingu auk hugmyndafræðilegrar nálgunar við að kalla fram samspil við áhorfendur. Margræðni tímans í verkum Ingunnar Fjólu sameinar fortíð\, nútíð og framtíð í upplausn línulegs tíma og kallar þannig fram viðstöðulausa upplifun þar sem áhorfendur taka þátt í að skapa stöðugar breytingar. \nÞú ert kveikjan felur í sér tímatengda skynjun fortíðar og framtíðar\, líkt og saga málverksins heilsi framtíð málverksins\, sem sameinast í gegnum skynjun áhorfenda. Návist núsins undirstrikast af þeim eiginleikum verka Ingunnar Fjólu að bregða á leik með áhorfandanum. Verkin endurskapast samtímis og þau koma fyrir sjónir áhorfenda í gegnum gagnvirkni og samspili við rýmið. Verk Ingunnar Fjólu teygja svið málverksins inn í opið kerfi þar sem verkin lifna við fyrir tilstilli áhorfenda og rýmisins. Þú ert kveikjan sem hrindir möguleikum verksins af stað. \nIngunn Fjóla Ingþórsdóttir (1976) útskrifaðist með MA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2017 og BA gráðu í myndlist frá sömu stofnun árið 2007. Hún er einnig með BA gráðu í listfræði frá háskólanum í Árósum frá 2002. Ingunn Fjóla vinnur aðallega með málverkið og innsetningar. Í listsköpun sinni styðst hún gjarnan við sögu naumhyggjunnar og abstrakt- málverksins. Hún beitir gagnvirkum þáttum og beinni þátttöku og teygir þannig svið málverksins inn í opið kerfi þar sem verkið lifnar við fyrir tilstilli áhorfenda og rýmisins. Verk Ingunnar hafa verið sýnd víða í galleríum og söfnum á Íslandi\, þar á meðal Listasafni Íslands\, Listasafni Reykjavíkur og í Hafnarborg. Ingunn hefur einnig tekið þátt í sýningum erlendis\, má þá m.a. nefna tvíæringinn Prag 5 í Tékklandi\, Cluj safnið í Rúmeníu og Kunstverein Springhornhof í Þýskalandi. Nýlegar einkasýningar eru [not equal to] / [ekki jafnt og] (Multis\, Reykjavík\, 2021)\, Chaos Theory / Óreiðukenningin (Norr11 / Listval\, Reykjavík\, 2021)\, og Image\, afterimage / Mynd\, eftirmynd (Kompan- Alþýðuhúsið\, Siglufjörður\, 2020). \nSýningarstjórar: Erin Honeycutt \nErin Honeycutt (1989) er rithöfundur\, bóksali og sýningarstjóri sem býr og starfar í Berlín. Hún er með MA-gráðu í listfræði frá Háskóla Íslands auk MA-gráðu í trúarbragðafræðum frá Universiteit van Amsterdam. Hún skrifar ljóð\, sýningarrýni og margvíslegan texta í samvinnu við listamenn. Erin var tilnefnd til Broken Dimanche Press verðlaunanna fyrir skrif um list og textar hennar hafa meðal annars verið birtir í SAND Journal\, BARAKUNAN og Neptún Magazin.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/ingunn-fjola-ingthorsdottir-in-you-are-the-input/
LOCATION:LÁ Art Museum\, Austurmörk 21\, Hveragerði\, 810\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/01/ingunn-fjola.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR