BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230701
DTEND;VALUE=DATE:20230901
DTSTAMP:20260530T181833
CREATED:20230703T150140Z
LAST-MODIFIED:20230809T132446Z
UID:32012-1688169600-1693526399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Emma Heiðarsdóttir: Opin endalok
DESCRIPTION:Allt fer í hringi. Það hvar eitt byrjar og annað endar\, fer eftir því hvaðan er horft og hvernig er horft.\nEndalok eins eru upphaf annars. Lokun er opnun\, opnun er lokun. Form rís úr formleysi\, formleysi úr formi. Líf umbreytist í dauða\, dauði í nýtt líf.\nTilveran er hringrás drifin mótsögnum. Lífið sem heild þrífst fyrir tilstilli þess staka og líf einstaklinga er bundið þeim fjölbreytileika sem heildin samanstendur af.\nVið erum aðskilin og við erum sameinuð. Deilum ekki hugsunum og skynjunum. Deilum ekki augum\, útlimum eða nöflum. Erum afmarkaðar verur með skýrar útlínur. En með auknu útsýni\, byrja mörk formanna að fuðra upp.\nÁ breiðum tímaskala erum við ekki stakir punktar. Við erum lína sem flæðir áfram hring eftir hring. Ein framhaldssaga\, ofin úr sama þræðinum\, sama erfðaefninu\, sem hefur spunnist í gegnum aldirnar.\nVið erum aðskilin og við erum sameinuð. Sambærileikinn í bland við fjarlægðina\, það sem opnar fyrir samlíðan. Sár annarra\, líkamleg eða andleg\, fær um að vekja líkamlega ónotakennd hjá okkur sjálfum. Þegar við setjum okkur í þeirra spor\, nemum þeirra sprungur og holur.\nVið deilum formlausum kjarna\, þótt við deilum ekki formum. Erum það sama margfaldað\, í ólíkum útgáfum.\nSagan sem blundar í erfðaefni okkar er að hluta til liðin og að hluta til í verðandi. Við erum komin af öðrum eins og aðrir geta komið af okkur. Punktarnir dreifa úr sér\, línurnar lengjast\, hringurinn stækkar.\nÞað eldra lifir í því yngra\, það liðna í því líðandi\, það formlausa í því formaða.\nÞegar barn dregur fyrsta andardráttinn utan við líkama móður sinnar\, er það enn samvaxið henni\, eins og ávöxtur á tré. Naflinn\, hringurinn í miðju líkamans\, er minnisvarði um uppruna\, um strenginn milli barns og móður\, um strenginn milli kynslóða\, um hringrásina sem flæðir í gegnum formin.\nLífið rúmast ekki í ferhyrningi. Allt fer í hringi. Það hvar eitt byrjar og annað endar\, fer eftir sjónarhorninu\, eftir því hvaðan er horft og hvernig er horft.\nÞað má halda sig innan kassans sem maður þekkir\, í innrammaðri tilveru. Eða feta sig nær jöðrunum. Staðsetja skynjunina á nýjum stað\, utan við mörk þess kunnuglega. Opna fyrir formleysi og mótsagnir\, fyrir óútreiknanlegri sýn – en um leið aukna hreyfigetu og heilli sjóndeildarhring.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/emma-heidarsdottir-opin-endalok/
LOCATION:Y Gallery\, Hambraborg 12\, Kópavogur\, 200\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/07/347399083_571834028477320_5906499536735699099_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220609
DTEND;VALUE=DATE:20220912
DTSTAMP:20260530T181833
CREATED:20220602T124050Z
LAST-MODIFIED:20220915T164452Z
UID:23551-1654732800-1662940799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hjólið V: Allt í góðu
DESCRIPTION:mynd: Emma Heiðarsdóttir\n  \nOpnun 9. júní\, kl. 17:00 í Norræna húsinu. \nÁ Listahátíð munu útilistaverk eftir átta listamenn af ólíkum toga dúkka upp í nokkrum hverfum borgarinnar. Hjólið er röð fimm útisýninga á vegum Myndhöggvarafélagsins í Reykjavík sem hafa verið haldnar víðsvegar um borgina frá sumrinu 2018 í tilefni hálfrar aldar afmælis félagsins. Fyrsta sýningin var á dagskrá Listahátíðar 2018 og nú verður hringnum lokað með þeirri fimmtu. Í þetta sinn mun Hjólið þræða sig um hverfi 101\, 102 og 107 og mun listafólkið varpa nýju ljósi á hversdagslegt umhverfi okkar. Verkin eru fjölbreytt og opna á margþætta skoðun á bæði svæði og sögu og rýna um leið í flóknari félags- og samfélagslega lagskiptingu borgarlandslagsins. \nHjólið V er hrífandi tækifæri til þess að upplifa hið kunnuglega á nýjan hátt\, kynnast verkum einkar fjölbreytts hóps listafólks og velta fyrir sér tíma og rými borgarinnar\, hvenær sem er og á eigin forsendum. \nListafólk: Emma Heiðarsdóttir\, Finnur Arnar Arnarson\, Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar\, Ragnheiður Gestsdóttir\, Sean Patrick O’Brien\, Steinunn Gunnlaugsdóttir\, Ulrika Sparre & Wiola Ujazdowska.\nSýningarstjórn: Kristín Dagmar Jóhannesdóttir\nSýningarnefnd Myndhöggvarafélagsins: Eygló Harðardóttir\, Haraldur Jónsson\, Una Björg Magnúsdóttir\, Örn Alexander Ámundason\nSamstarfsaðilar: Reykjavíkurborg\, Norræna húsið í Reykjavík\, Myndlistarsjóður
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/the-wheel-v-all-is-well/
LOCATION:City of Reykjavík\, Reykjavík\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/06/358ee12c-2c05-4869-a5e7-03ced1e118c5_hjolid-landscape.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR