BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230610
DTEND;VALUE=DATE:20230904
DTSTAMP:20260530T052639
CREATED:20230608T142740Z
LAST-MODIFIED:20230908T125355Z
UID:31562-1686355200-1693785599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Elísabet Brynhildardóttir: Hikandi lína
DESCRIPTION:Teikningin er fyrsta sjónræna viðbragð okkar við heiminum löngu áður en við lærum að skrifa og virkar sem einskonar vörpun ímyndunarafls og hugsanna í efni. Fáir miðlar myndlistarinnar komast eins nálægt hrárri sýn listamannsins eins og teikningin\, hún er beintenging við hugsunina og varpar jafnframt ljósi á afar náið samband manns og verkfæris. Á sýningunni skoðar Elísabet tímann\, tilfinninguna og skynjunina að baki teikningarinnar og þeirri aðgerð að teikna. Eða eins og listamaðurinn Richard Serra sagði eitt sinn: „Þú býrð ekki til teikningu – þú teiknar.“ \nElísabet Brynhildardóttir (f.1983) hefur tekið þátt í fjölbreyttum sýningum og öðru myndlistartengdu starfi og hafa verk hennar meðal annars verið sýnd í Kling & Bang\, i8 Gallery\, Listasafni Akureyrar\, Verksmiðjunni á Hjalteyri\, Nýlistarsafninu ásamt fleiri stöðum. Elísabet vinnur í fjölbreytta miðla þó teikning og skúlptúr séu þar mest áberandi. Í verkum sínum skoðar hún samband okkar við efnisheiminn og þolmörk þess\, ásamt því að velta fyrir sér hugmyndum okkar um hverfulleika og tíma.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/elisabet-brynhildardottir-hikandi-lina/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/06/Elisabet-Brynhildardottir.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210911
DTEND;VALUE=DATE:20211017
DTSTAMP:20260530T052639
CREATED:20210913T100020Z
LAST-MODIFIED:20220916T110840Z
UID:19060-1631318400-1634428799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Elísabet Brynhildardóttir: Elsti neistinn
DESCRIPTION:Verið velkomin á sýningu Elísabetar Brynhildardóttur í Y gallery. \nVerkin á sýningunni eru öll undir áhrifum rýmisins\, sprengikraftsins sem kúrir undir okkur og dagsbirtunnar sem rétt svo kemst inn. Standandi á þrútnum eldsneytistönkum er fátt annað hægt að hugsa um en orku\, sprengikraft og gegndarlausa þenslu. Sköpunin er tifandi tímasprengja\, eitthvað springur og um tíma er stór og mikil þoka af óformuðum hugmyndum sem hvergi eiga heima og geta tekið á sig ótal myndir. Stundum örsmá\, stundum hæg\, stundum leiftursnögg\, stundum ljót\, stundum óumbeðin og svo samtvinnuð líkamanum að kveikja þarf í henni til að hún hverfi. \nAugnablik sköpunnar gengur þvert á tíma og rúm og er áframhald elsta neistans sem heldur áfram að þenjast. \nHann er enn sýnilegur í sjónvarpssnjó túbusjónvarps\, en í einu prósenti þeirrar yrjóttu myndar má sjá ljóslifandi bakgrunnsgeislun miklahvells\, neistans sem skapaði allt. \nKærar þakkir fá Róbert Gíslason\, Brynhildur Flóvenz\, Daníel Friðriksson\, Árni Friðriksson\, Ísleifur Friðriksson\, Haukur Óskarsson og Siglingafélagið Ýmir.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/elisabet-brynhildardottir-elsti-neistinn/
LOCATION:Y Gallery\, Hamraborg 12\, Kópavogur\, 200\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/09/oldest-spark.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR