BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20230101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230810
DTEND;VALUE=DATE:20230902
DTSTAMP:20260530T085617
CREATED:20230807T161117Z
LAST-MODIFIED:20230807T161117Z
UID:32152-1691625600-1693612799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Elín Elísabet Einarsdóttir: Ef þú horfir nógu lengi
DESCRIPTION:Ég var beðin um að mála mynd af álfadrottningunni í Álfaborginni. Ég er búin að vera að hugsa um það í tvö ár. Ég er vön að mála það sem ég sé – horfa stíft og mála svo. Ég hef aldrei séð álfkonuna.\nEf ég horfi nógu lengi hlýt ég að sjá hana. Ef ég sit í Álfaborginni og horfi nógu stíft\, þá seytlar kannski eitthvað af henni inn í málverkin.\nÆtli það sé ekki það sem ég er búin að vera að gera öll þessi ár sem ég hef vanið komur mínar á Borgarfjörð: horfa aðeins lengur og reyna að sjá hvað það er sem dregur mig hingað trekk í trekk.\nEf ég horfi nógu lengi sé ég hana kannski\, eða held áfram að horfa út í hið óendanlega án þess að sjá hana nokkurn tímann. Hvort tveggja álitlegir kostir. Ég hef verið að horfa í 12 ár og er enn að sjá eitthvað nýtt: í andlitum fólks\, í frásögnum þess\, örnefnunum\, vindáttinni\, fuglunum. Í Álfaborginni.\n\nElín Elísabet (1992) er myndlistarmaður og teiknari. Hún ólst upp í Borgarnesi en kom fyrst á Borgarfjörð eystri árið 2011 og hefur ekki getað hætt því síðan. Hún gaf út teiknuðu myndabókina Onyfir um Borgarfjörð árið 2016 og hélt í kjölfarið sýningu í Fjarðarborg. Elín stóð ásamt Rán Flygenring fyrir lundaveldi í nafni Nýlundabúðarinnar í Borgarfjarðarhöfn sumrin 2020-21.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/elin-elisabet-einarsdottir-ef-thu-horfir-nogu-lengi/
LOCATION:Gletta\, Hafnarhús\, Borgarfirði Eystri\, Borgarfirði Eystri\, Iceland
END:VEVENT
END:VCALENDAR