BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230114
DTEND;VALUE=DATE:20230220
DTSTAMP:20260530T061242
CREATED:20230112T112622Z
LAST-MODIFIED:20230112T112622Z
UID:28671-1673654400-1676851199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Eiríkur Smith
DESCRIPTION:Á sjötta áratug síðustu aldar voru miklir umbrotatímar í íslenskri myndlist. Geómetríska abstraktlistin var að nema land og hingað bárust sterkir straumar nýjunga. Eiríkur Smith\, myndlistarmaður\, var við nám í Kaupmannahöfn og París og var virkur þátttakandi í þeirri formbyltingu sem þá átti sér stað. Hann kom heim árið 1951 og í kjölfarið hélt hann einkasýningu í á óhlutbundnum verkum í Listamannaskálanum við Austurvöll\, auk þess að taka þátt í tímamótasýningu í Listamannaskálanum árið 1953. \nMálverk\, blek- og gvassmyndir Eiríks frá þessum árum bera með sér rökhugsun og góð tök á þeirri einföldun myndmálsins sem strangflatahugsunin krafðist\, án þess að fylgja fyrir fram gefnum reglum í blindni. Árið 1957 gerði Eiríkur svo endanlega upp hug sinn gagnvart strangflatalistinni og brenndi hluta þeirra verka sinna\, ásamt eldri verkum\, í malargryfju í Hafnarfirði. Verk eftir Eirík frá þessum tíma eru því vandfundin en þau sem til eru bera þess merki að Eiríkur hafði góð tök á myndgerð strangflatalistarinnar\, þó að hann kysi sjálfur að fara aðra leið síðar. Á sýningunni Án titils mjá sjá mörg áður ósýnd gvassverk\, auk verka úr safneign Hafnarborgar\, frá þessu knappa en frjóa tímabili á ferli listamannsins. \nEiríkur Smith var fæddur í Hafnarfirði árið 1925 og lést í heimabænum árið 2016. Eiríkur stundaði nám við Málara- og teikniskóla Finns Jónssonar og Jóhanns Briem veturinn 1939-1940 og við Handíða- og myndlistarskólann árin 1946-1948. Því næst hélt hann til Kaupmannahafnar í nám og árið 1951 hélt hann til Parísar\, þar sem hann nam myndlist við Académie de la Grande Chaumiére. Hann hélt fjölda einkasýninga\, auk þess að taka þátt í samsýningum víða um heim á löngum ferli sínum. Verk eftir Eirík er að finna í söfnum víðs vegar\, svo sem í safneign Listasafns Íslands\, Gerðarsafns og Listasafns Reykjavíkur en auk þess varðveitir Hafnarborg um 400 verk eftir listamanninn.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/eirikur-smith/
LOCATION:Hafnarborg Center of Culture and Fine Art\, Strandgata 34\, Hafnarfjörður\, 220\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/01/Hafnarborg-2022-Eirikur-Smith-slideshow.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221008
DTEND;VALUE=DATE:20230123
DTSTAMP:20260530T061242
CREATED:20221010T094114Z
LAST-MODIFIED:20230124T102622Z
UID:26846-1665187200-1674431999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Geometry
DESCRIPTION:Geómetría spratt úr tilraunamennsku og framsæknum hugmyndum um eðli og möguleika listarinnar. Hreyfingin kom sem loftsteinn inn í íslenskt menningarlíf í upphafi sjötta áratugarins og olli straumhvörfum í listalífi þjóðarinnar. Hreyfingin var andsvar við ríkjandi fagurfræði þar sem leitast var við að finna nýjar leiðir til sköpunar og tjáningar. Geómetrían var ekki einangruð myndlistarstefna heldur nýtt viðmót\, túlkun og tjáning á samtímanum þar sem myndlistin flæddi út fyrir rammann\, samruni listgreina var mögulegur og borgin var vettvangur menningar.\n\nListamenn sýningarinnar eru Ásgerður Búadóttir\, Ásmundur Sveinsson\, Benedikt Gunnarsson\, Eiríkur Smith\, Eyborg Guðmundsdóttir\, Gerður Helgadóttir\, Guðmunda Andrésdóttir\, Guðmundur Benediktsson\, Hafsteinn Austmann\, Hjörleifur Sigurðsson\, Hörður Ágústsson\, Karl Kvaran\, Kjartan Guðjónsson\, Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá\, Málfríður Konráðsdóttir\, Nína Tryggvadóttir\, Skarphéðinn Haraldsson\, Svavar Guðnason\, Sverrir Haraldsson\, Vala Enard Hafstað\, Valtýr Pétursson & Þorvaldur Skúlason.\n\nSýningarstjórar: Brynja Sveinsdóttir & Cecilie Gaihede.\nSýningarhönnun: Hreinn Bernharðsson & Studio Studio.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/geometry-2/
LOCATION:Gerðarsafn Kópavogur Art Museum\, Hamraborg 4\, Kópavogur\, 200\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/10/geometria.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR