BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220115
DTEND;VALUE=DATE:20220227
DTSTAMP:20260530T154246
CREATED:20220103T111653Z
LAST-MODIFIED:20221005T124042Z
UID:20905-1642204800-1645919999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Einar Falur Ingólfsson: Um tíma – Dagbók tuttugu mánaða
DESCRIPTION:Haustið 2018 hóf Einar Falur skrásetningu sjónrænnar dagbókar sem hann hugðist þá ljúka á 18 mánuðum. En þegar hillti undir enda verksins þá skall á heimsfaraldur Covid-19 veirunnar og heimurinn breyttist. Ljósmyndarinn teygði þá dagbókina upp í 20 mánuði\, þar sem faraldurinn hafði áhrif á fjölskyldu hans\, eins og alla aðra\, og varð mikilvægur þáttur dagbókarinnar.buy nolvadex online https://blackmenheal.org/wp-content/languages/new/mg/nolvadex.html no prescription\n \nÍ þessari sjónrænu dagbók veltir Einar Falur fyrir sér lífi sínu og bakgrunni í samfélagi sem er ungt\, fámennt og einsleitt\, menningarlega og félagslega\, og ber það á huglægan hátt saman við nokkra gamla og mikilvæga menningarkjarna sem um aldir mótuðu vestrænt samfélag\, þar á meðal það íslenska. Hann kaus að starfa í Varanasi\, elstu og helgustu borg Indlands þar sem hvarvetna má sjá og skynja þykk lög tímans; í Rómarborg á Ítalíu\, þar sem evrópsk menning miðalda var á margan hátt mótuð\, þar á meðal vestræn myndlist; og í Egyptalandi\, þar sem enn fleiri menningarlegar rætur samtímans má finna\, með endalausum tímalögum. \nVerkið var skrásett með nokkuð hlutlægum hætti á stórformats myndavél en er hlaðið margskonar huglægum tengingum og persónulegri merkingu. Á ferðum sínum\, jafnt um heimaland sitt sem í hinum löndunum þremur\, leitaði Einar Falur markvisst í verk margra annarra listamanna\, á í samtali við og vísar jafnvel í þau. Í Róm vann hann til að mynda markvisst út frá verkum málarans Caravaggios (1571-1610) og ljósmyndaranna Roberts Turnbull Macpherson (1814-1872) and Joels Sternfeld (b. 1944). \nSamhliða því að mynda sjónrænu dagbókina setti Einar Falur saman og gaf hana út jafnt og þétt í 14 tölusettum bókverkum í litlu upplagi. Kjarni þeirra kemur saman í bókinni Um tíma – Dagbók tuttugu mánaða (About Time – Diary of Twenty Months) sem kemur í janúar 2022\, samtímis því að fyrsta sýningin á verkefninu verður opnuð í BERG Contemporary í Reykjavík. \nÞess má geta að þetta er önnur sjónræn dagbók tuttugu mánaða sem Einar Falur gerir á sínum ferli en árið 1994 sýndi hann í Artland í New York Diary of Twenty Months 1992-1994 en sýningin og stórt samnefnt bókverk var lokaverkefni hans í MFA-námi við School of Visual Arts þar í borg.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/einar-falur-ingolfsson-about-time-diary-of-twenty-months/
LOCATION:BERG Contemporary\, Klapparstígur 16\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/01/einar_falur_about_time_1-720x900-1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR